Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.1997, Blaðsíða 10
FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 1997 »*< tyndbönd Mark Wahlberz er ekki 8)5 m 5- rg r- i- )g undir nafninu Marky Mark var hann um skeið mjög vinsœll rappari og gafút tvœr plötur, Music for People og You Gotta Believe, sem selst hafa í milljónaupplagi. í kvikmyndinni Fear fer ungur leikari, Mark Wahlberg með hlut- verk hins geðveika unga manns David McCall, sem í fyrstu heillar hina ungu Nicole Walker. Þegar hún svo kemst að því hvem mann hann hefur að geyma reynist henni vægast sagt erfitt að losna við hann. Mark Wahlberg er svo til nýliði í kvikmyndaleik, en hann á að baki, þrátt fyrir unga aldur, 24 ára, fjöl- breyttan feril í skemmtanabransan- um í Bandaríkjunum. Whalberg byrjaði feril sinn sem rapparinn Marky Mark og vann einnig fyrir sér sem módel. Mark Wahlberg er ekki beint ímynd táningagoðs eins og hann kemur fram í Fear, enda nær hann sér vel á strik í híutverki hins sjúka McCalls. Það er þó staðreynd að Mark Wahlberg var aðalauglýsinga- fyrirsæta Calvin Kleins í undirfata- auglýsingum og undir nafninu Marky Mark var hann um skeið mjög vinsæll rappari og gaf út tvær plötur, Music For People og You Gotta Believe, sem selst hafa í miilj- ónaupplagi. Það mætti halda að ungur maður sem er á mikilli upp- leið sem leik- ------------- ari og með -jÆ bakgrunn sem hér hefur verið sagt frá sé á heilmiklu eg- ótrippi, en svo er ekki um Wa- hiberg. Aö MggdHjjMjflj sögn þeirra sem til hans þekkja cr hann hinn þægileg- asti í allri um- gengni. Mark Wa- hlberg segist lengi hcifa stefnt að því að verða leikari og allt annað hafi aðeins ver- ið undirbúningur fyrir það: „Þaö fór nú svo að þegar ég reyndi að þreifa fyrir mér í kvikmyndaheiminum var mér ekki boðið neitt annað en hlutverk sem ég vildi alls ekki, yfir- leitt átti ég að vera hlaupandi á nærbuxunum eða syngjandi rapp- lög.“ Þetta breyttist þegar Whalberg hitti leikstjórann James Foley, sem bauð honum að lesa handritið að Fear. „Allt í einu kom náungi til hann ungan hermann og var mót- leikari hans Danny DeVito og Bas- ketball Diaries, þar sem hann lék ungan eiturlyfjaneytenda, félaga Le- onardo DiCaprios. Nýlega var frum- sýnd í Bandaríkjunum fjórða kvik- myndin sem Mark Wahlberg leikur í, Traveller, þar sem mótleikarar hans eru Bill Paxton og Juliana Margolies (yfirhjúkrunarkonan í ER). Það sem Mark Wahlberg lítur með mestum spenningi til þessa dagana er samstarf við leikstjórann Abel Ferrara: „Það var fyrst og fremst Ferrara sem hvatti mig til að láta verða af þvi að reyna fyrir mér í kvikmyndum sem fyrst. Hann hafði séð tónlistarmyndband með mér og sagði það gefa til kynna að ég ætti framtíð fyrir mér í kvik- myndaleik. Kvikmyndin sem ég ætla að leika í og Ferrara leikstýrir heitir One Touch Cop og er hún byggð á sannri sögu um ungan mann sem ólst upp í mafiufjöl- fl skyldu. í staö þess fl aö fara í fótspor J33 fööurins eins og ÆM margar viðurkenningar fyrir störf sín.“ Þegar Mark Wahlberg er spurður hvort hann sé alveg hættur í tónlist- _ inni segir hann ekki svo vera: „Ég hef meira áhuga á kvikmyndum heldur en tónlist, en þetta tvennt getur vel farið saman og það er aldrei að vita nema sá dagur renni upp að ég verð leiður á kvikmyndaleik og snúi aftur að tónlistinni, en það verður sjálfsagt ekki í sama formi og áður.“ -HK Mark Wahlberg ásamt Reese Whiterspoon í Fear. mín sem gat vel hugsað aö nota mig í alvöru hlutverk og að sjálfsögðu tók ég boðinu fegins hendi. í með- forum okkar breyttist persónan sem ég leik nokkuð. Ég kom með þá til- lögu til Foley að gera persónuna sem venjulegasta í útliti og hegðun á yfirborðinu og aldrei að láta hana æsa sig um of og voru ábendingar mínar teknar til greina.“ Mark Wahlberg hafði leikið í tveimur kvikmyndum áður en hann lék í Fear, Renaissance Man, sem Penny Marshall leikstýrði, þar lék ætl- I ast var til af R hon- H um gerð- ^ ist hann lögreglu- þjónn og fékk A i K - leikferillinn Geena Davis sýnir mikil tilþrif í hlutverki húsmóður sem kemst að þvi að hún á skuggalega fortíð að baki í The Long Kiss Goodnight. Hlutverkið, sem gæti alveg eins verið skrifað fyrir karlleikara, gerir mikla kröfur til hennar líkamlega og sótti hún nám- skeið í nokkra mánuði í sjálfsvamarí- þróttum og tók einnig tíma í skotfimi til að geta undirbúið sig sem best. Geena Davis, sem fæddist og ólst upp i Massachusetts, á að baki fimmt- án ára feril í kvikmyndum. Hún kom fyrst fram í gamanmyndinni Tootsie, þar sem mótleikari hennar var Dustin Hoffman. Naut hún góðs af vinsældum myndarinnar, fékk tilboö um hlutverk í sjónvarpsþáttum, en nokkur ár liðu þar til hún lék í kvikmynd aftur. Hennar stóra stökk kom eiginlega í tveimur kvikmyndum. Fyrir hlutverk sitt sem hundaþjálfarinn Muriel Pritchett i kvikmynd Lawrence Kasd- an’s, Accidental Tourist, þar sem mót- leikarar hennar voru William Hurt og Kathleen Tumer, fékk hún ósk- arsverðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki og leiddi það til stærri hlutverka. Hún fékk síðan aftur ósk- arstilnefhingu og Golden Globe til- nefningu fyrir leik sinn í Thelma and Louis. Þá var hún einnig tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna fyrir frammistöðu sína sem pólitiskur ræðupenni í Speechless og sem hafn- aboltaaðdáandi í A League of Their Own. Frá því hún kynntist núverandi eig- inmanni sínum, leikstjóranum Renny Harlin, fyrir nokkram árum hefur hún nánast eingöngu starfað mreö honum, hann var framleiðandi Speechless og leikstýrði Cutthroat Is- land. Næsta kvikmynd Geenu Davis er The Politicians’s Wife, sem byggð er á vinsælli breskri míniseríu. Hér á eftir fer listi yfir þær kvikmyndir sem Geena Davis hefur leikið í: Tootsie, 1982 Fletch, 1985 Transylvania 6- 5000,1985 The Fly, 1986 Beetlejuice, 1988 The Accidental Tourists, 1988 Earth Girls Are Easy, 1989 Quick Change, 1990 Thelma and Louise, 1991 A League of their Own, 1992 Hero, 1992 Angie, 1994 Speechless, 1994 Cutthroat Island, 1995 The Long Kiss Goodnight, 1996 Geena Davis f hlutverki sfnu í The Long Kiss Goodnight.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.