Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1998, Blaðsíða 2
20 kvikmyndir FÖSTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1998 JjV Háskólabíó - Safnarinn: Kvensamur morðingi V; a Það hafa einhverjir orðið til að líkja Safnaranum (Kiss the Girls) við eina af betri sakamála- myndum síðari ára, Seven. Það er þó ekki margt sem þær eiga sameiginlegt ef frá er dregið að báðar fjalla um fjöldamorðingja og í aðalhlutverki í þeim báðum er Morgan Free- man sem hefur hér jafnsterka útgeislun og í Seven og er ekki í ósvip- uðu hlutverki. Þar með lýkur samlíkingunni. í byrjun kynnumst við lögreglumanninum Alex Cross sem er ekki bara mikilsmetinn lögreglumaður og réttarsálæfræðingur heldur er hann einnig vinsæll rithöfundur. Starfsvettvangur hans er Washington. Þegar hann fréttir að ung frænka hans, sem stundar háskólanám í Norður- Karólínu, er horfin telur hann það skyldu sína að rannsaka málið. Þegar hann kemur á vettvang kemst hann að því að frænka hans er líklega fórnarlamb raðmorðingja sem virðist safna að sér fallegum og viljasterkum stúlkum sem hann heldur í haldi þar til þær gera eitt- hvað sem honum líkar ekki, þá drepur hann þær og það eina sem bend- ir til að þarna sé sami maðurinn á ferð er að hann merkir líkið með undirskrift sinni, Casanova. Kiss the Girls fer vel af stað og það er góð stígandi í henni fram yfir miðja mynd eða þar til kemur að því að Cross kemst á slóð morðingj- ans, þá fer heldur betur að losna um þéttan söguþráð og ótrúverðugleik- inn tekur öll völd. Sagan verður ruglingsleg og er erfitt að fá botn í sumar persónurnar. Þegar loks kemur að síðasta atriðinu tekst ekki betur til en svo að það verður eins og endurtekning á fjölda slíkra at- riða. Eftir stendur þó að Kiss the Girls er ágæt afþreying og er borin uppi af sterkum leikhópi þar sem Morgan Freeman og Ashley Judd ná ein- staklega vel saman og er greinilegt að í Ashley Judd er gott leikaraefni. Leikstjóri er Gary Fieder. Handrit gerði David Klass. Tónlist Mark Isham. Aðalhlutverk: Morgan Freeman, Ashley Judd, Gary Elwes, jay O. Sand- ers og Tony Goldwyn. Hilmar Karlsson Kringlubíó/Sagabíó - Flubben Allir dansa samba í Flubber segir frá vísindamanninum Philip Brainard (Robin *** Williams) sem er svo utan við sig að hann hefur gleymt brúð- kaupsdegi sínum i þrígang. Kærastan, dr. Sara Jean Reynolds (Marcia Gay Harden), segir honum því upp og endumýjar kynni sín við hinn slæga og hæfileikalausa keppinaut Philips, þrjótinn Wilson Croft (Christopher McDonald), en Croft hefur um langa hríð stolið uppgötv- unum snillingsins. Inn í þessa gamalkunnu frásögn fléttast önnur jafn- algeng því háskólinn sem þau Philip og Sara kenna við rambar á barmi gjaldþrots. Þaö eina sem getur bjargað skólanum er ný uppfinning Phil- ips en eftir margra ára rannsóknir hefur honum tekist að skapa grænt, orkuríkt, fljúgandi og dansandi gúmmí sem ofan á allt býr yflr sterkum persónuleika. Bófinn Bennett Hoenicker (Wil Wheaton) ágimist upp- finninguna og með aðstoð manna sinna, Smiths og Wessons (Clancy Brown og Ted Levine), tekst honum að ræna undragúmmíinu hans Brainards sem verður að koma því til bjargar. Flubber er sérstök fyrir þá sök að hana hefði verið hægt að gera fyr- ir 35 áram. Hér er á ferðinni endurgerð á The Absent-Minded Profess- or (1961) og þótt tæknibrellurnar séu hér fullkomnari kemur hún I beinu framhaldi af þeim bamamyndum sem Disney-fyrirtækið sendi frá sér á sjöunda áratugnum. Ákveðinnar fýlu hefur gætt hjá mörgum gagnrýnendum sem sjá þetta sem skort á frumleika. Vissulega má segja að skemmtilegra heföi verið að sjá mynd sem markvisst hefði visað í hefðina. Hana hefði mátt sveigja að kröfum þeirra rýna sem eitt sinn vora krakkar og vilja nú íróníska og þroskaða endurvinnslu á þeim ein- földu minnum sem eitt sinn hrifu þá. Bull og vitleysa, segi ég. Það er kominn tími til að krakkamyndir séu skrifaðar án tillits til hefðar sem flest börn þekkja hvort sem er ekki nema að takmörkuðu leyti. Flubber býr yfir einfaldleika sem því miður er allt of sjaldséður í kvikmyndum síðustu ára. Hún er barnamynd fyrir böm og ég get engan veginn séð það sem galla. Besti mælikvarðinn á slíkar myndir er salur, fullur af ánægðum börnum. Og krakkarnir voru í stuði. Leikstjóri: Les Mayfield. Aðalhlutverk: Robin Williams, Marcia Gay Harden, Christopher McDonald, Raymond J. Barry, Clancy Brown, Ted Levine og Wil Wheaton. Guðni Elísson Unnusti framkallaður Picture Perfect, sem Kringlubíó frumsýnir í dag, segir frá því í róm- antískri gamanmynd hvernig hægt er með brögðum að fá fólk til að líta í „rétta“ átt. Aðalpersónan er Kate, falleg og hæfileikarík ung kona sem