Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.1996, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ1996 7 DV Sandkorn Sagnfræðideildin Hin mjög svo umdeilda íþróttafrétta- deild ríkissjón- varpsins hefur oft veriö kölluð sagnfræði- íþróttadeildin vegna gamalla fréttamynda og þessarar klass- isku setningar íþróttafrétta- manna deildar- innar: „Nánar verður fjallað um ieikinn í íþrótta- þætti á laugardaginn kernur." Um þverbak keyrði þó síðastliðið mánu- dagskvöld. I sýningu sjónvarpsins frá flokkakeppni frá frjálsum æfmgum karla í fimleikum var sagt að um beina útsendingu væri að ræða. Keppnin fór fram fyrr um kvöldið og hafði verið sýnd beint á erlendum sjónvarpsstöðvum sem nást á ísiandi. Svo kom stóra slysið. Þá var sagt að um beina útsendingu væri að ræða frá sundkeppninni. Þá gerðist það að fyrst var verðlaunaafhendingin sýnd og síðan sundið sjálft. Svona eiga „beinar“ útsendingar að vera. Mismæli Ýmis mismæli hafa orðið fræg, ekki síst ef þekkt fólk hefur orðið fyrir þvi að mismæla sig. Eins máltæki sem snúist hafa við á ýmsa vegu. Má þar neína máltækið sem snerist svona við: „Róm var ekki byggð á hverjum degi.“ Á dögunum urðu fréttamönnum eða lesurum frétta hjá RÚV á mismæli sem margir tóku eftir. í fréttum um olíumengun sagði: „Tugir dauðra fugia hafa drepist." í bókinni Þeim varð á i mess- unni segir frá því að Sigurður Lúter Vigfússon, sem var einn af fyrstu atvinnu- bílstjórum í Þingeyjasýslu, hafi oft ekið séra Þormóði Sigurðssyni, sóknarpresti á Vatnsenda, þeg- ar klerkur emb- ættaði í sveitinni. Eitt sinn þurfti prestur að jarðsyngja mann í Köldu- kinn. Jón á Ystafelli, bróðir prestsins, hélt húskveðju við það tækifæri. Þá var algengt að leikmenn kveddu sér hljóðs við slík tækifæri. Jón var af- burða ræðumaður og mæltist vel við húskveðjuna. Séra Þormóður bróðir hans þótti mun síðri ræðumaður, frekar andlaus og eins og hann heföi ekkert tii málanna að leggja. Þegar þeir voru á heimleið að lokinni jarð- - arfór, Sigurður Lúter og séra Þormóð- ur, sagði sá fyrmefndi: „Ég skal segja þér það, Þormóður minn, þú mátt ekki láta það koma fyrir að Jón bróð- ir þinn tali við jarðarfarir þar sem þú ert prestur." Varla hafði þetta fyrr hrokkið upp úr Sigurði Lúter en hann sá eftir þvi og hélt sig hafa móðgað prest. Bætti hann þá við í flýti: „Eins og þú fermir þó andskotans ósköp vel.“ Viö birtum flá- mælisvísur eftir Sigurð Ó. Páls- son, skólamann á Héraði, á dög- unum. Stefán Jónsson, fyrrum fréttamaður og alþingismaður með meim, kenndi undirrit- uðum vísuna sem hér fer á eftir og er ort á austfirsku flá- mæli. Stefán tók það mjög skýrt fram að hér væri um hestavísu að ræða. Ef ég einhvern tíma færi með hana eða birti á prenti yrði ég að taka það skýrt fram. Stefán sagðist ekki vita hver höfundurmn væri: Svo þér llði sjálfum vel og sért ei kvíðaþrunginn. Þú skalt ríða þangað tiel, þieg fer að sviða í....ieljarnar. Stefán tók fram að ef menn vissu betra rímorð í lokin mættu þeir nota það ef þeir vildu en þetta væri samt hestavísa. Umsjón Sigurdór Sigurdórsson Hestavisa Yfirbótin Fréttir Svanfríður Jónasdóttir vill harðari stefnu gagnvart Norðmönnum: Gagnrýnir hnjáliða- mýkt stjórnvalda „Mín afstaða er sú að við þurfum að taka upp miklu harðari og ákveðnari stefnu gagnvart Norð- mönnum en við höfum haft. Sú stefna sem stjómvöld reka gagnvart þeim kallast fyrir norðan hjá mér hnjáliðamýkt," segir Svanfríður Jónasdóttir alþingismaður. Hún segir í samtali við DV að sé það rétt sem útgerðarmenn segja, að Norðmenn séu að veiða hér inni í landhelginni en skrái það sem afla af Jan Mayen svæðinu, þá sé mjög alvarlegt mál á ferðinni. í nýgerðum síldarsamningum við Norðmenn fe- list að þeim sé hleypt inn í okkar landhelgi en þeir hleypi okkur ekki inn í sína. „Við getum velt fyrir okkur möguleikum okkar til samninga i Smugunni, hvernig Norðmenn hafa í rauninni leikið aðalhlutverkið þar og í raun komið í veg fyrir að við getum átt eðlileg samskipti við Rússa. Ég vil að þetta verði allt tek- ið saman og í Ijósi þess verði pólitík okkar gagnvart Norðmönnum mót- uð.