Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1996, Blaðsíða 5
24
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1996
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1996
25
%
íþróttir
DV
Iþróttir
mai
IMUÐKAUP
Skemmtileg umfjöllun um
brúökaup og allt sem
viðkemur imdirbúmngi þess.
Jafnframt verður tilveran þriðjudaganna
14. og 21. maí tileinkuð unifjöllun um
brúðkaup.
HVERAGERÐI
23. maí
50 ára blómstrandi afmælisbær.
/ Hveragerði er 50 ára á þessu
ári og af því tilefni ætla
Hvergerðingar að efna til
hátíðahalda dagana 24. til 27. maí.
í þessu blaði verður íjallað um Hveragerði
og hátíðardagskrána þessa daga.
DY - Qölbreytt útgáfa á hverjum degi
CÖ5I
k\\\\\v\
Æsispennandi fallbarátta:
Man. City féll
á markatölu
- Coventry og Southampton sluppu
Það kom í hlut Manchester City
að hljóta hin dapurlegu örlög að
falla úr ensku úrvalsdeildinni
ásamt QPR og Bolton.
City, Southampton og Coventry
voru öll jöfn að stigum fyrir síðustu
umferðina í gær og Sheffield Wednes-
day, sem var tveimur stigum á und-
an, var líka í hættu og hefði fallið á
ósigri ef hin þrjú hefðu öll unnið.
Niðurstaðan varð sú að öll fjögur
liðin gerðu jafntefli í leikjum sínum
og þar með féll City eftir 2-2 jafntefli
við Liverpool. Gestirnir komust í
0-2 en leikmenn City gáfust ekki
upp og jöfnuðu þegar 12 mínútur
voru eftir. Þriðja markið, sem hefði
tryggt liðinu áframhaldandi úrvals-
deildarsæti, kom aldrei og þar með
slapp Southampton með skrekkinn.
Coventry hélt sér uppi einu
sinni enn
Southampton lék við Wimbledon
á heimavelli og þar var ekkert mark
skorað. Sömu úrslit urðu hjá
Coventry og Leeds. Coventry, sem
var lengi vel í fallsæti, slapp því enn
eina ferðina við fall en liðið hefur
aldrei fallið á þeim 29 árum sem nú
eru liðin síðan það komst í efstu
deild í Englandi í fyrsta skipti.
Sheffield Wednesday gat ekki
fagnað fyrr en í leikslok gegn West
Ham. Lið Wednesday hreinlega
hrundi á lokasprettinum í deildinni
en gulltryggði sig þegar Jon
Newsome jafnaði, 1-1, þegar mínúta
var eftir af leiknum við West Ham.
-vs
Misstu eMd af spemmmdi
aukablrióum It í maí
Slagurinn um Evrópusætið:
Arsenal í vand-
ræðum með Bolton
Það var eitt sæti í UEFA-
bikarnum í boði í lokaumferðinni í
gær. Ljóst var að Newcastle og
Aston Villa voru örugg en Arsenal,
Everton, Blackburn og Tottenham
gátu öll krækt í það þriðja og
síðasta.
Arsenal þurfti að sigra Guðna
Bergsson og félaga hjá Bolton en
útlitið var ekki gott eftir að Andy
Todd kom Bolton yfir 14 mínútum
fyrir leikslok. En David Platt og
Dennis Bergkamp náðu að svara
fyrir Arsenal, 2-1. Þar með náði
Arsenal 5. sætinu í deildinni og
þátttökurétti í UEFA-bikarnum.
Everton var næst því að skáka
Arsenal. Joe Parkinson skoraði
sigurmark liðsins gegn Aston Villa,
1-0, en það reyndist ekki nóg fyrst
Arsenal vann sinn leik.
Tottenham hefði átt möguleika
með sigri í Newcastle og Blackburn
gerði sitt, vann Chelsea, 21-3, í
London, en það var ekki nóg fyrir
fráfarandi meistarana.
-VS
Eric Cantona lyftir verðlaunagripnum glæsilega sem leikmenn Manchester United tóku við á Riverside Stadium í Middlesbrough í gær.. Símamynd Reuter
Manchester United tryggði sér í
gær enska meistaratitilinn í knatt-
spyrnu í annað skiptið á þremur
árum. United sigraði Middlesboro af
miklu öryggi á Riverside Stadium i
Middlesbrough, 3-0, en á meðan
gerðu Newcastle og Tottenham jafn-
tefli, 1-1, á St. James Park í New-
castle. United þurfti að sigra til að
gulltryggja sér titilinn en eins og mál-
in þróuðust í hinum leiknum hefði
liðið meira að segja mátt tapa. Fjögur
lið skildu liðin að í lokin og það er
staða sem fæstir sáu fyrir um áramót-
in þegar Newcastle var komið með yf-
irburðaforskot í úrvalsdeildinni.
