Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Síða 30
38
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 ]D"V
Ummæli og upphrópanir Sverris Hermannssonar í bankastjórastól Landsbankans:
Það fer ekki fram hjá neinum í
þjóðfélaginu þegar Sverrir Her-
mannsson Landsbankastjóri fmnur
þörf á því að tjá sig um einhver mál
eða gagnrýna einstaklinga. Frá því
Finnur Ingólfsson viðskiptaráð-
herra tók við embætti hefur Sverrir
tvívegis sent honum tóninn, svo um
hefur munað, en Finnur er langt því
frá sá eini sem hefur orðið fyrir
skothríð Sverris.
Viðskiptaráðherra
í orrahríð
Nú síðast í þessari viku, þegar
fréttamenn Bylgjunnar leituðu álits
hjá Sverri á ummælum Finns á
aðalfundi sparisjóðanna um málefni
lífeyrissjóðanna og að bankar meðal
annars eigi að taka við lífeyris-
sparnaði landsmanna. Sverrir sagð-
ist ekki vilja ræða neitt um það sem
Finnur segði, hann vildi „ekki vera
á sama umræðuplani“.
t kjölfar aðalfundar Seðlabank-
ans, strax á fyrstu dögum Finns á
ráðherrastóli, kallaði Sverrir Finn
flón þegar sá síðarnefndi viðraði
skoðanir ríkisstjórnarinnar um
vaxtamál.
Finnur svaraði ummælum Sverr-
is í svipaða veru I bæði skiptin en
hann sagði þau lýsa Sverri frekar en
sér.
„Einhverra hluta vegna hefur
Sverrir fundið þörf hjá sér til að
senda mér einhver skot öðru hverju,
að ég tel að tilefnislausu, Svona orð-
færi og framkoma lýsa Sverri miklu
frekar heldur en mér. Hann verður
bara að eiga þetta við sjálfan sig,
blessaður karlinn," sagði Finnur
þegar seinni ummælin voru borin
undir hann.
Amlóðarnir í viðskiptum
Þegar leitað er í gagnabanka DV
að viðtölum við Sverri aftur til árs-
ins 1988, er bankaráð Landsbankans
valdi hann í starf bankastjóra, er
um auðugan garð að gresja. Finnur
er langt því frá að vera eina fórnar-
lamb breiðra spjóta Sverris.
„Einhverra hluta vegna
hefur Sverrir fundið
þörf hjá sér til aó
senda mér einhver skot
öðru hverju, aö ég tel
að tilefnislausu.
Svona orðfœri ogfram-
koma lýsa Sverri miklu
frekar heldur en mér.
Hann veröur bara að
eiga þetta við sjálfan
sig, blessaður
karlinn, “ sagði Finnur
Ingólfsson.
Árið 1988 hugðist Jón Sigurðsson,
þáverandi viðskiptaráðherra, veita
fyrirtækjum rétt til eins milljarðs
erlendrar lántöku til fjárhagslegrar
endurskipulagningar. Sverrir var í
litlum vafa um hver endirinn yrði.
„Ég held að menn komist í hann
krappan með að útdeila einum millj-
arði. Það get ég vel ímyndað mér. Þá
er náttúrulega alltaf hættan sú að
amlóðarnir verði látnir sitja fyrir,“
sagði Sverrir.
Á þessum tima var rekstr-
arstaða fyrirtækja í
landinu í brennidepli
enda bárust um-
sóknir um lán að
fjárhæð 7 millj
arðar. Ríkis-
stjórnin hafði
boðað aðgerð-
ir til að bæta
rekstrar-
stöðu at-
vinnuveg-
anna en á
þeim stóð. Að
sögn Sverris
voru um 70 pró-
sent af allri fisk-
vinnslu og sjávar-
útvegi í viöskiptum
við Landsbankann á
þessum tíma og
lausafjárstaöa bank-
ans þannig að hann
var sektaður af Seðla-
bankanum.
„Það er mjög sorfið
að okkur. Þá sjá menn
vítahringinn. Við mun-
um ekki láta læsa okkur í
honum. Það þýðir að við
hættum að reka fyrirtæki
þessi fyrir okkar fé. Því
verða menn að átta sig á. Það
er ekki nokkurt vit fyrir efna-
hagslíf í íslensku þjóðarinnar
að langstærsti bankinn sé rek
inn eins og einhver góðgerðar-
stofnun að því leyti. Það er al-
ger misskilningur.
