Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1999, Blaðsíða 36
FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 1999 Ummæli á þingi „Hinn reyndi forseti þings- ins virðist hafa komist að þeirri niðurstöðu að þar sitji nú slangur af fólki sem eigi í raun ekki erindi og væri ekki þama nema af því að hæfari einstak- lingar fást ekki.“ Stefán Hafstein, í Degi Körfubolti og útgerð „Að reka meistarflokk í efstu deild íþróttar eins og körfubolta má iíkja við út- gerð. Það er að sjálfsögðu í höndum stjómenda útgerðar aö ráða skipstjórann og hann er ekki ósjaldan látinn taka pokanna sinn ef hann fiskar ekki.“ Bragi Mikaelsson körfu- boltaþjálfari sem látinn var hætta, í DV. Brekkur í lífinu „Það er ósköp gott að vera hér og veðrið yfir- leitt gott. En það er hér eins og annars staðar - alltaf einhverjar brekkur í lifinu og flestar upp í móti.“ Þorvaldur Hreinsson, skip- stjóri í Ástralíu, (DV. Drungalegur Jón „Þess má geta að ef Jón (Leifs) virkilega ætlaði sér að vera drungalegur þá komst enginn annar með tærnar þar sem hann hafði hælana. Ann- ar kaflinn ber yfirskriftina Funébré og það er svona tón- list sem gæti komið við- kvæmu fólki í sjálfsmorðs- hugleiðingar." Jónas Sen í tónlistargagn- rýni, f DV. Fegurðarmat Landsvirkjunar „Ryðgaða stálplatan fyrir framan höfuðstöðvar Lands- virkjunar er lýsandi dæmi um fegurðarmat þessara manna. Sjálfsagt fá þeir tár í augun á hverjum morgni þegar þeir mæta til vinnu og horfa á þessa dýrð.“ Friðrik Erlingsson rithöf- undur, í Morgunblaðinu. í Þór Reynisson, nýráðinn stöðvarstjóri íslandspósts á Akranesi: Viðamikið starf sem spenn- andi er að takast á við „Mér líst vel á nýja starfið, nýr staður og starfsfólk og mikiö að gera,“ segir Þór Reynisson sem um áramótin tók við stöðu stöðvarstjóra íslandspósts á Akranesi af Margréti Haraldardóttur, sem tók við starfi afgreiðslustjóra íslandspósts í Hveragerði. Eftir hina hefðbundnu skólagöngu fór Þór einn vetur í Lýð- háskóla í Noregi, eftir það fór hann að mennta sig hjá Pósti og síma í Póst og símaskólanum og upp úr því fór hann á hin ýmsu tölvu- og stjóm- unamámskeið. Árið 1983 tók hann við stöðu fulltrúa stöðvarstjóra á Eg- ilsstöðum og tveimur árum seinna eða 1985 stöðu stöðvarstjóra Pósts og símá á sama stað og gegndi því til áramótanna 1998-1999 er hann tók við stöðu stöðvarstjóra íslandspósts á Akranesi. Maður dagsins „Mér líkaði vel á Egifsstöðum, það eina sem að ég setti fyrir mig var að það var of langt til höfuöborg- arinnar. Auðvitað á maður eftir að sakna góða veðursins á Egilsstöðum og frábærs samstarfsfólks. Það er nú líka gott veður hér á Akranesi og maður vonar að það verði eins gott og það var hér síð- astliðiö sumar - þá kom ekk- ert sumar fyrir austan." Þór segir að það sé viss ögrun að taka við nýja starf- inu á Akranesi. „Stöðin hér á Akranesi er mun stærri en á Egilsstööum auk þess urðu miklar rekstrarbreytingar um ára- mótin sem gera starfið mun viða- meira. Rekstrarlega séð heyra undir stöðina hér á Akranesi frá áramót- um Borgarnes, Búðardalur, Reyk- holt og Króksfjarðames þannig aö þetta er heilmikill breyting. Hjá ís- landspósti á Akranesi starfar 21 og er hluti þeirra eða 11 í 50% stöðu, það eru bréfberar. íslandspóstur hef- ur veitt góða, örugga og ódýra þjón- ustu og ætlar að gera það áfram en bara betur. Magn pósts hefur ekki minnkað þó svo að tölvupóstur og fax hafi komið til sögunnar. Það er mikill aukning í að fyrirtæki og ein- staklingar sendi út dreifibréf. Þegar pósturinn byrjaði sjá um flutning á pósti milli landshluta með næturakstri, þá skeði eitt skemmtilegt atvik fyrir austan. Bónda nokkimi á Jökuldal vantaði varahlut og pantaði vörvma frá umboði í Reykjavík rétt upp degi. Dag- inn eftir bankar landpósturinn hjá bóndanum og er með póstkröfuna: „Þetta getur ekki verið, ég pantaði þetta í gær.