Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Blaðsíða 17
17
D VlAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
Poul Nyrup Rasmussen.
að borga nokkuð til baka eða biðjast
afsökunar og var rekin sem mennta-
málaráðherra. Það kom þó ekki í
veg fyrir að hún yrði félagsmálaráð-
herra strax árið eftir. Vegur hennar
óx stöðugt og hún varð varaformað-
ur og síðar þingflokksformaður.
Einræði vakti andúð samflokks-
manna sem gerðu uppreisn gegn
henni 1991 sem endaði með því að
völd hennar voru skorin töluvert
niður.
Tækifærissinninn fáll
fyrir eðalvínum
verið gagnrýnd
fyrir að taka við
greiðslum frá öðr-
um en ESB en
það er óheimilt
samkvæmt regl-
um þess. Það er
því óljóst hvað
gert yrði við höf-
undarlaunin en
það vandamál er
úr sögunni í bili.
Pólitískt
sjálfsmorð
Síðar það sama herrans ár 1991
féll enn ein bomban. Ritt fékk sér
200 fermetra íbúð á besta stað í
Kaupmannahöfn en hélt lögheimil-
inu í Odense. Það gaf henni ríflega
600 þúsund krónur í skattfrjálsar
tekjur sem hún neitaði að gefa eftir
og var stefnt af bæjarfélaginu. Hún
stóð föst á sínu og það kostaði hana
þingflokksformennskuna þótt síðar
ætti eftir að koma í ljós að hún gerði
ekkert ólöglegt í þetta skiptið. Hún
gekkst á engan hátt undir- flokksaga
og hafði sérskoðanir á öllu og í einu
tilfelli var hún rekin sem talsmaður
flokksins í utanríkismálum. Þessar
sérskoðanir hennar urðu til þess
að hún tvöfaldaði fylgi sitt í kosn-
ingunum 1994 og var í kjölfarið út-
nefnd sem EB-erindreki. Áður en
hún komst í þá stöðu varð hún fyr-
ir hörðum árásum fyrir að neita
að gefa eftir ráðherrabiðlaun upp
á tæpar 2 milljónir sem eru reynd-
ar smápeningar hjá laununum hjá
ESB sem eru tífalt hærri. Allir for-
verar hennar höfðu afsalað sér
þessum réttindum og á endanum
varð hún að beygja sig. Hún full-
yrti að hún hefði verið í fullum
rétti en vildi fá
vinnufrið. ' í
haust varð hún
svo að skila 19
eðalrauðvíns-
flöskum sem hún
fékk fyrir fyrir-
lestur. Sam-
kvæmt reglum
má hún ekki
þiggja laun frá
öðrum en ESB.
Ritt Bjerregaard
hefur verið um-
deild en haft mik-
ið persónufylgi.
Hún er þekkt sem
tækifærissinni og
skiptir reglulega
um skoðun. Hún
hefur t.d. bæði
verið með og á
móti NATO og
með og á móti
ESB. Helsta gagn-
rýnin er þó sú að
hún hafi bara
eina hugsjón í
pólitík - Ritt Bjer-
regaard.
í dönskum
stjórnmálum rík-
ir almenn reiði í
garð Bjerregaard
og menn eru ein-
huga um að
stjórnmálafeúli
hennar þar sé
lokið. Gildir þá
einu hvort um
samflokksmenn
eða andstæðinga
er að ræða. Bókin
er uppfull af
palladómum um
fyrrum sam- Helmut Kohl.
starfsmenn og
sjálfur forsætis-
ráðherrann Poul Nyrup Rasmussen,
sem sjálfur sendi hana til Brussel,
fær hjákátleg ummæli. Ritt vitnar í
símtal við hann þar sem hún segir
að honum hafi liðið illa og fundist
erfitt að vera forsætisráðherra,
hann gæti ekki fundað með fólki án
þess að það birtist í blöðunum dag-
inn eftir. Margoft vitnar hún í
einkasamtöl og lýsir hinum og þess-
um sem hjákátlegum kjánum. Enda
hafa menn keppst við að fordæma
hana og fullyrða að hún hafi skaðað
Danmörku um langa framtíð.
