Þjóðviljinn - 24.10.1990, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.10.1990, Blaðsíða 6
ERLENDAR FRETTIR Saúdar Ummæli Kahds Saúdí-Arab- íukonungs og bróður hans og varnarmálaráðherra, Suit- ans Ibn Abdulaziz, á mánudag hafa vakið kvíða nokkurn á Vesturlöndum um að Saúdarn- ir séu teknir að linast í samstöð- unni gegn Irak. Ummæli þeirra bræðra voru túlkuð svo að þeir gætu vel hugsað sér að Kúvæt léti af höndum við Irak tvær smáeyjar innst á Persaflóa auk hluta Rumeilaolíusvæðisins, sem er á landamærum íraks og Kúvæts. Saúdakonungur og vamar- málaráðherra hans hafa þegar fullyrt að þessi ummæli þeirra hafi verið rangtúlkuð, aístaða þeirra i málinu sé óbreytt. Eigi að síður hefur vakið athygii að þeir voru í þessum ummælum ólíkt mildari í garð Saddams Iraksfor- seta en þeir hafa að jafnaði verið frá því að hann sendi her sinn inn i Kúvæt. Sumir fréttaskýrendur telja að á bakvið þessi ummæli Saúdanna liggi að þeir telji sig vera að reyna að afstýra stríði á síðustu stundu. Nú fer vetur i hönd, þá verður svalt í veðri eftir þvi sem gerist á þessum slóðum og þar með til Indland Leiðtogi heit- trúarhindúa handtekinn Flokkur þeirra hættir stuðningi við ríkisstjórn. Talið að hún geti haldið velli með hjálp lágstétta- þingmanna Mikið uppnám er í indverskum stjórnmálum eftir að Lal Kris- han Advani, leiðtogi Bharatiya Janata, flokks heittrúarhindúa, var handtekinn í Bihar, fylki sem nær yfir austurhluta Ganges- sléttu. Advani var á leið til Ayod- hya, borgar í Uttar Pradesh, fylk- is sem nær yfir Gangessléttu vest- anverða, þeirra erinda að hefja þar í borg byggingu hofs á stað sem samkvæmt hindúatrú er fæðingarstaður guðsins og sagna- hetjunnar Rama (Ram). Átti handtakan sér stað í gærmorgun. Á fæðingarstað Rama er nú moska, byggð á 16. öld, og óttast stjómvöld að til heiftúðugra átaka komi milli hindúa og múslíma ef hrundið verði í ffamkvæmd þeirri fýrirætlun hinna fyrmefndu að byggja hofið. Bharatiya Janata, sem hingað til hefúr stutt minnihlutastjóm Vish- wanath Pratap Singh, forsætisráð- herra, brást við handtöku leiðtoga síns með því að lýsa því yfir að flokkurinn svipti stjómina stuðn- ingi. Stendur stjómin þá höllum fæti, en þó er ekki talið víst að hún neyðist til að segja af sér, sökum þess að stjómmálaflokkamir kæra sig fæstir um nýjar kosningar að svo stöddu. Deilan út af skiptingu starfa á vegum ríkisins milli erfða- stétta hefúr komið losi á flokkana og þingmenn skipst í fýlkingar eftir því hvar þeir standa í erfðastétt. Talið er að Singh, sem beitir sér fýrir því að hlutur lágstéttafólks í störfum í ríkisþjónustu verði auk- inn um helming, hafi möguleika á að halda velli með stjóm sinni með því að fá til liðs við sig lágstétta- þingmenn í stjómarandstöðuflokk- um. Reuter/-dþ. Persaflóadeila reyna að afstýra stríði þess að gera hagstætt veður til hemaðar. Um 350.000 manna liði hefur nú verið safnað á Persaflóa- svæðið gegn írak, þar af yfir 200.000 manna bandarískum her. Ymislegt þykir benda til að al- þjóðasamstaðan gegn Saddam muni ganga úr sér þeim mun Iengra sem líður frá hertöku Kú- væts og því muni Bandaríkja- stjóm telja að ekki verði seinna vænna að ráðast til atlögu gegn ír- ak. Saúdfúrstamir óttast hinsveg- ar að almenningsálitið í araba- löndum, þar á meðal í þeirra ríki, muni snúast enn frekar á sveif með Saddam en orðið er ef Bandaríkin