Þjóðviljinn - 07.07.1989, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 07.07.1989, Blaðsíða 10
 Útboð Snjómokstur á Hólmavíkurvegi 1989-1991 %'S/M W Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboðum í snjómokstur ~ meö vörubíl á Hólmavíkun/egi árin 1989 til 1991. Um er aö ræða kaflann frá Hólmavík aö Guðlaugsvík. Lengd alls 72,3 km. Útboðsgögn veröa afhent hjá Vegagerð ríkisins á (sa- firöi, Hólmavík og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og meö 10. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 24. júlí 1989. Vegamálastjóri Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboöum í uppsetningu og tengingu rafbúnaöar á Nesja- völlum. Verkiö felst í: útdrætti og tengingu strengja, uppsetningu strengstiga, háspennu-, lágspennu- og smáspennuskápa, tækja og búnaöar í skápa, tækja og kerfa og útihá- spennubúnaðar. Vettvangsskoðun á Nesja- völlum fimmtudaginn 13. júlí n.k. kl. 14. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skila- tryggingu. Tilboöin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 25. júlí 1989 kl. 14. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVlKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 REYKJMIÍKURBORg ff| Aauéan- Stödcvi 'I ' Þjónustuíbúðir aldraðra Dalbraut 27 Starfsmaður óskast í 50% starf í þvottahúsi. Einnig óskast starfsmaöur í 75% starf í eldhúsi. Þurfa aö geta byrjaö strax. Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 685377 milli kl. 10 og 14 virka daga. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Ólafur Alþýðubandalagið á Seltjarnarnesi Fundur með fjármálaráðherra Alþýöubandalagið á Seltjarnarnesi heldur félags- fund í sal Tónlistarskólans á Seltjarnarnesi mánu- daginn 10. júlí klukkan 20,30. Ólafur Ragnar Gríms- son fjármálaráðherra kemur á fundinn og situr fyrir svörum. Stjórnin Þingmúli í Skriðdal einn af áningarstöðum í ferðinni. Sumarferð Alþýðubandalagsins á Austurlandi: Um söguslóðir á Fljótsdalshéraði laugardaginn 8. júlí 1989. Farið verður í rútum kl. 9 frá Söluskála KHB á Egilsstöðum og ekið um Skriðdal, Fljótsdal, Fell, Hróarstungu og austur yfir hjá Lagarfossi til baka í Egilsstaði kl. 19. - Bílferðir verða skipulagðar frá fjörðunum eftir þátttöku. Staldrað verður við á völdum sögustöðum, skoðaðar fornminjar á gömlum þingstöðum, kirkjur og bæir og fræðst um umhverfið, m.a. væntanleg skógræktarsvæði á Héraði. Meðal leiðsögumanna verða Guðrún Kristlnsdóttlr minjavörður, Helgl Hallgrímsson náttúrufræðingur, Jón Loftsson skógarvörður, Páll Páls- son fræðimaður frá Aðalbóli og Skarphéðinn Þórlsson líffræðingur. Far- arstjóri: Hjörleifur Guttormsson. Tllkynnlð þátttöku sem fyrst til Ferðamiðstöðvar Austurlands, Egils- stöðum, sími (97)1 20 00. Öllum heimil þátttaka. - Alþýðubandalagið - kjördæmlsráð. Að gera sjálfan sig spennandi í síðustu viku ræddi ég um það að muna eftir sjálfum sér. Titill greinarinnar í dag höfðar til svip- aðra hluta, því sá sem man eftir sjálfum sér gerir sjálfan sig spennandi í augum makans, en sá sem ekki man eftir sjálfum sér gerir sjálfan sig óspennandi fyrir makanum. Þá er þetta einnig mjög tengt því, sem ég ræddi um í fyrstu greinum mínum og nefndi sjálfsvirðingu. Sá, sem ekki hefur mikla sjálfsvirðingu, gerir sig óspennandi með tímanum. Það er e.t. v. djúpt í árinni tekið að fullyrða að þessir einstak- lingar geri sjálfa sig óspennandi, en það sem ég á við er að makinn fær smám saman á tilfinninguna að viðkomandi hafi enga sjálf- stæða skoðun eða löngun, sé al- gerlega háður skoðun og löngun makans og ekki hvað síst háður samvistum við makann. Makinn upplifir jafnvel að hann sé enn eitt af börnum hans. Og makinn upplifir að hann þekki