Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1997, Blaðsíða 14
14
4.
ÞRIÐJUDAGUR 4. MARS 1997
Heilsað upp á hestaáhugamenn:
Heill menningarheimur
fyrir utan borgarmörkin
Hestamennska er ein af þeim tóm-
stundaiöjum sem íslendingar sækja
sífellt meira i. Og af einhverjum
ástæöum virðist hestamennskan
verða eitthvað stærra og meira en
venjuleg tómstundaiðja fyrir þá sem
á annað borð fá í sig bakteríuna.
Innan hestamennskunnar má finna
heilan menningarheim, eins konar
menningarkima fólks sem lifir og
hrærist í heimi hesta og útiveru.
Hestamennska er bæði dýrt og tíma-
frekt sport en samt er eitthvað svo
heillandi við hana að hundruð ís-
lendinga eru reiðubúin að skjótast í
hádeginu til að gefa og moka og
eyða síðan kvöldunum ekki fyrir
framan sjónvarpið heldur í félags-
skap dýranna og annarra hestaá-
hugamanna.
Blaðamaður og ljósmyndari Tilve-
runnar skutust út fyrir bæjarmörk-
in til að heilsa upp á nokkra hressa
hestavini og fá þá til að útskýra
hvað það væri sem gerði hesta-
mennskuna svona einstaka.
Bryndís Björk Karlsdóttir:
Hestamennskan ólýsanlega gefandi
Tilveran rakst á konu sem var í
óðaönn að moka snjó frá hesthúsun-
um. Þar var á ferð Bryndís Björk
Karlsdóttir sem tók vel í að spjalla við
blaðamann. „Maður var á hestum í
sveit hér áður fyrr en fyrir þremur
árum keypti faðir minn hesthús hér
og þá byrjaði maður á fúllu. Þetta var
alltaf draumurinn." Bryndís Björk
segir hestamennskuna vera bráðsmit-
andi áhugamál. „Ég er búin að vera
hérna föst á hveijum einasta degi, ég
kem upp eftir þó það sé ekki nema
bara til að finna lyktina. Maður þarf
ekki einu sinni að fara á bak, bara
koma, moka skítinn og
dúlla sér í kringum
þetta. Það er
margfalt þess
virði.“
Bryn
ekki ein í þessu því að öll fjölskyldan
er á kafi í hestamennsku. „Mamma og
pabbi eru í þessu, bróðir minn, mað-
urinn minn og synir mínir." En hvað
heldur hún að geri það að verkum að
fólk verði svona heltekið af hesta-
mennskunni? „Það er bara svo gaman
að þessu og þetta gefur manni rosa-
lega mikið. Að vera á baki á góðum
hesti er bara meiri háttar. En annars
er erfitt að lýsa þessu. Umgengnin við
hestana, hirðingin, útreiðamar 1 góðu
verði og félagsskapurinn. Allt þetta er
frábært." Bryndís Björk er í hverfi
hestamannafélagsins Andvara og seg-
ir andann vera góðan. „Þeir eru t.d.
með hestanámskeið fyrir krakk-
ana
sonur minn er á einu slíku. Svo er
opið hér i félagsheimilinu á laugar-
dögum og sunnudögum, þá fær fólk
sér kaffi og bjór. Það er mjög gaman
og notalegt."
Synir Bryndísar eru 14,10 og 3 ára
og eru allir á kafi í hestamennskunni.
„Það er ómögulegt þegar bara einn í
fjölskyldunni er í hestunum. Fyrst var
það bara ég og ég var komin með
móral að skilja alltaf krakkana effir
heima. Því fékk þessi 14 ára hest þeg-
ar hann fermdist í fyrra, svo byrjaði
sá 10 ára og er kominn á fullt og þessi
3 ára fylgir fast á effir. Svo smitaði ég
manninn minn. Þetta er nefhilega
bráðsmitandi." Bryndís Björk hefur
lítið getað sinnt hestamennskunni
undanfarið þar sem hún er að ná sér
eftir handleggsbrot. Hún kveöst hafa
saknað hestanna mjög á meðan. „En
ég er rétt að byrja aftur, þetta er allt á
góðu róli.“
Bjork
er al-
deu
Hér er Bryndís Björk Karlsdóttir í góöum félagsskap þeirra Blesa og Reyks. Hún og öll hennar fjölskylda eru á kafi
í hestamennskunni sem er bráösmitandi áhugamál aö hennar sögn. DV-mynd ÞÖK.
