Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1998, Blaðsíða 2
20 &rikmyndir FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 Drottningin og Háskólabíó - Eyjan í Þrastarstræti: Einangrun *** Síðari heimsstyrjöldin er endalaus uppspretta mann- lífsmynda og efniviðar í bókmenntir og kvikmyndir. Eyjan í Þrastarstræti er byggð á skáldsögu eftir Uri Orlev mn ungan dreng sem verður innlyksa í gyðinga- gettóinu í Varsjá í Póllandi. Stríðið er hálfhað og útrým- ingarherferð nasista hefur skipulega tæmt gyðinga- hverfið í Varsjá. Fíölskylda Alex er með þeim síðustu að fara en hann býr með fóður sínum og frænda. Áður en þeim er fylgt út tekst Alex að hlaupa úr röð- inni og fela sig fyrir hermönnunum. Frændinn er skotinn og faðirinn horfinn, en Alex treystir því að hann sé á lífi og tekur til við að bíða hans. Og nú taka við mánuðir einsemdar. Hverfið er tómt og Alex i felum og á stöðugum flótta undan leitarflokkum nasista. Þess utan er lífsbaráttan hörð og lítið um mat. En Aiex er staðráðinn i þvi að lifa af og bíða fóður síns og með hjálp bókarinnar um „Robinson Crusoe“ tekst honum að skapa sér litla „eyju“ í gettóinu, rétt handan múrsins sem aðskilur það frá daglegu lífi Varsjárborgar. Mynd Sörens Kragh-Jacobsens er 'sem betur fer enginn danskur Schindler’s List heldur látlaus mynd af einsemd ellefu ára drengs. Hún er sterkust þar sem lýst er þessari einangrun en annars er Eyjan furðu skrykkjótt, sérstaklega er upphafskaflinn dálítið litlaus. Það er litið um skýringar eða sögulegt samhengi sem virðist eiga að undirstrika einangr- unina enn frekar fyrir áhorfandanum. Þannig er áhorfandinn settur í spor bamsins sem ekkert veit utan sins þrönga heims. Þetta er áhugaverð nálg- un en dálítið hættuleg og skilur eftir sig óþarflega mikið af ósvöruðum spumingum. En það lætur kvikmyndavélinni einkar vel aö skapa and- rúmsloft einangmnar og fælni þar sem einu tengsl Alex við umheiminn og annað fólk era þau sem hann horfir á yfir vegginn út um loftræstirist, og það er sú sterka mynd sem eftir situr í huganum. Leikstjóri: Sören Kragh- Jacobsen. Handrit: John Goldsmith og Tony Grisoni, eftir bók Uri Orlevs. Aðalhlutverk: Jordan Kiziuk, Patrick Bergin, Jack Warden, Stefan Sauk. -úd Regnboginn - Chasing Amy: Ástfangnir vinir ★★ Það era margir sem hafa hrifist af hráum stíl og ögrandi húmor Kevins Smiths og hefja hann upp til skýjanna og það átti hann skilið eftir fyrstu kvikmynd sína, Clerks, þar sem var lýst í svarthvítu degi í lífi afgreiðslu- manns og vina hans. Smith sýndi með Clerks að hann hafði næmt auga fyrir afhrigðilegum hlutum í lífinu og hafði húmor fyrir því sem kannski angraði aðra. Smith fylgdi Clerks eftir með Mallrats, sem undirritaður hefur ekki séð en er víst gæðaklössum fyrir neðan Clerks. Með Chasing Amy réttir hann úr kútnum en ekki mikið. Chasing Amy fjallar um þrjár persónur sem allar starfa við að búa til teiknimyndasögur. Æskuvinirnir Holden og Banky hafa náð töluverðum árangri, öfugt við Alyssu, sem kemur eins og eldibrandur inn í lif þeirra. Þarna eru þrjár persónur sem allar lifa fyrir daginn í dag, ólíkar en era nokkuð áhugaverðar í byrjun. Áhuginn á þeim hverfur þó fljótt vegna þess hversu múlbundin þau eru í eigin sjálfskönnun sem aðallega beinist að kynlífinu. Holden, sem verður að teljast „eðlilegastm-" af þríeykinu fell- ur kylliflatur fyrir Alyssu, sem hefur talið sér trú um að hún sé lesbía. Hún vill vinskap, ást Holdens á henni er þó með þvílíkum styrkleika að hún er varnarlaus, er sem sagt rómantísk inn við beinið þótt yfirborðið sé hrjúft. Banky sem hefur meðal annars gaman af að sýna þriggja ára bömum klámblöð og er vissulega sá af þríeykinu sem er brenglaðastur í hugsun, finnur fyrir afbrýðisemi sem hann á erfitt með að hemja. Chasing Amy er nánast samtöl út alla myndina, kryddaður og grófur textinn er úr götumáli og er frekar leiðinlegur til hlustunar þótt ágætir leikarar nái sér stundum vel á strik. Fyrstu mínúturnar i myndinni fara mest í að öskra hvert á annað og segja sögur af hetjudáðum i kynlífinu. Aðeins hægist um, en það er lognið á undan storminum. Það er skilyrði fyrir kvikmynd eins og Chasing Amy þar sem allt snýst um vissar persón- ur og sálarlíf þeirra að þær séu áhugaverðar alla myndina, en svo er ekki í þessu tilfelli og því er myndin langdregin þótt einstaka sprettir nái að lyfta myndinni. Það sem eftir stendur er framleikinn og góður leikur. Leikstjóri og handritshöfundur: Kevin Smith. Kvikmyndataka: David Klein. Aðalleikarar: Ben Affleck, Joey Lauren Adams og Jason Lee. _____________________________________________________Hilmar Karlsson I dag tekur Regnboginn til sýn- ingar bresku kvikmyndina Mrs. Brown sem var fyrst sýnd hér í fá- ein skipti á kvikmyndahátið síðast- liðið haust. Mrs. Brown hefur feng- ið mjög góðar viðtökur alls staðar þar sem hún hefur verið sýnd og er talið nokkuð víst að Judy Dench verði tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir leik sinn í hlutverki Viktoríu drottningar. Mrs. Brown byggir á sönnum at- burðum sem almenningur á valda- tímum Viktoríu vissi að sjálfsögðu litið um. Segir myndin frá valda- mestu konu í heimi, drottningu breska heimsveldisins, konu sem al- menningur bæði óttaðist og dýrk- aði, og almennum þjóni við hirð hermar, sem kom úr neðstu stigum þjóðfélagsins og hafði það hlutverk að líta eftir hestum hirðarinnar. Að- stæður gerðu það að verkum að á milli Viktoríu og skoska hesta- sveinsins, Johns Brown, myndaðist náinn vinskapur sem hneykslaði hirðina. Það hafa áður verið uppi hug- myndir um að kvikmynda þessa sögu en ávallt hefur það strandað á viðhorfi bresku konungsfjöl- skyldunnai- og það var alls ekki með velþóknun hennar að kvikmynd eftir þessari sögu var gerð því konungs- fjölskyldan neitaði að- standendum kvik- myndarinnar um leyfi til að mynda í einni af höllun- um sem eru i eigu bresku krúnunnar. Sá sem leikur John Brown heitir Billy Connolly og er ekki eins þekktur | leikari á alþjóðavísu og Judy Dench en er vel þekktur gam- anleikari Bret- landseyj- um auk þess sem Judy Dench leikur Viktoríu drottningu og hefur fengið mikið lof fyrir leik hann hefur leikið i nokkrum kvik- myndum. Meðal annarra leikara eru Antony Sher, Geoffrey Palmer og Gerard Butler. Leikstjóri Mrs. Brown er John Madden sem mikið hefur unnið við leikhús beggja vegna Atlantshafs- ins. Tveimur kvikmyndum hefur hann leikstýrt, Et- han Fromme, sem gerð | var eftir I skáidsögu Edith Wharton, með Liam Neeson og Pat- ricia Ar- quette í aðal- hlutverkum, og Golden gate, sem gerist í San Francisco á tímum McCarthy of- sóknanna. Þá hefur hann leikstýrt hluta af hinni viður- Biily Connolly ieikur hestasveininn John Brown sem drottningin hrífst af. kenndu Prime Suspect sjónvarpss- erlu. -HK Judy Dench Judy Dench er ein virtasta leikkona Englands, ein fárra leik- kvenna sern hefur verið öðluð. í áratugi hefur hún veriö meðlim- ur Royal Shakespeare Company og verið ein helsta leiksviðsleik- kona Breta allt frá því hún kom fyrst fram á sjötta áratugnum. Hún hefur leikið öll stærstu kvenhlutverk í Shakespeare leik- ritunum og í fyrra fékk hún mjög góða dóma fyrir leik sinn i Amy’s View eftir David Hare sem sýnt var í National Theatre. Af og til hefur hún leikið í kvikmyndum og má geta þess að hún leikur M í síðustu tveimur James Bond myndunum, Gold- eneye og Tomorrow never Dies. Meðal annarra kvikmynda sem hún hefur leikið í má nefna A Room with a View, A Handful of Dust, Jack and Sarah, A Midsum- mer Night’s Dream, A Study in Terror, He who Rides a Tiger og Shakespeare-myndum Kenneth Brannaghs, Hamlet og Henry V. Judy Dench hefur einnig leikið mörg hlutverk í sjónvarpi og hér á landi er hún sjálfsagt þekktust fyrir leik sinn í sjónvarpsserí- unni A Fine Romance. -HK Kvikmyndahátíðin í Beriín fram undan: Kvikmyndaveisla í tólf daga í næstu viku hefst hin árlega kvik- myndahátíö í Berlín. Munu tuttugu og fimm kvikmyndir keppa um hinn eftirsótta Gullbjörn sem veittur er bestu kvikmyndinni í lokin. Kvik- myndahátíðin í Berlín er ásamt há- tiðinni í Feneyjum sú kvikmyndahá- tíð sem gengur næst þeirri í Cannes í virðingarstiganum. Flykkist fólk víða að til Berlínar til að taka þátt í herlegheitunum, fara í bíó, skoða fólk og láta sjá sig. Auk þeirra mynda sem komast inn í aðalkeppnina eru tugir annarra kvikmynda frá öllum heimshomum kynntar og settar á markaðinn, því eins og á öllum kvikmyndahátíðum er Berlín kvikmyndakaup- stefna þessa tólf daga sem hátíðin stendur. Opnunarmyndin i ár er The Boxer, sem leikstýrt er af Jim Sheridan. Með aðal- hlutverkið fer Daniel Day- Lewis og er þetta þriðja myndin sem hann og Sher- idan gera saman. Áður hafa þeir gert My Left Food og In the Name of the Father, en sú mynd fékk Gullbjöminn árið 1994. Hinn kunni leikari Ben Kingsley er formaður eliefu manna dómnefhdar. Á há- Barbara er eina kvikmyndin frá Norðurlöndun- um sem keppir um Gullbjörninn í ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.