Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1996, Blaðsíða 18
18
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1996
Fréttir
Breyting á uppbót á lífeyri og endurgreiðslu á kostnaði vegna læknishjálpar og lyfja:
Meginatriði breytinganna
1. Lyfjakostnaður barna yngri en
6 ára, umfram ákveðna upphæð,
getur komið til endurgreiðslu hjá
Tryggingastofnun ríkisins séu tekj-
ur fjölskyldu undir ákveðnum
mörkum. Endurgreiðslan fer farm
fjórum sinnnum á ári í stað tvisvar
og er 60-90% af kostnaði. Einstakl-
ingur eða fjölskylda, sem hefur inn-
an við 750.000 krónur í árstekjur,
fær endurgreidd 90% af kostnaði
vegna læknis- og lyfjakostnaðar um-
fram 7000 krónur á hverju þriggja
mánaða tímabili.
2. Heimilt er að hækka frekari
uppbót einstaklings sem nýtur um-
önnunar úr 12% í 140% af grunnlíf-
eyri ef viðkomandi hefur verulegan
kostnað vegna umönnunar, lyfja,
sjúkdóms eða húsaleigu og hækka
frekari uppbót lífeyrirsþega sem
nýtur sérstakrar heimilisuppbótar
úr 35% í 40% af grunnlífeyri ef þeir
hafa verulegan sjúkra- eða lyfja-
kostnað og greiða húsaleigu. Hér er
um að ræða hækkun sem getur
numið allt að 32.100 krónum á ári
fyrir einstakling.
3. Hámarkstekjur lífeyrisþega til
að hann geti notið frekari uppbóta
eru ákveðnar 75.000 krónur á mán-
uði sem er ívið hærra en Trygginga-
stofnun hefur notað til viðmiðunar
við ákvörðun frekari uppbóta frá
því í september sl. Þá eru ákveðnar
hámarkseignir lífeyrisþega í pen-
ingum eða verðbréfum 2.500.000
krónur samkvæmt skattframtali til
þess að viðkomandi geti notið frek-
ari uppbóta.
4. Endurskoða skal fyrri úrskurði
fyrir 1. september nk. í samræmi
við reglugerðina og skýrar vinnu-
reglur þannig að jafnræði sé tryggt
milli bótaþega, sama hvenær þeir
hafa fengið úrskurð um frekari upp-
bætur.
5. Tryggingastofnun skal semja
drög að vinnureglum um ákvarðan-
ir og mat á greiðslu frekari uppbóta
sem öðlast gildi eftir staðfestingu
Tryggingaráðs.
Vegna þess hve þessar reglur eru
flóknar og erfitt fyrir fólk að átta sig
á þeim er ætlunin, að sögn heil-
brigðisráðherra, að kynna þær vel.
-ÞK
Viðmiðunarmörk endurgreiðslna
- vegna læknis- og lyfjakostnaðar -
Árstekjur plskyldu
næsta almanaksár
á undan
Grunnkostnaöur
3. mánuöir
Þátttaka TR
umfram grunnkostnaö
Undir 750.000 7.000 90%
750.000-999.999 9.000 90%
1.000.000-1.999.999 15.000 75%
2.000.000-2.999.999 21.000 60%
3.000.000 og meira 0%
Mjólkursamlag KS, Sauðárkróki:
Tækjabúnaður endurnýjaður
DV, Fljótum:
Unnið var að talsverðum endur-
bótum í Mjólkursamlagi Kaupfélags
Skagfirðinga á Sauðárkróki sl. vet-
ur. Sett var upp nýtt þvottakerfí fyr-
ir samlagið sem nýtist bæði fyrir
tækjabúnað og mjólkurbíla. Kerfið
er sjálfvirkt og stjórnað af tölvu.
Framleiðandi er AB Tetra í Svíþjóð.
Þá var keyptur nýr fitusprengj-
ari. Hann er helmingi afkastameiri
en sá sem fyrir var enda var sá
kominn til ára sinna, keyptur 1945.
Öll mjólk sem unnin er sem neyslu-
mjólk og súrmjólk fer í gegnum fitu-
sprengjarann.
Að sögn Snorra Evertssonar sam-
lagsstjóra eru þessi nýju tæki þáttur
í viðhaldi tækjabúnaðar samlagsins
og miða einnig að því að fyrirtækið
skili sem bestri vöru til neytenda.
í vor verður tekið í notkun há-
þrýstiþvottakerfi i húsinu sem ætl-
að er til þvotta á sjálfu húsnæðinu.
Búnaðurinn kemur til með að spara
talsvert sápu- og vatnsnotkun og
einnig vinnu, auk ýmiss hagræðis
sem þessu fylgir. Að sögn samlags-
stjóra er áætlað að kostnaður við
þennan nýja tækjakost verði 17-20
milljónir króna.
-ÖÞ
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI568 9090 • OPIÐ LAUGARDAGA
Fullkommn
- með þjófavörn
Hugmyndasamkeppni ungra vísindamanna 1996:
Nemendur úr Mennta-
skólanum við Sund
Snorri Evertsson samlagsstjóri við nýja fitusprengjarann.
DV-mynd Örn
hlutu fyrstu verðlaun
Verkefnið Náttúruhamfarir og
mannlíf eftir hóp nemenda úr
Menntaskólanum við Sund í Reykja-
vík hreppti fyrstu verðlaun í hug-
myndasamkeppninni Hugvísi en úr-
slit liggja nú fyrir. í hópnum eru
Ágúst Sturla Jónsson, Eyjólfur
Magnússon, Haukur Guðnason,
Hlynur Stefánsson, Ólafur Ragnar
Helgason, Ómar Karlsson, Óskar
Heimir Guðmundsson, Pétur Hann-
es Ólafsson, Stefán Geir Árnason,
Stefán Þórarinsson, Unnar Bjarni
Arnalds, Vignir Jónsson, Þóra Vals-
dóttir, Þórdís Sigurðardóttir og Þor-
valdur Snorri Árnason.
Önnur verðlaun hlaut Lespoki
Styrmis Sævarssonar, nemanda úr
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Þriðju verðlaun hlaut Lífvél Dav-
íðs Guðjónssonar, nemanda úr
Menntaskólanum í Reykjavík.
Sérstaka viðurkenningu fyrir
þátttöku hlutu Halldór Björnsson,
Rúnar Logi Ingólfsson og Tómas
Jónsson, nemendur úr Foldaskóla í
Reykjavík.
Það er fyrirtækið ísaga hf. sem er
fjárhagslegur bakhjarl keppninnar
en að henni standa að auki mennta-
málaráðuneytið og Fræðsluskrif-
stofa Reykjavíkur. Formaður dóm-
nefndar, dr. Sigmundur Guðbjarna-
son prófessor, afhenti verðlaunin í
Hinu húsinu við Aðalstræti.
Sigurvegarar í Hugvísi taka þátt í
Evrópukeppni ungra vísindamanna
í haust og alþjóðlegri vísindakeppi í
Arizona í Bandaríkjunum á næsta
ári.
Keppnin er fyrir framhaldsskóla-
nemendur á aldrinum 15-20 ára.
-ÞK