Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.1999, Síða 3
MÁNUDAGUR 15. MARS 1999
23
DV
íþróttir
Lasse
varö
efst-
ur í
stiga
keppni
karla.
Hann
hlaut alls
1465 stig og
vann mjög
nauman sig-
ur. Kjetil
Andre
Aamodt frá
Noregi varð i
2. sæti með
1442 stig.
Hermann
Maier frá
Austurríki
varð þriðji
með 1307
stig.
-SK
- sigurinn tekinn af Lewis í einu
mesta boxhneyksli sögunnar
Lennox Lewis gerði
Holyfieid lífið leitt og kom
inn mun fleiri höggum en
Holyfield. Staurbiindir
dómarar voru þeir einu
sem komu ekki auga á yf-
irburði Bretans og bar-
daganum iyktaði með
Jafntefli. Á myndunum til
hliðar og hér að ofan sést
Lennox Lewis þjarma að
Holyfield. Reuter
Holyfield
lyfti
ekki
einu
sinni
höndum,
reyndi
ekki einu
sinni að
hafa áhrif á
dómarana
eins og hnefa-
leikara er hátt-
ur.
Hættir Evand-
er Holyfield?
„Það kemur bar-
dagi eftir þennan. Ef
hann vill annan bar-
daga fær hann annan
bardaga," sagði Holyfield
eftir slaginn.
Hann tjáði sig lítið um
bardagann sjálfan af skiljan-
legum ástæðum. Alveg
kemur til greina að
Holyfield hætti á
toppnum
-SK
Lennox Lewis, hnefaleika-
kappi frá Bretlandi, hlýtur að
vera niðurbrotinn maður eftir
bardagann við Evander Holyfield
um helgina. Lewis lúskraði ræki-
lega á heimsmeistaranum en
rænulausir dómarar komu í veg
fyrir að Lewis næði að vinna
heimsmeistaratitilinn og rændu
Bretann titlinum. Verður dóm-
gæslan í þessum skemmtilega og
harða bardaga að teljast til eins
mesta hneykslis í sögu hnefa-
leikanna og er þó af nógu að
taka.
„Ég var rændur“
„Ég var rændur. Ég réð ferð-
inni í öllum tólf lotunum. Ég trúi
ekki þessari niðurstöðu dómar-
anna. Ég vann þennan bardaga
og það vita allir nema dómaram-
ir tveir sem dæmdu mér í óhag.
Ég skil ekki þeirra niðurstöðu og
er alveg niðurbrotinn maður,“
sagði Lennox Lewis eftir bardag-
ann og bætti við: „Ég er heims-
meistari í þungavigt og það veit
allur heimurinn sem fylgdist
með bardaganum hér og í sjón-
varpi.
Dómarahneyksli
Þegar úrskurður dómaranna
þriggja hafði verið lesinn upp
púuðu áhorfendur látlaust og sjö
þúsund Bretar sem fylgdust með
bardaganum í New York létu
ófriðlega.
Niðurstaða dómaranna var
auðvitað hreint hneyksli og til
vansa fyrir þessa skemmtilegu
íþrótt.
Eugenia WiUiams, dómari frá
Bandaríkjunum, fékk út lokatöl-
umar 115-113, Holyfield í vil.
Stanley Christoudoulou frá Suð-
ur-Afríku taldi að Lewis hefði
sigrað, 116-113. Breski dómarinn
Larry O’Connell skilaði úrskurði
upp á 115-115. Úrskurður
O’Connells er auðvitað hneyksli
og úrskurður bandarísku kon-
unnar talar sínu máli. Verða er-
lendir hnefaleikarar sem berjast
um titla viö bandaríska meistara
í Bandaríkjunum að rota
andstæðinginn ef þeir eiga að fá
eðlileg úrslit í bardögum sínum.
