Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Qupperneq 7
34 um helgina
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 JjV
I
+
"’f-:'' ' FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
um helgina
K
I
|
VEITINGASTAÐIR
A. Hansen Vesturgölu 4, Hf., sími 565 1693.
OpiO 11.30-22.30 alla daga.
Á næstu grösum Laugavegi 20, simi 552
8410. Opið 11.30-14 og 18-22 v.d., 18-22 sd.
og lokaö Id.
Argenlína Barónsstíg 11a, sími 551 9555. Opiö
18-23.30 v.d., 18-3 um helgar.
Asía Laugavegi 10, simi 562 6210. Opiö
11.30- 22.30 v.d., 12-22.30 sd., 11.30-23.30 fd.
og Id.
Askur Suöurlandsbraut 4, sfmi 553 8550. Opið
11- 22 sd.-fid., 11-23.30, fd. og Id.
Áslókur Ási, Mosfellsbæ. Opiö fi. og su. 18-01
og fö. og lau. 18-03.
Atlas Bankastræti, sími 551 9900. Opiö
18-23.30 sd.-fi. og 18-23.30 fd.Jd.
Austur India Fjelagiö Hverfisgötu 56, sími 552
1630. Opið alla daga frá kl. 18.
Banthal Laugavegur 130, sími 552 2444. Opið
18-22 md. til fi. og 18-23 fd. til sd.
Blál barinn Klapparstlg 38, slmi 561 3131.
Opið vd. 11.30 til 1.00 og um helgar til 3.00.
Café Ópera Lækjargötu 2, sími 552 9499/562
4045. Opið 18-1 fd. og ld., 11.30-1 v.d.
Café Klm Rauðarárstíg 37, sími 562 6259, Opið
8-23.30.
Carpe Dlem Rauðarárstíg 18, sími 562 3350.
Opiö 11-23 alla daga.
Grand hótel Sigtúni 38, simi 568 9000. Opið
12- 15 og 18-23.
Gullni haninn Laugav. 178, s. 588 9967. Opið
11.30- 14.30 og 18-22 v.d., 18-23 fd. og Id.
Hard Rock Café Kringlunni, slmi 568 9888.
Opið 11.45-23.30 md.-ld., 12-23.30 sd.
Hornið Hafnarstræti 15, simi 551 3340. Opið
11- 23.30 alla daga.
Hótel Borg Pósthússtræti 11, sími 551 1440.
Opið 8-23.30 alla daga.
Hótel Holt Bergstaðastræti 37, sími 552 5700.
Opiö 12-14.30 og 19-22.30 v.d., 12-14.30 og
18-22 fd. og Id.
Hótel ísland v/Ármúla, sími 568 7111. Opið
20-3 fd„ 19-3 Id.
Hótel Loftleiðlr Reykjavíkurflugvelli, sími 552
2322. Opið I Lóninu 0—18, í Blómasal 18.30-22.
Hótel Oðinsvé v/Óöinstorg, simi 552 5224.
Opið 12-15 og 18-23 v.d„ 12-15 og 18-23.30
fd. og Id.
Hótel Saga Grillið, slmi 552 5033, Súlnasalur,
sími 552 0221. Skrúður, slmi 552 9900. Grillið
opið 19-22.30 alla daga, Súlnasalur 19-3 ld„
Skrúður 12-14 og 18-22 alla daga.
Humarhúsið Amtmannsstlg 1, slmi 561 3303.
Opiö 10-23.30 v.d„ 10-1 Id. og sd.
Ítalía Laugavegi 11, sfmi 552 4630. Opið
11.30- 23.30 alla daga.
Jónatan Llvlngston Mávur Tryggvagötu 4-6,
sími 551 5520. Opið 17.30-23 v.d.,
17.30- 23.30 fd. og Id.
Kaffl Austurstraeti 6, sími 552 2615. Opið
11.30- 01 ad,-fi. og 12-03 fd.-ld.
Kaffi Árbær Hraunbæ 102, simi 567 4333.
Opið 11-23.30 v.d. og 11-01 fd. og Id.
