Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996 FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996 27 Iþróttir íþróttir Sforza meiddur Ciriaco Sforza, hinn snjalli miðjumaður Bayern Miinchen og svissneska landsliðsins í knattspymu, meiddist í leik Bayern gegn Nottingham Forest í fyrrakvöld. Hann verður frá í 4-6 vikur og þetta er mikið áfall fyrir Bayern, og gæti komið illa við Svisslendinga sem búa sig undir úrslit Evrópukeppninnar í Englandi. Kórea og Japan? Forseti knattspyrnusambands Asíu, Ahmad Shah, hvatti í gær Alþjóða knattspyrnusambandið til að fá Japan og Suður-Kóreu til að halda HM árið 2002 í sam- einingu. Hann sagöist hafa mikl- ar áhyggjur af hinni hörðu bar- áttu milli grannþjóðanna tveggja um keppnina. Pílukast í kvöld Fyrst' pílukastmótið sem gef- ur stig til landsliðs fer fram í kvöld í Garðakránni, Garðatorgi 1 í Garðabæ, og hefst klukkan 19. Kim Magnús vann Kim Magnús Nielsen vann ör- uggan sigur í meistaraflokki karla á Sjóvá-Almennra mótinu í skvassi sem fram fór í Vegg- sporti um síðustu helgi. Hrafn- hildur Hreinsdóttir sigraði í opn- um flokki og Þórveig Hákonar- dóttir í A-flokki kvenna. Skylmast í Skotlandi Landsliðið í skylmingum tek- ur þátt í alþjóðlegu móti í Edin- borg um næstu helgi. Sex bestu höggsverðskeppend- ur landsins fara utan en þeir eru Sigrún Ema Geirsdóttir, Ólafur Bjamason, fyrirliði, Kári Freyr Bjömsson, Ragnar Ingi Sigurðs- son, Kristmundur Bergsveinsson og Davíð Þór Jónsson. Hans skaut best Hans Christensen sigraði á vormóti Skotfélags Reykjavíkur í staðlaðri skammbyssu sem haldið var í Baldurshaga á mánudaginn. Hann fékk 524 stig. Reykjavíkurmótið Reykjavíkurmótið I knatt- spyrnu hefst annaö kvöld með leik Fylkis og Þróttar í A-deild og Víkings og Léttis í B-deild. Á sunnudag er stórleikur á milli KR og Vals og á sunnudag mæt- ast Fram og ÍR. Ostakvöld hjá GR Hið árlega ostakvöld hjá GR- konum verður haldiö í golfskálanum í Grafarholti á fostudag og hefst kl. 20.00. Veitt verða verðlaun fyrir púttkvöld vetrarins. Panasonic hljómtækjasamstæða SC CH72 Samstæða með 3diska spilara, kassettutækí, 140W.surround magnara, tónjafnara, útvarpi, hátölurum og fjarstýringu. krónur l T I L B 0 Ðy 49.950, BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI 2. deild karla í handbolta: Fram og HK nær 1. deild Fram og HK færðust skrefí nær 1. deildinni í handknattleik að ári þeg- ar þau unnu leiki sína í úrslita- keppni 2. deildar í gærkvöldi. Fram vann stórsigur á ÍH í Hafn- arfirði, 14-34. Oleg Titov skoraði 8 mörk fyrir Fram og þeir Ármann Sigurvinsson, Hilmar Bjarnason og Jón Þórir Jónsson skoruðu 5 mörk hver. Hjá ÍH var ólafur Thordersen með 6 mörk og Guðjón Gíslason 3. HK lagði Fylki í Árbænum, 26-30. Óskar Elvar Óskarsson skoraði 8 mörk fyrir HK, Gunnleifur Gunn- leifsson 7, Siggi Sveins 5 og Jón Bersi Ellingsen 4 en hjá Fylki var Rögnvaldur Johnsen með 9 mörk , Hjálmar Vilhjálmsson 5 og Elías Þ. Sigurðsson 4. Þá vann Breiðablik útisigur á Þór, 25-29. Páll Gíslason skoraði 7 mörk fyrir Þór, Jón K. Jónsson 5 og Geir Aðalsteinsson 4 en Erlendur Stefánsson skoraði 10 mörk fyrir Blika, Sigurbjörn Narfason 6 og Örvar Ásgrímsson 6. Staðan í úr- slitakeppninni er þannig: Fram HK 5 3 2 0 144-99 12 5401 145-105 10 Þór A. Fylkir Breiðablik ÍH 3 156-172 7 2 145-138 6 3 129-161 4 4 90-134 2 -GH Juventus komst í undanúrslitin Juventus, Ítalíu, Panathinaikos, Grikklandi, Spartak Moskva, Rúss- landi og Evrópumeistarar Ajax Amsterdam frá Hollandi tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum meistarakeppni Evrópu í knatt- spyrnu en leikið var í 8-liða úrslit- unum í gær. Úrslitin: Spartak-Nantes...........2-2 (2-4) 1- 0 Nikiforov (33.), 2-0 Nikiforov (38.), 2- 1 Oedec (63.), 2-2 Oedec (85.) Juventus-Real Madrid .... 2-0 (2-1) 1-0 Del Piero (16.), 2-0 Podovano (55.) Ajax-Dortmund...........1-0 (3-0) 1-0 Kiki Musampa (74.) Panathinaikos-Legia.....3-0 (3-0) 1-0 Warzycha (34.), 2-0 Warzycha (58.), 3- 0 Borelli (72.) Það gekk mikið á í viðureign Juventus og Real Madrid á Delle Alpi leikvangnum í Torónó. Al- essandro Del Piero • gaf Juventus óskabyrjun þegar hann skoraði mark úr aukaspyrnu á 16. mínútu og framherjinn Michele Padovano sendi Real Madrid út úr keppninni þegar hann skoraði síðara markið á 55. mínútu. Eftir það var leikurinn mjög harður og þurfti að vísa einum leikmanni úr hvoru liði af velli. Fyrst fékk Spánverjinn Rafael Al- korta reisupassann og sömu leið fór Moreno Torricelli skömmu síðar. Evrópumeistarar Ajax hafa nú leikið 19 leiki í röð í Evrópukeppn- inni án þess að bíða ósigur. Þrátt fyrir að að í lið Ajax vantaði nokkra lykilmenn tókst liðinu að innbyrða sigur á Dortmund og skoraði hinn 18 ára gamli Kiki Musampa sigur- markið 16 mínútum fyrir leiksok Það var kaldhæðni örlaganna í leik grísku meistaranna Panathinai- kos og pólsku meistarana i Legia að Pólverjinn Warzycha skoraði tvö marka Panathinaikos gegn löndum sínum og sendi þar með Legia út úr keppninni. -GH Jóhann G. Jóhannsson átti mjög góðan leik með KA gegn FH á Akureyri í gærkvöld og skoraði grimmt. Hér er hann á ferð með knöttinn sem skömmu síðar lá í marki andstæðingsins. DV-mynd ÞÖK FH-ingar kafsigldir - KA sigraði lið FH mjög auðveldlega á Akureyri í gærkvöldi, 34-26, í fyrsta leik liðanna DV.Akureyri: „Þessar tölur í kvöld skipta engu máli fyrir okkur. Þetta er þriggja leikja ef mál þróast þannig. Sigurinn er hins vegar gott veganesti en þetta eru held ég jöfn lið og leikurinn hjá okkur í Hafnarfirði verður erfiður," sagði Alfreð Gíslason, þjálfari og leikmaður KA, eftir auðveldan sigur KA á liði FH í fyrsta leik liðanna í undanúr- slitum Nissandeildarinnar í handknattleik. KA-menn léku skínandi góð- an handknattleik og virðast vera að ná fyrri styrk í vetur. Alfreð viröis't vera með liðið í toppformi á réttum tíma. KA var betra á öllum sviðum handboltans og sigur liðsins var verðskuldaður og aldrei í neinni hættu. FH-ingar áttu aldrei mögu- leika gegn sterkum heima- mönnum og voru fljótir að gef- ast upp í síðari hálfleik er halla fór undan fæti. Lykil- menn voru þá teknir út af fyr- ir miðjan síðari hálfleik. Hjá KA var Jóhann G. Jó- hannsson bestur ásamt þeim .Patreki Jóhannessyni og Björgvin Björgvinssyni. í liði FH var Gunnar Bein- teinsson einna skástur ásamt Hans Guðmundssyni. Héðinn var ágætur framan af en dalaði er á leið leikinn eins og félagar hans allir. Lið FH var afskap- lega dapurt og erfitt