“ Aðaláhugamál Þórs er skíðaiðk- un: „Kannski verður maöur að fara á gönguskíðin þar sem það eru ekki margar brekkur héma. Þór er giftrn- Svölu Pálsdóttur, sem var skrifstofu- stjóri hjá Fellahreppi, saman eiga þau tvö böm: Alex Frey, 8 ára, og Auði Frey- dísi, 13 ára. -DVÓ Steinunn Ólafsdóttir og Ólafur Guðmundsson í hlut- verkum sínum. Málþing hljóðnandi radda í kvöld verður leikverkið Málþing hljóðnandi radda sýnt í Menningarmiðstöð- inni Gerðubergi. Leikverk- ið fjallar um litríkar mann- eskjur sem hafa deilt ein- angran sinni frá umheimin- um hver með annarri. Þær tínast inn í ókunnugt her- bergi og taka til við hvers- dagslega iðju sína - en eitt- hvað hefur breyst. Eitthvert ókunnugt afl í herberginu knýr þær til uppgjörs við sjálfar sig og lífið. Á mál- Leikhús þinginu skerast raddir þeirra í ókunnum tíma og rúmi. Leikarar era Steinunn Ólafsdóttir og Ólafúr Guð- mundsson. Handritshöfund- ur og leikstjóri er Ása Hlín Svavarsdóttir. Málþing hljóðnandi radda er sam- starfsverkefni Gerðubergs og leikhússins Bak við eyrað.. Þriðja stigs bruni Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði. Jeffrey Siegel leikur einleik með Sinfóm'uhljómsveitinni í kvöld. Sinfónían og Beethoven Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tónleika í kvöld kl. 20 í Háskólabíói. Á efnisskránni eru þrjú verk, öll eft- ir Beethoven. Fyrst leikur hljóm- sveitin Leonora forleikinn, síðan stígur á svið einleikari kvöldsins, Jeffrey Siegel, og leikur einleik í fimmta píanókonsertinum og hljóm- sveitin leikur síðan að lokum Sinfón- iu nr. 4. Stjómandi á tónleikunum er Rico Saccani, aðalhljómsveitarstjóri hljómsveitarinnar. Bandaríski píanóleikarinn Jeffrey Siegel nam píanóleik við Juiilard- Tónleikar tónlistarháskólann í New York og í London. Hann hefur komið fram sem einleikari með fremstu hljómsveit- um Bandaríkjanna og í Evrópu und- ir stjóm hljómsveitarstjóra á borð við Abbado, Boulez, Metha, Slatkin og fleiri. Siegel ver stórum hluta starfs síns sem listrænn stjómandi Mainly Mozart listahátíðarinnar í Phoenix, Arizona. Jeffrey Siegel gerir mikið að því að kynna börnum og unglingum tón- list á sérstökum tónleikum og í fyrramálið mun hann koma fram á tónleikum SÍ fyrir framhaldsskóla en þá leikur hann fyrir og spjallar við nemendur Menntaskólans í ReyKjavík. Bridge Hefur þú einhvern tímann velt því fyrir þér af hverju sérfræðingarnir fá alltaf fleiri slagi en meðaltalið? Eftir- farandi spil ætti að gefa góða hug- mynd um það, en það kom fyrir i tví- menningnum sterka í Bandaríkjun- um, Life Master Open Pairs. í sætum n-s voru Eddie Wold og George Rosen- kranz. Sagnir gengu þannig, vestur gjafari og allir utan hættu: * 54 * ÁK52 * Á2 * KG1084 * 9863 * - ♦ G1074 * D9762 * ÁK10 * G98643 * D985 * - vestur norður austur suður 1 * * 1 * 3 * 4 * pass 4 * p/h Austur spilaði út lauftvisti og sagn- hafinn Eddie Wold lagðist undir feld til að reyna að geta sér til um spilið. Þegar hann var búinn að hugsa sig um vissi hann nánast allt um spil a-v. Andstæðingamir notuðu regluna þriðja-fimmta út gegn litarsamning- um. Af þeim sökum vissi Wold að austur átti 5 lauf og vestur þarafleið- andi 3 í litnum. Wold gat einnig reikn- að út að spaðarnir skiptust 4-4 hjá andstöðunni, því vestur hefði opnað á spaða ef hann hefði átt fleiri en fjóra og austur hefði einnig sagt spaða við hjartasögninni ef hann hefði átt 5 eða fleiri. Þar af leiðandi átti vestur 4 spaða og 3 lauf, en hvað átti hann marga tígla? Sjö tíglar voru úti og vestur hlaut að eiga 3 þeirra. Kerfi a- v var standard og vestur hefði opnað á einum tígli ef hann hefði átt fjóra (eða fleiri). Úr því vestur átti 4 spaða og 3-3 í láglitunum hlaut hann að eiga öll hjörtun sem úti lágu. Af þeim sök- um gat Wold spilað tromplitinn upp á engan tapslag. Hann leyfði andstöð- mmi að eiga fyrsta slaginn á laufás- inn, en það var eini slagur varnarinn- ar. Fyrir 12 slagi í þessum samningi fékk Wold 68 stig af 77 mögulegum. ísak Öm Sigurðsson * DG72 * D107 * K63 * Á53

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.