Keisarlnn Laugavegi 116, slmi 551 0312. Opið
12- 01 sd.-fi. og 12-03 fd.-ld.
Kínahoflö Nýbýlavegi 20, slmi 554 5022. Opið
17-21.45 v.d., 17-22.45 fd„ Id. og sd.
Kina-húsið Lækjargötu 8, sími 551 1014. Opiö
11.30- 14 og 17.30-22 v.d.. 17.30-23 fd„ 15-23
ld„ 17-22 sd.
Kfnamúrinn Laugavegi 126, sími 562 2258. fd„
ld„ sd. 11-23. má.-fi. 11-22.00.
Kofl Tómasar frænda Laugavegi 2, sfmi 551
1855. Opið 10-01 sd.-fi. og 11-03 fd. og Id.
Kringlukráln Kringlunni 4, simi 568 0878. Opið
12-1 v.d„ 12-3 fd. og Id.
Lauga-ás Laugarásvegi 1, simi 553 1620. Opið
11-22 og 11-21 um helgar.
Las Candilejas Laugavegi 73, slmi 562 2631.
Opið 1T-24 alla daga.
Lelkhúskjallarlnn sfmi 551 9636. Opið öll fd.
og Idkv.
Lækjarbrekka Bankastræti 2, sími 551 4430.
Opið md.-miövd. 11.00-23.30, fi.-sd.
11.00-0.30.
Madonna Rauðarárstíg 27-29, sími 562 1988.
Opið 11.30-23.30 alla daga.
Marhaba Rauðarárstíg 37, sfmi 562 6766. Opið
alla daga nema md. 11.30—14.30 og
17.30- 23.30.
Naustið Vesturgötu 6-8, sfmi 551 7759. Opið
12-14 og 18-01 v.d„ 12-14 og 18-03 fd. og Id.
Nlkkabar Hraunbergi, simi 557 2100. Opið 17-
: 24.00 sd.-fi. 12-02 fd. og Id.
Ópera Lækjargötu 2, simi 552 9499. Opið
18-23.30 v.d„ 18-24.30 fd. og Id.
Pasta Basta Klapparstíg 38, simi 561 3131.
Opið v.d. frá 11.30 til 1.00 og um helgar til 3.00.
Perlan Öskjuhllð, sími 562 0200. Opið
16-23.30 v.d„ 18-24.30 fd.ogld.
Potturinn og pannan Brautarholti 22. sími 551
1690. Opið alla daga 11.30-22.
Samural Ingólfsstræti 1a, slmi 551 7776. Opið
1 v.d. 18-22, fd„ ld„ 18-23.
Selið Laugavegi 72, slmi 551 1499. Opið 11-23
j alladaga
Slam Skólavörðustfg 22, sími 552 8208. Opið
jj 18-22 v.d„ 18-22.30 fd. og Id. Lokað á md.
Slngapore Reykjavíkurvegi 68, sfmi 555 4999.
§ Opiö 18-22 þd.-fi. 18-23 fd.-sd.
Sjanghæ Laugavegi 28, slmi 551 6513. Opið
| 11.30-23.30 v.d., 12-22.30 sd.
Sjö róslr Sigtúni 38, simi 588 3550. Opið
| 7-23.30 alla daga.
Skólabrú Skólabrú 1, slmi 562 4455. Opið frá
| kl. 18.00 alla daga. Opið I hádeginu.
Steikhús Harðar Laugavegi 34, sími 551 3088.
Opið 11.30-21 v.d. og sd„ 11.30-23.30 fd. og
B ld.
Svartakaffi Laugavegi 54, slmi 551 2999. Opið
v.d. 10-24, fd„ ld„ 10-01, sd„ 14-24.
Thailand matstofa Laugavegi 11 simi 551
8111 og 551 7627. Opið 18-22 alla daga.
Tllveran Linnelsstíg 1, simi 565 5250. Opið
i; 11—23 alla daga.
Veltingahúslð Esja Suðurlandsbraut 2, sími
568 9509. Opið 11-22 alla daga.