Miklir yfirburðir
Til marks um mikla yfirburði
Lennox Lewis má nefna að hann
sló Evander Holyfield 348 alvöra-
högg í bardaganum en Holyfield
sló 130 sambærileg högg í lotun-
um tólf.
Greinilegt var á Holyfield eftir
bardagann að honum var bragð-
ið. Þegar lokaflautið gall fagnaði
Lewis gíf-
urlega en
Golf:
Kristinn varð
í 29. sæti
Kylfingurinn Kristinn G. Bjamason
varð í 29. sæti á móti atvinnumanna í
golfi sem lauk í Austin í Texas í gær.
Kristinn lék 54 holur á 220 höggum, 4
höggum yfir parinu sem er góður árang-
ur. Par vallarins var 72 högg. Kristinn
lék fyrsta hringinn á 71 höggi, þann
næsta á 73 höggum og lokahringinn á 76
höggum.
-SK
ÞiN FRISTUND
-OKKAR FAG
V
INTER
SPORT
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is
Þeir Tiger Woods og Mike „Fluff“ Cowan eiga varla eftir að ganga saman
eftir golfbrautum í framtíðinni. Símamynd Reuter
Tiger Woods rak
„fimmta bítilinn"
Bandariski kylfingurinn Tiger Woods hefur verið mikið í fréttum undanfarið. Á
dögunum gerði hann sér lítið fyrir og rak kylfusvein sinn til margra ára en sá heitir
Mike „FlufT’ Cowan. Kylfusveinninn er mjög þekktur og vinsæll og fullyrt er að „Ti-
gemurn” hafi fundist kylfusveinninn njóta of mikillar athygli á sinn kostnað.
Tiger Woods segir sjálfur að hann eigi Cowan, sem oft hefur verið nefndur fimmti
bítillinn vegna útlits sins, mikið að þakka og hann vonist eftir vinskap hans áfram
þrátt fyrir brottreksturinn. Ósætti þeirra „félaga" varð til þess að Cowen fékk
reisupassann. Á dögunum réð Woods nýjan kylfusvein og heitir sá Steve Williams.
Hann hefur verið kylfusveinn hjá Raymond Floyd síðustu tólf árin en bar áður kylf-
urnar fyrir Greg Norman. Williams segist varla trúa því enn að Tiger Woods hafi haft
samband við sig að fyrra bragði. „Ég hef ekki áttað mig á þessu enn. Ég hef ekkert
sofið í þrjár nætur. Ég mun þó öragglega ná þessu fljótlega og ég hlakka svo sannar-
lega til að fara að vinna með besta kylfingi
heims í dag,“ sagði Williams. Clr
Evander Holyfield/Lennox Lewis - jafntefli:
Tekjur bestu ökumann-
anna í Formula 1
kappakstrinum eru eng-
in hungurlús. Michael
Schumacher er sá
tekjuhæsti meö um 230
miíljónir króna fyrir
hverja keppni. Þá má
geta þess að
Schumacher fær 750
milljónir króna á ári
fyrir auglýsingu á húfu
sinni.
Thomas Stangassinger
frá Austurríki sigraði í
síðustu svigkeppni
karla í heimsbikarnum
á skíðum um helgina en
keppt var á Spáni. Jure
Kosir frá Slóveníu varð
annar. Kristinn
Björnsson var ekki á
meðal keppenda vegna
þess hversu slakur hann
var á síðasta móti.
Alexandra Meissnitzer
frá Austurríki sigraði í
heildarstigakeppni
kvenna i heimsbikarn-
um á skíðum sem lauk
um helgina. Hún hlaut
1672 stig og vann með
miklum yfirburðum.
Önnur varð Hilde
Gerg frá Þýskalandi
en hún hlaut 1179
stig. Renate
Götschl frá Aust-
urriki varð
þriðja með 1036
stig, Martina
Ertl, Þýska-
landi, fjórða
með 987 stig og
sænska stúlkan
Pernilla Wi-
berg fimmta
með 924 stig.
Norðmaður-