færu í stríð við Irak, Bandaríkin Bandarlkjahermenn I Saúdi-Arablu með þeim gegn öðru arabaríki. og það almenmngsálit myndi þá að öllum líkindum snúast af auknum ofsa gegn þeim valdhöf- Saúdar hræddir við að fara I strlö um arabískum sem yrðu banda- menn Bandaríkjanna i því striði. -dþ Bush stöðvar borgara- réttindafrumvarp Fœr að líkindum reiði blökkumanna og kvenna að launum George Bush Bandaríkjafor- seti beitti á mánudag neit- unarvaldi því, sem embætti hans tilheyrir, til að stöðva frumvarp um borgararéttindi sem báðar deildir þingsins höfðu samþykkt. Frumvarpinu var ætlað að styrkja stöðu starfsmanna gegn atvinnurek- endum, grunuðum um að mis- muna fólki eftir kynferði og kynþáttum. Frumvarpinu var ætlað að draga úr möguleikum atvinnurek- enda á að taka annað kynið fram- yfír hitt í starfsmannavali og einn eða fleiri kynþætti framyfir aðra. Einnig var því ætlað að auðvelda fólki, sem teldi sig beitt misrétti af þessu tagi, að rétta hlut sinn með málsókn. Bush sagðist í boðskap til þingsins vera eindregið hlynntur sumum greinum frumvarpsins, en kvaðst hafa ákveðið að stöðva það með neitunarvaldi sökum þess að ef það yrði að lögum myndu atvinnurekendur sjá sig tilneydda að ráða fólk í vinnu Bush - segir kvótakerfi ýta undir misrétti. samkvæmt kvótakerfi eflir kyn- ferði og kynþáttum, til að forðast málarekstur. Sagði forsetinn að með slíku kvótakerfí yrði jafnrétti til starfa ekki aukið, heldur þvert á móti dregið úr því. Edward Kennedy, öldunga- deildarmaður í demókrataflokki sem manna mest beitti sér fýrir samþykkt frumvarpsins í deild- inni, gagnrýndi forsetann harð- lega af þessu tilefni, kvað hann höfða til gremju og fordóma með- al almennings og sýndi þetta að þegar öllu væri á botninn hvolft væri forsetinn á móti auknum þegnréttindum fýrir þjóðfélags- hópa sem minna mættu sin en aðrir. Talið er að blökkumenn og konur, sem frumvarpið hefði að líkindum einkum komið að haldi, ef að lögum hefði orðið, muni mörg reiðast Bush fýrir afstöðu hans í málinu og láta það koma niður á flokki hans, repúblíkön- um, í kosningunum sem fara fram þarlendis eftir tæpar tvær vikur. Saddam sleppir gíslum Þing Iraks varð í gær því sein næst einróma við tilmælum frá Saddam Hussein forseta um að láta lausa alla franska gísla þarlendis og í Kúvæt, en þeir eru um 330 talsins. Ennfremur leyfði Iraks- stjóm í gær heimfor 33 breskum og 14 bandarískum gíslum. Bretamir 33, sem flestir em heilsutæpir eða aldraðir, vom látnir lausir að til- mælum Edwards Heath, forsætis- ráðherra Breta, sem fór til Bagdað í þessum tilgangi og ræddi við Saddam íraksforseta. Um 1400 Bretar og um 700 Bandarikjamenn em enn i gíslingu i írak og Kúvæt. Mistökhjá Greenpeace Fjórum félögum í umhverfis- vemdarsamtökunum Greenpeace, sem fýrir tveimur vikum mældu geislavirkni á svæði því á Novaja Zemlja, þar sem kjamorkusprengj- ur hafa verið sprengdar í tilrauna- skyni, urðu á þau mistök að telja geislavirknina 1000 sinnum meiri en hún raunvemlega er, að sögn talsmanns samtakanna. Green- peace telur samt að geislavirknin þama sé vemleg. Amal ætlar að afvopnast Nabih Berri, leiðtogi Amal, til- tölulega hófsamra líbanskra sjíta- samtaka sem hliðholl em Sýrlandi, gaf til kynna i fyrradag að samtök- in væm reiðubúin að leysa upp vopnað lið sitt, sem er um 5000 talsins. Amalar ráða mestu í Suður- Líbanon. Líbanonsstjóm