Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.1996, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996
Fréttir
Vilhelmína Ragnarsdóttir sem svaf ásamt barni og hundi í bíl sínum síðastliðið sumar:
Allslaus en fekk dæmda
íbúð, sumarbústað og bíla
Vilhelmínu Ragnarsdóttur, kon-
unni sem lenti á hrakhólum á síð-
asta ári og svaf m.a. í bO sínum í
Heiðmörk um nokkurra vikna
skeið, hefur verið dæmd íbúð,
sumarbústaður og tveir bilar með
úrskurði Héraðsdóms Reykjavík-
ur vegna skiptingar eigna í skiln-
aðarmáli hennar.
Vilhelmína, sem hafði gengist
undir aðgerðir vegna krabba-
meins, og níu ára syni hennar
hafði ekki tekist að fá íbúð á leigu
síðastliðið sumar, þrátt fyrir ít-
rekaðar tilraunir, en áður hafði
hún misst íbúð sem hún leigöi eft-
ir að fyrrum sambýlismaður
hennar kastaði henni út nánast
allslausri, eins og hún sagði í við-
tölum.
Mæðginin neyddust til að sofa í
bílnum, í svefnpokum með kodda
undir höfði á hörðu bílgólfinu. Á
morgnana óku þau til systur Vil-
helmínu til að þvo sér og borða.
Vilhelmina og sonurinn eru nú
Vilhelmína Ragnarsdóttir. DV-mynd
stödd í Svíþjóð.
í viðtali við DV í júní síðastlið-
num sagði Vilhelmína m.a.: „Við
getum ekki gert neitt annað en að
sofa hér í bílnum en þetta er ekk-
ert heimilislíf."
í úrskurði Héraðsdóms Reykja-
víkur voru tekin fyrir opinber
skipti til íjárslita vegna-fólks í
sambúð. Dómari ákvarðaði
þannig hvernig eignum fólksins
skyldi skipt. Á fundi hjá skipta-
stjóra í september síðastliðnum
varð samkomulag um að Vilhelm-
ína fengi i sinn hlut sumarbústaö
í Höfðalandi og tvær bifreiðir.
Samkvæmt úrskurðinum fær
Vilhelmína nú einnig risíbúð við
Miklubraut auk framangreinds
sumarbústaðar og bílanna
tveggja. Maðurinn heldur hins
vegar annarri íbúð, öðrum sumar-
bústað og öðrum minni eignum.
Helgi I. Jónsson, héraðsdómari í
Reykjavík, kvað upp úrskurðinn.
-Ótt
Rúnar Júlíusson á leið 1 hjartauppskurð:
Stuttar fréttir
Ekki uppörvandi að
heilsan sé að klikka
DV, Suðurnesjum:
„Það eru ekki uppörvandi upplýs-
ingar að fá að vita að heilsan sé að
klikka. Mér dauöbrá en maður tek-
ur þessu með jafnaðargeði, eða alla-
vega reynir það. Það kom í ljós að
ein hjartalokan í mér er gölluð og
hefur verið það frá fæðingu. Gár-
ungarnir hér á spítalanum spurðu
mig hvort nafnabreytingin hefði
lagst svona þungt á mig,“ sagði Kefl-
víkingurinn Rúnar Júlíusson, hinn
51 árs landsþekkti tónlistarmaður, í
samtali við DV í gærdag.
Rúnar er á hjartadeild Borgar-
spítalans í Reykjvík vegna fæðing-
argalla sem kom ekki í ljós fyrr en í
síðustu viku og var hann strax lagð-
ur inri. Eftir ítarlegar rannsóknir
kom í ljós að ein hjartalokan var
gölluð. Rúnar fór í hjartaþræðingu í
fyrradag en hann þarf að fara í
hjartauppskurð.
Rúnar segir að hann hafi byrjað
að finna fyrir þessu eftir áramót og
svo fyrir fimm vikum hafl honum
fundist hann vera óeðlilega mæð-
inn. Það kom honum mjög á óvart
vegna þess að hann hefur haldið sér
í þokkalegu góðu formi alla tíð.
Hann segist hafa farið á Helsu-
gæslustöðina i Keflavík og viljað fá
eitthvað við þessu en ekkert dugað
til eftir að hafa farið margar ferðir
þangað á einum mánuði. Rúnar seg-
ist þá hafa farið í röntgenmynda-
töku og þá komiö í ljós að vatn var
inni á lunganu.
„Ég var svo sendur á Borgarspít-
alann á þriðjudaginri í síðustu viku
og ætlaði bara að koma þar við og fá
eitthvað við þessu. Ég var á leiðinni
að spila á Blúsbarnum og var með
græjurnar í bUnum. Ég var strax
tekinn í rannsókn og hef verið hér
síðan í stanslausum rannsóknum.
Ég hef aldrei áður fundið neitt fyrir
þessu. Það er gott að þetta kom í ljós
tímanlega. Nú þegar þetta er komið
á hreint hvað er að þá bíð ég eftir
því að röðin komi að mér tU að fara
í hjartaaðgerð. Fram að því lifí ég
bara eðlilegu lífi og fer að spila
þangað til röðin er kominn að mér.