viðkom- andi út og inn, þar sem aldrei neitt óvænt og spennandi kemur frá honum. Það sem hann gerir óvænt, er jafnvel eftir föstum reglum. Makinn upplifir sjálfan sig því stöðugt sterkari aðilann, þann sem þarf að koma með spennu í tilveruna, þann sem ræður öllu og þann sem leitað er til. Hann hefur því engan til að leita til, og veit alltaf hvað gerist næst í sambandinu. Dæmisaga Hugsum okkur unga konu (eða mann), sem hefur samband við mann. Til að byrja með búa þau ekki saman, en hún tekur sam- bandið svo alvarlega að hún hættir að fara í heimsóknir til vin- kvenna, hættir að fara í sund og leikfimi og ljós, hættir að kíkja í búðir eftir vinnu og hættir öðru því, sem hún hefur gert til að krydda tilveru sína. Fyrstu dag- ana er þetta vegna þess að unga parið hefur nóg að gera saman, en síðan fer þetta að verða vegna þess að hann gæti jú hringt eða komið á meðan hún væri að gera eitthvað annað. Hún fer því beint heim eftir vinnu og bíður þar. Því lengra sem dregst að hann hafi samband, því órólegri verður hún og kemur engu í verk. Að lokum hringir hún sjálf. „Bara til að vita hvernig þú hefur það.“ „Og að ég sakna þín.“ Hér er um fyrstu merki þess að ræða, að konan fari að gera sig háða manninum. Hún situr og bíður eftir að hann hafi samband. Þar sem hún upplifir sambands- leysi frá honum sem merki um að hún sé ekki nógu spennandi,'fer hún að gera sig spennandi með því að vera ástleitin og um- hyggjusöm á undirgefinn hátt. Hún lýsir einnig óöryggi sínu um gagnkvæma ást. Oft getur þetta kitlað í byrjun sambands, en verður síðan þrúgandi fyrir mak- ann er fram líða stundir. Hann heldur áfram að sinna sjálfum sér og sínum áhugamálum, en fær svo að heyra ásökunina að „ég reyndi að hringja í þig í allt gær- kvöld“. Hann fær að heyra að á meðan hann er úti að stunda sitt sund eða golf eða hvað það nú er, situr hún og bíður eftir að hann hafi samband. Hann fær svolitla sektarkennd og stingur upp á því að þau geri eithvað saman. Hún tekur þetta sem merki um að henni sé að takast að gera sig spennandi aftur. Þ.e. hún upplifir það að gera sig undirgefna sem leiðina að hjarta mannsins. Hún heldur því áfram á þeirri braut. Þegar hann spyr hana hvað hún vilji gera segir hún að sér sé alveg sama, bara ef þau geri það sam- an. Hér kemur nefnilega inn ótt- inn um að hún stingi ekki upp á einhverju sem hann myndi vilja. Hún má ekki gera sig aftur ósp- ennandi með því að stinga upp á einhverju sem honum finnst ekk- ert varið í. Auk þess gerir lítil sjálfsvirðing það að verkum, að höfnun hans á uppástungu frá henni, upplifir hún sem höfnun hans á henni sjálfri og það vill hún ekki orsaka. Þannig leiðir hvað af öðru og hennar leið verð- ur stöðugt sú að reyna að lesa hug hans um hvað hann vill. Smám saman lærir hún á hann og veit hvað hann vill og getur stungið upp á þeim hlutum. Að gefa hon- um gjafir verður henni pína, því hún leitar endalaust að því, sem hann myndi vilja fá sem gjöf, en spyr sig aldrei að því hvað hún myndi vilja gefa honum. Ef hon- um líkaði ekki gjöfin væri hann jú að hafna henni. Hún hefði ekki staðið sig í því að vera til fyrir hann. Aðferð þessarar konu við að gera sig spennandi er misskiln- ingur frá upphafi. í stað þess að gera sig spennandi fyrir honum, hefur hún gert sig óspennandi. Hann veit alltaf hvar hann hefur hana og upplifir hana óörugga og í þörf fyrir verndun og til hennar geti hann ekki leitað með sfn vandamál og hugðarefni. í stað húrt getur einnig staðið hann og öfugt. Karlar geta nefni- lega einnig „Elskað of mikið“. FJÖLSKYLDAN SIGTRYGGUR JÓNSSON 10 SfÐA - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 7. júlí 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.