Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.1999, Page 2
2
MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 1999
Fréttir
Stuttar fréttir i>v
Þrennt í gæsluvarðhald eftir að 5 kg af hassi var smyglað með Breka VE:
Hassið undir trollinu
- bakhjarla leitað. Innkaupsverð á 4. milljón króna en söluverð 7-12 milljónir
Hér má sjá hassið sem er lágmark að verðmæti á áttundu milljón króna komið á götuna. DV-myndir Ómar
DV, Vestmannaeyjuin:
Rúm fimm kíló af hassi og lítils-
háttar af maríjuana fannst við komu
togarans Breka VE til Vestmanna-
eyja á laugardagsmorguninn. Breki
var að koma úr sölutúr frá Bremer-
haven í Þýskalandi. Þrennt tengist
máiinu og hefur verið úrskurðað í
viku til þriggja vikna gæsluvarð-
halds meðan á rannsókn stendur.
Þetta er mesta magn fíkniefna sem
fundist hefur hér í landi undanfarin
ár og langmesta magn sem fundist
hefur í Vestmannaeyjum, meira en
samanlagt magn sem þar hefur verið
gert upptækt frá byrjun. Fundur efn-
isins er að þakka góðri samvinnu lög-
reglu og tollþjónustu í Vestmannaeyj-
um sem hefur haft fiskiskip sem
stunda siglingar undir smásjá undan-
farna mánuði. Breki kom til Eyja frá
Bremerhaven í Þýskalandi klukkan 5
á laugardagsmorguninn en lögreglan
hafði haft veður af því að skipverji
um borð og sambýliskona hans væru
að smygla fíkniefnum til landsins.
Tollvörður sem annaðist tollskoðun
um borð taldi manninn, sem er rúm-
lega fertugur skipverji á Breka, vera
undir áhrifum eiturlyfía og ákvað í
samráði við lögreglu að fylgja honum
eftir frá borði. „Sett var vakt við
skipið og um klukkan 7 var bifreið
sem þau voru i stöðvuð af lögreglu,"
segir lögreglufulltrúi í Eyjum í sam-
tali við DV.
Hassið í bílnum
Konan fór með skipverjanum í
siglinguna og hafði önnur kona
sótt þau um borð á bifreiðinni
sem stöðvuð var. Við leit á mann-
inum fundust 33 g af hassi og lítils
háttar af maríjúana en ekkert
fannst á konunum. En við leit í
bifreiðinni fundust um 5 kg af
hassi og játaði maðurinn innflutn-
ing á þeim. Við húsleit á heimil-
um sambýlisfólksins og konunnar
fundust áhöld til fíkniefnaneyslu.
Samkvæmt heimildum DV var
hassið falið undir trolli á dekki
skipsins. Fólkið var á laugardags-
kvöld úrskurðað í gæsluvarðhald,
maðurinn til 30. janúar, sambýlis-
konan til 20. janúar og konan sem
ók til 16. janúar. Lögreglan í Eyj-
um fékk mann frá ríkislögreglu-
stjóra til aðstoðar við rannsókn
málsins og hasshund til frekari
leitar um borð í Breka. Ekki
fannst meira um borð. Lögregla og
tollgæsla í Eyjum hafa undanfarið
haft náið samstarf við rannsókn
fíkniefnamála og hafa beint sjón-
um sínum að skipum sem sigla
með aflann. „Við höfum verið að
skoða siglingaskipin almennt og
þetta er afrakstur þess starfs,“
sagði lögreglufulltrúinn.
Samtals eru þetta um 5000
skammtar að verðmæti rúmlega
7-12 milljónir króna til neytenda,
allt eftir þvi hve hreint það er.
Talið er að skipverjinn hafi þurft
að leggja út hátt í 4 milljónir
króna fyrir efninu. Samkvæmt
heimildum DV er ótrúlegt talið að
hann hafi haft slík fjárráð og því
líklegt að hann hafí verið burðar-
dýr fyrir fjársterkari aðila. Þrátt
fyrir að skipverjinn hafi játað
innflutning hefur hann,
samkvæmt heimildum DV, neitað
að eiga efnið. Rannsókn lögreglu
beinist því að hvort og þá hverjir
standi að baki honum. Maðurinn
hafði verið rúm þrjú ár á Breka
án þess að vandamál vegna fíkni-
efnaneyslu kæmu upp. Á árum
áður komust hann og sambýlis-
kona hans á skrá fyrir fíkniefna-
misferli.
