Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997
3
DV
Fréttir
Borgarbyggð:
108 milljónir í
nýju sundlaugina
DV, Vesturlandi:
Fjárhagsáætlun Borgarbyggðar fyr-
ir 1997 var samþykkt á fundi bæjar-
stjómar nýlega. Samkvæmt henni er
gert ráð fyrir að tekjur bæjarsjóðs
verði 309 milljónir króna, sem er tals-
verð aukning frá fyrra ári, en áætlun
síðasta árs gerði ráð fyrir 216 milljóna
króna tekjum.
Aðalástæðan fyrir auknum tekjum
era breyttar reglur í sambandi við yf-
irtöku grunnskólans að sögn Eiríks
Ólafssonar bæjarritara.
Stærsti útgjaldaliðurinn er rekstur
grunnskólanna. Til Grunnskólans i
Borgamesi fara 79 milljónn-. Vegna
þátttöku í Varmalandsskóla 21 milij-
ón, 14 milljónir til rekstm-s leikskól-
ans í Klettaborg og 12,5 milljónir til
reksturs íþróttamiðstöðvarinnar og
eru þetta stærstu einstöku hðimir.
Heildargjöld Borgarbyggðar fyrir
utan fjármagnsliði era áætluð 262
milljónnr og með fjármagnsliðum eru
þau 280 milljónir. Til ffamkvæmda
eru áætlaðar 118 milljónir króna. Þar
af fara 108 milljónir í nýja sundlaug-
arbyggingu í Borgamesi. Bæjarsjóður
mun í ár taka 53 milljónir að láni og
greidd verða niðm lán fyrir 22,5 millj-
ónir.
„Ársuppgjör bæjarsjóðs Borgar-
byggðar liggur ekki fjrir á þessari
strrndu og því er ekki hægt að segja um
hve skuldir bæjarsjóðs voru um ára-
mót,“ sagði Eirikur bæjarritari. -DVÓ
5,7% hagvöxtur
Hagvöxtur var 5,7% árið 1996 sam-
kvæmt bráðabirgðauppgjöri Þjóð-
hagsstofnunar á helstu þjóðhags-
stærðum. Þetta er svipaður vöxtur og
gert var ráð fyrir í spám og meiri en
verið hefur í íslensku efnahagslífi
siðan 1987.
í frétt frá Þjóðhagsstofnun segir að
þjóðarútgjöld hafi í fyrra aukist um
7,4% en þau skýrist af 23,5% aukn-
ingu fjárfestinga og 6,5% aukningu
einkaneyslu. Samneyslan jókst hins
vegar mun minna, eða um 2,5%. Út-
flutningur á vöru og þjónustu varð
tæpum 10% meiri árið 1996 en árið á
undan, en aukningin varð að stærst-
um hluta í sjávarútvegi, áliðnaði og
þjónustugreinum. Samdráttur varð
hins vegar í útflutningi á almennum
iðnvarningi eftir mikinn vöxt áranna
þar á undan. -SÁ
Laun íslenskra sjómanna:
Get alveg horft í augu fw-
manns Sjómannasambandsíns
- segir Þorsteinn Már Baldvinsson
DV, Akureyri:
„Ég held að ég geti alveg horft
í augun á Sævari Gunnarssyni,
formanni Sjómannasambandsins,
og sagt að við, íslenskir útgerðar-
menn, stöndum okkur bara nokk-
uö vel. Við greiðum góö laun og ef
við miðum við aðrar stéttir hafa
sjómenn mjög góð laun,“ sagði
Þorsteinn Már Baldvinsson, fram-
kvæmdastjóri Samherja hf. á Ak-
ureyri, á ráðstefnu Stafnbúa, fé-
lags sjávarútvegsfræðinema við
Háskólann á Akureyri, um fisk-
veiðistjórnun, arðsemi og byggða-
stefnu sem haldin var á Akureyri.
