Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1998, Blaðsíða 8
1 e i k h ú s Lelkfélag Reykjavíkur. Frumsýning I kvöld á leikritinu Ofanljósum eftir Davld Hare I Borgar- leikhúsinu. Þar heillast Þorstelnn Gunnarsson af Guðlaugu Elisabetu Ólafsdóttur við lítinn fögnuö Frlðrlks Frlörlkssonar. Þetta drama er sýnt á litla sviöinu og að sjálfsögöu er uppselt. Það gildir Ifka um sýninguna á sunnudaginn. Sfminn er 568-8000. Frumsýning er f ÞJóölelkhúslnu á leikritinu Sol- velg eftir Ragnar Arnalds á morgun og enn eru örfá sæti laus á hana. ðnnur sýning á þvl verö- ur svo á fimmtudaginn. Síminn er 551-1200. Maöur í mlslltum sokkum eftir Arnmund Backman veröur sýndur I fyrsta sinn I kvöld á Smíöaverkstæðinu og þar er allt uppselt. Meöai leikara eru Þóra Frlörlksdóttlr, Bessl BJarnason, Guörún Stephensen og Gunnar Eyjólfsson. Síminn er 551-1200. Á sunnudaginn klukkan níu verður frumsýning á spunastykkinu Barböru og Úlfarl í Kaffilelk- húslnu en þaö er víst alveg ótrúlega fyndið og óútreiknanlegt. Halldóra Gelrharösdóttlr er Barbara en Bergur Þór Ingólfsson er Úlfar. Sfminn er 551-9055. Leikfélagið SJónlelkur (sem er einkaframtak Vilhjálms Hjálmarssonar) sýnir Svartklæddu konuna í Tjarnarbíói á morgun. Það eru Vilhjálmur sjálfur og Arnar Jónsson sem skelfa áhorfendur. Það er hægt að panta miða I síma 561-0280. íslenskl dansflokkurinn er meö sýningu á flmmtudaginn í Borgarleikhúslnu. Síminn er 568-8000 fýrir þá sem vilja panta miöa. Leikritið Viö feögarn- Ir eftir Þorvald Þor- steinsson, og með þeim Gunnarl Helga- synl og Eggertl Þor- leifssynl sem feög- unum, verður sýnt í kvöld klukkan átta í Hafnarfjaröarlelk- húslnu og á sama tíma á morgun. Sfm- inn er 555-0553. lönó sýnir Rommí í kvöld klukkan 20.30 og það eru einhver sæti laus enn. Síminn er 530- 3030. íslenska óperan státar um þessar mundir af hinum fyndna Helllsbúa, BJarna Hauk. Hann verður sýndur f kvöld klukkan níu og það er uppselt sem og á báðar sýningarnar á morgun. Það er bara alltaf uppselt. Betra aö panta sér sæti með mjög góðum fýrirvara. Sfminn r 551-1475. Leikritið ÞJónn í súpunnl veröur svo sýnt á morgun f lönó klukkan 20.00 en þá er uppselt. Þess vegna veröur aukasýning á því á morgun klukkan 23.30 og enn er hægt aö fá sæti á þá sýningu. Þaö eru lika örfá sæti laus á þetta vinsæla stykki á fimmtudaginn klukkan átta. Síminn er 530-3030. í Kaffllelkhúslnu verður f kvöld sýnt spennu- leikritið Svlkamylla klukkan niu. Einhver sæti eru enn laus á þehnan trylli. Síminn er 551- 9055. Grease er alltaf á Stóra sviðinu i Borgarlelk- húslnu. Á morgun verður sá sfvinsæli söngleik- ur sýndur klukkan þrjú og svo aftur klukkan átta. Enn er hægt að panta sér sæti. Síminn er 568-8000. Sex í svelt er á Stóra sviðinu i Borgarlelkhús- Inu og verður sýnt f fertugasta sinn í kvöld og það er löngu uppselt. Svo verður stykkið sýnt aftur á sunnudaginn og þá eru meiri likur á að fá miða. Síminn er 568-8000. Llstaverklö er sýnt f Loftkastalanum kvöld klukkan 20.30 með hinn óviðjafnanlega Hllml Snæ i broddi fylkingar. Simi 552-3000. FJögur hjörtu eru sýnd i Loftkastalanum á morgun klukkan 20.30. Þar eru sætustu kall- ar leikhúsanna allir saman komnir. Algjörar dúllur. Sími 552-3000. Óskastjanan er sýnd á sunnudaginn i Þjóðlelkhúslnu. Siminn er 551-1200. Á litla sviði ÞJóölelkhússlns veröur einleikur Arnar Árnasonar, Gamansami harmlelkurlnn, sýndur í kvöld og enn eru örfá sæti laus sem og á