Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.1996, Blaðsíða 12
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1996 T*IV ® myndbönd - MYNDBAHDA ^öj'jííyiu Amnesia ★★ Minnisleysi Leikstjóri þessarar myndar er Kurt Voss en i vor kom á myndbandi frá honum ágæt mynd sem heitir Baja. Stílbrögðin hjá honum gefa annars ekkert sér- staklega merkilegum sögum aukið gildi og hann hefur auga fyrir því að skapa sérstakar persónur. í Amnesia snýst sagan um prest nokkum sem á i ástarsambandi við unga og fagra kennslukonu. Hann ákveður að sviðsetja dauða sinn svo að hann geti stungið af með hjákonunni en konan hans getur huggað sig við milijón dollara líftryggingu hans. Áætl- unin fer svolítið úrskeiðis þegar hann í miðjum klíðum dettur og rekur höfuðið í. Við það hrekkur minnið úr skorðum og hann lendir í klónum á kolgeggjaðri herfu sem gerir hann að elskhuga sínum. Eftir sitja kon- an hans og hjákonan og vita lítið en gruna sitthvað og inn í atburðarás- ina kemur tryggingaeftirlitsmaður sem er ekki alveg reiðubúinn að samþykkja að andlát prestsins hafi verið með eðlilegum hætti. Myndin byrjar ágætlega og býr til nokkuð skemmtilega flækju en missir sig út í hálfgerða dellu í seinni hlutanum og svo verður endirinn heldur fyrir- sjáanlegur. Sally Kirkland er einna skást leikaranna en sá góði leikari John Savage er hálfvandræðalegur. Amnesia hefði getað orðið góð mynd með vandaðri vinnubrögðum. Útgefandi: Stjörnubíó. Leikstjóri: Kurt Voss. Aðalhlutverk: John Savage, Ally Sheedy og Sally Kirkland. Bandarísk, 1996. Lengd: 90 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. -PJ The Birdcage Farsakennt Ijölskylduboð ★★★Á The Birdcage byggir á einni af vinsælustu grínmyndum Frakka, La Cage Aux Folles. í henni segir frá tveimur miðaldra hommum í sambúð, Armand og Albert (Robin Williams og Nathan Lane), og íhaldssömum þingmanni og eiginkonu hans (Gene Hackman og Dianne Wiest). Sonur Armands og dóttir þingmannsins eru ástfangin og ætla að gifta sig. Ferill þing- mannsins er í hættu vegna þess að nánasti samstarfsmaður hans fékk hjartaslag í rúminu hjá svartri vændiskonu, sem þar að auki var undir lögaldri, og hann sér tækifæri í hjónabandi dóttur sinnar til að sýna hefðbundin fjölskyldugUdi og lappa )annig upp á ímynd sína. Þau koma því í mat til tilvonandi tengdaforeldra dóttur sinnar sem reyna eftir bestu getu að leyna sannleikanum. Myndin fer nokkuð hægt af stað en verður betri og betri eftir því sem á líður og lokaatriðið er hreinlega unaðs- legt. Nathan Lane fer á kostum og Robin Williams sýnir óvanalega agaðan leik. Gene Hackman og Dianne Wiest eru litlu síðri og í heild nær leikhópurinn sérstaklega vel saman þannig að farsinn, sem gengur út á vandræðaleg samskipti aðalpersónanna, gengur mjög vel upp þegar þær eru allar samankomnar í hinu kostulega kvöldverðar- boði. Þetta er óvanalega vel heppnuð grínmynd. Útgefandi: Sam-myndbönd. Leikstjóri: Mike Nichols. Aðalhlutverk: Robin Williams, Nathan Lane, Gene Hackman og Dianne Wiest. Bandarísk, 1996. Lengd: 114 mín. Leyfð öllum ald- urshópum. -PJ Things to do in Denver when you're dead: Mafíuklúður Andy Garcia leikur Jimmy the Saint, fyrrum maflósa sem nú stundar heið- arleg viðskipti. Fyrrum yfirmaður hans í mafíunni kúgar hann til að vinna verk fyrir sig og Jimmy safnar saman skrautlegum hópi af gömlum félögum sínum til verksins. Verkefnið fer algjörlega út um þúfur og það svo illa að þeir eru aUir á