að nefna bestu leikmenn. „Ágætt að við töpuðum stórt“ „Við náðum okkur aldrei á strik. Það var einhver doði yfir okkur og það var bara ágætt að tapa leiknum með þetta mikl- um mun fyrst við þurftum að tapa þessum leik á annað borð. Við ætlum hins vegar að taka á móti þeim af hörku á fóstu- daginn enda eigum við mikið inni. Við erum ákveðnir í að selja okkur dýrt á heimavelli okkar og gera allt til að leggja þá að velli. í kvöld var eins og menn sættu sig við að komast bara í undanúrslitin. Ég er viss um að við getum komið til baka eftir þetta tap,“ sagði Gunnar Beinteinsson FH-ingur eftir leikinn. Annar leikur KA og FH fer fram í Kaplakrika annað kvöld. Sigri KA fer liðið í úr- slit gegn Val eða Aftureldingu en vinni FH mætast liðin í oddaleik á Akureyri. -KG Viggo og Dagur sömdu í tvö ár við Wuppertal Viggó Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari hjá þýska handknattleiksliðinu Wuppertal. Viggó hefúr þegar skrifað undir tveggja ára samning við þýska liðið. Samkvæmt öruggum heimildum DV hafa for- ráöamenn Wuppertal í hyggju að kaupa sex til sjö leikmenn til liðsins. Þegar hefur verið geng- ið frá samningi við Dag Sigurðsson, Val, og hef- ur verið skrifað undir hann með þeim fyrirvara að samþykktur verði ótakmarkaður fjöldi leik- manna í þýska boltanum frá EES-löndum og tveir leikmenn frá öðrum löndum. Aðeins er beðið eftir stimpli frá viðkomandi ráðuneyti i Þýskalandi og talið fullvíst að leyfið komi fljót- lega. Dagur samdi til tveggja ára Dagur skrifaði undir samninginn til tveggja ára. Eins og komið hefur fram í DV hefur Ólaf- ur Stefánsson, Val, einnig skrifað undir við Wuppertal. Þá er Stjörnumaðurinn Dimitri Fil- ippov á leið til Wuppertal og leikur með liðinu sem erlendur leikmaður. Loks má nefha að Daninn Claus Holm Petersen, sem leikur í Portúgal, er á fórum til liðsins. Guðmundur Hrafnkelsson, landsliösmark- vörður í Val, hefur verið orðaður við lið Wupp- ertal en öruggar heimildir DV segja að ekkert verði af því að hann fari til liðsins. Hins vegar hefur Viggó Sigurðsson áhuga á að semja við FH-inginn Gunnar Beinteinsson og skýrist það mál á næstu vikum. -SK Rúnar með glæsilegt jöfnunarmark DV; Svíþjóð: Rúnar Kristinsson skoraði glæsi- legt mark fyrir Örgryte gegn Gunn- else í sænsku bikarkeppninni' í knattspyrnu í gær. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli og það nægði Örgryte til að komast í 8-liða úrslit keppninnar þar sem það mætir Elfsborg, liði Kristjáns Jónssonar. Rúnar skoraði markið strax á 3. mínútu leiksins. Örgryte fékk þá aukaspyrnu 4-5 metra fyrir utan vitateig og Rúnar gerði sér lít- ið fyrir og þrumaði knettinum beint upp í markvinkilinn. Rúnar lék sem vinstri barkvöður í fyrri hálfleik en í þeim síðari fór hann inn á miðj- una og við það færðist líf í leik liðs- ins. Rúnar lék vel og var einn besti maður Örgryte í leiknum. Fjögur ís- lendingalið eru þar með í 8-liða úr- slitunum. Örgryte, lið Rúnars Krist- inssonar, Elfsborg, lið Kristjáns Jónssonar, Hammarby, lið Péturs Marteinssonar og Sirius, liðið sem Einar Brekkan leikur með. -EH Brolin seldur? Sænski landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, Tomas Brolin, gæti verið á förum frá Leeds