Þjóðviljinn - 01.11.1991, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 01.11.1991, Blaðsíða 20
 Helgarblað Föstudagur 1. nóvember 1991 „Vinur stríðir aldrei, kjaftar ekki frá leyndarmálum og við getum leikið okkur saman að dótinu“, segja krakkarnir í Foldaskóla í Grafarvogi um vináttuna. Þessa dagana taka ungir sem aldnir höndum saman og gera eitt- hvað í þágu vináttu viða um land: Vinaböll, vináttumessur, hlaup og vináttuhátíðir. A morgun, laugardag, verður svo risastór vináttuhátíð allr- ar fjölskyldunnar i Laugardagshöll- inni. Allt fer þetta fram undir merkj- um yerkefnis sem heitir Vinátta ‘91. I pínulítilli skrifstofu við Frí- kirkjuveg 11 er miðstöð verkefhis- ins til húsa og þar starfa fram- kvæmdastjórarnir Sveinn M. Ottós- son og Edda Olafsdóttir. Þau segja hugmyndina hafa kviknað í ung- lingaathvarfi Reykjavíkur þegar ver- ið var að ræða mannleg samskipti. Smám saman þróaðist þetta og nú standa Unglingadeild Félagsmála- stofnunar og Iþrótta- og tómstunda- ráð að Vináttu ‘91. „Við vildum koma með jákvætt innlegg í umræðu, sem var á mjög neikvæðum nótum“ segir Edda. Hugmyndin er að fá sem flesta að- ila, samtök, félög og einstaklinga til að taka þátt. „Við viljum tengja kyn- slóðimar saman og Ieggja áherslu á jákvæð mannleg samskipti,“ segir Sveinn. 1 jæssu starfi felst ákveðin forvöm gegn einelti og ofbeldi í skólum og þá með því að rækta vin- áttuna í stað þess að velta sér upp úr neikvæðu hliðunum. Sveinn segir Vináttu ‘91 vera „grasrótarverkefhi“ þar sem kraflar og hugmyndir bæði bama og full- orðinna geti notið sín. I Grafarvogi var stofnaður vin- áttuhópur fjölda félaga og stofnana sem hefur unnið mikið verk. Einmitt þessa dagana stendur yfir vináttu- vika í Húsaskóla og Foldaskóla enda var vinalegt. andrúmsloft í þeim báðum: Allir veggir vom skreyttir myndum og spakmælum um vináttuna. 1 Húsaskóla var 4-SG að teikna óskavininn sinn, sem þau ætluðu síðan að klippa út og lýsa fyrir hinum. Strákamir vom sam- mála um að óskavinurinn eigi að hafa áhuga á handbolta og fótbolta og stelpumar tóku undir það. Stelp- umar bættu við að óskavinurinn eigi líka að hafa gaman af að lesa, teikna og synda. I Húsaskóla var búið að reisa heilan vináttubæ í einni skólastof- unni. Götumar í Vináttubæ bám nöfn á borð við Friðargata, Vinagata og Oskagata. Krakkamir í Húsa- skóla taka líka öll þátt í að búa til risastóran vináttuorm sem á að ná á milli allra stofanna í skólanum. Ormurinn var hálfnaður í gær og kappsamlega unnið við að mála efh- ið í hann, sauma saman og flétta á hann fætur. Kennurum bar saman um að Edda Ólafsdótlir og Sveinn M. Ottósson, framkvœmdastjórar verkefnisins Vinátta ‘91, í vinalegu húsnæði Iþrótta og tómstunda- ráðs við Fríkirkju veginn. Mynd: Jim Smart. Vinkonur í 4-SG í Foldaskóla að klippa út teikningu af óska- vininum sínum. Mynd: Jim Smart. þetta væri mjög skemmtilegt verkefni og til þess fallið að efla samkennd meðal krakk- anna. Selma, skólastjóri í Húsaskóla, telur þetta verkefni mjög mikil- vægt fyrir þau þar sem skólinn er í nýju hverfi og krakkamir þekkist lítið. Selma segir vilja til þess að halda svona vinnu áfram. I raun er hægt að vinna óendan- leg mörg verkefhi í þágu vináttunn- ar, enda getur hún tekið á sig margar myndir. Dæmi um það sáum við á meðal spakmæla um vináttuna, sem héngu upp á vegg í Húsaskóla. Þar hafði Eyjólfur skrifað: „Ég á vin. Hann lemur mig alltaf þegar ég segi brandara". Allt í góðu vonandi! -ag Vináttu- hátíð í Höllinni Á morgun geta krakkamir boð- ið afa og ömmu, pabba og mömmu á Vináttuhátíðina í Laugardalshöll- inni. Þar verður dagskrá frá klukk- an 15-19 og aðgangur ókeypis því þeir fjölmörgu listamenn sem fram koma gefa vinnu sína. Meðal þess sem boðið er upp á má nefna Bubba Morthens, Sororicide, Júp- íters, Kuran Swing, Neislana, kór- söng og fjöldasöng, grænlensku rokksveitina Ole Kristiansen Band, afrískan dans, götuleikhús, mini golf og leiktæki. Sniglamir og Lögreglan verða á staðnum, ásamt björgunarsveitum og Land- helgisgæslunni. K.ynnir verður Edda Björgvinsdóttir. Umvajin vinattuorminum langa sem allir krakkarí Húsaskóla taka V þátt í að búa til og á að ná á milli allrastofanna i skólanum.mttr Mynd: Kristinn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.