Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 13 Fréttir Þróttur R. - Leiknir R. á gervigrasinu í Laugardal, kl. 18.30 ÍR-KR á gervigrasinu í Laugardal, kl. 20.30 Fylkir—Valur á Leiknisvelli, kl. 18.30 Léttir- Fram á Leiknisvelli, kl. 20.30 Knattspyrnupáð Reykjavíkur Eyjafjöröur: Frjálsíþrótta- kona best DV, Dalvík: Sigurlaug Níelsdóttir, frjálsíþrótta- maður úr Umf. Samheijum í Eyjafjarð- arsveit, var kjörin íþróttamaður UMSE, en kjörinu var lýst á ársþingi UMSE sem fram fór nýverið. Sigurlaug Maut 128 stig, en Björgvin Björgvins- son, skíðamaður frá Dalvík, varð í 2. sæti með 125 stig. í þriðja sæti varð svo Sveinn Brynjólfsson, skíðamaður frá Dalvík, með 99 stig. Einnig voru afhentir afreksbikar, sem gefnir voru til minningar um Þór- odd Jóhannsson, fyrir bestu afrek ung- linga 15-18 ára. Þá hlutu Sara Vil- hjálmsdóttir, Ungmennafélagi Svarf- dæla, og Birkir Öm Stefánsson, Æsk- unni. Þeir sem útnefndir vom í einstök- um greinum vora eftirtaldir: Hestaíþróttir: Þór Jónsteinsson, Hesta- mannafél. Funa. Frjáfsar íþróttir: Sigurlaug Niefsdóttir, Umf. Samherjum. Skák: Guðmundur F. Hansson, Umf. Svarfdæla. Skíði: Björgvin Björgvinsson, Skíðafélagi Dalvíkur. Knattspyma: Atli Rúnarsson, Umf. Svarf- dæla. Sund: Þorgerður Sveinbjamardóttir, Sundfél. Rán. Golf: Haukur Snorrason, Golfkl. Hamri. Þá vom þrír íþróttamenn tilnefndir af stjóm UMSE: Ómar Freyr Sævarsson, Umf. Svarfdæla. Birkir Öm Stefánsson, Umf. Æskunni. Sveinn Brynjólfsson, Skíðafélagi Dalvík- ur. hiá Guðbjörn Charlesson umdæmistjóri, Halldór Blöndal samgönguráðherra og Þorgeir Pálsson flugmálastjóri voru við- staddir endurvígslu flugstöðvarinnar á ísafirði í síðustu viku. DV-mynd Hörður Flugstööin á ísafirði endurvígð: Með eitt hæsta hlut- fall flugfarþega - segir Þorgeir Pálsson flugmálastjóri Frá undirritun samkomulagsins. Neðri röð frá vinstri: Birgir Jónsson, svæðisstjóri Landsbanka íslands hf. á Akranesi, Gfsli Gíslason bæjarstjóri, Guðni Tryggvason, formaður atvinnumálanefndar, Gunnar V. Engilbertsson, framkvæmdastjóri Landsbankans - Framtaks. Efri röð frá vinstri: Björn S. Lárusson, markaðs- og at- vinnumálafulltrúi, Jón Pálmi Pálsson bæjarritari, Sveinn Kristinsson, forseti bæj- arstjórnar Akraness, Gunnar Sigurðsson, bæjarráði Akraness. DV-mynd Daníel Akranes: Samstarf um atvinnuþróun DV, Akranesi: Akraneskaupstaður, Landsbankirm - Framtak hf. og útibú Landsbanka ís- lands á Akranesi skrifuðu undir samning 26. mars, sem gerir ráð fyrir því að treysta samstarf þessara aðila á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar í atvinnulífmu á Akranesi. Samningsaðilar búa yfir sérstakri þekkingu á atvinnuþróun og nýsköp- un í atvinnulífínu og það er markmið samkomulagsins að auka nýtingu á þekkingu og reynslu samningsaðila með auknu samstarfi. Landsbankinn - Framtak hf. og Landsbanki Islands hf. búa yfir fag- legri þekkingu og reynslu á mati á fjárfestingarkostum og rekstrarein- ingum út frá arðsemisjónarmiðum. Atvinnumálanefnd Akraneskaupstað- ar býr yfir góðri þekkingu á atvinnu- lífinu