Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997
Útlönd
Sali Berisha Albaníuforseti skammar stjórnarandstæðinga:
Hafnar öllum kröfum
um samsteypustjórn
Sali Berisha, forseti
Albaníu, hefur hafnað
kröfum stjórnarandstöð-
unnar um myndun sam-
steypustjórnar og segist
staðráðinn í að brjóta á
bak aftur ólguna í landinu
sem hefiu- leitt til dauða
að minnsta kosti tuttugu
manna.
Á sama tíma og þjóðir
heims velta fyrir sér leið-
um til að binda enda á
ófremdarástandið, viður-
kenndu albönsk stjórn-
völd að þau hefðu misst
tökin á nokkrum bæjum í
suðurhluta landsins.
Vopnaðir hópar hafa náð
þeim á sitt vald, þrátt fyr-
ir að lýst hafi verið yfir
neyðarástandi um helg-
ina.
Tritan Shehu, utanrík-
isráðherra Albaníu, varði
setningu neyðarlaganna í
Sali Berisha Albaníuforseti. Simamynd Reuter
viðtali við ítalska dagblað-
ið L’Unita og sagði að með
þeim hefði verið komið í
veg fyrir borgarastyrjöld í
landinu.
„Hættan á borgarastyrj-
öld hefur minnkað til
muna vegna þessara að-
gerða. Veistu hvað hefði
gerst ef við hefðum ekki
gripið til þeirra? Uppreisn-
armenn hefðu ráðist á
Tirana," sagði ráðherrann
í blaðaviðtalinu.
Almenningur hefur efnt
til mótmælaaðgerða svo
vikum skiptir vegna vafa-
samra fjárfestingarsjóða
sem fóru á hausinn. Þús-
undir Albana glötuðu við
það öllu sparifé sínu sem
þeir höfðu fjárfest í sjóð-
um þessum. Her og lög-
regla hafa fengið fyrirskip-
anir um að skjóta vopnaða
mótmælendur, útgöngu-
bann er í gildi frá sólsetri til sólar-
upprásar og settar hafa verið höml-
ur á fréttaflutning fjölmiðla.
Hans Van Mierlo, utanríkisráð-
herra Hollands og fulltrúi Evrópu-
sambandsins, ráðgerir að fara til
Albaníu á fóstudag. Öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu (ÖSE)
hefur skipað Franz Vranitsky, fyrr-
um kanslara Austurríkis, sem
sendimann sinn og fer hann til Al-
baníu við fyrstu hentugleika til að
meta stöðuna.
Javier Solana, aðalframkvæmda-
stjóri NATO, útilokaði að gripið
yrði til hernaðaraðgerða.
í yfirlýsingu, sem lesin var upp í
ríkissjónvarpinu, sakaði Berisha
forseti leiðtoga sósíalista, sem eru í
stjómarandstöðu, um að grípa til
ofbeldisverka og um að virða ekki
viðleitni hans til að koma aftur á
lögiun og reglu, meðal annars með
því að bjóðast til að flýta kosning-
um í landinu.
Reuter
BLAÐBURÐARFÓLK Á ÖLLUM ALDRI
óskast í eftirtaldar götur.
Blikanes - Haukanes
Mávanes - Þrastarnes
Nauöungarsala á
lausafjármunum
Eftirtaldar bifreiðar og annað lausafé verður boðið upp við lögreglu-
stöðina á Blönduósi, Hnjúkabyggð 33, Blönduósi, fimmtudaginn
_________________13. mars nk., kl. 17.00.___________
GL-817 GÞ-156 HK-294 GÞ- 368 0-44 HS-031
HD-044 JC-191 KS-295 DG-893 IÞ- 860
KP-193 dráttarvél ZA-565 dráttarvél XY-545 dráttarvél ZK-745 dráttarvél
TU-989 hestakerra.
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á BLÖNDUÓSI
Menntamálaráðuneytið
Auglýsing um styrki
úr þróunarsjóði grunnskóla
Samkvæmt 1. gr. reglna um Þróunarsjóð grunnskóla (Stjtíð. B, nr. 657/1996)
eru árlega veittir styrkir úr sjóðnum til þróunarverkefna í grunnskólum lands-
ins. Starfsmenn grunnskóla geta sótt um auglýst verkefni en aðrir aðilar geta
einnig sótt um.
Menntamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um þátttöku í þróunarverk-
efnum skólaárið 1997-98 á eftirtöldum sviðum.
A. Sjálfsmat skóla - mat á skólastarfi
Auglýst er eftir skólum/aðilum til að þróa aðferðir við mat á skólastarfi, þar á
meðal kennsluháttum, samskiptum innan skólans, stjómunarháttum og
tengslum við aðila utan skólans.
B. Stæröfræöi - náttúrufræöi
Auglýst er eftir skólum/aðilum til að þróa efni, aðferðir, skipulag í kennslu
stærðfræði eða náttúrufræðigreina í grunnskólum.
Æskilegt er að verkefnin feli í sér notkun tölvu- og upplýsingatækni, svo og
að þau snúist um stærri heildir en einstakar bekkjardeildir. Bent skal á að
verkefni á báðum ofangreindum sviðum geta verið kjörin samvinnuverkefni
skóla.
Nánari upplýsingar eru gefnar í menntamálaráðuneytinu.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu á sérstökum umsóknareyðu-
blöðum sem liggja frammi í ráðuneytinu og á skólaskrifstofum.
Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, í síðasta lagi 4. aprfl 1997.
Menntamálráðuneytið, 4. mars 1997
Kaþólskur maöur í Bosníu hreinsar til í kirkju heilags Jósefs í Sarajevo sem
skemmdist lítillega í sprengjutilræöi í gærmorgun. Nokkuö hefur verið um
árásir á kaþólskar kirkjur í Bosníu aö undanförnu. Símamynd Reuter
Arafat ræðir við
Oryggisráð SÞ
Yasser Arafat, forseti
Palestínu, mun i dag
ræða við fuiltrúa í Ör-
yggisráði Sameinuðu
þjóðanna áður en þeir
funda um þá ákvörðun
ísraels að byggja nýjar
íbúðir fyrir gyðinga í
arabíska hluta Jerúsal-
em. Fundi ráðsins var
frestað um einn dag að
beiðni Bandaríkjanna
til að Arafat gæti fyrst
lokið viðræðum sínum
við ráðamenn í Was-
hington.
í gærkvöld sótti Ara-
fat þúsund manna veislu hjá Samein-
uðu þjóðunum sem kostuð var af
Palestínumönnum í New York.
Fjöldi embættismanna Sameinuðu
þjóðanna var í veislunni auk stjórn-
arerindreka, þar á meðal
írá ísrael.
Gert er ráð fyrir að Ara-
fat hitti Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna, að máli áður en
hann heldur til Houston í
Texas þar sem hann mun
eiga viðræður við George
Bush, fyrrum Bandarikja-
forseta, og James Baker,
fyrrum utanríkisráðherra.
Arafat lét þau orð falla á
fundi með fréttamönnum í
gær að hann ætti einskis
annars úrkosti en að halda
áfram friðarviðræðum við
ísraela. Hann kvaðst enn líta á Net-
anyahu sem félaga þrátt fyrir bygg-
ingaráform hans. Arafat harmaði
hins vegar ákvörðunina og sagði
hana ólöglega. Reuter
Yasser Arafat segir
eina kostinn vera aö
halda áfram friöarviö-
ræöum.
Sfmamynd Reuter
Stuttar fréttir i>v
Undirbýr tíllögu
Alberto Fujimori Perúforseti
segir stjóm sína vera að undir-
búa tillögu að samkomulagi við
skæruliða. Þeir hafa hafnað
boði um hæli á Kúbu gegn því
að þeir láti gísla sína lausa.
Hætta á flóðum
Hætta er talin á að Ohiofljót
í Kentucky í Bandaríkjunum
fljóti yfir bakka sína og hefur
fólki verið skipað að yfirgefa
heimili sín.
Lokanir i Jerúsalem
Netanyahu, forsætisráðherra
ísraels, skip-
aði lögreglu
að loka í]ór-
um skrifstof-
um Palest-
ínumanna í
arabíska
hlutanum í
Jerúsalem i
morgun, sól-
arhring áður en hann heldur tO
Kaíró.
Reka hjálparstarfsmenn
Yflrvöld í Saír hafa rekið 40
hjálparstarfsmenn, sem héldu
úr borginni Kisangani um helg-
ina, úr landi. Segja yfirvöld
brottför þeirra hafa leitt til
manndrápa á hútúum.
Ferðamenn myrtir
Kólumbískir skæruliðar
myrtu tvo ferðamenn frá
Þýskalandi og Austurríki er
hermenn gerðu innrás í búðir
skæruliða. Tveimur öðrum
ferðamönnum tókst að bjarga.
Tyrklandi hafnað
Mið- og hægriflokkar á Evr-
ópuþinginu lýstu í gær yfir
andstöðu sinni við aðild
Tyrkja að Evrópusambandinu.
Krónprins í yfiriið
Krónprinsinn af Kúveit og
forsætisráðherra landsins,
Saad al-Abdulla al-Sabah, er
við góða heilsu eftir að hafa
fallið í yfirlið í gær.
Vinnur að aðild
Michael Rúmeníukonungur,
sem var í út-
legð en hefur
nú fengið rík-
isborgararétt-
indi í Rúmen-
íu, ætlar að
notfæra sér
það góða álit
sem hann
hefur til þess
að vinna að
því að Rúmenía fá skjótt aðild
að Atlantshafsbandalaginu.
Hjálparstarf
Norðmenn og Rússar undir-
rituðu í gær samkomulag um
samvinnu við hjálparstörf.
Barnaklámhringur
Þýska lögreglan hefur hand-
tekið þrjá menn grunaða um
að hafa misnotað böm og not-
að þau við gerð 2 þúsund klám-
myndbanda og 50 þúsund
klámmynda.
Karadzic gefst upp
Radovan Karadzic, fyrrum
leiðtogi
Bosníu-
Serba, hefur
ákveðið að
hætta að
berjast gegn
lögsókn
nokkurra
fómarlamba
voðaver-
kanna sem framin voru í borg-
arastríðinu í Bosníu, að sögn
lögmanna sóknaraðilanna.
Sniðgangið franskt
Vinsælt dagblað í Belgíu
hvatti til þess í gær að ákveðn-
ar franskar vömr yrðu snið-
gengnar vegna ákvörðunar
Renault verksmiðjanna um að
loka verksmiðju einni í Belgíu.
Reuter