Uffe Ellemann-Jensen er ekki síst
sár enda eykur bókin ekki mögu-
leika hans á að verða yfírmaður
NATO. Flokkur hennar situr í ríkis-
stjórn en það kemur ekki í veg fyrir
að valdamenn flokksins og ráðherra
gagnrýni hana harkalega. Reyndar
er fullyrt að Ritt gæti fengið góða
kosningu í Danmörku eftir nokkur
ár en áhrif hennar í þinginu í
Christiansborg yrðu næsta lítil.
Límúsínur og Kínaferðir
Ritt Bjerregaard á skrautlegan
ferU að baki en aðeins einu sinni
áður hefur hún beðist afsökunar.
Það var árið 1977 í menntamálaráð-
herratíð hennar sem í ljós kom að
hún hafði hringt í DSB og fengið
ferju yfir Stórabeltið til að bíða eftir
sér og ráðherrabUnum. Ári síðar
birtu fjölmiðlar upplýsingar um að
Ritt hefði eytt 60 þúsund krónum
dönskum í 13 daga opinbera ferð í
París. Þetta voru gríðarlegar upp-
hæðir í þá daga sem m.a. voru not-
aðir fyrir límúsínur og lúxusuppi-
hald á Ritz. Þegar fjölmiðlaumfjöll-
unin stóð sem hæst var Ritt stödd í
Kína og forsætisráðherrann Anker
Jörgensen gat ómögulega fengið
hana til að koma heim. Ritt neitaði
Bridge
Marlboro-heimsmeistarakeppnin 1995:
Bandaríkjamenn unnu
Bermudaskálina
Bandaríkjamenn unnu nokkuð
sannfærandi sigur á Kanadamönn-
um í úrslitaleiknum um heims-
meistaratitilinn og Bermúdaskál-
ina. Nýju heimsmeistararnir eru
Nickell, Freeman, Hamman, Wolff,
Meckstroth og Rodwell. Fyrirliði
án spilamennsku var Edgar Kapl-
an.
Þeir fjórir síðastnefndu hafa
marga heimsmeistaratitla undir
beltinu en Nickell og Freeman voru
að vinna sinn fyrsta. Lokatölur í
úrslitaleiknum, sem var 160 spil,
voru 338-295. í úrslitaleiknum um
Feneyjabikarinn og heimsmeistara-
titilinn í kvennaflokki höfðu þýsku
konurnar nokkra yfirburði og
unnu m.a. síðustu lotuna 70-9 og
leikinn 312-248. Veikindi hrjáðu
bandarísku konurnar í síðustu lot-
unni, sem ef til vill skýrir slakan
árangur þeirra í henni.
Heimsmeistarar Þjóðverja eru
Sabina Auken, Marianne Moegel,
Karin Ceasar, Beate Nehmert,
Andrea Rauschield og Daniela von
Arnim. Fyrirliði án spilamennsku
var Klaus Reps. Til tilbreytingar
skulum við skoða eitt spil úr
kvennaflokknum.
4 D105
* 10543
* K84
* Á106
♦ K3
* K9876
♦ DG763
* 5
♦ 862
♦ 1092
* G987432
er hjartaslemman mjög góð, en
tromplegan gerir vonir sagnhafa að
engu.
Það voru bandarísku konurnar
McCallum og Sanborn sem sátu n-s
og það má segja að það hafi verið
gott hjá þeim að komast í slemmu á
spilið. En Sanborn réð ekki við
trompleguna og varð þrjá niður.
Það var hins vegar táknrænt fyr-
ir „stuðið“ á þeim þýsku að þær
höfnuðu í besta geiminu:
Norður Austur Suður Vestur
♦ AG974
«4 ÁDG2
♦ Á5
♦ KD
pass pass
1 grand pass
3 * pass
3 grönd pass
pass pass
1 *
2
3 ♦
4 4
pass
pass
dobl
pass
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 14 pass
2« pass 3*4 pass
4* pass 4-f pass
4* pass 6»
Það voru Auken og von Arnim
sem slepptu þessari góðu slemmu
og græddu þar með 12 impa.
Stefán Guðjohnsen
Þegar horft er á spil n-s eingöngu
SÍÐIR ULLARJAKKAR
15.900 KR.
Sendum í póstkröfu
KRINGLUNNI
SÍMI 568 1925