United enda hefur hann lítið getað frá því hann kom til liðsins. Howard Wilkinson er reiöubúinn að selja Brolin fyrir 3 milljónir punda en hann greiddi Parma 4,5 milljónir punda fyrir Svíann. -SK Þróttarsigur Þróttur sigraði Stjörnuna, 3-1, í fýrsta leik liðanna í gær- kvöld um íslandsmeistaratitil- inn í karlaflokki í blaki. Þróttur vann tvær fyrstu hrinumar, 15-12 og 15-6, Stjarn- an tvær næstu 6-15 og 10-15. Oddahrinu vann Þróttur 15-12. Valsmenn í rútu Valsmenn ætla að hittast að Hlíðarenda kl. 18 í dag og stilla saman strengina fyrir leikinn mikilvæga gegn Aftureldingu í Mosfellsbæ í kvöld. Boðið verður upp á veitingar, miðar seldir á leikinn og síðan farið í rútu á leikinn. KA - FH (15 - 11 ) 34 - 26 3-0. 6-4, 8-6, 8-8, 9-10, 13-11 /15-11(), 16-13, 17-15, 21-15, 24-18, 27-19, 32-22, 34-26. MörkKA: Julian Duranona 8/5, Patrekur Jóhannesson 7/1, Jóhann G. Jóhannsson 7, Björgvin Björgvinsson 5, Leó Öm Þorleifsson 2, Sverrir Björnsson 2, Helgi Þór Arason 1, Atli Þór Samúelsson 1, Erlingur Kristjánsson 1. Varin skot: Guðmundur Arnar Jónsson 9, Björn Björnsson 3. Mörk FH: Hans Guðmundsson 5, Gunnar Beinteinsson 4, Héðinn Gilsson 4, Hálfdán Þórðarson 3, Guðjón Ámason 3, Sigurjón Sigurðsson 2, Sigurður Sveinsson 2/1, Guðmundur Petersen 1, Stefán Guðmundsson 1, Sverrir Sævarson 1. Varin skot: Magnús Árnason 2, Jónas Stefánsson 1. Brottvísaiiir: KA 6 mín., FH 2 mín. Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og Gunnar Viöarsson, gerðu nokkur mistök en dæmdu í heildina ágætlega. Áhorfendur: 1.036, fullt hús. Maður leiksins: Jóhann G. Jóhannsson, KA. Vilja alls ekki missa Glen Hoddle Allir leikmenn enska úrvals- deildarliðsins Chelsea, vilja að Glen Hoddle verði áfram fram- kvæmdastjóri hjá Chelsea í ensku knattspyrnunni. „Ég vil að Hoddle verði áfram framkvæmdastjóri og að hann skrifi undir nýjan samning. Ef hann fer frá félaginu held ég að margir muni fylgja honum. Hann hefur gert mjög góða hluti hjá okkur og vonandi á hann eft- ir að gera enn betri hluti í fram- tíðinni," sagði Dennis Wise, fyr- irliði Chelsea. —SK Glæsimark Cantona - og Man. Utd sigraði Arsenal á Old Eric Cantona, glæsimark gegn Arsenal. Eric Cantona skoraði enn eitt markið fyrir Man Utd í gærkvöldi og tryggði liðinu sigur gegn Arsenal. Cantona skoraði markið í síðari hálfleik með glæsi- legu langskoti. United er nú aftur jafnt Newcastle í toppsætum úrvalsdeildar- innar. Tottenham vann Bolton, 2-3 og Sheíf Wed vann Southampton, 0-1. Liverpool sigraði Leeds, 3-0, í bikarnum og er kom- ið í undanúrslit og mætir Villa en Chelsea mætir Man Utd. McManaman (2) og Robbie Fowler skoruðu mörk Liverpool gegn Leeds í gærkvöldi. -SK Iþróttafréttir eru einnig á bls. 28 Pásko@ggjapottur 96 4 V\e's'á mó/)oc/agino Nœstkomandi mánudag hefst skemmtilegur símaleikur með sparihefti heimilanna. 300 heppnir þátttakendur sem svara rétt þremur spurningum úr sparihefti 4^? heimilanna fá gómsœtt páskaegg frá Nóa-Síríusi Mk í verðlaun. (1 Nöfn vinningshafa verða birt í DV miðvikudaginn 3. apríl. Páskaeggin verða afhent á 4. hœð í Perlunni laugardaginn 6. apríl, frá kl. 14-17. Sparihefli heimilanna PáskasCKjjapoltur 96 t

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.