Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1997, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 13. MARS 1997 13 DV Fréttir Fundur Verslunarráðs íslands um einkavæðingu á Qármagnsmarkaði: Tilgangurinn að auka samkeppni - segir viðskiptaráðherra um lagafrumvörp ríkisstjórnarinnar DV, Akureyri: „Við Islendingar erum alltaf að bera okkur saman við þjóðirnar í kringum okkur. Við viljum hafa hæstu laun, lægstu skatta, besta heilbrigðiskerfi í heimi, besta menntakerfi í heimi, við viljum út- rýma því sem við viljum kalla fá- tækt og við viljum ekki neitt at- vinnuleysi. Til þess að við getum náð þessum verðugu markmiðum þurfum við að skapa íslensku at- vinnulífi þær aðstæður," sagði Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra á fundi Verslunarráðs íslands um einkavæðingu á íjármagns- markaði sem haldinn var á Akur- eyri í gærmorgun. Finnur sagði að verðmætasköpun- in í samfélaginu verði til innan fyr- irtækjanna. Stáðreyndin væri hins vegar sú að á mörgum sviðum búum við ekki við sömu samkeppnisskil- yrði og þjóðirnar sem við berum okkur saman við. „Við erum t.d. með 10-20 sinnum minni erlenda fjárfest- ingu en Evrópuþjóðimar, með 3-5 hærri vexti en þjóðirnar í kringum okkur og ef við ætlum að búa við þessar aðstæður og sætta okkur við þær þá verðum við líka að segja við fólkið í landinu að við ætlum ekki að skapa sömu lífsskilyrði og það fólk sem býr I næstu nágrannalöndum okkar.“ Finnur sagði að í viðskipta- bankaumhverfmu sé ríkið mjög sterkur aðili, e.t.v. ekki alls ráðandi en eigi að síður mjög öflugur og það sé samdóma álit manna að úr þeim áhrifum megi draga. I annarri fjár- málaþjónustu sé ríkið einnig mjög öflugt og það sé samdóma álit að þar megi einnig draga úr. „í fjárveitinga- lánastarfseminni er ríkið allsráð- andi. Þar er minni þörf fyrir ríkið en verið hefur, en þegar við komum að verkefna- og áhættufjármögnun þá er ríkið mjög veikur aðili en menn á einu máli um að þar þurfi ríkið að vera sterkari aðili. Tilgangurinn með þeim lagafrum- vörpum sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi er að auka sam- keppnina og ég held að fullyrða megi að þær breytingar sem boðað- ar eru eru umfangsmestu og róttæk- ustu skipulagsbreytingar sem boð- aðar hafa verið á íslenskum fjár- magnsmarkaði. Við höfum lagt fram frumvarp um stofnun hlutafé- laga um Búnaðarbankann og Lands- bankann, frumvarp um stofnun Fjárfestingabanka atvinnulífsins og frumvarp um stofnun nýsköpunar- sjóðs fyrir atvinnulífið.“ Finnur sagði að tilgangurinn með stofnun hlutafélaga um ríkisbank- ana væri fyrst og fremst að jafna samkeppnisaðstæður á markaðnum og treysta samkeppnisaðstöðu bank- anna tveggja. Fjárfestingabanki at- vinnulífsins yrði ekki viðskipta- banki sem tæki á móti innlánum og yrði ekki í neinni samkeppni. Sá banki yrði til með sameiningu Fisk- veiðasjóðs íslands, Iðnlánasjóðá, Iðnþróunarsjóðs og Útflutningslána- sjóðs. Með því yrði fækkað lána- stofnunum og ná þannig fram hag- ræðingu og sparnaði. Um stofnun Nýsköpunarsjóðs fyr- ir atvinnulífið sagði ráðherrann að Frá fundi Verslunarráðs á Akureyri. Finnur Ingólfsson í ræðustól en aðrir f.v. Vilhjálmur Egilsson, Guðmundur Hauksson og Björgólfur Jóhannsson. DV-mynd, gk Landsbankinn og Búnaðarbanki verði hlutafélög: Hf. fyrir aftan nöfn bankanna sýnist mér vera sýndarmennska - segir Björgólfur Jóhannsson hjá Samherja hf. DV, Akureyri: Björgólfur Jóhannsson, forstöðu- maður nýsköpunar- og þróunar- sviðs Samherja hf., sagði á morgun- verðarfundi Verslunarráðs íslands sem haldinn var á Akureyri í gær- morgun og fjallaði um einkavæð- ingu á fjármagnsmarkaði, að sér sýndist sem breytingar á bankakerf- inu með einkavæðingu sem nú eru til umfjöllunar á Alþingi væri verið að gera breytinganna vegna. „Ég er hins vegar ekki hlynntur því að gera breytingar breytinganna vegna eins og mér sýnist verið að gera með þessum frumvörpum. Það hlýt- ur að vera markmið þegar gerðar eru breytingar á annað borö að breytingarnar skili ákveðnum til- gangi til eflingar viðkomandi fjár- málastofnanna," sagði Björgólfur. Hann sagðist líta svo á að sú einkavæðing sem nú er verið að vinna að á fjármagnsmarkaðnum væri tvenns konar. Annars vegar sé um það að ræða