dauðalista mafíunnar nema Jimmy sem fær tveggja sólarhringa frest til að koma sér í burtu frá Denver vegna gamals kunningsskapar við mafíósann. Frestinn notar Jimmy til að reyna að ganga frá sínum málum í Denver og koma félögum sinum í öruggt skjól. Með myndinni er leikstjórinn Gary Fleder að reyna að gera eitthvað svipað og Quentin Tarantino gerði í Pulp Fiction; að búa til blóðuga bófasögu með léttu yfirbragði. StObrögö og sterkar persónar eiga að gera myndina svala og flotta. Ætlunarverkið tekst upp að vissu marki því að sagan er skemmtileg og leikararnir standa flestir vel fyrir sinu en endirinn er fremur klúðurslegur og eyðileggur nokkuð fyrir myndinni. Skemmtilegast er að fylgjast með aukaleikurunum sem flestir skapa mjög skemmtilegar persónur, sérstaklega Treat Williams og William Forsythe. Þá er Steve Buscemi einnig skemmtilegur sem hinn þögli ofurmannlegi leigu- morðingi. Gabrielle Anwar er hins vegar afar ómerkileg í hlutverki stúlkunn- ar sem Jimmy verður ástfanginn af og sjálfur er Andy Garcia fremur þurr í aðalhlutverkinu, enda hefur hann ekki hæfileika til að skapa sterka persónu og er akkilesarhæll myndarinnar. Með því aö velja skárri leikara í aðalhlut- verkið og hugsa endinn aðeins betur hefði myndin getað orðið frábær. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Gary Fleder. Aöalhlutverk: Andy Garcia. Bandarísk, 1995. Lengd: 111 mín. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. -PJ Up Close and Personal Amerísk vella Up Close and Personal byggist að hluta til á sögu Jessicu Savitch en nýlega kom mun betri mynd rnn hana, Almost Golden. Hér er búið að hvítþvo söguna svo að ekkert ljótt sé í myndinni. MicheUe Pfeiffer leikur sjónvarpsfréttakonuna TaHy Atwater og fylgir myndin henni í gegnum feril hennar á toppinn. Rohert Redford leikur Warren Justice, eldri og reyndari fréttamann sem starfar sem fréttastjóri á lítilli frétta- stöð þar sem Tally Atwater hefur feril sinn en hann er útlægur frá stóru sjónvarpsstöðvunum vegna mistaka sem hann gerði í starfi. Þau verða ástfangin og hann aðstoðar hana eft- ir bestu getu. Myndin er algjört rusl lengst af. Robert Redford er einn af þeim leikurum sem ekkert virðast batna með aldrinum og er alveg sér- staklega ósannfærandi sjarmör, verulega þurr og óspennandi. Michelle Pfeiffer er hins vegar ágæt leikkona en er hér í vonlausu plastdúkku- hlutverki. Persónumar eru svo heilagar að manni finnst vanta geisla- bauginn og sagan, bæði ástarsagan og sagan af frama Tally Atwater, er leiöindin ein. Myndin tekur smákipp í lokin í ágætu atriði þar sem TaHy lokast inni í fangelsi í miðri fangauppreisn en kálar sjálfri sér aftur í viðbjóðslega væmnu lokaatriði. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Jon Avnet. Aðaihlutverk: Robert Red- ford og Michelle Pfeiffer. Bandarisk, 1995. Lengd: 120 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -PJ 24. sept. til 30. sept. '96 SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG. 1 1 2 Broken Arrow Skífan Spenna 2 Ný 1 12 Monkeys CIC-Myndbönd Spenna 3 2 4 1 Get Shorty Warner -myndir Gaman 4 3 2 Grumpier Old Men Warner -myndir Gaman |5 Ný 1 Up Close And Personal Myndform Spenna 6 4 5 Casino ClC-myndbönd Spenna 7 5 3 Sudden Death ClC-myndbönd Spenna & Ný 1 Barb Wire Háskólabíó Spenna 9 10 2 Virtuosity ClC-myndbönd Spenna 10 8 3 Sense & Sensebility Skrfan Spenna 11 6 6 Dead Mann Walking Háskólabíó Gaman 12 11 6 Father of the Bride SAM-myndbönd