“ Senn líður að endurskoðun loðnu- samninganna og telur Svanfríður að íslendingar verði að undirbúa sig vel fyrir hana og hafa staðreyndirn- ar um framkomu Norðmanna í sjáv- arútvegsmálum á hreinu. Sannan- imar séu allavega nægar. Þá beri að hafa í huga síðustu ögrun þeirra sem er einhliða setning reglugerðar um rækjuveiðar á Svalbarðasvæð- inu. „Það má geta þess að fulltrúi Þjóðvaka nefndi á sínum tíma á Al- þingi hugsanlegan hag okkar af rækjuveiðum á þessu svæði og sjáv- arútvegsráöherra nánast hló að því. Þetta sýnir kannski hvernig stjóm- völd meta okkar stöðu og möguleika og í því ljósi þarf sjálfsagt að skoða framgöngu þeirra gagnvart Norð- mönnum. Ég veit ekki hvers vegna þessi hjnáliðamýkt er svona mikil gagn- vart Norðmönnum. Kannski er það vegna þess að menn hafa ekki verið nógu meðvitaðir um að okkar utan- ríkisstefna snýst fyrst og fremst um hafréttarmál og hagsmuni í sjón- um,“ segir Svanfríður Jónasdóttir að lokum. -SÁ Ólympíuleikur DV og Bræöranna Ormsson: Glæsilegir vinningar DV og Bræðurnir Ormsson fara nú af stað með laufléttan og skemmtilegan leik, Ólympíuleikinn. Það eina sem fólk þarf að gera til þess taka þátt er að svara þremur laufléttum spurningum og senda svarseðilinn til DV, Þverholti 11,105 Reykjavík. Þar með er það komið í pottinn og á möguleika á glæsileg- um vinningum. Glæsilegt SHARP sjónvarpstæki Dregið verður úr innsendum seðl- um í lok Ólympíuleikanna og hlýtur vinningshafinn glæsilegt 29“ SHARP sjónvarpstæki að verðmæti 149.900 kr. Tækið er með 100 riða Vinningshafinn i Ólympíuleik DV og Bræðranna Ormsson fær í verðlaun glæsilegt 29" SHARP sjónvarpstæki aö verðmæti 149.900 kr. (HZ) digital scan tækni sem gefur glampfría mynd án titrings. Hægt er að horfa á tvo þætti í einu þar sem minni mynd birtist á skjánum. Hljóðtæknin er digi turbo sound. Veittir verða þrír aukavinningar, glæsileg Tefal rafmagnsgrill að verðmæti 9.650 kr. Spurningarnar þrjár, sem fólk þarf að svara; eru eftirfarandi: Hvar voru síðustu Ólympíuleikarnir haldnir (1992)? I hvaða íþróttagrein keppir Eydís Konráðsdóttir á Ól? Hvað keppa margir íþróttamenn fyrir Islands hönd á Ól. Skilafrestur er til 6. ágúst og nú geta allir reynt að næla sér í frá- bæra vinninga. Húsavík: Hvalaskoð- unin vinsæl DV, Húsavík: Húsavíkurdagar, sem hófust í síðustu viku og voru í 4 daga, sam- anstóðu af skemmtiatriðum, keppni og vörukynningum og var þetta önnur helgardagskráin af þremur svipuðum hér í sumar. Sú fyrsta var í júní. Sú þriðja verður í ágúst og þá verður m.a. hjólreiðakeppni sem nefnist Tour de Húsavík. Dagskráin hófst með vörukynn- ingu húsvískra framleiðenda og fyr- irtækjakeppni. Farið var í lunda- og hvalaskoðunarferðir á hverjum degi. Uppselt var í þær allar og ferðamenn sækjast mjög eftir þess- ari tegund ferðaþjónustu á Húsavík nú. Sjóferðir Arnars Sigurðssonar og Norður- Sigling bjóða upp á þess- ar ferðir. Boðið var upp á stuttar og langar gönguferðir um bæinn með leið- sögumönnum. Björgunarsveitin, slökkviliðið og 4x4 klúbburinn héldu stóra sýningu á bílum og bún- aði og björgunarsveitin sýndi nýja íþróttagrein, vatnaknattleik. Húsa- víkurdögum lauk með gróðursetn- ingu hjá Húsavíkurflugvelli í Aðal- dalshrauni þar sem Landgræðslan og Olís plöntuðu. -AGA Þrír kraftakarlar, Völundur, Sæmundur og Torfi, vöktu mikla athygli og öttu kappi viö heimamenn en höfnin dró þó flesta til sín. DV-mynd AGA ■m imr 6 iii 111^1 DUNDUR-UTSALA Q Samsung Max-477 er hágœða hljómtœkjasamstœða meðúfvarpi, 2 x 60 W magnara, tvðfðláj kass- ettutœki með DolboyB, 6 diska geislaspilara, 16 stöðva útvarpi, tónjafnari með minni, Surround, þráðlausri fjarslýring, . tengi fyrir neyrnartól, tímastillingu, klukku o.fl. ; Samsung Max-370 er háaœða hljómtœkjasamstœða meo útvarpi, 2 x 40 W magnara, työföldu kasseltutceki . með DolboyB, geislaspilara, 16 stöðva minni á útvarpi, tónjafnari með minni, Surround, þráðlgusri fjarstýring, tengi fyrir heyrnartól, ffmastillingu, klukku o.fl. Þetta er aðeins brot af þvísemviðbjóðum með ríflegum afslætti! : icwmi m TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA 1 B U Ð I R N A R Skipholti 19 Simi: 552 9800 Grensásvegi11 Simi: 5 886 886 TIL 24 MAfVIAOA | AUKIÐ URVAL - BETRA VERÐ / iiwu-up 3E3SJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.