Þjóðviljinn - 09.03.1990, Blaðsíða 21

Þjóðviljinn - 09.03.1990, Blaðsíða 21
Sigurjón Jóhannesson: Glorious, eða Dýrðleg öld (1969). Myndir - Jim Smart - Sýningin er hugmynd Maa- rettu Jaukkuri, sem var sýninga- stjóri Norrænu listamiðstöðvar- innar á Sveaborg. Hún átti líka hugmyndina að sýningunni Nor- ræn konkretlist, farandsýning- unni sem var hér í Listasafninu í sumar og það má segja að þessi sýning sé beint framhald hennar; hún náði einmitt fram til um 1960. Maaretta bað einn list- fræðing frá hverju Norðurland- anna að velja verk og skrifa kafla í sýningarskrá, en auk þess gerð- um við sögulegt yfirlit, sem við birtum í skránni. Það nær yfir menningu, stjórnmál og myndlist á Norðurlöndum á sjöunda árat- ugnum og er gert til að setja það sem gerðist í myndlistinni í víðara samhengi. - Þegar á fyrsta fundi okkar sem völdum verkin, eða í apríl 1988, kom í ljós að það var mjög erfitt að gera samnorræna sýn- ingu með einhverjum heildar- svip, því svo ólíkir hlutir voru að gerast á Norðurlöndunum á þess- um árum. En þessi munur gerði líka að verkum að það var mjög spennandi að koma þessari sýn- ingu saman. - Við fyrstu sýn fannst mér Danmörk og ísland eiga meira sameiginlegt en hin löndin, þar ríkti meira stjórnleysi í listum og meiri framúrstefna en í nágrann- alöndunum. Finnarnir voru meira á fagurfræðilegri línu, enn- þá að vinna úr hugmyndum frá sjötta áratugnum, en Svíarnir voru hins vegar mikið að fást við sósíalrealismann. En það kom reyndar smám saman í ljós að þó þetta virtist vera það sem væri ríkjandi í list þessara landa var þar mun meiri fjölbreytni þegar betur var að gáð. - Við gáfum okkur ákveðnar línur, sem við völdum svo eftir, en okkur var mikill vandi á hönd- um því löndin eru það mörg að við gátum ekki valið nema fá verk frá hverju landi. Ég fór þá leið að ég valdi verkin áður en ég valdi listamennina og reyndi þá að velja þau verk sem mér fannst hafa markað þetta tímabil á ís- landi. - Ég miðaði Iíka við það sem var að gerast erlendis á sama tíma, því þó mikið sé talað um að ísland sé sér á parti erum við þó hluti af ákveðnu menningarsvæði og hljótum að skoða okkar list í samhengi við það sem er að ger- ast í kringum okkur. Eins vildi ég velja verk, sem ekki eru bundin þeim tíma sem þau komu fram á og ég held að muni koma til með að standa fyrir sínu eftir þrjátíu til fjörutíu ár. - Það má sjálfsagt deila um hvernig valið hefur tekist, en mér var mikill vandi á höndum bæði vegna þess hvað ég mátti velja fá verk og eins vegna þess að mikið af þeim verkum, sem mesta at- hygli vöktu á þessum árum eru týpd eða eyðilögð. Það var al- gerigt að menn gerðu verk, sem ekki áttu að vara og notuðu því forgengileg efni eins og súrmjólk eða ost eins og Dieter Roth gerði. Mér tókst ekki að fá neitt af þeim verkum sem ég valdi eftir hann, þau eru eign safna í Þýskalandi og þau þorðu hreinlega ekki að lána þau vegna þess hvað þau eru brothætt og illa farin. Það varð því úr að þau verk sem Nýlista- safnið á eftir hann urðu fyrir val- inu. - Verkin á sýninguna eru líka valin áður en SÚM-sýningin var haldin hér, mitt val væri ef til vill annað hefði ég vitað af henni. En þó þau verk sem eru á sýningunni fyrir íslands hönd hafi kannski oft verið sýnd hér á landi hafa þau ekki verið sýnd á hinum Norður- löndunum og það verður að hafa í huga að hér er um samnorræna sýningu að ræða. - A sýninguna hér vantar eitthvað á milli þrjátíu og fjörutíu af þeim verkum, sem upphaflega urðu fyrir valinu. Það var einfald- lega ekki hægt að koma þeim fyrir í Listasafninu. En það var ekki hægt að setja þessa sýningu saman með aðeins einn sýningar- stað í huga, hún á að fara svo víða. íslensku verkin eru þó öll með á sýningunni hér nema eitt stórt verk eftir Erró. LG Baldvin Hálldórsson og Gunnar Eyjólfsson íTilbrigöi við önd. Þjóðleikhúsið: STEFNUMÓT 4 Höfundar: Michel de Ghelderode, Harold Pinter, David Mamet, Peter Barnes og Eugene Ionesco. Leikstjórar: Hlín Agnarsdóttir (yfir- umsjón), Ingunn Ásdísardóttir, Sigr- íður Margrét Guðmundsdóttir, As- geir Sigurvaldason. Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson. Leikmynd og búningar: Gunnar Bjarnason Lýsing: Ásmundur Karlsson. í sýningunni sem ber yfirskrift- ina Stefnumót koma saman tvær skemmtilegar hugmyndir. Valdir eru saman einþáttungar sem með einum eða öðrum hætti tengjast við spurningar um „lífið í leikhús- inu - leikinn í lífinu“ - og með því að hver höfundur nálgast þessa hluti með sínum hætti fáum við fjölbreytni eða vissa sundurgerð innan þemarammans. í annan stað fara nokkrir frægustu leikara Þjóðleikhússins í fjóra áratugi með helstu hlutverkin og lúta þá stjórn ungra leikstjóra sem ekki hafa sett upp verk áður fyrir það hús. Einþáttungarnir eru vissulega misjafnir. Til dæmis hefur „Góð til að giftast" eftir stórfrægan nú- tímaklassíker, Eugene Ionesco, ekki staðist vel tímans tönn Hljómar eins og hikandi stílæfing fyrir absúrdismann - eins þótt vel sé að þættinum búið með hlá- legum leik-og-dansi Rúriks Har- aldssonar og Herdísar Þorvalds- dóttur. „Biðstöð" Pinters er eins og mínímalískur lagstúfur sem líður fljótt hjá í agnarlitlum ein- semdarharmleik konunnar (Her- dís) sem hefur orðið allan tím- ann. Þessi „mínímalismi" er þó ómaksins verður eins og betur sannast í öðrum örþætti eftir Pinter, „Það er nú það“ sem er um tvær kerlingar sem hafa hellt sálum sínum í tevatnið sem þær sötra af stakri samviskusemi: þessar kerlur léku þær Bríet Héð- insdóttir og Bryndís Pétursdóttir af góðu öryggi. Tveir eru þeir þættir sem ræki- legast tengjast við þema sýning- arinnar. Hinn fyrri er þáttur Ghelderode um leikarana þrjá sem ætla kannski að fara í alvöru með sinn ástaþríhyrning inn í vonlaust og forneskjulegt meló- Hver karl og kona aðeins leikarar drama.Hér er úr mörgum hnút- um að leysa þar sem sífellt er farið fram og aftur á milli lífs og leiks. Margt var laglegt í túlkun þessa þáttar - þó verður hann nú tekinn sem dæmi um það, að hér og þar í Stefnumótum brást ör- yggið, jafnvel kunnáttan, fyrir- gangur gat tekið ráðin af ná- kvæmninni. Betur tókst til í „Leikæfingu" Peter Barnes, þar sem lífið kemur inn í leikhúsið ÁRNI BERGMANN með aumlegri skrifstofublók (Arnar Jónsson) sem vill að leikarinn (Bessi Bjarnason) skili honum aftur konunni. Leikarinn bjargar sér úr þeirri klemmu með haglegri lygi sem hann leikur með prýði og líkast til betur en það hlutverk sem hann átti að æfa. Hér hefur áhorfandinn ekki upp á neitt að klaga svo heitið getur. En þá er enn ekki vikið að þeim pörtum sýningarinnar sem mestri upplifun valda: fer þar saman máttur textans, marksækin leikstýring og leikur sem í styrk og fágun gerir áhorfandann mun meira en sáttan við sinn hlut. Hér er átt við það sem þeir Baldvin Halldórsson og þá enn frekar Gunnar Eyjólfsson gerðu úr „Til- brigði við önd“ eftir David Ma- met, ísmeygilegum texta sem þó hefði verið hægur vandi að drepa ef leti manna hefði til þess staðið. Og í annan stað skal hér borið sérstakt lof á „Stað og stund“ eftir Peter Barnes, áleitinn þátt um stúlku (Anna Kristín Arng- rímsdóttir) sem leitar til læknis á sjálfsmorðingjavakt (Bríet Héð- insdóttir) til að fá - að því er hún segir - ráð til að koma sér sem tryggilegast úr þessum heimi. Þessi leikhúsgestur hérskal fús- lega viðurkenna það að hann elt- ist mest við orðið eftir að tjald lyftist. En hitt er víst, að músík og lýsing og leikmyndir - allt var þetta með geðfelldum blæ ein- Bríet Héðinsdóttirog Bryndís Pétursdóttir í Það er nú það. faldleika og þeirrar listrænu þessa ágæta stefnumóts við leik- skynsemi sem sveif yfir vötnum krafta Þjóðleikhússins. Föstudagur 9. mars 1990 NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 21

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.