Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Qupperneq 36
44
itfyiglingaspjall
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995 V
Hugleiðingar
um tímann
Það er svo undarlegt
hversu tíminn líður
hratt þegar mikið er
að gera. Þeytingur
út um allan bæ,
redda þessu og
redda hinu, hitta
mann og annan.
Tíminn bara líð-
ur án afláts og
aldrei virðist
vera nóg af
honum. Tuttugu og fjórir tímar í sólarhring nægja sýni-
lega ekki hinum upptekna manni.
Það er jafn undarlegt hversu tíminn líður hratt og
hversu hægt hann getur stundum liðið. Ef lítið er
að gera hjá manni, enginn skóli, engin vinna, eng-
ar reddingar og engin stefnumót virðist tíminn
beinlínis standa í stað. Það getur því oft farið eftir
því hvort manni leiðist eða ekki. Skyldi ævi þeirra
lífsglöðu þá líða hraðar en þeirra lífsdöpru?
Heimskuleg spurning en tími er jú sagður afstæður.
Áður fyrr fór tíminn mest eftir árstíðum og kirkjuár-
inu. Hann var hringlaga og stundum stórar eyður í
hringnum. En það er langt síðan. Núna er hann meira
eins og lína „og er næstum hver einasti punktur á
línunni" ákveðinn fyrirfram, jafnvel fríin. Er það
gott?
Hvers vegna látum við tímann ráðskast svona með
okkur? Allt okkar líf virðist undir tímanum komið.
Förum við ekki á mis við margt af hinu góða með
því að láta tímann stjórna
okkur? Eða er
skipulagsáráttan
og græðgin að
keyra okkur um
koll? Ættum
við kannski að
fara að hugsa
tímann aftur í
hring?
Er ekki bara
nauðsynlegt að
vera stundum til
— skipulags-
laust?
Kristján
Kristján Hjálmarsson Hjálmarsson
spáir mikiö í tímann. nemandi í
DV-mynd Flensborg
hin hliðin
Dennis Rodman körfuboltasnillingur:
Sannkallað
hirðfífl
Körfuboltahirðfíflið Dennis Rodman, sem
seldur var á dögunum til Chigaco Bulls, fer ekki
croðnar slóðir. Og aðdáendur Chigaco Bulls liðs-
.ns eru víst ekki mjög hrifnir af þeirri ákvörðun að
á hann í liðið.
Jennis Rodman þykir mjög góður körfuboltamaður
n hann er duglegur að rífa munn og hneyksla fólk.
'lennis mætir stundum með bleikt hár á leik og
næsta dag er það orðið grænt.
Dennis hefur verið orðaður við söngkonuna
Madonnu en hann segir að þau séu einungis
góðir vinir. Hann vill alls ekki meina að hann
hafi fengið lánaða hárliti hjá söngkonunni.
„Ég var byrjaður að lita á mér hárið löngu
áður en ég kynntist henni,“ segir Dennis.
„Margir töldu að við værum par og marg-
ir halda að svo sé enn. Það er bara ekki
rétt því hún er með einhverjum öðrum
en við erum góðir vinir.“
Dennis hefur einnig verið sakaður um
að vera hommi og að hann sjáist oft
heimsækja hommabari. „Það er besta
tónlistin þar,“ segir hann.' „Ég er
ekki hommi en ég hef heldur enga
fordóma gagnvart þeim eða nokkr-
um öðrum. Mér er sama hvort
fólk er svart eða hvítt, Mexíkó-
menn, hommar eða hvaðeina.
Einhvern tíma á lifsleiðinni
kynnist maður fólki sem er
ekki eins og maður sjálfur
og ber virðingu fyrir því vegna
persónuleika þess. Ég á fullt af vinum sem eru hommar og stundum fer ég
með þeim út að skemmta mér á hommabari. Sjálfur er ég gagnkynhneigð-
ur en ég get engu að síður skemmt mér hvar sem er,“ segir Dennis.
Hann er með tuttugu tattóveringar á líkamanum, þar af eina af andliti
dóttur sinnar og segist ætla næst að setja tattveringu aftan á höfuðið á sér.
Sannarlega öðruvísi náungi.
En það eru ekki allir hrifnir af þessum skrýtna náunga en hann segir að
sér sé alveg sama þótt einhverjum sé illa við hann. „Ég þarf ekki að vera
eins og hinir. Ég ætla bara að gera það sem ég vil og læt enga hafa áhrif á
það,“ segir körfuboltasnillingurinn Dennis Rodman.