Newcastle þarf því að bíða enn um
sinn eftir meistaratitlinum sem félag-
ið vann síðast árið 1927. Manchester
United varð hins vegar meistari í 10.
skipti í gær og og náði með því
Arsenal í fjölda meistaratitla. Liver-
pool hefur langoftast orðið meistari,
18 sinnum.
Leikmenn Man. Utd virtust óstyrk-
ir til að byrja með en eftir að David
May skoraði fallegt skallamark strax
á 7. mínútu var ljóst hvert stefndi.
Andy Cole kom inn á sem varamaður
á 54. mínútu og skoraði með fyrstu
snertingu, 2-0. Ryan Giggs átti svo
lokaorðið með laglegu skoti af 20
metra færi, 3-0.
Á meðan var Newcastle í mesta
basli og Jason Dozzell kom Totten-
ham yfir í seinni hálfleiknum, 0-1.
Les Ferdinand náði að jafna eftir und-
irbúning Faustinos Asprilla sem kom
inn á sem varamaður en lengra
komst Newcastle ekki gegn sterku
liði Tottenham þrátt fyrir mörg
dauðafæri.
Sigurinn í Newcastle var
geysilega mikilvægur
Alex Ferguson, framkvæmdastjóri
Man. Utd var að vonum kátur eftir
leikinn i gær. „Það er alltaf frábært
að vinna deildina. Það tók sinn tíma
en leikmennimir voru ótrúlegir. Þeg-
ar við vorum 12 stigum á eftir
Newcastle vissum við að við þyrftum
að fara að vinna leiki, og gerðum það.
Sigurinn í Newcastle í mars var
geysilega mikilvægur þegar upp var
staðið,“ sagði Ferguson.
Þeir sýndu geysilegan styrk
með því að ná okkur
Kevin Keegan, framkvæmdastjóri
Newcastle, tók ósigrinum vel þrátt
fyrir mikil vonbrigði. „Ég óska
Manchester United og öllum stuðn-
ingsmönnum félagsins til hamingju.
Það eru allir að tala um að við höfum
hrunið en þeir sýndu geysilegan
styrk með því að ná okkur. Við erum
enn að reyna að byggja upp eins
sterkt lið og United hefur,“ sagði
Keegan..
Leikmenn Manchester United eiga
allan heiður skilinn. Þeir unnu deild-
ina á sannfærandi hátt og sennilega
mjög verðskuldað," sagði Peter Be-
ardsley, besti leikmaður Newcastle á
lokakaflanum í deildinni.
„Við komum hingað til að vinna
leikinn, hugsuðum ekki um jafntefli,
þvi við vissum að titillinn var okkar
með sigri, sama hvað gerðist í hinum
leiknum. Við héldum að þetta væri
búið þegar Newcastle var komið með
12 stiga forystu í vetur en samt viss-
um við að þeir myndu gefa eftir og
reyndum að halda okkar striki,"
sagði Roy Keane, sem var valinn
maður leiksins í Middlesbrough.
Bobby Charlton, goðsögnin hjá
Manchester United sem nú er stjórn-
armaður hjá félaginu, sagði: „Þetta
tók svolítið á taugarnar. En þetta hef-
ur verið frábært ár hjá ungu leik-
mönnunum, og líka hjá þeim eldri. Ég
er virkilega ánægður fyrir hönd allra
hjá félaginu. Ég mun fagna þessum
sigri í allt sumar.“ -VS
22. máí
KNATTSPYRNU-
BLAÐIÐ
Aukablöð DY eru löngu orðin landsþekkt.
Blöðin eru bæði fræðandi og skemmtileg og
fjaUa mn margvísleg og gagnleg sérsvið.
8. maí
HUS og
GARÐAR
í blaðinu verða holl
og góð ráð varðandi
vorverkin í garðinum.
Þar á meðal verða
upplýsingar um gróðursetningu, klippingu,
áburðargjöf, nýjungar í plöntusölu og margt fleira.
15.
mai
GÆLUDYR
Eru íslendingar dýravinir?
Fjallað verður á
skemmtilegan hátt um gildi
gæludýra, aðstöðu
borgarbúa til hundahalds,
páfagaukarækt og birtur
verður vinsældalisti
gæludýrabúðanna.
*
Itarleg kynning á
1. deildar liðunum í
knattspyrnu fyrir
komandi keppnistunabil.
England
Úrvalsdeild:
Arsenal-Bolton .............2-1
0-1 Todd (76.), 1-1 Platt (82.), 2-1
Bergkamp (84.)
Chelsea-Blackbum ...........2-3
1-0 Wise (34.), 1-1 Sherwood (36.), 1-2
McKinlay (47.), 1-3 Fenton (59.), 2-3
Spencer (88.)
