Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1998, Blaðsíða 44
Vinningstölur laugardaginn: 13. 06.’! Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð 1. 5af 5 0 11.356.430 2. 4af5+>?j§S 5 130.680 3. 4 af 5 143 7.880 4. 3 af 5 4.464 580 f Aukaúrdráttur: 2-11-14-20-31. I " Jókertölur Q 4 * vikunnar: v I FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnieyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ1998 A-fLokkasamruni: Blekking - segir Svavar Gestsson „Það er bara blekking að eitt- hvað hafi færst nær. Þetta hvorki fjarlægðist né ná- lægðist. Þarna fóru fram góðar viðræður en það verður landsfund- ur sem gerir út um málið,“ segir Svavar Gestsson aiþingismaður um þá túlkun að eftir miðstjórnarfund Alþýðubandalagsins hefðu A-flokkarnir færst nær samein- ingu en nokkru sinni fyrr. -rt Nánar á bls. 6 Bílvelta í Hrútafirði: Tvennt slasað Bílvelta varð i norðanverðum Hrútafirði um hálfsjöleytið i gær- kvöld, rétt innan við Bæ. Einbreitt slitlag er á þessum slóðum og er talið að annaðhvort hafi sprungið á bíln- um eða að bílstjórinn hafi misst bíl- inn út fyrir slitlagið í mölina. Bíllinn fór tvær til þrjár veltur eftir veginum og síðan út af og endaði ofan í skurði. Þrennt var í bílnum og slasaðist öku- maður og farþegi í framsæti alvar- lega. Þriðji farþeginn hlaut smá- skrámur Tveir sjúkrabdar og tækjabíll frá Hvammstanga komu á staðinn og fóru sjúkrabílamir með fólkið á Borg- arspítalann. -me Kærðir fyrir að pissa Fjórir karlmenn voru kærðir fyr- ir að pissa á almannafæri í mið- borginni aðfaranótt laugardags. Lögreglan stóð mennina að verki þegar þeir köstuðu af sér vatni. Þetta er liður í átaki setts lögreglu- stjóra að taka á minni brotum í Neskaupstaður: Þorskar í sund- lauginni „Við voram aokoma til vinnu um hálfþrjú á sjómannadaginn. Þá blasti við okkur furðuleg sjón. í sundlauginni voru níu þorskar. Þeir lágu hreyfingarlausir á botni laug- arinnar og við athugun kom í ljós að þeir voru dauðir," segir Brynjar Pétursson, sundlaugarvörður í sundlauginni í Neskaupstað. Þorskamir vora fjarlægðir úr lauginni skömmu síðar. Brynjar segir að engar skýringar hafi feng- ist á þessu en eflaust hafi krakkar kastað fiskunum í laugina. -RR Svavar Gestsson. »§ll Hestamenn í Eyjafirði voru í sólskinsskapi um helgina en þá héldu þeir yfiriitssýningu kynbótahrossa, töitkeppni og kappreiðar á Melgerðismelum sem verða vettvangur Landsmóts hestamanna í næsta mánuði. Menn „skörtuðu" sínum bestu hrossum og mörg þeirra voru sérlega glæsileg, t.d. Frigg frá Viðvík Safúsdóttir sem fékk einkunnina 8,64 fyrir hæfileika og mun það fátítt. í brekkunni við sýningarsvæðið sátu hins vegar þær Rán Þórarinsdóttir og Karolina Wenzel og fylgdust með af áhuga. DV-mynd gk Hörð átök alþýðubandalagsmanna um stól forseta borgarstjórnar: Helgi og Guðrún skipti með sér embættinu - er meðal sáttatillagna - Guðrún Ágústsdóttir talin njóta meirihlutafylgis Hörð átök geisa nú innan Alþýðu- bandalagsins um það hver fái stól for- seta borgarstjómar á kjörtímabilinu. Guðrún Ágústsdóttir, fráfarandi for- seti borgarstjómar, sækir fast að halda embættinu. Helgi Hjörvar, sem skipaði fyrsta sæti R-listans, gerir einnig kröfu til þess að fá embættið í sam- ræmi við leiðtogahlutverk sitt sem efsti maður listans. Samkvæmt heimildum DV nýtur Guðrún fylgis meirihluta þeirra al- þýðubandalagsmanna sem standa að borgarstjómarmeirihlutanum. Undan- fama daga hefur verið reynt að tjalda- baki að fá Helga til að falla frá kröfu sinni með boði um nefndarsetu en hann hefur staðið fast á sínu. Sú hug- mynd er nú til lausnar málinu að Helgi og Guðrún skipti með sér embætti forseta borgarstjómar í tvö ár hvort. Sam- þykki Helgi ekki það fyrirkomulag stefnir í að borgarstjómarmeirihlut- inn muni gera út um málið og niður- staða fáist í at- kvæðagreiðslu. Þar með er talið að Guðrún muni hafa betur og sitja sem forseti áfram. „Því er ekki að leyna að margir eru ósammála því Helgi Hjörvar. að Helgi verði for- seti,“ sagði einn borgarfulltrúa Reykjavíkurlistans við DV. „En það er vegna þess að hann er öflugur. Menn vilja sjá hann í farar- broddi í átökum við íhaldið en það feist í eðli embættisins að forsetinn stendur ekki i eldlínu átaka.“ Guðrún Ágústsdóttir staðfesti við DV að hún hefði hug á embættinu. „Þetta er púsluspil og því lýkur ann- að kvöld. Það er ljóst að Alþýðubanda- lagið á þetta embætti samkvæmt sam- komulagi. Við leysum þetta í sátt og samkomulagi eins og önnur mál innan Reykjavíkurlistans," sagði Guðrún í gærkvöld. „Við emm að binda endahnútinn á þetta. Það er verið að skoða þrjár mismunandi útfærslur,” sagði Helgi Hjörvar við DV í gærkvöld. -rt Veðrið á morgun: Skúrir í Reykjavík Á morgun verður hæg austlæg eða breytileg átt. Skýjað verður með köflum og skúrir sunnan- og suðvestanlands. Þokuloft verður við austurströndina en bjartviðri norðanlands. Hiti verður 6 til 15 stig, hlýjast í innsveitum norðan- lands. Veðrið í dag er á bls. 53

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.