Skemmtilegast að hitta kærustuna
- segir Patrekur Jóhannesson handknattleiksmaður
I
Gylfi Kristjánsson, OV, Akureyri:
Patrekur Jóhannesson, handknatt-
leiksmaður hjá KA á Akureyri,
sýnir lesendum DV hina hliðina í
dag. Patti, eins og hann er gjarnan
nefndur af kunningjum sínum og
vinum, er orðinn einn allra öflug-
asti leikmaðurinn í hópi „strák-
anna okkar“, eins og íslenska
landsliðið er kallað þegar vel geng-
ur, og að sjálfsögðu lykilmaður í
liði sínu, KA. Patrekur er Garðbæ-
ingur sem ílutti sig norður til Ak-
ureyrar vegna handboltans fyrir
tveimur árum og gerir það gott
þar. En hér kemur hin hliðin á
Patta.
Fullt nafn: Patrekur Jóhannes-
son.
Fæðingardagur og ár: 7. júlí 9172.
Maki: Álfhildur Gunnarsdóttir.
Börn: Engin.
Bifreið: Engin.
Starf: Afgreiðslumaður í Bókvali.
Laun: Ágæt.
Áhugamál: Hestamennska og
handknattleikur.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Ég vann einhvem tíma 5
þúsund krónur í happdrætti.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera? Fara suður og hitta
kærustuna.
Hvað finnst þér leiðinlegast
að gera? Að laga til heima
hjá mér.
Uppáhaldsmatur: Pasta á
Pizza ’67.
Uppáhaldsdrykkur: Kók.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Valdimar Gríms-
son.
Uppáhaldstímarit: KFUM skóg-
artíðindi.
Hver er fellegasta kona sem þú
hefur séð? Álfhildur Gunnarsdótt-
ir er langflottust.
Ertu hlynntur eða andvígur
ríkisstjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest
til að hitta? Fidel Castró.
Uppáhaldsleikari: Silvester Stall-
one.
Uppáhaldsleikkona: Edda
Heiðrún Backman.
Uppáhaldssögnvari: Eros Rama-
szotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Einar K. Guðfinnsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Björn „slanga".
Uppáhaldssjónvarpsefni: 1919.
Uppáhaldsveitingahús: Pizza
’67 á Akur-
eyri.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Villta svani.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Lúð-
vík Örn Steinarsson á Aðalstöð-
inni.
Hvort horíir þú meira á Sjón-
varpið eða Stöð 2? Ríkissjónvarp-
ið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig-
mundur Ernir Rúnarsson.
Uppáhaldsskemmti-
staður: KA- heimil-
ið.
Uppáhaldsfélag í
íþróttum: KA og
Stjarnan.
Stefnir þú að ein-
hverju sérstöku í
framtíðinni? Að
klára stúdentspróf.
Hvað gerðir þú í sumarfrí-
inii? Fór á tölvunámskeið.
Drew Barrymore siglir upp
stjörnuhimininn i Hollywood sem
aldrei fyrr. Eins og margir vita átti
Drew erfið unglingsár þar sem hún
var forfallin fíkniefnaneytandi og
alkóhólisti.
Drew sem var fræg barnastjarna
er tvítug í dag og hefur gjörbreytt
um lífsstíl. Hún lék í myndunum
Mad Love og Batman Forever.
Drew er á föstu með Eric Erlandson
gítarleikara í hljómsveit Courtney
Loves.
Árið 1993 lék Drew táninginn
Amy Fisher í sjónvarpsframhálds-
myndum. Málið fjallaði um frægt
sakamál í Bandaríkjunum. Amy
var sextán ára skólastúlka frá Long
Island sem skaut eiginkonu elsk-
huga síns.
Dýrasti kötturinn
Þeir sem eru komnir um og yfir
miðjan aldur muna vel eftir kettin-
um Felix sem skemmti sjónvarpsá-
horfendum um margra ára skeið.
Teiknimyndahetjan Felix er eldri en
Mikki mús og allir þeir félagar. Ný-
lega hafa verið gerðir nýir þættir
fyrir sjónvarp með kettinum Felix
og munu það vera einhverjir dýr-
ustu teiknimyndaþættir sem gerðir
hafa verið.
Drew Barrymore: