Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1995, Qupperneq 50
LAUGARDAGUR 28. OKTÓBER 1995
Rúnar Geir Steindórsson prentari,
Lambastekk 8, Reykjavík, verður
sjötugur á morgun.
Starfsferill
Rúnar fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp og í Gnúpverjahreppnum.
Hann hóf nám í prentiðn í Steind-
órsprenti og Víkingsprenti 1942 og
lauk sveinsprófi í setningu 1946.
Rúnar starfaði lengst af við vél-
setningu en síðan við umbrot og
loks við offsetprentun. Hann starf-
aði m.a. hjá Hilmi til 1970, hjá
prentsmiðjunni Eddu og loks í Fé-
lagsprentsmiðjunni. Þá var hann
um skeið línumaður hjá Landssíma
íslands, var vörubílstjóri og stund-
aði akstur farþegabifreiða.
Rúnar hefur starfað mikið fyrir
ÍR, einkum skíðadeildina, ogþá
ekki síst að Kolviðarhóli og í
Hamragili. Þá var hann einn af
stofnendum knattspyrnudeildar
ÍR. Hann sat í stjórn Skíðasam- •
bands íslands í fimmtán ár.
Þau hjónin fara mikið á skíði með
barnabörnunum en eiginkona
Rúnars varð nítján sinnum ís-
landsmeistari á skíðum og fyrst ís-
lenskra kvenria til að keppa á
vetrarólympíuleikum.
Fjölskylda
Rúnar kvæntist 6.11.1958 Jakob-
ínu Valdísi Jakobsdóttur, f. 21.11.
1932, húsmóðurog starfsmanni
Félagsmálastofnunar Reykjavík-
urborgar. Hún er dóttir Jakobs
Gíslasonar, skipstjóra og fiskmats-
manns á ísafirði, og k.h., Guðbjarg-
ar Hansdóttur húsmóður.
Börn Rúnars og Jakobínu Valdís-
ar eru Jakob, f. 8.1.1958, vélfræð-
ingur í Kópavogi, kvæntur Rann-
veigu Guðmundsdóttur fóstru og
eiga þau þrjú böm; Guðrún Lilja,
f. 23.3.1960, kennari í Hafnarfirði,
gift Elvari Guðjónssyni, viðskipta-
fræðingi og framkvæmdastjóra, og
eiga þau þijú böm; Vignir Guð-
björn, f. 18.12.1965, póstbílstjóri og
skíðakennari í Reykjavík; Gunnar,
f. 4.9.1967, sölumaður í Reykjavík,
og á hann eitt bam; Benedikt Hans,
f. 18.2.1970, sölumaður íReykjavík.
Systkini Rúnars: Bjöm, f. 25.2.
1912, látinn, bifvélavirki; Guðni
Örvar, f. 1.11.1913, látinn, bílstjóri
og símamaður; Kristrún, f. 12.3.
1915, húsmóðir; Einar Þórir, f. 9.10.
1916, látinn, bifvélavirki, faðir Hö-
skuldar, fyrrv. formanns Lands-
sambands slökkviliðsmanna;
Gunnar, f. 24.10.1918, látinn; Vignir
Guðbjörn, f. 12.12.1919, látinn; Guð-
rún Eybjörg, f. 17.1.1921, látin;
Steinunn María, f. 6.11.1922, píanó-
kennari, móðir Björn Vignis Sig-
urpálssonar blaðamanns.
Foreldrar Rúnars vora Steindór
Björnsson frá Gröf, f. 3.5.1885, d.
14.2.1972, fimleikakennari og efnis-
vörður Landssímans, og k.h., Gur-
ún Guðnadóttir húsmóðir.
Ætt
Steindór var sonur Björns,
hreppstjóra og alþm. í Grafarholti,
bróður Eyvindar, afa Bjöms Ey-
vindar Björnssonar yfirverkfræð-
ings. Bjöm var sonur Bjöms, b. í
Vatnshorni, Eyvindssonar, og Sól-
veigar, systur Árna, langafa Bjöms
Th. Bjömssonar listfræðings. Sól-
veig var dóttir Björns, prests á
Þingvöllum, Pálssonar, prests á
Þingvöllum, Þorlákssonar, bróður
Jóns, prests og skálds á Bægissá.
Móðir Björns var Sigríður Stefáns-
Anna Bára Kristinsdóttir
Anna Bára Kristinsdóttir hús-
móðir, Gránufélagsgötu41A, Akur-
eyri, verður áttræð á morgun.
Starfsferill
Anna Bára fæddist á Brattavöll-
um á Árskógsströnd og ólst upp á
Árskógsströndinni. Hún var fjórt-
án ár vinnukona í Fagraskógi þar
sem hún kynntist manni sínum en
þau fluttu inn á Akureyri áriö 1946.
Fyrstu árin bjuggu þau í Laxdals-
húsi en síðar í húsinu Carolina
Rest í tuttugu og eitt ár. Síðustu
búskaparárin bjuggu þau í Glerár-
hverfi eða þar til þar tU eiginmaður
Önnu Báru lést. Hún býr nú að
heimili fósturdóttur sinnar að
Gránufélagsgötu á Akureyri.
Fjölskylda
Maöur Önnu Bám var Elí Olsen,
f. 11.5. 1921, d. 7.12.1988, sjómaöur
af færeyskum ættum.
Anna Bára og Elí eignuðust tíu
börn og fósturbörn. Börn þeirra:
Friðberg, f. 22.7. 1933, starfsmaður
við Fiskiðjuna á Sauðárkróki, ekk-
ill, á hann eitt barn; Örn, f. 1.10.
1941, starfsmaður hjá Slippfélaginu
á Akureyri, kvæntur Ingibjörgu
Egilsdóttur húsmóður og eiga þau
flögur böm; Elspa, f. 6.8.1946, hús-
móðir á Akureyri, og á hún fimm
böm; Sigurður, f. 24.6. 1947, bíl-
stjóri hjá Kjarnafæði, búsettur á
Akureyri og á hann þrjú börn; Vil-
borg, f. 22.10.1949, húsmóðir á Ak-
ureyri, gift Jóni Bjarna Jóhannes-
syni og eiga þau þrjú börn; Geir-
þrúð, f. 23.4.1951, húsmóðir á Akur-
eyri, gift Ingimar Marinó Víglunds-
syni, starfsmanni hjá Odda, og eiga
þau íjögur böm; Jonna, f. 3.11.1952,
húsfreyja í Beijanesi undir Eyja-
fjöllum, en maöur hennar er Vigfús
Andrésson kennari og á hún íjögur
böm; Ragnar Þór, f. 7.4.1955, stýri-
maður á Akureyri, kvæntur Erlu
Helgadóttur húsmóður og eiga þau
þrjú börn; Hallur Mar, f. 1.6. 1956,
búsettur á Akureyri, kvæntur
Hjördísi Rut Jónasdóttur hjúkrun-
arfræðingi og eiga þau þrjú böm.
Fósturdóttir Önnu og Elí er Anna
Elísa, f. 9.4. 1965, leikskólakennari
á Akureyri, gift Amari Yngvasyni,
starfsmanni hjá Odda, og eiga þau
tvær dætur.
Foreldrar Önnu Báru vora Krist-
inn Pálsson járnsmiöur og Sigríður
Aðalbjörg Jóhannsdóttir en þau
bjuggu lengst af á Árskógsströnd-
inni.
Anna Bára tekur á móti gestum
í Húsi aldraðra við Gránufélags-
götu, milli kl. 15.00 og 19.00 í dag.
JónÓmar Jóhannsson
Jón Ómar Jóhannsson, öryggis-
vörður hjá Reykjavíkurborg,
Vatnsstíg 11, Reykjavík, er fertugur
í dag.
Starfsferill
Jón Ómar fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Skuggahverfinu.
Hann hefur starfað hjá Ölgerð Eg-
ils Skallagrímssonar, fyrst sem
sendisveinn en síðar starfsmaður í
verksmiðju, starfaði í þrjú ár hjá
Eimskipafélagi íslands, vann hjá
Kassagerð Reykjavíkur um skeið
og hjá bifreiöaverkstæðinu Bjarma
en hefur verið öryggisvörður hjá
Reykjavíkurborg frá 1993.
Fjölskylda
Systir Jóns Ómars er Klara Jó-
hannsdóttir, f. 16.11. 1947, banka-
starfsmaður í Reykjavík.
Foreldrar Jóns Ómars voru Jó-
hann Benediktsson, f. 14.7.1910, d.
27.2.1977, verkamaður í Reykjavík,
og Helga Guðjónsdóttir, f. 6.12.1912,
d. 20.9. 1977, húsmóðir.
dóttir, prests á Breiðabólstað í
Fljótshlíð, Högnasonar prestafoður
Sigurðssonar. Móðir Sigríöar var
Guðrún, systir Björns, prófasts í
Sauðlauksdal, Halldórssonar. Móð-
ir Sólveigar var Þórunn Björns-
dóttir, prests í Hítardal, Benedikts-
sonar og Sólveigar Ásgeirsdóttur,
prófasts á Stað í Steingrímsfirði,
Jónssonar, langafa Kristínar,
ömmu Ásgeirs Ásgeirssonar for-
seta.
Móðir Steindórs var Kristrún
Eyjólfsdóttir frá Stuðlum í Reyðar-
firði.
Guðrún var dóttir Guöna, b. á
Keldum, bróður Vilborgar, ömmu
Vigdísar forseta. Guðni var sonur
Guðna, b. á Keldum, bróður Þor-
varðar, langafa Margrétar, móður
Bjargar Sveinsdóttur myndlistar-
manns. Guðni var sonur Guðna, b.
í Saurbæ, bróður Sigríðar,
langömmu Halldórs Laxness.
Guðni var sonur Gísla, ættfóður
Reykjakotsættarinnar, Jónssonar.
Móðir Guðna yngra á Keldum var
Ástríður Finnsdóttir, b. á Kaldár-
höfða, Finnssonar og Ingveldar
Jónsdóttur.
Rúnar Geir Steindórsson.
Móðir Guðrúnar var Guðrún Ey-
björg Sigurðardóttir, b. í Haukadal
í Biskupstungum, Guðmundsson-
ar.
Rúnar og Jakobína taka á móti
gestum í félagsheimili ÍR við Skóg-
arsel á á morgun milli kl. 15.00 og
18.00.
Til hamingju
með afmælið
28. október
85 ára 60ára
Kristín Kristjánsdóttir,
Hvammi, Húsavík.
Steingrímur Jónsson,
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík.
80 ára
Ingibj örg Jónsdóttir,
Skagfirðingabraut 1, Sauðárkróki.
Ragnheiður Ólafsdóttir,
Selvogsbraut23, Þorlákshöfn.
Guðrún Ármannsdóttir,
Sílalæk I, Aðaldælahreppi.
Óskar Hraundal,
Hvassaleiti 56, Reykjavík.
Kristín Salómonsdóttir,
Hjúkrunarheimilinu Eir við Gagn-
veg, Reykjavík.
75 ára
Sigurgeir Jónasson,
Vogum n, Skútustaðahreppi.
Björn Sigurðsson,
Árskógum 6, Reykjavík.
Sigrún Bárðardóttir,
Snekkjuvogi 12, Reykjavík.
Jón Karl Þórhallsson,
Hlíðarstræti 6, Bolungarvík.
Margrét Kristófersdóttir,
Kúludalsá I, Innri-Akraneshreppi.
Margrét er að heiman.
70 ára
Kristján Blær Ásmundsson,
Lindahlíð, Aðaldælahreppi.
Gunnar Matthíasson,
Grenimel 25, Reykjavík.
Ólafur Stefánsson,
Stafholti 3, Akureyri.
Gústaf Sigurjónsson,
Eystri-Torfastöðum II, Fljótshlíð-
arhreppi.
Elliði Magnússon
frá Engjabæ við Holtaveg,
pípulagningarmeistari,
Suðurhólum 14, Reykjavík.
Anna Þorvarðardóttir,
GarðarsvegiS, Seyðisfirði.
Anna Lilja Kvaran,
Gaukshólum 2, Reykjavík.
Guðmundur Tryggvi Sigurðsson,
Hvammstangabraut 24, Hvamm-
stanga.
Guðbjörg Jónsdóttir,
Engjaseli 54, Reykjavík.
50ára
Sigurlaug
Þórðardóttir,
gjaldkeri
hjáDV,
Melbæ 15,
Reykjavík.
Ari Sigurjónsspn,
Smiðjugötu 10, ísafirði.
Ingi Friðbjörnsson,
Grundarstíg 28, Sauðárkróki.
Guðmundur Snævar Ólafsson,
Hrafnhólum 4, Reykjavík.
Þórður Þorgeirsson,
Staðarseli 3, Reykjavík.
Örvar Sigurðsson,
Lækjargötu 34E, Hafnarfirði.
Birgitta Guðlaugsdóttir,
Heiðvangi 6, Hafnarfirði.
40ára
Lilja Pálsdóttir,
Setbergi 27, Þorlákshöfn.
Jóhanna Kristín Arndal,
Dalhúsum 56, Reykjavík.
Sæmundur Runólfsson,
Vesturhúsum 11, Reykjavík.
Eiríkur Ásmundsson,
Þverholti 32, Reykjavík.