morgun. Síminn er 551-1200. I meira á.1 www.visir.is W i Sagan af pumpaði og aðrar sprenghlægilegar slysasögur stráknum sem sig út úr lífinu Árlega eru veitt Darwin-verð- launin til heiðurs þeim sem gerðu þann greiða við þróun mannkyns- ins að kála sér eða slasast á sem fá- ránlegastan og heimskulegastan hátt. í ár var samkeppnin hörð eins og áður, en hér koma helstu tilnefn- ingamcir. Rússnesk rúlletta Sylvester Briddell dó í sama mánuði í Delaware eftir að hann fór í veðmál við vini sína. Hann hafði veðjað að hann gæti farið í rússneska rúllettu með 4 skotum í byssunni sinni og lifað það af. Teygjustökk án teygju Kerry Bingham var á fylliríi með vinum sínum í Tacoma í Washington. Einn þeirra fór að segja sögu um mann sem fór í teygjustökk af Tacome Narrows brúnni um há- annatíma. Umræðan varð fjörug og að lokum vöfr- uðu tíu fyllibyttur að brúnni í morgunsárið. Þar sem hópurinn stóð á miðri brú fattaðist að gleymst hafði að koma með teygju. Kerry, sem var fyllstur, dó ekki ráða- laus og kom auga á langan rafmagnskapal sem skilinn hafði verið eftir við handriðið. Einn end- inn var bundinn við fótlegginn á honum og hinn við handriðið. Eftir tíu metra fall strekktist á kaplinum og fóturinn rifnaði af við ökkla. Fyrir kraftaverk lifði hann fallið af og var veiddur upp úr ís- kaldri ánni af veiðimönnum. „Ég get bara sagt það að guð var með mér þessa nótt,“ sagði Kerry síðar, „ég hef enga aðra útskýringu á þessu kraftaverki.“ Fóturinn hefur ekki fundist enn. Kveikt í köngulóarvef í Ohio vildi Martyn Eskins losna við köngulóarvefi í kjallaran- um. í stað þess að nota kúst notaði hann logsuðutæki. Hann rétt slapp út en húsið brann til kaldra kola. Vopnað rán á vondum stað Þriðja febrúar ætlaði maður að fremja rán i Renton í Washington. Þetta var líklega hans fyrsta ránstilraun því hann var ekki á sakaskrá og aðstæður ránsins voru með eindæmum klaufalegar: 1. Hann reyndi að ræna vopna- búðina H&J Leather & Firearms. 2. Búðin var fúíl af viðskiptavin- um og í ríki þar sem stór hluti íbú- anna hefur leyfi tii að vera með skotvopn á almannafæri. 3. Til að komast inn í búðina varð hann að fara fyrir merktan lögreglubíl sem lagt var við framdyrnar. 4. Einkennisklæddur lögreglu- Keðjuverkandi brjósta-flass þjónn stóð við afgreiðsluborðið og var að fá sér kaffi með sölumannin- um. Þegar okkar maður sá lögguna lýsti hann yfir að hann ætlaöi að ræna búðina og skaut nokkrum skotum út í loftið. Löggan og af- greiðslumaðurinn svöruðu snar- lega fyrir sig og drituðu meintan ræningja niður. Nokkrir aðrir viðskipta- vinir drógu upp hólka en skutu ekki. Enginn annar særðist. Ekki skrúfað niður Paul Stiller og kona hans Bonnie komu illa brunnin á spítala í septem- ber, eftir að dínamítstaut- ur sprakk í bílnum þeirra. Þau höfðu verið að rúnta um nótt og til að fá smáfjör í þetta ákváðu þau aö kveikja í dínamítinu og henda út um gluggann. Þeim láðist að gefa því gaum að bílrúðan var skrúfuð upp. Margfætlan slapp í október reyndi Jason Heck að drepa margfætlu með 22 kalibera riffli. Kúl- an endursendist af steini og beint í hausinn á vin hans sem lifir í dag með skaddaða hauskúpu. í Nýju-Mexíkó slösuðust fjórir 1 fáránlegu slysi. Sherry Moeller fékk höfuðhögg, Tim Vegas greindist með áverka á brjósti, höndum og andliti, Bryan Corcoran var með rif- inn góm og tveir fingur á Pamelu Klesick voru bitnir af. Sherry hafði keyrt manninn sinn í vinnuna og í staðinn fyrir að kyssa hann bless flassaði hún brjóstunum framan í hann. „Ég er enn ekki viss af hverju ég gerði þetta,“ sagði hiin seinna. „Ég var alveg upp við bílinn svo ég hélt að enginn myndi sjá mig. Þar að auki var þetta varla nema í tvær sek- úndur.