Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1996, Blaðsíða 12
26 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996 iyndbönd MYNDBAm tmw DULARFULL FYRIRBÆRI *** Ekki hef ég gerst svo frægur að hafa séð einn einasta X-flles þátt í sjónvarpinu en þeir eru víst einhverjir heitustu þættimir um þessar mundir og hef ég ósjaldan orðið vitni að umræðum um þá. Þetta eru því mín fyrstu kynni af X-files og inniheldur þetta myndband tvo þætti, skeytta saman í eina mynd, og stutt viðtal við Chris Carter, höfund þáttanna, í kaupbæti. Aðalsöguhetjumar eru Fox Mulder og Dana Scully sem em alrikislögreglumenn sem rannsaka ýmiss konar óþekkt og yfimáttúruleg fyrirbrigði sem oft koma óþægilega við kaun- in á her landsins og stjómvöldum. í þessum þætti komast þau á snoð- ir um leynilegar aðgerðir á vegum hersins og telur Fox Mulder að her- inn hafi í sinni vörslu geimskip og geimverur og sé að gera tilraunir með bæði. Dana Scully hefur aðrar hugmjmdir en rannsókn þeirra reynist hættuleg og líkin fara aö hrannast upp. Gloppur er að finna í söguþræðinum sem annars er vitrænni en gengur og gerist í svona framleiðslu. Þama hefur tekist að skapa sæmilega áhugaverðar persón- ur og halda uppi nokkurri spennu þótt myndin sé nokkuð ólíkindaleg. Maður hefur á tilfinningunni að þættimir hafi þynnst svolítið út með tímanum. THE X-RLES: 82517. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Rob Bowman. Aðalhlutverk: David Duchovny og Gillian Anderson. Bandarísk, 1996. Sýnlngartími: 90 mín. Bönnuð bóm- um yngri en 12 ára. PJ SJORÆNINGJAR í FJÁRSJÚÐSLEIT ★"i Renny Harlin var einn af vinsælustú" hasar- myndaleikstjómm Hollywood áður en hann gerði þessa afar dým mynd sem ekki þótti standa undir Væntingum. í myndinni segir frá Morgan sem erfir sjóræningjaskip pabba síns og hluta fjársjóðskorts. Þar sem enginn á skipinu gefur lesið kortið kaupa þau þræl sem kann latínu og taka hann með sér út á sjó. í kapphlaupi við þau er sjóræningjaskipstjór- inn Dwag sem er illmenni hið mesta og á einn hluta kortsins. Það er mikill hasar og læti í myndinni en einhvern veginn gengur dæmið ekki alveg upp. Hún er ófrumleg og óspennandi og atburðarásin afar auðráðin. Sennilega lætur Renny Harlin betur að leikstýra nútímahasar. Ekki er laust við að heimskulega hafi verið valið í aðalhlutverkin. Geena Davis rembist og rembist en hún er einfaldlega alltof veimiltítuleg til að vera annað en fáránleg í hlutverki hörkukellingar sem lemur alla kalla í kringum sig í kássu. Svipað má í raun segja um Matthew Modine í hinu aðal- hlutverkinu en eins og svo oft áður er það illmennið sem er áhugaverð- ast og er hann sá eini í myndinni sem virkar nógu grimmur til að geta verið alvörusjóræningi. Frank Langella leikur hann og gerir það vel. Cutthroat Island. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Renny Harlin. Aöalhlutverk: Geena Davis og Matthew Modine. Bandarísk, 1995. Sýningartími: 123 mín. Bönnuö börnum yngri en 16 ára. -PJ ★★ MERKISGRIS Grísinh Baddi er valinn til að vera verðlaun á þorpshátíð og þar vinnur bóndinn Hogget hann með því að giska rétt á þyngd hans. Bóndinn tekur því Badda með það í huga að ala hann vel fram að jól- um og hafa hann í jólamatinn. Badda verður það til happs að tíkin Fluga tekur ástfóstri við hann og gengur honum i móðurstað. Baddi fer að taka upp á því að reyna að reka kindur eins og fjárhundarnir og kemur fljótt í ljós að hann hefur einstaka hæfi- leika á því sviði. Bóndinn Hogget ákveður að taka áhættu og skráir Badda í landskeppni fjárhunda. Hann verður að sjálfsögðu að athlægi þangað til þeir stíga á völlinn og Baddi sýnir listir sínar. Ástralir hafa einstakt lag á að búa til frumleg- ar myndir og þessi er engin undantekning. Hugmyndin er fersk og gengur vel upp og myndin er oft mjög skemmtileg. Dýrin standa sig með eindæmum vel en gallinn við myndina er að hún er talsett, sem er hreint og klárt skemmdarverk. Að íslenskum leikurum ólöstuðum þá eru talsetningar ávallt óvirðing við erlenda leikara en talsetning virð- ist vera talin nauðsynleg á bamamyndum í dag. BABE. Útgefandi: ClC-myndbönd. Leikstjóri: Chris Noonan. Aöalhlutverk: James Cromwell og Magda Szubanski. Áströlsk, 1995. Sýningartími: 90 mín. Leyfö öllum aldurshópum. PJ GLÆPAKLIKAIVIETNAM I Cyclo segir frá imglingi sem býr í Ho Chi Minh borg ásamt afa sínum og tveimmr systrum. Þau reyna að hafa í sig og á með ýmsum smáverkum. Afinn pumpar í hjólbarða, eldri systirin ber vatn og sú yngri burstar skó en hann leigir hjólvagn og ferjar ýmist varning eða fólk. Dag einn er hjólvagninum stolið af honum og hann stendur eftir slyppur og snauður. í framhaldi af því kemst hann í samband við glæpaklíku og hrífst af völdum og framkomu for- ingja klíkunnar. Hann fær inngöngu í klíkuna en smám saman missir hann tökin á raunveruleikanum. Á meðan á for- ingi klíkunnar i vandræðum með samvisku sína og er farinn að hafa tilfinningar til einnar af hórunum sem hann er dólgur fyrir. Á kvik- myndahátíðinni í Feneyjum hlaut myndin Gullljónið fyrstu verðlaun gagnrýnenda og utan á kápunni eru ýmsar yfirlýsingar gagnrýnenda þar sem myndinni er líkt við Trainspotting, Pulp Fiction og Reservoir Dogs m.a. Þessar yfirlýsingar eru fáránlegar því myndin er afar hæg- geng og gerir ekkert fyrir áhorfandann annað en að drepa hann úr leið- indum. Hún er fullkomið dæmi um hvemig hægt er að dulbúa rusl sem listaverk. Þaö er ekkert merkilegt við þessa mynd annað en hvað hún er með eindæmum léleg. CYCLO. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Tran Anh Hung. Aöalhlutverk: Tony Leung og Le Van Loc. Víetnömsk, 1994. Sýningartími: 124 mín. Bönnuö börnum yngri en 16 ára. PJ Myndbandalisti vikunnar i m a 27. ágúst til 2. sept. SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL . .. ... i ÚTGEF. TEG. 1 Ný ! í Heat Warner -myndir Spenna 2 ! 2 2 Jumanji Skífan Gaman ) - 3 3 ! 3 Leaving Las Vegas Skrfan Brama 4 ! 1 3 Fair Game Warner -myndir Spenna 5 ! 11 j 2 Now and Then Myndform Gaman 6 4 6 Desperado Skifan Spenna 7 i 5 j 2 Ópus hera Holland Háskólabíó Drama liv Ný í 1 Babe ClC-myndir Gaman I9 I Ný 1 Kids Skífan j Drama 10 9 2 Clockers ClC-myndir Spenna 11 ! 6 7 : Sabrina ClC-myndir Gaman 12 7 8 J Seven i Myndform Spenna 13 10 ! 