Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 11
213 \J ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 {imenning ‘ *** Fílabeinsturn kenninganna Seint komast rýnendur til botns í því hvað í sálar- djúpunum leynist. Ótcd kenninga- smiðir hafa spreytt sig á að finna lykil að lífs- hamingju með ýmsum aðferðum sálgreiningar eða í það minnsta að létta mannfólkinu lífið með því að vísa því veg til sjálfshjálpar. í leikriti Nicholas Wright um sál- könnuðinn frú Klein, sem starf- aði í London á ár- unum upp úr 1930, er ekki gefin ýkja uppörvandi mynd af því hvert leitin leiddi frumkvöðla vís- indagreinarinnar. Frúin hafði að þvi er sagt er kynnst kenningum Freuds þegar hún var sjálf í sálgreiningu í heimaborg sinni Búdapest og.fór upp úr því að mennta sig í sálkönn- un - einkum bama. Hún greip til þess sem nærtækast var og fylgdist grannt með eigin afkvæmum, syni og dóttm-. Þau voru skoð- uð og skilgreind, viðbrögð þeirra vandlega skrásett og kenningar smíðaðar út frá því sem frúin taldi sig verða áskynja um sálar- líf þeirra. Þetta hafði auðvitað djúpstæð áhrif á blessuð börnin sem vissu ekki hvort þau ættu að hata sálkönnuðinn eða elska móðurina. rækt við að þróa og lýsa í verkinu. Út- lit hennar smellpassaði við týpuna. Steinunn fer vel með hlutverk Melittu, sýnir heftingu og innibyrgð- ar sálarflækjur sem í mörgum tilfell- um má rekja til „meðferðar" móður- innar. Paula stendur aðeins til hliöar i fiam- vindunni, þó að hlutverk hennar sé mikil- vægt. Hún verður óbeint hvatinn að því að uppgjör fer ffam og eins konar niðurstaða fæst. Guðbjörg vinnur vel og hófsamlega úr persónulýsingunni, svo langt sem hún nær og flytur textaim vel. Leikritið Frú Klein er stofudrama þar sem allt byggist á samspili persónanna og Inga Bjarnason leikstjóri velur hófsama leið með þungri undiröldu til að koma til- finningum og samskiptaflækjum til skila. Frú Klein skoðaði eigin afkvæmi í þágu vísindanna. Margrét Ákadóttir í hlutverki sínu. ákvað sonur hennar að hann gæti ekki lifað leng- ur? Ástæðan hlýtur að finn- ast ef lífshlaup hans og sambandið við móðurina eru krufin með réttrnn hætti. Þessi sára reynsla skal með góðu eða illu nýtt í þágu vísindanna. Nóttin Dóttirin og aðstoðarkonan eru leiknar af Steinunni Olafsdótt- er vettvangur átaka og upp- ur °9 Guðbjörgu Thoroddsen. DV-myndir E.ÓI. gjörs og það er ekki fyrr en Leiklist Auður Eydal Þegar leikritið gerist árið 1934 hafa frú Klein borist fréttir af því að sonurinn Hans hafi látist í Ungverjalandi, sennilega framið sjálfsmorð. Hún situr sem endranær innilokuð í filabeinstumi kenninga sinna og gefur sjálfri sér engin grið. Hvers vegna upplýsist að dauði sonarins hafi verið slys sem sú gamla bognar og getur gefið sorg- inni eðlilega útrás. Þó fer það hryllilega í taugamar á henni því að slys gerast af til- viljun og tilviljanir er ekki hægt að setja í skema. Margrét Ákadóttir leikur frú Klein, Steinunn Ólafsdóttir leikur Melittu og Guð- björg Thoroddsen aðstoðarkonuna Paulu. Á frumsýningu var textameðferð ekki orðin nógu ömgg og setti það hik á framvinduna sérstaklega framan af. Margrét nær annars góðum tökum á ólíkindatólinu frú Klein, sem er svarkur hinn mesti inn á milli er slær þess utan ýmist úr eða í. Persónan er í miðdepli allan tímann - hvort sem hún er á sviðinu eða ekki - enda óvenjulegur karakter sem höfundur leggur sýnu mesta Fræðilegur þáttur verksins höfðar ef til vill mismikið til áhorfenda og ýmislegt í „kenn- ingunum" virkar hálf hlálega í dag. Spurn- ing er hvort umræðan um þær heldur uppi svo löngu verki þó að fróðlegt sé að fá innsýn i starf frumkvöðl- anna. Sýningin tekur sig vel út á sviði Iðnós og allur sviðsbúnaður svo og búningar era vel við hæfi. Hvunndagsleikhúsið sýnir í Iðnó: Frú Klein Höfundur: Nicholas Wright Þýðing: Sverrir Hólmarsson Lýsing: Alfreð Sturla Böðvarsson Búningar: Áslaug Leifsdóttir Leikstjórn og hönnun sviðsmynd- ar: Inga Bjarnason Frumflutningur hérlendis á verki eftir Mozart Wolfgang Amadeus Mozart á afmæli á morgun og í tilefni af því verða haldnir kammertónleikar í hliðarsal Hallgrímskirkju með verk- um hans kl. 20.30 annað kvöld. Þar verður meðal annars fluttur þáttur fyrir strengi og blásara úr verki sem Mozart lauk ekki viö að semja og hefur ekki verið leikið hér á landi fyrr. Einnig verður flutt sónata fyrir pí- anó og fiðlu K 301, píanótríó K 502 og divertimento fyrir blásara. Flytjend- ur eru Brjánn Ingason, Kjartan Ósk- arsson, Krystyna Cortes, Laufey Sig- urðardóttir, Richard Talkowsky, Sig- urður Snorrason og Þórunn Marín- ósdóttir. Trúarbrögð Sama Odd Mathis Hætta, þjóðfélagsfræðingur og dósent við háskólann í Finnmörku, heldur fyrirlestur í Norræna húsinu annað kvöld um trúarbrögð og siði Sama. Fyrirlesturinn er í tengslum viö Samaviku sem nú stendur yfn- í Norræna húsinu og hefst kl. 20. Á föstudagskvöldið heldrn- Odd annan fyrirlestur og talar þá um pólitíska stöðu Sama og ; stofnanir sem þeir hafa sett á laggimar til að styrkja stöðu sína og kynna menningu sína og þjóðhætti. Á eftir þeim fyr- irlestri verða umræður þar sem rætt verður um réttinn til hálendisins, sem einnig er hitamál meðal Sama. Haraldur Ólafsson prófessor situr við pallborðið ásamt fyrirlesara en Kjell Gksendal sendikennari stýrir umræðum. Við minnum lika á myndlistarsýningamar í hús- inu í tilefni af Samaviku, Forboðnar myndir Maj Lis Skaltje og ljósmyndasýninguna Samískar mynd- ir í anddyri hússins. í sýningarsölum stendur yfir sýningin Sjónhverfingar með verkum eftir listakon- umar Maj Lis Skaltje, Marju Helander, Brittu Marakat Labba, Merju-Alettu Ranttila og Ingunni Utsi. Á kaffistofunni er boöið upp á samíska rétti. Færeysk samtímalist á Akureyri Sýning á færeyskri samtímalist var opnuð í Listasafninu á Akureyri á laug- ardaginn, sama sýning og var á Kjar- valsstöðum fyrir jól. 13 færeyskir lista- menn sýna þar verk sín undfr yfirskrift- inni „Framsýning: Feroysk nútíðarlist“. Þar má sjá mörg framúrskarandi verk, m.a. eftir Astrid Andreasen, Bárð Jákupsson, Hans Pauli Olsen sem á með- fylgjandi mynd, „Hjördísi og skuggann", Torbjörn Olsen og Ingálv av Reyni. Sýningin stendur tfl 28. febrúar og safnið er opið daglega nema mán. kl. 14-18. Framúrstefnudjass Hilmar Jensson, gítar- leikari og tónhöfundur, hefur verið iðinn við að kenna íslenskum eyram að taka við óheföbund- inni tónlist. í þvi skyni hefúr hann iðulega flutt vini sína frá New York hingað og einn þeirra, Andrew D’Angelo, alt- saxisti og bassaklar- ínettuleikari, lék með Hilmari og félögum í Kaffileikhúsinu síðast- liðið fimmtudagskvöld. D’Angelo var ekki að koma hingað í fyrsta sinn. Hann lék á plötu