Skipstjóra brugðið
Magni Jóhannsson, skipstjóri á
Breka, sagði í samtali við DV að sér
væri mjög brugðið vegna þessa
máls. Fréttir um að hass hefði fund-
ist í skipinu hefðu komið sem
þruma úr heiðskíru lofti. Hann
sagði að málið yrði tekið mjög föst-
um tökum. Glæpur þessi væri þess
eðlis að verið væri að leggja í rúst
líf fjölda manns.
„Það verður ekki farið á sjó fyrr
en búið er að hreinsa til í áhöfninni
eins og þarf. Þetta er það lægsta sem
menn geta lagt fyrir sig,“ sagði
Magni. -ÓG/rt
Eldur kom upp í einbýlishúsi við Stekkjarsel á laugardagskvöldið. Kviknað
hafði í eldhúsinnréttingu og voru skemmdir talsverðar í eldhúsinu, auk
skemmda af völdum reyks víðar í húsinu. Ibúar voru aldrei í hættu þar sem
þeir komust út f tæka tíð og hringdu á slökkvilið. Reykkafarar fóru inn í fbúð-
ina og réðu fljótt niðurlögum eldsins. DV-mynd HH
Framboðsmál Hjörleifs:
Landiö
er mitt
„Landið allt er mitt; Reykjavík
ekki síður en Austurland," segir
Hjörleifur Gutt-
ormsson sem nú
íhugar framboðs-
mál sin af kost-
gæíni. „En fyrst
þarf að stofna
flokkinn og svo
koma framboð-
in.“
Hjörleifur býst
ekki við að línur
fari að skýrast varðandi framboö
sitt fyrr en eftir mánuð - ef af því
verður.
„Enginn er ómissandi. Sjálfur hef
ég í vaxandi mæli hallast að taó-
isma upp á síðkastið og tek þessu
öUu með stóiskri ró. En keppnis-
skapið er enn á sínum stað.“
Þrýst hefur verið á Hjörleif um
að færa sig af Austurlandi og bjóða
sig fram í Reykjavík í næstu kosn-
ingum og hann aftekur ekkert í
þeim efnum. Segist þó vera þing-
maður Austurlands og þar sé í
nógu að snúast. -EIR
Nýtt og glæsilegt Qölveiöiskip Haraldar Böðvarssonar hf.:
Fyrsta nýsmíðin í 20 ár
Óli í Sandgerði AK heldur til veiða um mánaðamót
DV Akranesi:
Það var mikið um dýrðir við
Akraneshöfn þegar nýtt fjölveiði-
skip Haraldar Böðvarssonar hf.
lagðist í fyrsta sinn að bryggju í
heimahöfn í gær.
Þetta er fyrsta stóra nýsmíðaða
skipið sem kemur til bæjarins síðan
1978 er nótaskipið Bjami Ólafsson
kom nýtt. Séra Eðvarð Ingólfsson
blessaði skipið og Lára Nanna Egg-
ertsdóttir gaf því nafnið Óli í Sand-
gerði AK-14. Að sögn Marteins Ein-
arssonar, annars af skipstjórum
skipsins, er það keypt frá Noregi.
Óli í Sandgerði er fjölveiðiskip og
hentar mjög vel bæði til loðnu- og
kolmunnaveiða. f skipinu eru kælit-
ankar sem tryggja góða og betri nýt-
ingu á hráefninu. Óli í Sandgerði er
með 4700 hestafla vél, 60 metra lang-
ur og 11,60 metra breiður og tekur
1100 tonn. Skipið reyndist i alla
staði mjög vel á siglingunni heim.
Reiknað er með að skipið fari á
loðnuveiðar um mánaðamótin. Auk
t • )V. ’ j
Óii í Sandgerði Ak 14.