Coventry-Leeds..............0-0
Everton-Aston Villa ........1-0
1-0 Parkinson (78.)
Man.City-Liverpool..........2-2
0-1 sjálfsmark (6.), 0-2 Rush (41.), 1-2
Rosler (71.), 2-2 Symons (78.)
Middlesbro-Man. Utd ........0-3
0-1 May (7.), 0-2 Cole (54.), 0-3 Giggs (81.)
Newcastle-Tottenham........1-1
0-1 Dozzell (57.), 1-1 Ferdinand (71.)
Nott. Forest-Q.P.R .........3-0
1-0 Stone (44.), 2-0 Roy (63.), 34) Howe (77.)
Southampton-Wimbledon . . . 0-0
West Ham-Sheffield Wed. ... 1-1
1-0 Dicks (73.), 1-1 Newsome (89.)
Man. Utd 38 25 7 6 73-35 82
Newcastle 38 24 6 8 66-37 78
Liverpool 38 20 11 7 70-34 71
Aston Vilia 38 18 9 11 52-35 63
Arsenal 38 17 12 9 49-32 63
Everton 38 17 10 11 64-44 61
Blackburn 38 18 7 13 6147 61
Tottenham 38 16 13 9 50-38 61
Nott. For. 38 15 13 10 50-54 58
West Ham 38 14 9 15 43-52 51
Chelsea 38 12 14 12 46-44 50
Middlesbro 38 11 10 17 35-50 43
Leeds 38 12 7 19 40-57 43
Wimbledon 38 10 11 17 55-70 41
Sheff. Wed. 38 10 10 18 48-61 40
Coventry 38 8 14 16 42-60 38
Southampt. 38 9 11 18 34-52 38
Man. City 38 9 11 18 33-58 38
Q.P.R. 38 9 6 23 38-57 33
Bolton 38 8 5 25 39-71 29
1. deild:
Barnsley-Grimsby.............l-l
Birmingham-Reading ..........1-2
Charlton-Wolves..............l-i
Huddersfield-Portsmouth .....0-1
Ipswich-MiUwall..............04)
Oldham-Luton ................1-0
Sheff. Utd-Port Vale ........1-1
Stoke-Southend...............1-0
Tranmere-Sunderland..........2-0
Watford-Leicester............0-j
W.B.A-Derby..................3-2
Sunderland 46 22 17 7 59-33 83
Derby 46 21 16 9 71-51 79
Cr. Palace 46 20 15 11 67-48 75
Stoke 46 20 13 13 60-49 73
Leicester 46 19 14 13 66-60 71
Charlton 46 17 20 9 57-45 71
Ipswich 46 19 12 15 79-69 69
Huddersf. 46 17 12 17 61-58 63
Sheff. Utd 46 16 14 16 57-54 62
Bamsley 46 14 18 14 60-66 60
W.B.A. 46 16 12 18 60-68 60
Port Vale 46 15 15 16 59-66 60
Tranmere 46 14 17 15 64-60 59
Southend 46 15 14 17 52-61 59
Birmingh. 46 15 13 18 61-64 58
Norwich 46 14 15 17 59-55 57
Grimsby 46 14 14 18 55-69 56
Oldham 46 14 14 18 54-50 56
Reading 46 13 17 16 54-63 56
Wolves 46 13 16 17 56-62 55
Portsmouth 46 13 13 20 61-69 52
Millwall 46 13 13 20 43-63 52
Watford 46 10 18 18 62-70 48
Luton 46 11 12 23 40-64 45
Crystal Palace, Stoke, Leicester og
Charlton leika til úrslita um eitt sæti
í úrvalsdeildinni.
Millwall, Watford og Luton féllu í
2. deild.
Swindon og Oxford unnu sér sæti í
1. deild og Blackpool, Notts County,
Crewe og Bradford leika til úrslita
um þriðja 1. deildarsætið.
Swansea, Brighton og Hull féllu i
3. deild en ekki liggur fyrir hvort
Carlisle eöa York fer með þeim niður.
Preston, Gillingham og Bury unnu
sér sæti í 2. deild og Plymouth, Darl-
ington, Hereford og Colchester leika
um eitt 2. deildar sæti til viðbótar.
Torquay fellur út úr deildakeppn-
inni ef Stevenage, efsta lið utandeild-
anna, fær heimavöll sinn viður-
kenndan.
Enska knattspyrnan:
Kanchelkis bestur
Andrei Kanchelkis, leikmað-
urinn snjalli hjá Everton, var
um helgina útnefndur besti leik-
maður ensku úrvalsdeildarinnar
í knattspyrnu í aprílmánuði.