Hilmars, Dofinn, sem kom út 1995, og markar sú plata innreið framúr- stefiiudjassins í íslenskt tónlistarlíf. Aðrir með- leikarar Hilmars í þetta sinn vora þeir Matthías M. D. Hemstock slag- verksleikari og Óskar Guðjónsson tenóristi Hilmar Jensson. sem báðir era hagvanir í þessari tegund tónlistar. Eftir hlé bættust þau Eyþór Gunnarsson pí- anisti og Bryndís HaOa Gylfadóttir selló- leikari í hópinn. Þótt Eyþór sé ekki fasta- maður í þessum hópi er hann ýmsu vanur í djassi og rútíneraður spunamaður. Öðru máli hygg ég að gegni um Bryndísi HöOu sem ég hef ekki heyrt spyrta við djass eða spuna fyrr og er þekkt fyrir aðra nálgun að tónlistinni. Það fór vel á að leika íslenskan framúrstefnudjass meðan Myrkir músíkdagar stóðu yfir og áhorfendur sátu dolfallnir meðan þau splluðu: Eyþór Gunnarsson, Bryndís Halla Gylfadóttir, Matthfas Hemstock, Andrew D’Angelo, Óskar Guðjónsson og tónskáldið, Djass Ársæll Másson Efnisskráin var einföld. Fyrir hlé vora fjögur styttri lög leikin, fyrst „Andrew’s Ditty“, stutt stef í tveimur myndiun, og síðan tvö lög af plötu Hilmars, „Dofinn" og „Von“. Búlgarskt þjóðlag rak endahnút- inn á fyrri part dag- skrárinnar. Eftir hléð kom síð- an aðalverk tónleik- anna, „KerfOT eftir Hilmar Jensson. Verkið er byggt upp af niðumegldum, taktföstum stefium sem ramma inn spunakaflana. Hljóðfærin skiptast þá oft í tvo hópa sem spOa hvor sitt stef. Iðulega skap- aðist dramatísk spenna í spunanum og afltaf var eitt- hvað að gerast - áheyrendur fylgd- ust með dolfallnir á DV-mynd GVA meðan bjórinn hitn- aði og kaffið kólnaði á borðinu. Hljóðfæra- samsetningin var vel heppnuð og áhöfnin skflaði öflu sínu framúrskarandi vel. Von er á þessu verki Hilmars á plötu von bráð- ar í útgáfuröð þeirra Smekkleysumanna, „Frjálst er í fiallasal". Miðað við þann flutning verksins sem heyrðist í Kaffileik- húsinu verður sú plata eiguleg. Setningafræði Mál og menning hefur gefið út Hefð- bundna setningafræði handa fram- haldsskólum eftir Ragnheiði Briem í tveimur bókum, lesbók og verkefna hefti. í lesbókinni era lykOhugtök setningafræðinnar skýrð með fiöl- mörgum dæmum og gefm hagnýt ráð tfl að greina setningahluta. í ; verkefnahefti era fiölbreyttar æf- ! ingar og verkefni við hvem kafla lesbókarinnar. Woody verri en haldið var Ný ævisaga Woodys Allen eftir John Baxter (gef- in út af Harper Collins) reynir aö grafast fyrir um sambandið milli ævi söguefnisins og listar og þykir velta við flestum steinum I lífi hans. Og skyldi þá vera einhver munur á Woody vera- leikans og Woody bíómyndanna? Baxter segir að Woody sé ekki nærri því eins feiminn og klemmdur í alvöranni og á tjaldinu, en hann sé í staðinn mun leiðinlegri og ógeöfelldari persóna í veruleikanum. í bíómyndunum er hann sjálfhverfur en i veruleikanum gengur sjálfselska hans út yfir allan þjófabálk. Hann er snöggur að reka leikara ef eitthvað kemur upp á og kemur illa fram við ástkonur sínar og sambýliskonur sem era orðnar þó nokkrar síðan hann gifti sig fyrst Harlene Rosen 1956, þá 21 árs gamall. Hann laðast að unglingsstúlk- um og Baxter gerir því skóna að hann geti í raun og vera ekki upplifaö þá ást milli fólks sem hann fiall- ar þó stundum svo fallega um i myndunum sínum. Eftirlikingin er sem sagt betri en frammyndin. Umsjón Sllja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.