Eftir þá aðgerð verð ég að taka mér
tveggja mánaða frí og þá á ég að
vera eins og nýr maður með nýtt út-
hald í önnur 50 ár. Ég er mjög já-
kvæður eftir að hafa lent hérna hjá
svona góðum læknum og starfsfólki
og er mjög þakklátur
ustan hér er frábær. Það þarf ekki
nema að hringja bjöUunni einu
sinni þá koma tvær hjúkrunarkon-
ur. Ég ætla að taka það rólega yfir
helgina en æUunin er að gefa út
tvær plötur með ungum hljóm-
sveitum úr Keflavík, Þusli og
Texax Jesú. Aðra helgi
æfla ég síðan að byrja
aö spUa að nýju. Ég
vonaðist til að útskrif-
ast á fostudaginn í síð-
nctii vilni pn loalni-
þannig að hann vildi ekki sleppa
mér. Það er betra að missa eina
helgi heldur en allar þær sem eftir
eru,“ sagði Rúnar Júlíus-
son, eldhress að
vanda.
-ÆMK
Rúnar Júlíusson hefur nóg að gera á spítalanum. Hann hefur verið að semja texta.
Þú getur svarað þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já Jj
Nei jsj
,r ö d d
FOLKSINS
904-1600
' mg
Eiga íslendingar að hefja
hvalveiðar í sumar?
Sjávarútvegsráðuneytið og síldarkvótmn:
Venjulegur samráösfundur
- segir Árni Kolbeinsson ráðuneytisstjóri
„Við boðuðum til venjulegs sam-
ráðsfundar með þessum aðUum og
kynntum þeim þessar reglur. Þar,
voru síöan rædd sjónarmið varð-
andi skipulag veiðanna," sagði Árni
Kolbeinsson, ráðuneytisstjóri í sjáv-
arútvegsráðuneytinu, vegna fréttar
DV í gær um skiptingu síldarkvót-
ans þar sem sagt var að hagsmuna-
aðUar heföu ekki viljað hafa samráð
um skiptingu sUdarkvótans þrátt
fyrir að hafa mætt til fundar við
ráðuneytið.
Árni segir fundinn hafa verið á
sama hátt og þegar um er að ræða
aðrar ákvarðanir sem teknar eru í
ráðuneytinu.
„Það er ráðuneytið sem tekur
ákvörðun og ábyrgðin er okkar.
Þessum aðilum voru kynntar fyrir-
ætlanir með venjulegum hætti,“
segir Árni. - -rt
Ólafur Ragnar með 71%
Ólafur Ragnar Grimsson fær
71,2% atkvæða í skoðanakönnun
Gallups, Guðrún Pétursdóttur
10%, Pétur Kr. Hafstein 9,4% og
Guörún Agnarsdóttir 4,4%. RÚV
greindi frá.
Lögskráning brotin
Sjómenn hafa óskað eftir að
togarinn Heinaste verði færður
tU hafnar. Samgönguráðuneytið
hefur staðfest að lögskráning
hafí verið brotin á togaranum.
RÚV sagði frá.
E-taflan hættuleg
E-piUan er mun hættulegra
fikniefni en áður var talið og get-
ur ein tafla getur orðið manni að
bana. Úrræðaleysi ríkir um með-
ferð ungra fíkla, að sögn Stöðvar
2.
Dæmdir fyrir gabb
Tveir karlmenn hafa verið
dæmdir í tveggja mánaða fang-
elsi fyrir sprengjugabb. Tjón
Flugleiða nemur tæpri mUljón.
Útvarpið greindi frá.
Veröbréfamiöstöö
Forsenda fyrir áhuga erlendra
fjárfesta á verðbréfamarkaði hér
er að komið verði á fót verð-
bréfamiðstöð með pappírslaus-
urn viðskiptum. Sjónvarpið sagði
frá.
Umhverfið gerbreytist
Rekstrarumhverfi og -form
Landsvirkjunar gerbreytist ef
samkeppni kemst á í raforkuvið-
skiptum á íslandi. Útvai-pið
sagði frá.
Lækkar raforkuverö?
Raforkuverð gæti lækkað
verulega vegna tUskipunar ESB
um afnám einokunar í fram-
leiðslu og dreifingu raforku, skv.
Stöð 2.
Tungan og menningin
Vigdís Finnbogadóttir segir að
næsti forseti eigi að leggja rækt
við tungu og menningu þjóðar-
innar. Stöð 2 greindi frá.
Lækkun á símaþjónustu
Verðlækkun á símaþjónustu
er meiri hér en í nokkru öðru
Evrópulandi siðustu tíu árin. Út-
varpið sagði frá.
Svigrúm til lausna
Utanríkisráðherra telur að
svigrúm sé til að leysa ágrein-
ingsefni Norðmanna og íslend-
inga á Svalbarða og í Smugunni,
skv. RÚV.
-GHS