Kanchelkis átti frábæra leiki,
skoraði sjálfur 5 mörk og lagði
upp mörg fyrir félaga sína. Dave
Merrington hjá Southampton
var kjörinn framkvæmdastjóri
aprílmánaðar og Howard
Kendall, stjóri Sheffield United,
var stjóri aprílmánaðar í 1.
deildinni.
Tekur Gullit Chelsea?
Hollendingurinn Ruud Gullit
hefur lýst því yfir að hann vilji
íhuga það að taka við stjórninni
hjá Chelsea í stað Glen Hoddle
sem verður næsti þjálfari enska
landsliðsins. „Ég er hreykinn af
viðbrögðum leikmanna og stuðn-
ingsmanna og ef mér yrði boðið
starfið yrði ég að hugleiða það.
Enginn hefur talað við mig en
vegna orðrómsins sem er í gangi
er ekki óeðlilegt að ég hugsi mál-
ið,” sagði Gullit á Sky Sport um
helgina.
lan Rush skoraði
Ian Rush kvaddi Liverpool
með marki í lokaleik sínum með
félaginu. Þessi 35 ára gamli
sóknarmaður náði að skora gegn
Manchester City í 2-2 jafnteflis-
leik liðanna í gær og það var
hans 229. deildamark fyrir liðiö
á 15 árum. Rush fær frjálsa sölu
frá Liverpool í sumar.
Woods á vesturleið?
Svo kann að fara að Chris
Woods, fyrrum landsliðsmark-
vörður Englands, gangi til liðs
við Colorado Rapids í banda-
rísku atvinnudeildinni. Woods á
eitt ár eftir af samningi sínum
við Sheffield Wednesday en Dav-
id Platt, stjóri Wednesday, hefur
að undanfömu rætt við forráða-
menn Colorado.
Taylor kom of seint
Graham Taylor, fyrrum lands-
liðseinvaldur Englands, náði
ekki að forða Watford frá falli í
2. deild þrátt fyrir heiðarlega til-
raun. Watford var langneðst þeg-
ar Taylor kom til liðsins fyrir
nokkrum vikum en það féll ekki
endanlega fyrr en i gær.
Óvænt fall Millwall
Flestum á óvart féll Millwall í
2. deildina ásamt Watford og
Luton. Millwall var á toppi 1.
deildar framan af vetri en
hrundi síðan gersamlega saman
þrátt fyrir að hafa fengið til sín
tvo snjalla rússneska landsliðs-
menn.
Kemst Stoke upp?
Lárus Orri Sigurðsson og fé-
lagar í Stoke gulltryggðu sér
sæti í úrslitakeppni um sæti í
úrvalsdeildinni með því að
vinna Southend, 1-0, í 1. deild-
inni í gær. Stoke mætir Leicest-
er, heima og heiman, og Crystal
Palace leikur við Charlton. Sig-
urliðin í þessum tveimur ein-
vígjum mætast síðan í úrslita-
leik um úrvalsdeildarsætið á
Wembley.
Endasprettur Oldham
Þorvaldur Örlygsson og félag-
ar hjá Oldham voru lengi í
fallhættu í 1. deildinni. Þeir
björguðu sér hins vegar með
góðum endaspretti.
Önnurtvenna?
Manchester United og Liver-
pool mætast í úrslitaleik bikar-
keppninnar á laugardaginn kem-
ur, 11. maí. United á því mögu-
leika á að vinna tvöfalt, bæði
deild og bikar, og takist það
verður United fyrsta félagið í
sögu ensku knattspyrnunnar
sem vinnur það afrek tvívegis.
Shearer markakóngur
Alan Shearer, sóknarmaðurinn
snjalli hjá Blackburn, varð marka-
kóngur úrvalsdeildarinnar þrátt
fyrir að hann léki ekki með liðinu
í síðustu umferðunum. Shearer
skoraði einu marki meira en
Robbie Fowler, hinn ungi leikmað-
ur Liverpool.
Þessir urðu markahæstir i deild-
inni:
Alan Shearer, Blackburn............37
Robbie Fowler, Liverpool ..........36
Les Ferdinand, Newcastle...........29
Dwight Yorke, Aston Villa .......25
Teddy Sheringham, Tottenham .... 24
Ian Wright, Arsenal .............23
Chris Armstrong, Tottenham ......22
Tony Yeboah, Leeds ..............19
Stan Collymore, Liverpool........19
Eric Cantona, Manch. Utd.........18
Markahæstir í 1. deild:
John Aldridge, Tranmere .........29
Paul Bames, Birmingham...........29
Robert Edwards, Huddersfield.....28
Dougie Freedman, Cr. Palace ......23
Bob Taylor, W.B.A................23
Manchester United tryggði sér enska meistaratitilinn af öryggi:
Tíundi titillinn í höfn
- Man. Utd sigraði Middlesboro, 3-0, á útivelli en Newcastle og Tottenham skildu jöfn, 1-1