Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997 9 I>V Utlönd Skæruliðar standa enn fast á kröfum sínum: Sjö gíslum sleppt í Perú Marxísku uppreisnarmennimir í bústað japanska sendiherrans í Lima létu lausa sjö gisla til viðbótar í gær en ekkert benti til þess að þeir ætluðu að láta undan kröfum um að binda enda á fimmtán daga umsát- ursástand um bústaðinn. Skæruliðarnir úr Tupac Amaru byltingarhreyfingunni hafa látið nokkra gísla lausa á hverjum degi að undanfómu en það breytir ekki því að þeir halda enn fast við þá kröfu sína að stjómvöld sleppi um 400 félögum þeirra úr fangelsi. Enn eru 74 gíslar í haldi skæm- liðanna, þar á meðal háttsettir per- úskir embættismenn og foringjar í hemum, tveir erlendir sendiherrar og á þriðja tug japanskra stjómarer- indreka og kaupsýslumanna. Sjömenningarnir, sem losnuðu úr prísundinni í gær, voru fjórir jap- anskir kaupsýslumenn og þrír Perú- menn. Þeir virtust allir vera við góða heilsu þegar þeir gengu út úr sendiherrabústaðnum, klyfjaðir plastpokum með óhreinum fötum. Annars var allt með fremur kyrr- um kjörum í japanska sendiherra- bústaðnum í gær eftir mikið uppi- stand á gamlársdag þegar uppreisn- armennirnir létu tvo stjómarerind- reka lausa og héldu óvæntan frétta- mannafund. Alberto Fujimori, forseti Perús, brást ókvæða við auglýsingabrell- um gíslatökumannanna og hélt til á skrifstofu sinni í stjórnarráðinu ásamt öryggisráðgjöfum slnum. „Hann er mjög óhress og hver mundi ekki vera það? Þeir tóku frumkvæðið og gerðu hann að fifli,“ sagði heimildarmaður i stjómarráð- inu við Reuters-fréttastofuna. Nestor Cerpa, leiðtogi skærulið- anna, ræddi við fréttamenn í tvær klukkustundir, klæddur í her- mannabúning og með sjálfvirkan rifiil sér við hlið. Hann fordæmdi „einræðisstjórn“ Fujimoris og itrek- aði að skæruliðar mundu ekki gef- ast upp fyrr en félagar þeirra hefðu verið leystir úr haldi. Reuter Þessar ungu Berlínarstúlkur tóku upp kampavínsflösku þegar nýja áriö gekk í garð. Þær voru meðal þúsunda sem kvöddu gamla árið og fögnuðu því nýja við hið fræga Brandenburgarhlið í Berlín. Símamynd Reuter Camilla fær eigið herbergi hjá Karli Karl Bretaprins hefur látið útbúa sérstakt svefnherbergi á sveitasetri sínu handa Camillu Parker Bowles, ástkonu sinni til margra ára. Þjón- ustufólkinu á sveitasetrinu hefur auk þess verið skipað að ávarpa Camillu sem húsfreyju staðarins, að því er breska blaðið Daily Mirror greindi frá í gær. Samkvæmt frásögn blaðsins dvel- ur Camilla oft á sveitasetrinu Hig- hgrove, jafnvel þegar Karl er utan- lands. Hefur hún þá yfirumsjón með heimilishaldinu. Frá því að Karl skildi við Díönu prinsessu í fyrra hefur mönnum þótt líklegt að hann hafi hug á að kvænast Camillu. Slík hjúskapar- stofhun gæti hins vegar minnkað möguleika hans á að verða konung- ur þegar móðir hans, Elísabet Eng- landsdrottning, fellur frá. Camiila býr sjálf ekki langt frá sveitasetri Karls eða í um 30 kíló- metra fjarlægð. Það hefur verið vit- að um alilangt skeið að Karl leyfir henni að hafa hesta sína í húsi á sveitasetri hans. Reuter Innlausnarverð vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Hinn 10. janúar 1997 er 24. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 24 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 5.000 kr. skírteini = kr. 575,90 It II 10.000 kr. skírteini = kr. 1.151,80 II ll 100.000 kr. skírteini = kr. 11.518,00 Hinn 10. janúar 1997 er 22. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1986. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 22 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir: Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.148,10 Ofangreindar fjárhæðir eru vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. júlí 1996 til 10. janúar 1997 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna. | i ' < Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. | Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 10. janúar 1997. Reykjavík, 31. desember 1996 SEÐLABANKIÍSLANDS A' Dansráð íslands Trfav réoo thögn Innritun í símum 553 6645 og 568 5045 alla daga kl. 12-19. Opið hús sunnudaginn 5. janúar. kl. 14-17 DANSSKOLI Jóns Péturs ogKörn Umboðsaðili fyrir hina frábœru Supadance dansskó Bolholt 6, 105 Reykjavík, sími 553 6645/568 5045, fax 568 3545 Gleðiiegt nýtt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.