Gaman 13 9 9 Heat Warner -myndir Spenna 14 7 4 City Hall Skrfan Spenna 15 12 5 Apaspil Skífan Gaman 16 13 3 Screamers Myndform Spenna 17 14 6 Thin Line Between.. Myndform Gaman 18 Al 8 Babe ClC-myndbönd Gaman 19 16 7 j Strange Days ClC-myndbönd Spenna 20 Ný 1 j Mighty Aphrodite Skífan Gaman Spennumyndin Broken Arrow heldur efsta sæt- inu á listanum en önnur spennumynd, 12 Mon- keys, þjarmar að henni en hún er ein þriggja nýrra mynda sem koma inn á listann þessa vik- una. 12 Monkeys er framtíöartryllir, gerður af Terry Gilliam, sem á að baki margar góðar myndir og var einn af Monty Python hópnum. í fimmta sæti er Up Close and Personal, sem fjallar um hinn harða heim sjónvarpsins, og þriðja nýja myndin er önnur framtíðarmynd, Barb Wire, meö strandvarðaþokkkadísinni Pamelu Anderson í aöalhlutverki. Á myndinni eru Bruce Willis og Madelaine Stowe í hlutverk- um sínum í 12 Monkeys. 'Wr i Wk '«V- iM Skyp^fc, 4 Broken Arrow John Travolta og Christian Slater. Vic er einn besti flugmaöur bandariska hersins og einn af fáum sem stjórna vél sem ber kjamaodda. í leynUegri sendifór með slík vopn kemur hins vegar í ljós að Vic er ekki aUur þar sem hann er séður. Með honum er flug- maðurinn RUey sem litur upp tU Vics. Sú aðdáun breytist hins vegar í skelfmgu þeg- ar vélinni er rænt og RUey verður ljóst að það er Vic sem stend- ur fyrir ráninu. Hótar hann sprengingu ef ekki verði fariö að vUja hans. 12 Monkeys Bruce Willis og Brad Pitt Bruce WiUis leik- ur mann að nafni Cole sem finnst sturlaður og er send- ur á geðveikrahæli. hann segist vera frá árinu 2035 og hafi verið sendur tU að koma í veg fyrir út- breiöslu á veiru sem eigi eftir að eyða nær öUu lífi innan nokk- urra vikna. Þótt fáir trúi honum tekur geðlæknirinn Kathryn eftir þvi að ýmislegt styður það að Cole sé að segja sannleikann. Fram- vindan verður svo æ dularfyUri og það verður ekki auðvelt fyrir Cole að leita að uppruna veirunnar. Get Shorty John Travolta og Gene Hackman Handrukkarinn ChUi Palmer er einn sá albesti í faginu. Hann er fenginn tU að fara til Las Vegas tU að innheimta peninga sem Mafían gerir tilkaU tU. í leiðinni er hann beð- inn að koma við í HoUywood og inn- heimta smáskuld hjá kvikmyndafram- leiðanda. í fram- haldi fær Palmer mikinn áhuga á kvikmyndabransan- um og ákveður að heUa sér út í hann á fúUu. Og hæfileikar hans sem handrukk- ari koma honum að gagni í kvikmynda- heiminum. »!*>!; itíKJS ttÚTi'j 9XTVW: Grumpier Oid Men Jack Lemmon og Walter Matthau Það er komið sum- ar í heimabæ ná- grannanna Johns og Max, hlýnað hefur í samskiptum nöldur- seggjanna en þá kem- ur hin íðUfagra Maria í bæinn og aUt verður vitiaust. Hún hefur'yfírtekið beitu- verslunina og hyggst breyta henni í ítalsk- an ristorante. Þetta eru að sjálfsögðu helgispjöU í augum félaganna sem ákveða að láta sverfa til stáls og koma í veg fyrir. fyrirætlanir Mariu en hún er ekk- ert lamb að leika sér við. UP CLOSE & PERSONAi Up Ciose and Personal Robert Redford og Michelle Pfeif- fer TaUy er fréttakona og ein sú vinsælasta í bandarísku sjón- varpi. Hún hefur á löngum tima barist tU metorða með dyggri aðstoð vin- sæls sjónvarps- manns, Warren Just- ice. Samhliða því hefur komist á ástar- samband miUi þeirra en það er erfitt að halda einkalífinu fyrir utan heim sjón- varpsins og þegar vinsældir og starfs- frami vegur meira en hjónabandið hlýt- ur eitthvað að láta undan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.