Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.1998, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 28. MARS 1998
27
sviðsljós
Hóflega
drukkið vín
NÝ frönsk könnun bendir til,
að hóflega drukkið vín gleðji
ekki aðeins raannsins hjarta,
heldur sé það því og öðrum líf-
færum hin mesta heilsubót. í
könnuninni var fylgst með
34.000 karlmönnum [ Austur-
Frakklandi ó árunum 1978 tii
1993 og það sýndi sig, að dán-
artíðnin var 30% lægri hjá
þeim, sem drukku tvö eða þrjú
vínglös daglega, en hjá þeim,
sem ýmist neyttu ekki áfengis
eða drukku of mikið af þvf. Til
dæmis var krabbamein 20%
fátiðara hjá fyrstnefnda hópn-
um en hinum.
mbl. mors 98
W|í DflG
* cillci ævi
P L Ú T O
tii vítuie-'icLei'i
Sunnuhlíð 12, flhureyri, sími: 461 3707. Suðurlcindsbrciut 22 • S: 533 1080 • fax 533 1082
George Clooney tekur aö sér mikinn
fjölda verkefna þessi dægrin.
Clooney að
spá í að hætta
Hjartaknúsarinn George Clooney
virðist vera að reyna að ná sér í
nafnbótina uppteknasti leikarinn í
HoIIywood. Bráðavaktarstjarnan
hefúr nú i ljósi aukinnar frægðar og
eftirsóknar verið að velta því fyrir
sér hvort hann eigi að reyna að losa
sig undan samningi sínum við fram-
leiðendur þessa vinsæla sjónvarps-
þáttar. Gylliboðum um leik í kvik-
myndum rignir hreinlega inn til
kappans.
Svo virðist sem kvennagullið sé
tilbúið að vinna allan sólarhringinn
til þess að ná í eitthvað af aurum á
meðan stjama hans skín eins skært
og raun ber vitni. Hann var vart bú-
inn aö ná áttum eftir The Peacema-
ker með Nicole Kidman þegar hann
skellti sér i myndina Out of Sight og
Sex, Lies and Videotapes. Nú ætlar
hann aö fara að framleiða og leika
aðahlutverkið í nýjum pólitískum
spennutrylli, Designated Survivor.
Þar leikur hann óbreyttan ráðu-
neytismann sem verður forseti
vegna þess að yfirmenn hans farast
í sprengingu. Hvort sem persóna
hjartaknúsarans lifir hörmungar
myndarinnar af eða ekki gæti verið
skynsamlegt fyrir George að taka
það heldur rólegra í einkalífmu.
Annars gæti farið svo að hann end-
aði í aðgerð hjá kollegum sínum hjá
einhverri bráðavaktinni.
David Schwimmer dreymir um
hasarmyndahetjuhlutverk en þó er
hann ekkert á leiö frá vinum sínum.
David Schwimmer:
Vill leika hetju
David Schwimmer er líklega best
þekktur hér á landi fyrir leik sinn
sem hinn elskulegi Ross í Vinum á
Stöð 2. Leikarinn hefur nú upplýst
að hann langi til þess að leika í
hasarmyndum, þá vitanlega hetjuna
sjálfa. Hann langar með öðrum orð-
um að feta í fótspor Stailones og
Schwarzeneggers. En hann langar
líka til þess að leika í rómantískum
gamanmyndum á borð við þær sem
Woody Alien hefur verið að gera.
Til þess að taka af allan vafa hefur
David þó lýst því yfir að hann hygg-
ist ekki svíkja vini sína í tryggðum.
Hann hefur engin áform uppi um að
yflrgefa þættina. Þökk sé þeim sem
öllu ræður.
OPIÐ ALLA DAGA VIKUNNAR FRÁ KL. 12 - 21*
(Líka laugardaga og sunnudaga)
*Lokaö föstudaginn langa og á páskadag
Athugiö aö síöasti dagur markaöarins er 13. Apríl - annar í páskum.
Við opnum með ótrúlegu tilboði
á vinsælustu geislaplötunni í
heiminum í dag.
Tónlistin úr Titanic á
99 kr.
á meðan birgðir endast.
TÆKIFÆRISEIIIENGINN TONI
/fWiúsíjca
ftiyN(liR
H
v
ÞAR SEM ÞUSUNDIR ISLENSKRA OG
ERLENDRA TITLA FRÁ ÖLLUM ÚTGEFENDUM
OG INNFLYTJENDUM ERU SELDIR Á
FRÁBÆRU VERÐI.
^btvntúkíf
Hringið í síma 56 40000 og fáið
sendan pöntunarlista með helstu
titlunum sem við bjóðum uppá.
P E R L A N
26. mars - 13. apríl.
v/l'ðán& þe&Á<t ÁHftít!
Vel yfir tíu þúsund manns
heimsóttu Stóra Tónlistarmarkaðinn
í Perlunni í kringum páskana í
fyrra og gerðu ótrúlega góð kaup.
Á Stóra Tónlistarmarkaðinum finnur þú efni úr
öllum mögulegum og ómögulegum
tónlistaráttum, s.s. popp, rokk, rapp, dans, hip-
hop, jazz, blús, klassík, heimstónlist, hugleiðslu-
og slökunartónlist, reggí, diskó, jungle, tekknó,
kántrý, sveiflu, þjóðlagatónlist, gömlu dansana,
kvikmyndatónlist, safnplötur, dinnertónlist,
ballöður, harmonikutóna ofl. ofl. ofl.