Verdi Suðurlandsbraut 14, sími 581 1844. Opið
: md.-fd„ 11.30-22 og fd.-sd.11.30-23.
ÍVið Tjörnina Templarasundi 3, sfmi 551 8666.
Opiö 12-14 og 18-22.30 md.-fd„ 18-23 Id.-sd.
Viðeyjarstofa Viðey, simi 568 1045 og 562
1934. Opið fi.-sd. Kaffistofa opin 14-17.
Veitingasalur opinn 18-23.30.
Vitabar Bergþórugötu 21, sími 551 7200, Opið
15-23.30 v.d., 12—02 annars.
Prfr Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14, sími
552 3939. Opiö 11-14.30 og 18-23.30 Id. og
sd.
wmmm
Allri fjölskyldunni finnst gaman í göröunum.
/ ■ r
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
Fjör á frídegi
verslunarmanna
Það fara ekki allir út úr bænum
um verslunarmannahelgina. Sum-
ir kjósa að vera heima í ró og næði
og njóta þess að vera lausir við þá
sem yfirgáfu mölina. Á mánudag-
inn ætlar Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur að bjóða öllu heima-
kæra fólkinu í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn í Laugardal. Ástæðan
er sú að stjórn Verzlunarmannafé-
lagsins hefur ákveðið að taka upp
gamla venju og halda upp á frídag
verslunarmanna hér í Reykjavík.
í Fjölskyldu- og húsdýragarðin-
um er margt sem gleður augað.
Þar má sjá nautgripi, hesta, svín,
kindur, geitur, refi og ótal margar
aðrar dýrategundir, allt niður í
laxa, bleikjur og urriða. Brúðubíll-
inn verður á staðnum kl. 15 og
Trjálfur og Mímmli verða með
leikþætti kl. 14 og 16. Hljómsveitin
Hálft í hvoru mun einnig spila fyr-
ir gesti.
Kaffihús og veitingatjald eru á
svæðinu og einnig er hægt að
grilla eða koma bara eigið nesti.
Garðarnir veröa opnir frá 10 til
18 á frídegi verslunarmanna.
-ilk
verslunarmannahelgar-
innar og er orðin ómissandi þáttur í
lífi margs landans. Þjóðhátíðargestir
hafa undanfarin ár verið í kringum
tíu þúsund og því er mikið verk að
gæta þess að ekkert fari úrskeiðis.
Búið að semja við veð-
urguðina
„Það er búið að skipuleggja alla há-
tíðina vandlega og semja við veð-
urguðina um gott veður. Forskot var
tekið
á sæluna í
gær þegar
húkkaraballið
var haldið og
fmnst mörgum
þjóðhátíðin þá þeg-
ar gengin í garð,“ segir nefndin sem
komin er í mikið stuð.
„Börnin fá líka nóg við sitt hæfi en
Furðuleikhúsið mætir á staðinn með
barnagaman og barnadansleikir
verða alla dagana. Hljómsveitirnar
eru heldur ekki af verri endanum,
SSSól, Greifarnir og Sniglarnir.“
Auk þeirra verða margar aðrar
minni hljómsveitir. Kvöldvaka verð-
ur öll kvöldin og þar munu koma
fram m.a. Emilíana Torrini, Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson, Bergþór Pálsson og
Spaugbræður sem eru nýtt fyrir-
brigði i skemmtanabransanum.
Gamlar hefðir
gleymast ei
„Brennan á Fjósakletti verður að
sjálfsögðu á sínum stað á föstudags-
kvöldið og flugeldasýningin daginn
eftir. Á sunnudagskvöldið mun Árni
okkar Johnsen svo stjórna brekku-
söngnum einstaka,“ segja þjóðhátíð-
arnefndarmeðlimir.
„Dagskráin er miðuð við alla ald-
urshópa, margt nýtt er á dagskrá.
Þjóðhátíð byggist þó alltaf á gömlum
hefðum sem gera hana einstaka og
sjá til þess að hún standi af sér aðrar
útihátíðir."