starfar sem auglýsingastjóri. Hún hefur komist að þeirri niðurstöðu að útlitið og hæflleikarnir era ekki alltaf það sem gildir þegar ná skal árangri. Yfirmaður hennar telur hana ekki hæfa þegar þarf að finna að hafa ýmsar afleiðingar sem Kate reiknaði ekki með í upphafi. í aðalhlutverkum eru Jennifer Aniston, Jay Mohr, Kevin Bacon, Olympia Dukakis, Illeana Douglas og Kevin Dunn. Leikstjóri er Glenn Gordon Caron. Jennifer Aniston er ein af „vinun- um“ úr sjónvarpsseríunni Friends. Faðir hennar er leikarinn John An- iston, sem þekktur er úr sápuópe- runni Days of Our Lives og guðfað- Kevin Bacon og Jennifer Aniston í hlutverkum félaga. yfirmannsefni vegna þess að hann telur hana ekki nógu ábyrga. Þá er móðir hennar alltaf með aðfinnslur um að hún verði að fara að finna sér eiginmann en í þeim efnum á Kate að baki mörg misheppnuð ást- arævintýri. Kate hefur mikinn áhuga á sam- starfsmanni sínum, Sam, en hann lítur ekki við henni og er ástæðan sú að hún er á lausu. Sam vill semsagt helst aðeins stúlkur sem eru lofaðar. Kate kemst að þeirri niðurstöðu að hún verði að finna sér ímyndaðan kærasta, þá muni yfirmaður hennar hætta að telja hana ábyrgðarlausa og Sam myndi fara að líta við henni. Hún fær vin- konu sína með i ráðabrugg, þær finna ljósmynd af Kate sem tekin var við brúðkaup vinkonu þeirra, þar sem við hlið hennar stendur myndarlegur maður. Kate kynnir hann fyrir öllum sem kærasta sinn og allt fer í betra horf á öllum víg- stöðvum. Til að gera söguna trú- verðugri hefur Kate upp á unga manninum á myndinni og leigir hann eitt kvöld til að geta sýnt sig með honum. Þetta bragð á þó eftir verk í nokkrum uppfærslum. Má segja að leynt og ljóst hafi verið stefnt að því af foreldrum hennar að hún yrði fræg leikkona og var skólanám hennar miðað við það. Jennifer Aniston er vinsælust þeirra ungu leikara sem leika í Fri- ends og hafa margir spáð því að hún eigi eftir að verða kvikmynda- stjarna. Fyrsta kvikmyndin sem hún lék í er She’s The One, sem sýnd var i fyrra og er Picture Per- fect, mynd númer tvö. Hún leikur smáhlutverk í Til There Was You, sem nýlega var frumsýnd og leikur aðalhlutverkið i The Object of My Affection, sem Nicholas Hytner leik- stýrir eftir handriti leik- skáldsins Wendy Wass- erstein. Talið er að sú mynd gæti skor- ið úr um hvort Jennifer Ani- ston sé efni í góða leikkonu. -HK Jennifer Aniston leik- ur unga stúlku í aug- lýsingabrans- anum sem allt gengur á aftur- fótunum hjá. ara gom- ul fór hún í auka- tíma í þekktan leikskóla í New York og lék smáhlut- Einnar nætur gaman Ming-Na Wen er ung leikkona sem þykir standa sig vel í erfiðu hlutverki. Wesley Snipes valinn besti leik- arinn. Mike Figgis fékk óskarstil- nefhingu sem besti leikstjóri og besti hand- ritshöfundur fyr- ir Leaving Las Vegas. Bak- grunnur hans iiggur í leikhúsi og tónlist. Hann fæddist í borg- inni Carlisle en ólst upp til átta ára aldurs í Nairobi í Kenya. One Night Stand, sem farið verð- ur að sýna í dag er nýjasta kvik- mynd breska leikstjómas Mike Figgis sem skaust upp á stjörnu- himininn þegar hann sendi frá sér Leaving Las Vegas. í One Night Stand er sögð áreitin ástarsaga þar sem koma við sögu nokkrar per- sónur sem virðast fátt eiga sameig- inlegt. Við kynnumst fyrst Max Carlyle sem hefur allt af öllu og er hamingjusamlega giftur. Á ferða- lagi í New York kynnist hann giftri konu, Karen, og á milli þeirra myndast mikil spenna eftir eina ástríðufulla nótt. Þegar heim er komið nagar samviskan hann um leið og hann á erfitt með að ráða við tilfinningar sína gagnvart Karen. Einur ári síðar fer Max ásamt eiginkonu sinni til New York til að vera við sjúkrabeð besta vinar síns, Charlie, sem er að deyja úr alnæmi. Við sjúkrabeðið hittir hann Karen en það kemur í ljós að hún er gift bróður Charlie. Max og Karen reyna að streitast á móti tilfinningum sínum en án ár- angurs... Það er frítt lið leikara sem fer með helstu hlutverkin: Wesley Snipes leikur Max Carlyle, eigin- konu hans leikur ung leikkona, Ming-Na Wen, sem hefur vekið at- hygli fyrir leik sinn í þessari mynd, Robert Downey jr. leikur vininn Charlie, Kyle MacLachlan leikur bróður hans og Nastassja Kinski leikur Karen. One Night Stand var fyrst sýnd á kvikmynda- hátiðinni í Feneyjum og var Þaðan flutti fjöl- skylda hans til Newcastle. Á unglingsárunum átti tónlistin allan hug hans og hann lék á trompet og gítar í hinum ýmsu rokkhljómsveitum, meðal annars var hann í hljósmsveitinni Gas Board sem Bryan Ferry stofn- aði. Eftir að Figgis flutti til London lék hann á trompet í djasshljóm- sveitum og vann við ýmsa til- raunatónlist.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.