Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1997, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1997 11 pv____________________________Fréttir Um 20 börn hafa greinst með einhverfu á hálfu öðru ári: Fleiri börn greinast með sjúkdóminn ráögjöf mikilvæg - segir móöir 3 ára einhverfs barns Guðrún Brynjólfsdóttir og 3 ára einhverfur sonur hennar, Pálmi Sveinsson, á góðri stund á heimili þeirra. Pálmi var mjög spenntur yfir myndatökunni og sérstaklega myndavél Ijósmyndarans. Meö á myndinni er Jóhanna dóttir Guörúnar og stóra systir Pálma.. DV-mynd E.ÓI „Það er mikil þörf á aukinni fræðslu um einhverfu, bæði fyrir foreldrana sjálfa og aðra sem um- gangast einhverf böm. Almennar uppeldisaðferðir duga í fæstum til- fellum á einhverf böm. Það er því mjög mikilvægt að fá þessa ráðgjöf sem Umsjónarfélag einhverfra barna býður nú upp á. Ég ætla hik- laust að notfæra mér hana,“ segir Guðrún Brynjólfsdóttir, móðir 3 ára einhverfs drengs. Litli drengurinn heitir Pálmi Sveinsson en hann greindist með einhverfu í október siðastliðnum. Um 20 börn hafa greinst með ein- hverfu á undanfórnu einu og hálfu ári. Það er mikil aukning því und- anfarin ár hafa að meðaltali 3-4 börn greinst með fötlunina árlega. Félagslegt vandamál „Einhverfa er félagslegt vanda- mál. Pálmi leikur sér lítið sem ekk- ert við önnur börn. Hann talar mik- ið en það er að mestu leyti í frösum, t.d. beint upp úr auglýsingum eða bamabókum. Hann tjáir sig ekki á venjulegan hátt heldur þarf hann að sýna manni hluti, m.a. með því að draga mann á staðinn eða með bendingum. Ef að það dugar ekki þá öskrar hann stundum og lætur mig vita að eitthvað er í ólagi. Hann er þó farinn að biðja um að fá að drekka með orðum. Einhverf börn eru jafn misjöfn og þau eru mörg. Einhverfan kemur mjög mismun- andi fram í þeim. Þau tala mismun- andi mikið og eru miserfið. Þarf aö vakta börnin Það er auðvitað mjög mikill mun- ur á að ala upp venjulegt bam og svo einhverft. Það þarf að vakta ein- hverft bam stöðugt meðan það er vakandi. Ég þarf að fylgjast mjög vel með Pálma. Ég á sjö ára stúlku, sem er venjulegt barn, þannig að ég hef samanburð. Almennar uppeldisað- ferðir duga oft skammt á einhverf böm,“ segir Guðrún. Hún segir að Umsjónarfélag ein- hverfra bama sé öflugt. Foreldrar séu mjög samheldnir og styðji hvert annað. Guðrún segir að áður hafi þau börn sem greindust með ein- hverfu farið í frekari meðferð á barna- og unglingadeildina á Dal- braut. Deildin lokaði hins vegar fyr- ir um ári síðan og eftir það hefúr reynt meira á félagið. „Eftir að Pálmi greindist með einhverfu í október síðastliðnum, þá tveggja og hálfs árs, fór ég ásamt, öðram foreldrum nýgreindra barna á námskeið hjá félaginu. Námskeið- ið, sem var í vor, var einu sinni í viku og það var afar mikilvægt fyr- ir okkur foreldrana. Áður sá barna- og unglingageðdeildin um svona foreldranámskeið. Ég er svo heppin að Pálmi er nú að fara í tveggja ára atferlismeðferð sem er rannsóknarverkefni. Það fá aðeins tvö böm á ári að fara í þessa meðferð. Hún fer fram á leikskólan- um hans á Sólbrekku og er fram- kvæmd af stuðningsaðilum á leik- skólanum sem lært hafa sérstaka aðferð i að umgangast einhverf böm. Sáifræðingur hefur yfirum- sjón með þessu rannsóknarverk- efhi.“ Mjög vanaföst „Pálma hefur gengið vel á leik- skólanum undanfarið. Það var erfitt í fyrra því þá beit hann stundum önnur börn af þvi hann vildi ekki fá þau of nálægt sér. Hann fær stund- um köst ef hann vill ekki eitthvað ákveðið t.d. þegar hann vill ekki fara í fötin sin. Einhverf börn eru mjög vanaföst og þurfa að hafa hluti í föstum skorðum. Pálmi t.d. getur ekki geng- ið í buxum ef þær eru upp á kálfa á honum. Hann verður að hoppa nokkrum sinnum á pallinum fyrir framan útidyrahurðina heima áður en hann kemur inn. Hann þarf að hafa eitthvað í höndunum áður en hann fer út úr húsi, t.d. tannbursta eða leikfangahamar. Hann er líka mjög vanafastur í matarvenjum og borðar ekki nema vissan mat. Hann borðar bara heima og á leikskólan- um en ekki þegar hann er annars staðar, t.d. í heimsóknum hjá ná- komnum ættingjum. Hann tengist mér mjög vel og má varla sjá af mér. Hann er mjög kel- inn og þarf oft að fá knús. Að því leyti er hann mjög líkur venjulegum bömum. Þetta er þó ekki bara nei- kvætt heldur gefur þetta manni margt og sérstaklega að sjá hvað litlir hlutir geta veitt manni mikla hamingju, eins og t.d. þegar Pálmi biður mig með orðum um mjólk að drekka," segir Guðrún. -RR lnnanhússknatts|>yrna Hægt er að leigja sal í Tennishöll- inni undir innanhússknattspyrnu. Salurinn sem er til leigu er 39 m x 18 m = 702 m2. Hægt er að fá tíma alla daga, m.a. frá kl. 16.30 - 23.30 virka daga. Fyrstir til að staðfesta, fyrstirtil að fá DALSMÁRI9-11 • 200 KÓPAVOGI • SÍMI: 564 4050 • PAX: 554 4051 International snakeshow Ótrúleg eitursnákasýning í fyrsta skipti í Evrópu. Opið daglega frá kl. 14-20 til 28. september í JL-húsinu. c ,4' Tilboð fyrir hópa. Einnig yfir 100 tegundir lifandi skriödýra. Upplýslngar gefur Gula línan 580-8000. Gimm Á GJAFVERÐI KF-265 Kælir 197 Itr. Frystir 55 Itr. HxBxD 146.5 x 55 x 60 TILBOÐ Aðeins 54.990,- ,3, Það eru nýjar glæsilegar innréttinqar i öllum 20 gerðum €ÍJRAI*f kæliskápanna. fyrsta flokks frá /^omx HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SIMI 552 4420 í tilefni Americana '97 býður Úrval-Útsýn einstakt kynningar- tilboð á 50 sætum til Flórída í september og október. Gist er á nýjasta hóteli Úrvals-Útsýnar Kissimmee/Orlando, COMFORT SUITES HOTEL, sem er fallegt og vel staðsett smásvítuhótel sem býður glæsilegan aðbúnað úti sem inni. Verð frá hí. Innifaliö í veröi: Flug, gisting í glæsilegum smásvítum, ríkulegur amerískur morgunveröur (eldaöur skv. óskum) og skattar. 39.500 Lágmúla 4: sími 569 9300, greenl númer: 800 6300. Hafnarfirði: sími 565 2366, Keflavtk: sími 421 1353, Selfossi: sími 482 1666, Akureyri: sími 462 5000 - og hjá umboðsmönnum um latid allt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.