1 t V11 j>Té | n & 3
Gunnar Rúnarsson:
Hálendisferðirnar
rosalegar
Næst sneri Tilveran sér að
Gunnari Rúnarssyni og Varma sem
voru á leið inn í hús. Gunnar Rúna-
rsson hefur verið viðloðandi hesta-
mennskuna frá fæðingu og hún er
eitt aðaláhugamálið. En er öll fjöl-
skyldan með? „Núna eru það aðal-
lega bara við systir mín. Við erum
þau sem entust i þessu.“ Gunnar
segir hestamennskuna vera ólækn-
andi bakteríu þegar hún komi á
annað borð. En hvers vegna? „Það
er fyrst og fremst útiveran og svo
hefur þetta fylgt manni frá því
maður var krakki í sveitinni."
Hann hefur líka verið að temja og
hefur gaman að því. „Svo hefur
maður smá aukapening upp úr
því.“
Gunnar kemur á hverjum degi
til aö huga að hestunum og segist
alltaf fara á bak ef veðrið leyfi.
„Það er mest riðið út á vetuma en
á sumrin er meira um hestaferðir.
Ég hef farið tvö undanfarin ár upp
á hálendi, þá er hver maður með
þrjá til fjóra hesta og það er alveg
rosalega gaman. Það er stefnan að
endurtaka leikinn í sumar, það
verður að halda þeim í þjálfun,"
segir Gunnar og klappar Varma.
-ggá
Gunnar Rúnarsson segir útiver-
una stóran þátt í hve hesta-
mennskan sé skemmtileg. Und-
anfarin ár hefur hann fariö í 10
daga hálendisferö og hyggst
endurtaka leikinn í sumar.
DV-mynd ÞÖK.
Oddur Helgi Bragason:
Samvera og
félagsskapur
Oddur Helgi Bragason og Neisti
voru á röltinu í rólegheitunum þeg-
ar Tilveran fékk Odd í spjall. Odd-
ur er búinn að vera á fullu í hesta-
mennskunni í þrjú ár þótt hann
hafi alltaf verið viðloðin hana.
„Maður byrjaði sem krakki en svo
komu margar pásur þó maður
stefndi alltaf á að halda áfram. Ég er
á kafi í þessu núna, það mikið að
mörgum finnst nóg um!“ Fjöl-
skylda Odds er ekki í hesta-
mennskunni með honum en hann
stundar þetta reglulega í
góðra vina hópi. En
er þetta ekki
lega mikil vinna?
„Þetta er frí frá hinni vinnunni. En
jú, jú, þetta er heilmikil vinna. Við
vinirnir skiptumst á að moka og
gefa þannig að við getum tekið okk-
ur tveggja, þriggja daga frí frá þessu
ef við verðum yfirþyrmandi þreytt-
ir. En ef ég verð þreyttur þá fer ég
ekki á bak. Þá er ég aftur á móti að
kemba og spóla i kringum vinina.“
Oddur segir veðrið spila stóra
rullu í því hve duglegur hann sé í að
fara á bak. „Ég fór á bak upp á
hvem einasta dag í janúar enda var
veðrið frábært. Febrúar var hins
vegar verri þannig að það
hefur ekki gengið jafn vel
að fara á bak. Annars
reyni ég að fara flesta
daga, jafnvel þó að veð-
rið sé leiðinlegt.
Það er þess
virði."
En hvað
er það
besta
v i ð
Oddur Helgi Bragason hefur alltaf ver-
iö mikill hestaáhugamaöur. Hann seg-
ir félagsskapinn viö hestana og aö
geta sinnt áhugamáli í góöra vina hópi
gera hestamennskuna einstaka.
DV-mynd ÞÖK
hestamennskuna? „Það er fyrst og
fremst félagsskapurinn við skepn-
umar og að geta verið með vinum
sem hafa sama áhugamál. Maður
getur ekki farið fram á meira.“ -ggá