Miðaverð inn á svæðið er 7.000
krónur og í boði eru ýmsar pakka-
ferðir.
-ÓG/ilk
DV. Vestmannaeyjum:
„Þjóöhátíðin verður að mestu hefð-
bundin en eins og alltaf skartar hún
mörgum bestu skemmtikröftum og
vinsælustu hljómsveitum landsins."
Þetta segir þjóðhátíðarnefnd Þórs
sem er búin að undirbúa þjóðhátíð-
ina í Vestmannaeyjum í margar vik-
ur.
Umrædd hátíð hefur í gegnum tíð-
ina verið einn stærsti viðburður
Siglufjörður:
Saltað
og dansað
Síldarævintýrið á Siglufirði er
orðið fastur punktur í þjóðlífinu
um verslunarmannahelgina. Nú um
helgina verður síldin söltuð í sjötta
sinn og það er heimafólkið sem
verður í aðalhlutverki í ævintýr-
inu.
Bærinn breytir um svip og verð-
ur líkari því sem hann var í gamla
daga þegar allt iðaði af mannlífi og
saltað var á plönum og dansað á
torgum.
Nú verður 20 manna harmóníku-
sveit spilandi og sett verður upp
leiksýning og karaokekeppni fyrir
börnin. Spaugstofan verður á staðn-
um og boðið verður upp á bátsferð-
ir, gönguferðir, veitingar, dorg-
veiði, hestamennsku, sjósleðafjör,
myndlistarsýningu og margt fleira.
Aðgangseyrir á hátíðina er 2000
krónur en frítt er inn fyrir börn og
unglinga í fylgd með fullorðnum.
Innifalið í verðinu eru tjaldstæði,
allar útiskemmtanir við torgið og
margt fleira frábært og skemmti-
legt.
-ilk
Vopnafjörður:
Vopnaskak '96
Enn standa hátíðarhöld yfir á
Vopnafirði en þau hafa verið í full-
um gangi síðan 28. júlí. Þar er boð-
ið upp á tvær viðamiklar fjöl-
skylduhátíðir. Önnur hátíðin er í
kauptúninu en hin í sveitinni.
Hljómsveitirnar Sixties, Sóldögg og
Sálin hans Jóns skemmta Vopna-
skaksþátttakendum.
Á morgun verður sjóstangaveiði-
mót, dorgveiðikeppni, fjársjóðsleit,
fjölskyldutónleikar og gömul
vinnubrögð verða sýnd. í dag verð-
ur skrúðganga, torgsala, grill,
brandarakeppni og ótalmargt fleira
og á sunnudag heldur fjölbreytt
dagskráin áfram þangað til varðeld-
ur verður tendraður og skemmtan-
ir settar í gang. Þá mun Sálin hans
Jóns min leika fyrir dansi í Mikla-
garði og allir verða glaðir og
ánægðir.
Aðgangur að svæðinu er ókeypis.
-ilk
Það veröur eitthvaö gert fyrir alla í Mulakoti um helgina.
DV-mynd Pétur B. Johnson
Múlakot
Fjölskyldu- og
listflugskeppni
Flugmálafélag íslands efnir til ár-
legrar fjölskylduhátíðar um versl-
unarmannahelgina. Að venju er
komið saman við Múlakot í Fljóts-
hlíð.
Þátttakendur þessarar hátíðar
eru ekki einungis áhugaflugmenn
því undanfariö hefur þeim fjölgað
verulega sem ekki tengjast flugi á
nokkurn hátt.
Vélflugmenn, svifflugmenn, svif-
drekamenn, módelmenn og fallhlíf-
armenn gangast fyrir margs konar
uppákomum. Leiktæki verða á
svæðinu og ýmsar þrautir fyrir alla
aldurshópa. Á laugardagskvöld
verður allsherjar grillveisla sem
endar með varðeldi og söng.
Fyrsta listflugskeppni íslands er
fyrirhuguð um helgina en það er
afar merkilegur atburður í íslenskri
flugsögu sem fæstir ættu að missa
af.
Aðgangur að Múlakotshátíðinni
er ókeypis.
-ilk
Bindindismót:
í Galtalækjarskógi skemmtir fólk
sér alltaf vel og án allra vímuefna. Nú
um verslunarmannahelgina verða að
venju mikil hátíðarhöld á þeim góða
stað. Meðal þeirra skemmtikrafta, sem
fram munu koma, eru Magnús Schev-
ing, Halli og Laddi, Ómar Ragnarsson
og Haukur Heiðar. Lúðrasveit TK
verður á staðnum auk
hljómsveitanna Reggae
on Ice og Upplyftingar og
plötusnúðanna DJ TB
303.
Skipulagðar hafa verið
skemmtilegar gönguferð-
ir um svæðið og séra
Pálmi Matthíasson
mun sjá um helgistund. Hápunktur
mótsins verður svo stórfengleg flug-
eldasýning og varðeldur.
Sérstakur heiðursgestur mótsins
verður forseti íslands, herra Ólafur
Ragnar Grímsson, ásamt eiginkonu
sinni, frú Guðrúnu Katrínu Þorbergs-
dóttur. Mun heimsókn þeirra hjóna
verða fyrsta embættisverk nýkjörins
forseta.
Það verður svo sannarlega nóg um
að vera í Galtalæk og þangað ættu all-
ir að fara sem vilja skemmta sér án
vímuefna í fallegu umhverfi.
-ilk
Hallbjörn Hjartarson er holdgervingur íslensks kántrýs.
Skagaströnd:
Kántrýhátíð
Að sjálfsögðu verður kántrý-
stemning í Kántrýbæ á Skaga-
strönd um þessa ágætu verslunar-
mannahelgi. Hljómsveitin Kúrekar
mun spila stóra rullu í hátíðahöld-
unum, K.K. bandið verður á staðn-
um auk Ellenar Kristjánsdóttur og
Eyþórs Gunnarssonar. Börnunum
verður ekki gleymt en þau fá að
horfa á kúrekabíómyndir, fara í
ratleiki, veiða marhnúta, fara á
hestbak, sigta gull úr sandi og
margt fleira.
Það verður sérstakur kántrýhá-
tíðarmatseðill á Hótel Dagsbrún og
eyðimerkurmatur verður í boði í
Kántrýbæ. Útimarkaður verður til
staðar og einnig gefst fólki kostur á
að spila póker.
Á sunnudaginn verður guðsþjón-
usta þar sem vinsælir tónlistar-
menn sjá um tónlistarflutning.
Allir eru velkomnir á kántrýhá-
tiðina sem er ætluð fyrir alla fjöl-
skylduna.
-ilk
Sæludagar
í Vatnaskógi
í Vatnaskógi verða um verslunar-
mannahelgina haldnir sæludagar
fyrir alla aldurshópa. Þar verða
kvöldvökur, varðeldur, kappróður á
vindsængum, koddaslagur úti á
vatni, poppmessa, krakkaklúbbur,
gönguferðir, ratleikur og margt
fleira.
Hátíðin í Vatnaskógi er tilvalin
fyrir fjölskyldufólk og staðurinn er
sérstaklega vinveittur börnum.
Áfengisbann verður virt í Vatna-
skógi og allir eru velkomnir.
-ilk
Friður
ogró
ísfirðingar skemmtu sér ærlega
um síðustu helgi á Ísafjarðarhátíð-
inni miklu og hafa nú ákveðið að
helga verslunarmannahelginni
friði og ró. Þeir ætla þó ekki að
liggja með tærnar upp í loftið um
helgina. Farið verður í gönguferðir
og siglingar, hestar verða viöraðir
og fiskar veiddir.
Sandkastalakeppni verður á
morgun i Önundarfirði og ungir
jafnt sem aldnir geta tekið þátt í
henni. Áhugamenn um tónlist og
menningu fá líka eitthvað við sitt
hæfi á ýmsum stöðum í ísafjarðar-
bæ. Einnig munu veitinga-, gisti- og
skemmtistaðir bæjarins tjalda því
besta í mat og skemmtan.