Bjami Hafþór Helgason, fram-
kvæmdastjóri Útvegsmannafélags
Norðurlands, sagði á fundinum að
I landinu væri frjálst fískverð en
bæði sjómenn og útgerðarmenn
gætu sagt að þeir ættu að hafa
hærri laun. „Og kannski geta allir
launþegar íslands sagt að þeir eigi
að hafa hærri laun. Ég vil benda á
að á árunum 1990- 1995 hækkuðu
laun sjómanna um 4,6% umfram
almenna launavísitölu.
Ef lög yrðu sett um að allan fisk
ætti að selja á markaði samkvæmt
hæstu tilboðum veit enginn hvað
kynni að gerast. Útgerðarmenn og
sjómenn yrðu auðvitað mjög
ánægðir ef verðið ryki upp en síð-
an jafnsvekktir þegar það félli nið-
ur úr öllu valdi. Ég held að það
viðurkenni allir að þessi setning,
allan fisk á markað, stenst ekki í
framkvæmd í okkar breytilegu
veiðiflóru,“ sagði Bjarni Hafþór
Helgason. -gk
IHa m fcmsfN
STOFNAÐ 1907 • GÆÐI ERU OKKUR HUGLEIKIN
Bönnum þeim
að sækja um hjá
Flugfélagi íslands
- segir formaður Flugvirkjafélags íslands
Kodak Advantix 41 OOix
Grunnnámskeið í Ijósmyndun fýlgir öllum seldum
myndavélum hjá Hans Petersen í mars og apríl.
„Menn era vitaskuld ósáttir við
vinnubrögð af þessu tagi. Hins veg-
ar eru þetta vinnubrögð sem við
könnumst vel við hjá Flugleiðum.
Þær geta haldið sín hefðbundnu
brosnámskeið en þegar kemur að
því að fjalla um mál starfsfólksins
þá tekst þeim alltaf að klúðra því,“
segir Jakob Schweitz Þorsteinsson,
formaður Flugvirkjafélags íslands,
vegna uppsagna sjö flugvirkja í
Reykjavík sem boðinn hefur verið
flutningur til Keflavíkur.
Flugvirkjafélag íslands fundaði
með félagsmönnum í fyrrakvöld og
þar var samþykkt áskorun til
stjómarmanna Flugleiða og Flugfé-
lags íslands um að félögin ræddu
við starfsmennina. Að því loknu var
ákveðið að meina öllum flugvirkj-
um að sækja um stöður hjá Flugfé-
lagi Islands sem auglýstar voru
lausar fyrir skömmu.
„Meginástæðan er sú að félagið
hefur ekki gert neinn kjarasamning
og því vita menn ekkert upp á hvað
þeir myndu ráða sig. Okkur finnst
algert lágmark að félagið ræði við
okkur um það hvað það ætlast fyrir.
Við getum svo sem lesið það út úr
þessu að þeir ætli sér að ráða þá aft-
ur hjá nýstofnuðu fyrirtæki á lakari
kjörum. Þeim verður að sjálfsögðu
ekki kápan úr því klæðinu,“ segir
Jakob. Hann segir þungt í mönnum
vegna þessa. Flestir hafi mennimir
unnið í 15-20 ár í Reykjavík og því
sé það mikil röskun fyrir þá að
flytja sig til Keflavíkur.
Svona er staðan í augnablikinu
og nú bíðum við bara eftir viðbrögð-
um frá þeim,“ segir Jakob S. Þor-
steinsson.
DV tókst ekki að ná í Pál Hall-
dórsson, nýráðinn framkvæmda-
stjóra Flugfélags íslands, vegna
málsins í gær.
-sv
GERIR ÞAÐ SEM SU GAMLA GAT EKKI
ama
MeðAPS myndavélinni er hægt að
velja um 3 myndastærðir með
einum takka, allt eftir því hvernig
þú lítur á málið. Þegar til lengdar
er litið verður gaman að taka mynd
af þeirri stuttu þegar það hefur
tognað enn meira
úr henni.