Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1997, Side 18
26
MIÐVIKUDAGUR 5. MARS 1997
Fréttir
Samstarf Háskólans á Akureyri og Tækniskólans:
Viljum efla menntun í þágu
atvinnulífsins enn frekar
- segja rektorar skólanna
„Þessir tveir skólar eru að bjóða
starfsmenntun i þágu atvinnulífs-
ins og snúa nú bökum saman til
þess að efla þá menntun enn frek-
ar, ekki síst á landsbyggðinni. Það
eru ýmsar hræringar á háskóla-
stiginu og í íslensku atvinnulífi og
það eru nauðsynlegt fyrir háskóla
sem sinna menntun á þessu sviði
að efla samstarf sitt og bjóða upp á
nýtt nám í samstarfi, frekar en að
standa i því hvor i sínu lagi. Af því
er augljós hagkvæmni og spamað-
ur og gerir námið fjölbreyttara,"
segir Þorsteinn Gunnarsson, rekt-
or Háskólans á Akureyri, en hann
og Guðbrandur Steinþórsson, rekt-
or Tækniskóla íslands, undirrit-
uðu fyrir nokkru viljayfirlýsingu
um samvinnu skólanna á sviði
kennslu og annarrar starfsemi.
Skólarnir munu kanna hag-
kvæmni þess að samtengja ein-
staka þætti starfsemi sinnar, t.d.
hvað varðar upplýsinga- og skrán-
ingarkerfí, sameiginleg námskeið
og samráðningu starfsmanna. Gert
er ráð fyrir að í sérstökum stúd-
entaskiptum og gagnkvæmum að-
gangi að námskeiðum verði gert
ráð fyrir því að stúdent sé skráður
í þann skóla þar sem fullt nám er
stundað (heimaskóla) og greiði þar
skrásetningargjald, viðurkenning
á námi sé gagnkvæm o.s.frv. Sam-
starfsnefnd mun vinna að því að
móta samstarf skólanna.
Meðal þess sem rætt er um í
sambandi við samstarf skólanna er
að koma á fót heildstæðu BS-námi
í upplýsingatæknifræði sem fari
fram bæði við HA og TÍ. Nám þetta
leggi bæði áherslu á þátt vélbúnað-
ar og hugbúnaðar með það að
markmiði að efla tækni og þekk-
ingarstig á þessu sviði í íslensku
atvinnulífl.
„Við höfúm skynjað þörf fyrir
þetta nám. Víða í fyrirtækjum er
háþróaður tæknibúnaður sem
geymir upplýsingar mn allt er við-
kemur rekstri, þróun og þess hátt-
ar en enginn sem kann virkilega á
hann. Úr þessari þörf viljum við
bæta,“ segir Guðbrandur Stein-
þórsson, rektor TÍ. -sv
Austur-Landeyjar:
Tvíbreið brú
á Afffall
DV,Vík:
Starfsmenn brúargerðar-
flokks Vegagerðarinnar í Vík,
undir stjórn Jóns Valmunds-
sonar, hafa nú hafist handa á
ný við að byggja nýja, tvíbreiða
brú i stað einbreiðrar brúar á
hringveginum yfir Affall í
Austur- Landeyjum.
„Framkvæmdir hófust við
brúna sl. haust en 13. nóvem-
ber, þegar við höfðum lokið við
að gera undirstöðurnar, fórum
við austur á Skeiðarársand að
gera nýja bráðabirgðabrú yfir
Gígju og síðan til Vikur að
steypa staura undir Skeiðarár-
brúna,“ sagði Jón Valmunds-
son við fréttaritara DV.
Jón sagði að stefnt væri að
því að ljúka smíðinni sem fyrst
en það færi mest eftir veðri
hvenær það tækist.
-NH
Skynfærin á ferd 09 flugi
Jóhanna Jóhannsdóttir spjallar létt um utanferðir
íslendinga og gefur góð ráð.
Endalaust flug
Flugvélar með tveggja hestafla hreyfla og sólarrafhlöður
fara á loft innan skamms.
Geimverubær, Bandaríkjunum
Við íslendingar eigum okkar Snæfellsjökul og umhverfí
hans. En Bandaríkjamenn hafa komið upp geimverubæ
þar sem þær sýna sig tíðast.
Góðu veirurnar
Sumar veirur lifa á því að sálga bak-
teríum sem valda veikindum í fólki.
Hvernig er
orðaforðmn?
Prófaðu bara sjálf/ur orðaforða
þinn og íslenskukunnáttu
V.
Margir hafa notaö snjóinn og góða veðrið undanfarið til að skella sér á skíði.