Eliasar forseta Hrawi, sem er á bandi Sýr- lendinga, hefur lýst yfir þeim ásetningi sínum að leysa upp allar vopnaðar líbanskar liðssveitir sem ekki em i stjómarhemum. Kosið um framtfð Benazir Þingkosningar fara fram í Pak- istan í dag og er aðalkosningamál- ið ffamtið Benazir Bhutto, sem vikið var úr embætti forsætisráð- herra í ágúst. Hún, eiginmaður hennar og helstu samstarfsmenn em af núverandi valdhöfúm borin sökum um spillingu og eiga á engu góðu von ef þau tapa. En talið er líklegt að andstæðingar þeirra muni fljótlega fara í hár saman inn- byrðis, vinni þeir kosningamar. Kólumbus tekinn á beinið Agjarn skemmdarvargur Bandarískur sagnfræðingur segir að fyrir vesturför Kólumbusar hafi enginn sjómaður trúað því að jörðin væri flöt Astæðulaust er að hylla Kristófer Kólumbus fyrir að hafa sannað að jörðin er ekki flöt, því að á hans dögum var enginn sjómaður svo vitlaus að hann tryði því. Þar að auki var Kólumbus gríðarlega ágjarn skemmdarvargur, sennilega haldinn ofsóknarbrjálun, lygari sem eins og margir slíkir trúði uppspunanum úr sjálfum sér og ef til vill ekki ítali. Þessu heldur a.m.k. ffam Kirkpatrick Sale, bandarískur samfélagssögufræðingur sem eft- ir sjö ára rannsóknir hefúr skrifað ævisögu hins frægasta af öllum landkönnuðum. Er bók Sale, The Conquest of Paradise (Paradís unnin), víðtækasta ævisögurit um Kólumbus sem út hefur komið í næstum hálfa öld. Eftir tvö ár heldur heimurinn með pompi og prakt upp á 500 ára afmæli þess er Kólumbus, sæfari frá Genúu, „fann“ Ameríku 1492. Bók Sale er framlag afþví tilefni, en eins og skilja má af ffaman- skráðu finnst honum, gagnstætt mörgum, landkönnuðurinn frægi lítillar virðingar verður. Hefúr bókin þegar sætt gagnrýni og er efalaust von á meiru af slíku. Sale segir vestursiglingu Kól- umbusar hafa verið upphaf þess að Vestur-Evrópa hafi þröngvað tungumálum sinum, fatatísku og gildismati m.m. á alla aðra heims- hlufa, með þeim afleiðingum að nú geti Vesturlönd ráðið örlögum veraldar. Má skilja á sagnffæð- ingnum að hann telur ekki að þetta sé af hinu góða. Hann álítur og sennilegast að með þrælahaldi því, sem Evrópumenn stofnuðu til í Ameríku hafi menn fýrst byijað á því að halda ánauðarmenn gagngert í ábataskyni, áður hafi þrælar fremur verið persónulegir þjónar húsbænda sinna. Hætt er við að mörgum sagn- ffæðingnum þyki það síðamefnda gróf einfoldun, vægast sagt. Við- víkjandi málflutningi Sale yfir- leitt í bókinni hafa sumir gagn- rýnenda hans sakað hann um hat- ur á bandarísku þjóðemi sínu og Þrír ísraelar hafa verið drepn- ir og átta særðir og slasaðir síðan á sunnudag á ýmsum stöðum í ísrael og á svæðum hersetnum af ísraelum. Urðu þeir allir fýrir árásum araba, sem munu hafa tal- evrópskum uppruna, jafnffamt lítt gagnrýnni afstöðu til íbúa annarra heimshluta, enda hefúr slíkt hug- arástand talsvert verið í tísku á Vesturlöndum síðustu áratugi. Geta má þess að ítalskt ætt- emi Kólumbusar hefúr fýrr verið dregið í efa, m.a. hafa komið fram kenningar um að hánn hafi verið Katalani og Norðmaður. Reuter/-dþ. ið sig vera að hefna manndráp- anna á Musterisfelli fýrr í mánuð- inum, er um 20 arabar vom skotnir til bana. Árásarmennimir hafa yfirleitt beitt hnífum. Hnífaárásir á ísraela 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 24. október 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.