4 Bed of Roses Myndform Drama 14 | 8 j 5 . - g J Waiting to Exhale Skífan Gaman 15 J 14 j 4 Mute Witness Skífan Spenna 16 12 7 Something to Talk About Warner -myndir Gaman : 17 | Ný i 1 The Brothers McMullen Myndform Gaman 18 13 11 Assassins Warner -myndir Spenna |l9 1 Ný ! i ! Mallrats ClC-myndir Gaman 20 16 9 Ace Ventura when Nature Calls Warner -myndir Gaman Atvinnu- glæpamenn Robert de Niro leikur atvinnu- glæpa- manninn Neil í myndinni Heat. Heat Robert de Niro, Al Pacino, Val Kil- mer Neil er atvinnuglæpamaður sem ásamt mönnum sínum leggur á ráð- in meö nokkur hátæknileg rán. Snilli þessara rána felst ekki síst í því að Neil og menn hans skilja ekki eftir sig nein spor sem geta komið upp um þá. Vincent er rann- sóknarlögreglumaður í rán- og morðdeild sem er ekki síður snjall en Neil. Með hjálp sinna manna og uppljóstrara tekst honum smám saman að þrengja netið í kringum glæpamennina. Jumanji Robin Williams og Bonnie Hunt. Dag einn finnur hinn 8 ára gamli Alan dularfullan kassa. Hann tekur kassann með sér heim og í ljós kem- ur teningaspil sem hann og vinkona hans, Sara, prófa. En þegar Alan tekur upp teningana og kastar þeim taka undarlegir hlutir að gerast. Alan hreinlega leysist upp og hverf- ur inn í spilið. 26 árum síðar flytja hin munaðarlausu Judy og Peter í húsið. Fljótlega rekast krakkamir á rykfallið spilið og ákveða að kasta teningunum. Þar með leysa þau Alan úr álögum en fljótlega komast þau að því að þau verða að klára spilið. Leaving Las Vegas Nicolas Cage og Elisabeth Shue Ofdrykkjumað- urinn Ben hefur sóað lífi sínu i örmum Bakkusar og ákveður nú að taka skrefið til fulls. Hann selur allar eigur sínar og heldur til Las Vegas til að drekka sig í hel. Fljótlega rekst hann á vændiskonuna Seru sem einnig hef- ur misst tökin á eigin lífi. Með þeim takast góð kynni og til verður und- arlegt ástarsamband. í brjósti Seru kviknar einhvers konar von um að hún og Ben eigi enn möguleika í þessu lífi og hún reynir að fá Ben ofan af drykkjunni. Ben er hins veg- ar langt leiddur og hefur enga löng- un til að hverfa af þeirri braut sem hann er á. Fair Game Cindy Crawford og Stephen Bald- win Lögfræðingurinn Kate verður dag einn skotmark morðingja og á eng- an annan kost en að leggja á flótta og reyna að fara huldu höfði. Max er í morðdeild lögreglunnar og hann fær það verkefni að gæta Kate. En sam- bandið milli þeirra er stirt því Kate kærir sig ekkert um vemd hans og að sama skapi kærir hann sig ekkert um að sinna þessu verk- efni. En spennan magnast þegar morðingjamir færast nær fómar- lambi sinu og þau Kate og Max verða að reyna að umbera hvort annað. Now and Then Demi Moore, Mel- anie Griffith, Rosie O'Donnell. Fjórar æsku- vinkonur hittast á ný og rifja upp atburði sem gerð- ust eitt viðburð- arríkt sumar. Árin höfðu liðið í barnslegu áhyggjuleysi hjá þeim Samönthu, Teenu, Robertu og Chrissy. En aðalmál sumarsins var að uppgvötva leyndardóminn á bak við dularfullt dauðsfall sem átti sér stað í nágrenninu nokkrum ámm áður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.