Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Qupperneq 13
LAUGARÐAGUR 28. OKTÓBER 1995
13
Sera Þorbjörn Hlynur Arnason á Borg við myndverkið Sonatorrek: „Forrétt-
indi að hafa listaverk eftir Ásmund Sveinsson á hlaðinu hjá sér.“
DV-mynd Olgeir Helgi
Séra Þorbjörn Hlynur Árnason tekinn við Borg á ný:
Gott að vera
kominn aftur
Olgeir Helgi Ragnarsson, DV, Borgarnesi:
„Það er að öllu leyti góð tilfmn-
ing. Hér áttum við heldur betur ræt-
ur því við vorum hér í átta ár áður
en ég varð biskupsritari," segir séra
Þorbjörn Hlynur Árnason sem ný-
lega sneri aftur að prestssetrinu á
Borg á Mýrum eftir að hafa verið
biskupsritari í fimm ár. í millitíð-
inni sat faðir séra Þorbjarnar Hlyns,
séra Árni Pálsson, á Borg. Undir
Borgarprestakall heyra fimm sókn-
ir: Borgarsókn, Borgarnessókn,
Álftanessókn sem hefur fylgt Borg
frá öndverðu, Álftártungusókn sem
bættist við Borgarprestakall seint á
síðustu öld og Akrasókn sem var
lögð til Borgar með prestakalla-
breytingu 1970. Séra Þorbjörn Hlyn-
ur segir þetta fámennar sóknir: „En
það hefur náðst á seinustu árum að
endurgera kirkjurnar og þær eru
sannarlega sínu fólki til sóma. Mjög
vegleg og falleg hús, og einstæð því
þetta eru í raun og veru einu bygg-
ingarnar sem við höfum uppistand-
andi frá þessum tíma hér.“
Séra Þorbjörn Hlynur segir aldrei
hafa staðið annað til en að koma aft-
ur að Borg, því hefði hann fengið
leyfí hjá ráðherra til að halda emb-
ættinu. „Það er gott að vera hér og
gott að vera kominn aftur,“ segir
hann.
Þegar séra Þorbjörn Hlynur er
spurður að því hvað standi upp úr
frá veru hans á Biskupsstofu segir
hann það vera margt, því um mörg
merkileg viðfangsefni hafi verið að
ræða. „Það hefur verið mikil vinna
síðustu árin varðandi skipulagsmál
kirkjunnar og breytta starfshætti.
Endurskoðun hefur verið í gangi á
sambandi rikis og kirkju. Öll sú
vinna sem tengist þessum breyttu
forsendum sem verið er að leggja
núna að breyttu sambandi ríkis og
kirkju ásamt með mikilli vinnu í
sambandi við kirkueignir og ráðs-
töfun þeirra. Það er kannski það
sem kemur fyrst í hugann," segir
séra Þorbjörn Hlynur.
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á Borgameskirkju, stærstu
kirkjunni í Borgarprestakalli, á
undanförnum árum og stærstur
hluti þeirra endurbóta var unninn á
meðan Þorbjörn Hlynur starfaði á
Biskupsstofu, þannig að þegar hann
tók aftur við prestakallinu tók hann
um leið við nánast nýrri kirkju í
Borgarnesi: „Það er sannarlega
gaman að koma aftur í þetta hús,
því hún er gjörbreytt kirkjan og allt
annað að embætta í þessu húsi. Hún
er orðin kirkjulegri, getum við sagt,
og Borgnesingar fullsæmdir af
þessu húsi.“
En því að sitja á Borg, sem er
þekkt höfðingja- og menningarsetur,
hljóta að fylgja ýmis önnur verk en
hefðbundin prestsverk: „Já, já, það
fylgir því ýmislegt að búa á svona
stað. I fyrsta lagi þarf að halda stað-
inn og láta hann líta vel út og það
reynum við að gera eftir fremsta
megni. Það hefur einmitt verið gerð
mikil breyting á meðan við vorum í
burtu, það var hlaðinn nýr kirkju-
garðsveggur sem hefur mjög mikið
að segja varðandi ásýnd staðarins.
Svo er auðvitað mikil vinna fólgin í
því að taka við öllu því fólki sem
kemur hingað. Hér koma þúsundir
á hverju sumri, bæði innlendir
feröamenn og erlendir. Mjög oft er
óskað eftir því að maður gefi ein-
hverja leiðsögn hér, bæði í kirkju og
á staðnum. Hér er meira og minna
linnulaus umferð alia sumarmánuð-
ina og yfir veturinn oft líka. Það er,
satt að segja, þó þetta sé heilmikil
vinna og ónæði, þá er þetta líka gef-
andi og uppbyggileg iðja að vera í
þessum tengslum við feröafólkið."
Borg er fornt frægðarsetur, en
ætli séra Þorbjörn Hlynur hafi orð-
ið var við anda þess forna tíma? „Ég
veit það ekki. Maður leiðir stundum
hugann að því, ef Egilssaga gefur
rétta mynd af þessum atburðum, þá
gerðust hér merkir atburðir og var
mjög merkilegt mannlíf hér fyrir
þúsund árum síðan eða svo, og
reyndar lengi. En við höfum náttúr-
lega engar minjar, engar áþreifan-
legar minjar, frekar en víðast ann-
ars staðar á íslandi. Okkar saga er
öll í bókum en ekki í húsum eða
mannvirkjum. Þess vegna er mjög
gaman einmitt að hafa þetta lista-
verk hérna á hlaðinu eftir hann Ás-
mund Sveinsson, Sonatorrek. Það
eru mikil forréttindi að hafa lista-
verk eftir Ásmund Sveinsson á hlað-
inu hjá sér.“
Þrefaldur 1. vinningur!
-vertu viðbúlntm vinningi
Nú er að
n0ta •*.
tcek ifœnð!
Fáðu þér miða i’yrir kl. 20.20 í kvöld.
Eitt sinn var hann lítill en
nú er hann orðinn stór...
Nýi bíllinn frá Suzuki er bíll í sama stærðar- og gæðaflokki og
Toyota Corolla, VW Golf, Opel Astra og Nissan Almera.
Það er þó eitt sem skilur þá að - VERÐIÐ
Suzuki Baleno er á mun lægra verði en aðrir sambærilegir bflar
í millistærðarflokki.
Suzuki Alto 1981
SUZUKIBALENO 1996
Suzuki Baleno 3ja dyra handskiptur kostar kr. 1.095.000
sjálfskiptur “ 1.195.000
Suzuki Baleno 4ra dyra handskiptur kostar kr. 1.220.000
sjálfskiptur “ 1.320.000
Komið, reynsluakið og gerið verðsamanburð.
Suzuki - Afl og öryggi
$ SUZUKI
--////■---------
SUZUKI BÍLAR HF.
SKEIFAN 17 - SÍMI: 568 5100