Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1996, Blaðsíða 36
44 LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1996 I^"V „Stormarnir, nepjan, rigningarn- ar og kuldinn ollu mér meiri þján- ingum heldur en nokkurn tíma hitarnir í Gyðingalandi. Húðin á vörum mínum og andliti sprakk þó ekki öll i hitanum þar. En ég hafði ekki verið nema fimm daga á ferða- lagi hér er tekið var að blæða úr vörum og andlitið allt flagnað, eins og ég hefði fengið mislinga." Þannig skrifar Ida nokkur Pfeif- fer, þýsk iniðaldra kona sem af stakri ævintýraþrá tók sér far frá Kaupmannahöfn til Hafnarfjarðar í maímánuði árið 1845. Næstu vik- urnar notaði hún til að ferðast um landið og rita í minnisbók það sem fyrir augu bar. Þegar hún kom aftur til Þýskalands gaf hún ferðasögu sína út á bók og kom hluti hennar út hér á landi í þýðingu Jóns Helga- sonar blaðamanns hjá Skuggsjá árið 1845. Siðastliðið sumar voru því 150 ár liðin frá ferðalagi hennar. Á þess- um tímamótum er rétt að riíja upp það sem bar fyrir augu þessarar þýsku matrósu sem fékk þá undar- legu flugu í höfuðið að gerast ferða- langur á íslandi. Ferðamenn uppspretta auðs Öllum er það ljóst nú á dögum að þjónusta við ferðamenn skiptir þjóð- arbúið verulegu máli. Fyrir 150 árum voru einnig ýmsir sem gerðu sér ljóst að hafa mætti tekjur af er- lendum ferðamönnum. Má þar með- al annars nefna leiðsögumanninn sem gekk með frú Pfeiffer upp Heklu. Fyrir ómakið þennan eftir- miðdag setti hann upp verð sem þýska frúin taldi jafngilda mánaðar- launum venjulegs íslendings. Líkt og sumir ferðalangar, sem síðar komu, kvartar hin þýska Pfeiffer mjög undan háu verðlagi. Hún segir það ekki nóg að þegar allt sé tekið saman þá séu ferðalög á íslandi þau erfiðustu og óþægilegustu sem fyrir finnist sökum veðurfars og vega- leysis, heldur bætir hún við: „Ferðalög á íslandi eru dýrari en annars staðar. Veldur því í fyrsta lagi að ferðamaðurinn er venjulega einn, svo að kostnaður við fylgd og flutning, ferjutollar og annað þess háttar lendir allt á einum. Alla hesta sem nota þarf verður að kaupa því að ógerlegt er að fá hest að láni. Þeir eru í þokkabót dýrir: áburðarhestar kosta 18-20 flórur og reiðhestar 40-50. Hestar geta ekki borið þungar klyfjar og þess vegna verða þeir sem vilja hafa meðferðis einhver teljandi þægindi að kaupa marga klyfjahesta og fá auk þess sérstakan hestasvein til að annast þá því að fylgdarmennirnir vilja að- eins hugsa um reiðhestana og einn eða tvo klyfjahesta í mesta lagi. Vilji menn svo selja hestana að end- uðu ferðalaginu fæst ekki nema gjafverð fyrir þá því að enginn býð- ur í þá neitt sem heitir og sannast hér enn að alls staðar í veröldinni er mönnum gjarnt að hugsa mest um sinn hag. Menn vita, að skepn- urnar verður að skilja eftir og þess vegna gæta þeir þess að bjóða ekki of hátt verð. Ég verð að viöurkenna að á þessu sviði er skapgerð íslend- Raunar heillaðist hún af 10-12 ára gamalli stúlku sem hún taldi hafa fullkomið andlit. Velti hún því fyrir sér hvernig á því stæði að í þessari „útsköfu hnattarins" fyndist slík fegurð og hverjum myndi detta í hug að leita hennar hér. Ýmislegt kom frú Pfeiffer undar- lega fyrir sjónir í fari íslendinga. Henni