Þjóðviljinn - 12.07.1991, Page 8

Þjóðviljinn - 12.07.1991, Page 8
NfTT pJÓÐVILJINN ÚtgefsncH: Útgáfufólagiö Bjarki h.f Afgretösla: «r 68 13 33 Framkvaemdastjórl: Hatlur Páll Jónsaon AugtýsingadeHd: »681310 -681331 Ritstjórar: Ami Bergmann, Simfax: 68 19 35 Helgi Guðmundsson Verö: 150 krónur I lau&asólu Umsjónarmaður Hslgarblaós: Bergdfs Bloftsdóttir Setnlng og umbrot: Prentsmiöja Þjóöviljans hf. Fréttastjórl: Sigurður A. Friöþjófsson Prentun: Oddi hf. Auglýsingastjóri: Steinar Harðarson Aðsetun Slðumúla 37,108 Reykjavlk Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis Ferö aö hætti Margrétar Thatcher Ríkisstjómin er býsna iðin við að koma þeirri skoðun á framfæri að þjóðarbúið sé á hraðri leið til glötunar og stendur ekki á skýringum hjá forsætisráðherra. Hann hef- ur litið yfir allt það sem síðasta ríkisstjórn gerði og komist að því að ekkert í verkum hennar reyndist harla gott. Ríkisstjórnin lætur eins og hún hafi upp- götvað sjónarspil aldarinnar með því að for- verar ráðherranna sem nú sitja hafi haldið því leyndu fyrir þjóðinni að allt væri í kalda koli í atvinnumálum að viðbættum stórfelld- um halla á ríkissjóði. Nú má auðvitað virða forsætisráöherra það til vorkunnar að hann hafi ekki fylgst mjög vel með pólitískri umræöu undanfarin misseri. Hann var jú upptekin við að stjórna höfuöborginni að mestu leyti einn, eins og sjá má af því að hann treysti engum úr inn- anbúðarliði sínu til að taka við starfi borgar- stjóra, þegar hann kæmi sjálfur úr sumar- leyfi. Eitt erfiðasta verkefni síðustu ríkisstjórn- ar var að glíma við halla á fjárlögum sam- hliða því að ná niður mikilli verðbólgu. Þetta tókst að hluta til, halla ríkissjóðs var haldið í skefjum og hann fjármagnaður með innlendri lántöku, en ekki erlendri eins og tíðkast hafði í ríkisstjórn Þorsteins Páls- sonar. Um verðbólguþróunina á þessum tíma þarf ekki að fara mörgum orðum, svo kunn sem hún er, en ef forsætisráðherra skyldi ekki hafa tekið eftir því er rétt að minna á að verðbólgan snarféll og var kom- in í um 5% áður en lauk. Öllum var Ijóst að á þessum tíma var rík- issjóður rekinn með halla, enda engu hald- ið leyndu í þeim efnum. Forsætisráðherra hefði átt að lesa betur leiðara Morgunblaðsins mánuðina fyrir kosningar. Á þeim vettvangi var því meðal annars haldið fram að Steingrímur Her- mannsson þáverandi forsætisráðherra og Ólafur Ragnar Grímsson þáv. fjármálaráð- herra væru talsmenn hærri skatta. Davíð Oddsson hefði líka átt að hlusta á heilbrigð- isráðherra, Sighvat Björgvinsson, sem þá var formaður fjárveitinganefndar, en hann benti meðal annars á að menn yrðu að gera upp við sig hvort þeir vildu minnka þjónustu ríkisins eða hækka skatta. í öllum (áessum tilvikum var á það bent að ríkissjóður ætti við langtíma vanda að stríða. Því fer því fjarri að vanda ríkissjóðs hafi verið haldið leyndum fyrir nokkrum manni, enda þótt borgarstjórinn í Reykjavík, sem þá var, hafi ekki tekið eftir því sem fram fór á þingi og frá var sagt í fjölmiðlum. Það sem nú vekur sérstakan ugg er sú ætlan ríkisstjórnarinnar að nota nú tækifær- ið og tengja saman frjálshyggjumarkmiðin um einkavæðingu á öllum sviðum og rekstrarvanda ríkissjóðs. Þannig eru nú lát- in ganga út boð um að gróin fyrirtæki eins og Síldarverksmiðjur ríkisins og Búnaðar- bankinn skuli seld og í stað þess að nota skattakerfið til tekjujöfnunar verði aðstöðu- og tekjumunurinn aukinn með upptöku skólagjalda og aukinni innheimtu allskyns þjónustugjalda. Ríkisstjórnin er að leggja af stað í ná- kvæmlega samskonar ferð og ríkisstjórn Margrétar Thatcher í Bretlandi fór á sínum tíma. Allt skal selt sem seljanlegt er, og þeir sem njóta samfélagslegrar þjónustu skulu borga meira fyrir hana en áður. Reynslan hefur kennt að þessi leið leysir engan vanda til frambúðar. Þvert á móti skapar hún nýjan vanda með aukinni mismunun á öllu sviðum sem um leið gefur tilefni til þessarar spurningar: Hvað í ósköpunum er Jafnaöarmanna- flokkur íslands að gera í ríkisstjórn af þessu tagi? h f 9 8.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 12. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.