að setja hf. fyrir aft- an orðin Landsbanki íslands og Búnaðarbanki íslands og hins vegar sé verið að gera tilraun til að efla fjárfestingasjóði atvinnulífsins með því að sameina þá. „Varðandi hf. fyrir aftan Lands- banki íslands og Búnaðarbanki Is- lands, þá sýnist mér um að ræða sýndarmennsku. Ég sé engin rök fyrir þessari breytingu og furða mig á að ekki skuli vera nýtt tækifærið og gengið lengra á þessum tíma- punkti. I 8. gr. frumvarpsins segir að allir starfsmenn Landsbanka og Búnaðarbanka skuli eiga kost á vinnu og á sömu kjörum. Hér er lok- að á stóra möguleika í hagræðingu þessara stofnana. Nýir stjómendur eiga ekkert val. Þeir verða að bíða eftir úreldingu starfsmanna. Á árs- fundi Landsbanka íslands í fyrra sagði Björgvin Vilmundarson bankastjóri að ef Landsbanki Is- lands og Búnaðarbanki íslands yrðu sameinaðir væri beinn sparnaður í rekstrarkostnaði um 1 milljarður króna. Það má eflaust rengja þessa tölu en ég treysti reyndum manni í bankamálum eins og Björgvini til að leggja rétt mat á þessar stærðir.“ Björgólfur hafði hins vegar gott eitt um stofnun Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf. að segja. „Ekki vegna háeffsins heldur vegna þeirra hagræðingarmöguleika sem felast í þessari aðgerð og aukins möguleika til að þjóna viðskiptavinum betur. Það fylgir hins vegar böggull skamm- rifi sem er að sama gildir um starfs- menn þeirra sjóða sem ganga inn í þennan nýja banka, þ.e. þeir eiga rétt á vinnu burtséð frá notagildi." -gk Sparisjóðirnir og einkavæðingin: Þessi umræða er byggð á miklum misskilningi - segir Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri SPRON DV, Akuieyri: „Það hefur ítrekað gerst að und- anfornu þegar rætt hefur verið um einkavæðingu rikisbankanna að menn hafa viljað draga sparisjóðina inn í þá umræðu. Það verður því miður að segja að sú umræða er byggð á miklum misskilningi," sagði Guðmundur Hauksson, spari- sjóðsstjóri Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis, á morgunverðarfundi Verslunarráðs íslands um einka- væðingu á fjármagnsmarkaði sem fram fór á Akureyri í gærmorgun. Guðmundur sagðist þó skilja þá aðila sem vildu draga sparisjóðina inn í þessa umræðu, að þeir vildu verða hluthafar í sparisjóðunum, jafn vel og rekstur þeirra hafi geng- ið. „Það mátti t.d. lesa að það hafi komið fram á ársfundi Landsbank- ans að það væru sömu rök að einka- væða sparisjóðina eins og Landsban- kann. Þetta er reginmisskilningur. Sparisjóðirnir hafa enga ríkis- ábyrgð, þeir hafa heldur ekki ábyrgð sveitarfélaga. Þeir hafa engar ábyrgðir á bak við sig en eru að keppa á markaði eins og hver annar. Þeir geta ekki sótt fé í sitt bakland eins og ríkisbankarnir hafa getað gert eða notið ríkisábyrgða og fengið lægri vexti. Sparisjóðirnir hafa þvi ekki hvað þetta snertir truflað sam- keppnisstöðuna á markaðnum eins og ríkisbankarnir hafa klárlega gert og þama er því mikill misskilningur á ferðinni," sagði Guðmundur. -gk um 4 milljarðar króna af saman- lögðu eigin fé sjóðanna fjögurra sem nú eru starfandi renni til Nýsköp- unarsjóðs. Sjóðnum væri ætlað að starfa sem sjálfstæð ríkisstofnun, og stuðla að arðbærri uppbyggingu og vexti atvinnulífsins með því að taka þátt í fjárfestingarverkefnum á sviði nýsköpunar og áhættufiármögnun- ar. -gk BEKO fékk viðurkenningu í hinu virta breska tímariti WHATVIDEOsem bestu sjónvarpskaupin. M • Myndlampi Black Matrix • 100 stöðva minni • Allar aðgerðir á skjá • Skart tengi • Fjarstýring • Aukatengi f. hátalara • íslenskt textavarp R Æ Ð U R N I R Umboðsmenn: Lógmúla 8 • Sími 533 2800 t Reykjavík; Byggt & Búið, Kringlunni. Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf.Borgfirð'Nga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Hafverk,Bolungarv(k.Straumur,ísafirði. Norðurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Hegri.Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. KEA.Dalvik. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: KHB, Egilsstöðum. Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. Kf. Stööfiröimga, Stöðvarfirði. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg.Grindavík. GFFUM ■ VON til styrktar Sími: 800 50 50

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.