Marteins er Guðlaugur Jónsson
skipstjóri og 14 menn í áhöfn. í nóv-
ember er væntanlegt annað stærra
skip til Haraldar Böðvarssonar en
það er nú í smíðum í Chile. Fram-
kvæmdastjóri Haraldar Böðvarsson-
ar hf. er Haraldur Sturlaugsson og
stjórnarformaður er Eyjólfur
Sveinsson. -DVÓ
Séra Eðvarð Ingólfsson blessar
skipið. DV-mynd Daníel
Frestur rennur út í dag
Framboösfrestur til þess að
skila inn framboði í hólfi
Kvennalistans í
Reykjavík
rennur út í dag.
Nú þegar hafa
Hulda Ólafs-
dóttir sjúkra-
þjálfari, Guðný
Guðbjörnsdótt-
ir alþingismað-
ur og Guðrún Ögmundsdóttir fé-
lagsráðgjafi ákveðið að gefa koSt
á sér.
Barátta í Reykjanesi
Þrír hafa ákveðið að gefa kost
á sér í efsta sæti í prófkjöri Sam-
fylkingarinnar á Reykjanesi.
Þetta eru Rannveig Guðmunds-
dóttir, Ágúst Einarsson og Guð-
mundur Árni Stefánsson. Þing-
maður Alþýðubandalagsins, Sig-
ríður Jóhannesdóttir, gefur kost
á sér í annað sætið í prófkjör-
inu.
Rogers gefur ráð
Hnattfarinn og bandaríski auð-
kýfingurinn Jim Rogers, sem
keyi-ði hringinn í kringum landið,
ætlar að gefa íslendingum góð ráð
varðandi fjármál.
Spenna í prófkjöri
Prófkjör Framsóknarflokksins
á Norðurlandskjördæmi eystra
fer fram um næstu helgi. Tveir
gefa kost á sér í efsta sætið, Jak-
ob Björnsson og Valgerður
Sverrisdóttir. Elsa Friðfinnsdótt-
ir og Daníel Ámason gefa kost á
sér í annað sætið. Mikil spenna
ríkir vegna prófkjörsins. Stöð 2
greindi frá.
Kvartað yfir prófkjöri
Alfreð Þorsteinsson og Am-
þrúður Karlsdóttir eru sammála
um aö próf-
kjörsreglur í
prófkjöri Fram-
sóknarflokks-
ins í Reykjavík
séu illa samd-
ar. Jón Ingi
Einarsson, for-
maður fulltrúa-
ráðs F'ramsóknarflokksins í
Reykjavík, sagði í samtali við
Ríkissjónvarpið að framboðs-
nefnd kæmi saman á morgun til
að ræða þessi mál.
Vilhjálmur í stórræðum
Meirihluti er fyrir því á danska
þinginu að Vilhjálmm- Örn Vil-
hjálmsson fornleifafræðingur fái
aðgang að skjölum um útrýming-
ar á gyðingum í síðari heimsstyrj-
öldinni. Danska útlendingaeftir-
litið hefur meinað Vilhjálmi að-
gang að skjölunum fram að þessu.
Röskun á flugi
Röskun varð á innanlandsflugi
í gær vegna veðurs. Mikil úr-
koma, bæði snjór og slydda, var
víða á landinu en í Reykjavík
varð röskunin einna mest þar
sem brautarskilyrði Reykjavíkur-
flugvallar voru afar slæm vegna
veðurs.
Óbreytt í Hagaskóla
Allt hefur verið með kyrrum
kjörum í Hagaskóla um helgina.
Síðustu sprengjur sprungu í
skólanum á fóstudagskvöld, þá
brotnuðu tvær rúður en engin
lögregluvakt var i skólanum um
helgina.
Óþrifnaður hjá Norðuráli
Starfsfólk hjá Norðuráli á
Grundartanga hefur farið fram á
það að Vinnu-
eftirlit ríkisins
kanni aðbúnað
verkafólks bjá
fyrirtækinu.
Hervar Gunn-
arsson, formað-
ur verkalýðsfé-
lags Akraness,
sagði í samtali við Rikissjónvarp-
ið að starfsmenn heföu kvartað
mikið vegna mengunar og óþrifn-
aðar auk mikils vinnuálags. Hann
ætlar að ræða viö stjómendur fyr-
irtækisins. -hb