ísfirðingar verða sem sagt róleg-
ir um helgina.
-ilk
MESSUR
i
Árbæjarkirkja: Guðsþjón-
usta kl. 11 árdegis. Guðrún Edda
Gunnarsdóttir syngur einsöng í
guðsþjónustunni. Organleikari
| Kjartan Sigurjónsson. Prestarn-
I ir-
Áskirkja: Vegna sumarleyfa
j; er minnt á guðsþjónustu í Laug-
| arneskirkju.
Digraneskirkja: Messa kl. 11.
Altarisganga. Organisti Sólveig
Sigríður Einarsdóttir. Sóknar-
| prestur.
Dómkirkjan: Messa kl. 11.
I Prestur sr. María Ágústsdóttir.
Organisti Marteinn H. Friðriks-
I son.
Elliheimilið Grund: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson. Organisti Krist-
jana Þ. Ásgeirsdóttir.
Grensáskirkja: Messa fellur
niður vegna hreingerninga.
Hafnarfjarðarkirkja: Guðs-
þjónusta kl. 20. Sr. Þórhallur
Heimisson.
Hallgrímskirkja: Messa kl.
10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Orgeltónleikai- kl. 20.30. Ragnar
Björnsson, orgelleikari í Reykja-
I vik.
Háteigskirkja: Messa kl. 11.
Forsöngvari Soffia Guðmunds-
;; dóttir. Sr. Gylfi Jónsson.
Hjallakirkja: Kvöldguðsþjón-
| usta kl. 20.30. íris Kristjánsdóttir
guðfræðingur prédikar. Kór
kirkjunnar syngur. Organisti
: Oddný J. Þorsteinsdóttir. Krist-
ján Einar Þorvaröarson.
Kópavogskirkja: Helgistund
kl. 11 í umsjón sr. Þorbergs
Kristjánssonar. Organisti Örn
Falkner.
Landspítalinn: Messa kl. 10.
I Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
Langholtskirkja, Kirkja Guð-
: brands biskups: Lesmessa kl. 10.
Sr. Flóki Kristinsson. Síðasta
messa fyrir sumarleyfi starfs-
fólks. Kirkjan lokuð í ágúst. Vís-
að á þjónustu í Bústaðakirkju.
Laugarneskirkja: Messa kl.
11. Félagar úr Kór Laugarnes-
I kirkju syngja. Organisti Gunnar
| Gunnarsson. Sr. Ólafur Jóhann-
son.
Neskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Orgel og kórstjórn Reynir
Jónasson. Sr. Halldór Reynisson.
Seljakirkja: Guðsþjónustur
falla niður í ágústmánuði vegna
sumarleyfa starfsfólks kirkjunn-
ar.
Seltjarnarneskirkja: Messa
kl. 11. Prestur sr. Hildur Sigurð-
ardóttir. Organisti Kristin Jóns-
dóttir.
Viðeyjarkirkja: Messa kl. 14.
| Prestur sr. Kristján Valur Ing-
| ólfsson. Bátsferö úr Sundahöfn
I kl. 13.30.
Eyjafjarðarsveit:
Sveitalíf
Að Hrísum í Eyjafjarðarsveit
verður fjölbreytt skemmtidagskrá
fyrir alla fjölskylduna um helg-
ina. Umgjörðin er fallegur sveita-
bær og stemningin verður í stil
við hana. Hestaleiga verður opin,
farið verður í rúllubaggahlaup,
fótboltakeppni, jarðýtukeppni,
kýló, golf, reiptog, glímu og margt
fleira. Haldið verður hlöðuball
fyrir börnin, farnar æsispennandi
fjallaklifursferðir á trukk. Einnig
verða haldin tryllt hlöðuböll fyrir
þá eldri.
Ótal margt fleira verður til
gamans gert og fólki verður
meira að segja kennt að dansa
kántrídansa. Þarna verður sveita-
lífið haft i fyrirrúmi og það ætti
að vera hollt og gott fyrir borgar-
fólkið að kynnast því.
-ilk