Flestir fara upp í fjöll til að stunda skíðaíþróttina en þeir eru líka nokkrir sem
nýta sér aðstæður í borgum og bæjum. Ljósmyndari rakst á Braga Tómas-
son þar sem hann var á gönguskíöum á Miklatúni á dögunum.
DV-mynd ÞÖK
Kvennalist-
inn andæfir
meiri geisla-
mengun
Þingflokkur Kvennalistans telur
brýnt að íslendingar láti sig kjam-
orkuendurvinnslustöðina í Dounr-
eay í Skotlandi varða. Engar opin-
berar áætlanir um mengunarvamir
vegna starfsemi stöðvarinnar fyr-
irfinnast og nú sé ætlunin að tvö-
falda losun á plútóni-241 í hafið og
fjórfalda losxm þess í andrúmsloftið.
„Tilvist okkar og afkoma byggist
á að okkur takist að halda Atlants-
haflnu og andrúmsloftinu hreinu,“
segir i frétt frá þingflokki Kvenna-
listans um málið en þingflokkurinn
sendi þann 20. febrúar mótmæli
vegna aukinnar losunar geisla-
virkra efna í hafið og andrúmsloftið
frá stöðinni.
í frétt þingflokksins segir að svo
virðist sem skoska umhverfisstofn-
unin SEPA virðist hafa lagt blessun
sína yfir þetta þótt stofnunin hafi
svarað því til að mótmæli Kvenna-
listans verði tekin til athugunar.
-SÁ
Leiðrétting
í frétt af skoðanakönnum Félags-
vísindastofnunar fyrir Alþýðusam-
band íslands, sem greint var frá í
blaðinu á mánudag, skolaðist rétt
niðurstaða til verðandi einn lið
könnunarinnar.
Þegar spurt var hvort viðkom-
andi væri hlynntur eða andvígur
því að útgerðarmenn gætu leigt öðr-
um veiðiheimildir sem þeir notuðu
ekki sjálfir á veiðiárinu vom 61%
andvíg en 39,9% meðmælt. Þetta
leiðréftist hér með og er beðist vel-
virðingar á mistökunum.
Verðlaunagetraun um Moskvu:
Moskvuborg 850 ára
- 10 sigurvegurum boðið á afmælishátíðina
Moskvuborg, höfuðborg Rússlands,
á 850 ára afmæli á þessu ári og í til-
efni af því gengst borgarstjórn
Moskvu fyrir alþjóðlegri spurninga-
keppni undir kjörorðunum - Moskva
- borg friðar og vináttu um aldir, að
því er segir í frétt frá rússneska sendi-
herranum á íslandi.
Svör við 10 spurningum keppninn-
ar skal vélrita á ensku og senda til
Moscow - 850, K - 50, Box 52, 103050
Moscow, Russia, fyrir 30. júní nk. og
þeir tíu sem best svara spumingunum
að mati dómnefndar verður boðið á af-
mælishátíð Moskvuborgar í septem-
bermánuði, en að auki fá 50 aðrir
sendan minjagrip í verðlaun. Spurn-
ingarnar eru eftirfarandi:
1. Hver stofnaði Moskvuborg og
hvað sýnir skjaldarmerki borgarinn-
ar?
2. Hvað heitir gamalt, þekkt torg í
Moskvu og gamalt mannvirki á þessu
torgi og hvað er á því nú?
3. í Moskvu er nú verið að endur-
byggja kirkju Krists frelsara. Hvenær
var hún upphaflega byggð, í tilefni af
hvaða atburði og hver urðu örlög
hennar?
4. Hvernig er stjórn borgarinnar
háttað og hver er nú borgarstjóri
Moskvu?
5. Hvað heitir stærsta flugfélag
Rússlands og til hve margra landa
flýgur það?
6. Hve gömul er neðanjarðarbraut-
in í Moskvu (Metro) og hversu marg-
ar eru brautarstöðvar hennar?
7. Moskva er hafnarborg. Við hve
mörg höf er hún tengd og hvað heita
þau?
8. Hvenær hætti Moskva að vera
höfuðborg Rússlands og hvenær varð
hún það á ný?
9. Hvað hét fyrsti geimfarinn, hve-
nær fór hann í ferð sína og hvar í
Moskvu er að finna minnisvarða um
hann?
10. Hvenær fóru Ólympíuleikar
fram í Moskvu og númer hvað voru
þeir? Hversu mörg gull-, silfur- og
bronsverðlaun hlutu sovéskir íþrótta-
menn á þessum leikum?
-SÁ
(
(
(
(
(
(
<
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(
(