“ Samt sem áður sá leigubílstjór- inn Tim atburðinn. Honum varð svo mikið um að hann missti stjórn á leigubílnum, keyrði upp á gangstétt og klessti á Johnson- heilsugæslustöðina. Þar fyrir inn- an var tannlæknirinn Pamela að hreinsa góminn á Bryan með odd- hvössum tannlæknakrók. Þegar leigubíllinn rakst á húsið kipptist hún við og reif góminn á Bryan. í sjokkinu læsti hann saman tönn- unum og beit tvo putta af Pamelu. Brjóstaflassarinn fékk höfuðhögg þegar brot af heilsugæslustöðinni flaug í hausinn á henni. Fimmfalt sjálfsmorð Frakkinn Jacques LeFevrier ætlaði að vera alveg öruggur þeg- ar hann framdi sjálfsmorð. Hann stóð á háum kletti og batt snöru um hálsinn á sér. Hinn endann batt hann við stóran stein. Hann drakk eitur og kveikti í fötunum sem hann var klæddur í. Hann reyndi líka að skjóta sig á síðustu stundu. Hann hoppaði fram af og skaut. Og sigurvegarinn er... Japan Times - 16. apríl 1997 „Rikisstjórnin verður að bregð- ast við þessu ógeðslega „pumpu- æði“ sem nú steðjar að,“ lýsti tals- maður taílensks spítala yfir við fréttamenn. „Ef þessi öfugugga- háttur heldur áfram mun hann eyðileggja rjómann af karlmönn- um Tailands." Þetta sagði hann eftir að leifum hins 13 ára Charnchai Puanmuang- pak hafði verið dröslað inn á splt- alann. „Flestir „piunparar" nota venjulega hjólapumpu," útskýrði hann, „setja stútinn langt upp í endaþarminn á sér, skjóta á sig smá- lofti og fara í vímu í smá- stund. Þetta athæfi er glæpur gegn guði.“ Svo virðist sem hinn ungi Chamchai hafi verið langt leidd- ur af pump-fíkninni. Hann fór að nota kraftmikla fótpumpu, en jafnvel það var ekki nóg, svo hann fór að stæra sig af því við vini sína að hann ætlaði að prófa loftslönguna á næstu bensínstöð. Vinimir hvöttu hann áfram svo að lokum læddust þeir að bensín- stöðinni í skjóli nætur. Chamchai tróð slöngunni langt upp í enda- þarminn á sér og setti pening í rif- una ttl að fá loft. AfLeiðingin var sú að hann dó samstundis. Kona sem átti leið fram hjá hélt að ver- ið væri að kveikja í flugeldum og fór að klappa. „Við höfum ekki fundið hann allan enn þá,“ sögðu lögregluyfir- völd. „Þegar allt þetta loft gekk í efnasamband við gasið í þörmxm- um á honum sprakk hann bara í loft upp. Þetta var eins og kjam- orkusprengja eða eitthvað." „Pumpið er tómstundaiðja djöf- ulsins og við verðum öll að segja nei við satan,“ segir talsmaður spftalans að lokum. „Haldið endi- lega áfram að pumpa í dekkin ykkar en felið svo pumpurnar þar sem þær freista ykkar ekki.“ Byssukúlan fór fram hjá honum en skar í staðinn sundur reipið. Jacques hrapaði i sjóinn fyrir neð- an. Þá slokknaði í fótunum og hann ældi upp öllu eitrinu. Góður smábátaeigandi dró hann upp í bátinn sinn og farið var með hann í snatri á spítala þar sem hann dó loksins - úr lungnabólgu. í febrúar lést 24 ára maður í Kaliforníu þegar hann féll í gegnum þak á reiðhjólaverslun sem hann var að brjótast inn í. Hann hafði vasaljós á milli tannanna þegar hann var að bauka við að komast inn, en þegar hann datt í gólfið þrýstist vasaljósið upp í munninn á honum og klauf á honum hauskúpuna. f Ó k U S 9. október 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.