er tíðrætt um hinn mikla skort á hreinlæti sem viðgekkst hér á landi og um híbýli íslendinga, torfkofana, skrifaði hún: „Það er ógerningur fyrir þann sem inn í þessi hreysi kemur að kveða upp úr um það hvort sé verra, hinn kæfandi reykur í göng- unum eða fúlt andrúmsloftið þegar inn er komið, pestnæmt af sóðaskap og útgufun frá fjölda fólks. Ég er sannfærð um að hinar hræðilegu farsóttir, sem eru svo algengar með- al íslendinga, eru miklu meira að kenna óheyrilegum sóðaskap þeirra heldur en veðurfarinu eða sérkenni- legu mataræði þeirra." Segist hún hafa séð lítinn mun á kofum landsmanna á ferðum sínum um landið, alls staðar voru þeir jafn óþrifalegir og aumir. Meðal þess sem kom frú Pfeiffer mjög á óvart í framferði íslendinga var að mæður ólu ekki börn sín á brjósti heldur gáfu þær börnum sín- um mjög óheilnæma fæðu, að mati Pfeiffer. Taldi hún það réttilega skýringuna á hinum mikla barna- dauða sem þá var í landinu. íslendingar sinnulausir Annað sem frú Pfeiffer mislíkaði í fari íslendinga var hið yfirþyrm- andi sinnuleysi þeirra. Segist hún ævinlega hafa þurft að bíða tíu sinn- um lengur eftir öllu heldur en nauð- synlegt var og því ávallt neyðst til að breyta fyrirætlunum sínum. Ef henni var lofað fullbúnum hesti eft- ir hálftíma þá mátti hún teljast heppin ef minna en fimm klukku- stundir liðu þar til hesturinn kom. Ýmsa aðra undarlega siði íslend- inga telur frú Pfeiffer upp. Meðal annars segir hún frá eftirfarandi upplifun sinni fyrir utan kirkjuna á Stóru-Völlum. „Fólkið streymdi út úr kirkjunni og dreifðist í smáhópa þar sem það stóð hlægjandi og skrafandi. Og ekki gleymdist mönnum heldur að væta á sér kverkarnar með sopa af brennivíni sem þeir höfðu vitaskuld á reiðum höndum. Síðan voru hest- arnir sóttir og kveðjurnar hófust. Kossum rigndi niður í öllum áttum, eins og ræflarnir byggjust ekki við að sjást framar. Kossaflangs Islendinga Um allt ísland er það almennur siður að heilsast og kveðjast með rembingskossi - siður sem útlend- ingi geðjast ekki meira en svo að láti hann eftir sér að horfa á óhrein og viðbjóðsleg andlitin, tóbaksnefin á gamla fólkinu og vanhirðuna á krökkunum. En um allt þetta kærir íslendingurinn sig kollóttan. í þetta skipti kyssti hvert einasta sóknar- barn prestinn og hann fáðmaði þau að sér í staðinn. Þá kysstu þau hann í annað sinn, án tillits til kynferðis eða þjóðfélagsstöðu. Og ég varð inga mun lítilmótlegri heldur en ég hafði búist við og ennþá aumari en frá er sagt í þeim bókum sem ég hafði lesið um þá. Islenskir karlmenn ófríðir Frú Pfeiffer lýsir Islendingum sem meðalmönnum að vexti og burðum. Þeir séu ljósir á hár og slái ósjaldan á það rauðleitum blæ og augun séu blá. Hún segir karlmenn- ina venjulega ófríða en konurnar heldur laglegri og það kom fyrir að hún sá mjög fríðar ungar stúlkur. Hinn mikli óþrifnaður ísiendinga kom hinni þýsku frú Pfeiffer mjög á óvart. Mynd Þjóðminjasafnið Gluggað í ferðasögu ævintýrakonu sem heimsótti Island fyrir 150 árum: Sóðaskapurinn dæmalaus og okrað á ferðamönnum - segir Ida Pfeiffer sem tók sér far frá Kaupmannahöfn til Hafnarfjarðar og ber íslendingum ekki vel söguna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.