- „Forsvarmenn fyrirtækjanna
hafa kvartað undan of háum fjár-
magnskostnaði. Hafa vanskil fyr-
irtækjanna ekki aukið á þann
kostnað?" spurði blaðamaður
DV.
„Jú. Dráttarvextir bætast
ofan á þetta allt saman.
Allt er þetta óbærilegt.
Menn halda áfram að
reka fyrirtækin lóðrétt
til andskotans."
Stóð uppi í
hárinu á
Ólafi
I nóvember-
byrjun árið
1988 krafðist
þáverandi fjár-
málaráðherra,
Ólafur Ragnar
Grímsson, þess
að nafnvextir
yrðu ekki
hækkaðir. Boð-
aði Ólafur sér-
stakar aðgerðir ef
ekki yrði orðið við til-
mælum hans.
„Ég veit ekki hvaða
hótanir þetta eru hjá
Ólafi Ragnari um að
sýna styrk sinn með ein-
hverjum sérstökum að-
gerðum verði ekki far-
ið að tilmælum hans
um að hækka ekki
nafnvexti.
Ríkisstjórnin ræður ekki yfir
Landsbankanum í ákvörðun vaxta,
það er ekki til stafkrókur um það í
lögum. Þeir verða þá að setja um
það sérstök lög á Alþingi," sagði
Sverrir og hélt áfram: „Annars sýn-
ist mér þessar hótanir Ólafs um sér-
stakar aðgerðir og að hann muni
sýna styrk sinn snúist gegn mér. En
ég mun skammt renna fyrir Ólafi
Ragnari Grímssyni einum.“
í lok nóvember sama ár krafðist
þáverandi fjármálaráðherra, Ólafur
Ragnar Grímsson, raunvaxtalækk-
unar. Svör Sverris létu ekki á sér
standa: „Ég er nú að tala sem Sverr-
ir Hermannsson en ekki banka-
stjóri: Ég tek ekkert mark á Ólafi
Ragnari Grímssyni," sagði Sverrir.
Nokkrum dögum seinna var raun-
vaxtalækkun veruleiki og sagði
„Þetta er náttúrulega
fjarstœða ein og
merkilegt að
manninum skuli detta
þetta í hug.
Svo segir hann annars
staðar í viðtalinu að
aðgerðin stórstyrki
Landsbankann og á
því sé auðvitað nauð-
syn. . . . Stundum
finnst manni eins og
Sverrir sé ekki alveg
skilinn við skark
stjórnmálanna og
það er raunar ekki
fréttnœmt að
hvíni í tálknunum á
honum, “ sagði
Jón Sigurðsson.
i
Ólafur Ragnar þá: „Ég er mjög
ánægður með ákvarðanir Lands-
bankans. Mér sýnist Sverrir Her-
mannsson hafa tekið mjög myndar-
lega á þessu eins og hans er vani
þegar hann snýr sér að verkum.“
Rokur vestfirskra
rauðkembinga
Seinni hluta árs 1989 fóru Ólafur
Ragnar Grimsson fjármálaráðherra
og Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra í fundarherferð um
landið undir kjörorðinu Á rauðu
ljósi og boðuðu sameiningu jafnað-
armann í einn flokk. í fundarher-
ferð sinni gagnrýndu þeir það sem
kallað var stjórnarandstaða Sjálf-
stæðisflokksins í bankakerfinu og
var Sverrir þar nefndur til sögunn-
ar.
„Ég nenni ekki og hirði ekki um
að elta ólar við þessar rokur þeirra
rauðkembinga þarna vestra. Það er
lögð rík áhersla á að reyna að
blekkja fólk. Það á að reyna að
blekkja fólk með því að hækkandi
vextir séu orsakir verðbólgu en ekki
afleiðing. .ö.ö. Það á að hefja þann
leik á ný að brenna upp sparifé
landsmanna. Þetta þora þeir ekki að
segja - það er ekki heil brú til í mál-
flutningi þeirra. Ef menn ætla að
hafa lága vexti verða þeir að ná
verðbólgunni niður en allar athafn-
ir þessara herramanna að undan-