á Akranesi. Samningsaðilar hafa með sér samráð um þau verkefni sem upp koma hveiju sinni og ákveð- ið er að beina þeim í þann farveg sem samkomulag þetta gerir ráð fyrir. -DVÓ Met á met ofan á Oddsskarði Það hafa verið sett met á met ofan hvað skíðaiðkun viðkemur á skíða- svæði Austfirðinga á Oddsskarði í vetur og vor. Þúsundir manna hafa komið með skíði sín og rennt sér þar. Um páskana voru þar á þriðja þúsundið á fóstudaginn langa. Það er þó ekki aðeins fólk með skíði sem kemur í íjallið. Fjöldi fólks hefur notið þar veðurblíðunnar og ýmsir með bamavagna með sér. Skíða- deildfrnar í Fjarðabyggð hafa staðið sig vel, bæði í sambandi við mót og að hvetja fólk til skíðaiðkunar. -ÞH Endurvígsla á flugstöðvarbygg- ingunni á ísafiarðarflugvelli, sem upphaflega var byggð 1967, fór fram 9. apríl. Búið er að gera gagngerar endurbætur á flugstöðinni og stór- bæta aðstöðu fyrir afgreiðslu far- þega. Viðstaddir athöfnina voru m.a. þingmenn kjördæmisins, Þor- geir Pálsson flugmálastjóri og Halldór Blöndal samgönguráðherra. Þá notaði flugráð þetta tækifæri til að halda flugráðsfund á ísafirði, en slíkur fundur hefur einu sinni áður verið haldinn á Vestfiörðum og þá í Bolungarvík. Farþegar í innanlandsflugi voru tæp hálf milljón á síðasta ári og þar af fóru hátt í 60 þúsund farþegar um ísafiarðarflugvöll Segja má að þessi hluti landsins hafi nýtt sér flugið meira en nokkrir aðrir landshlutar frá upphafi innanlandsflugsins, þrátt fyrir að aðstæður séu að sumu leyti erfiðar. Hlutfall flugfarþega af íbúafiölda er hvergi hærra en á norðanverðum Vestfiörðum að Vest- mannaeyjum undanskildum. Þetta sýnir vel hve mikilvægu hlutverki þessi samgönguþáttur gegnir fyrir norðanverða Vestfirði, sagði Þor- geir Pálsson flugmálastjóri í ræðu við þetta tækifæri. Heildarkostnaður við endurbygg- ingu flugstöðvarinnar var rétt rúm- ar 82 milljónir króna sem er talsvert hærra en upphaflega var gert ráð fyrir. Skýrist aukinn kostnaður að mestu af ófyrirséðum kostnaði við endurbæturnar. Teiknistofan í Ár- múla hannaði endurbætumar, en Gísli Halldórsson arkitekt hannaði upphaflegu bygginguna sem byggð var 1967. Verkfræðistofan VST ann- aðist verkfræðivinnu og aðalverk- taki var Naglinn ehf. sem naut að- stoðar fiölda undirverktaka á ísa- firði. Eftirlit með framkvæmdum höfðu þeir Jóhann Á. Jónsson, framkvæmdastjóri flugvallasviðs, og Guðbjöm Charlesson, umdæmis- stjóri á Vestfiörðum. Að undanfórnu hefur verið í at- hugun að koma upp búnaði til næt- urflugs um ísafiarðarflugvöll sem mikil áhersla hefur verið lögð á af hálfu heimamanna. í dag er mögu- legt að taka á loft frá ísafiarðarflug- velli í myrkri, en nokkuð skortir á að hægt sé að heimila lendingar far- þegavéla eftir sólsetur. Þá er fyrir- hugað að endurnýja slitlag á ísa- fiarðarflugvelli og byggja nýjan flug- turn. -HKr. Aðalfundur Samtaka um tónlistarhús verður haldinn þriðjudaginn 27. apríl nk., kl. 20.00, í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, 4. hæð. Dagskrá samkvæmt félagslögum. Stjórn Samtaka um tónlistarhús Reykjavíkurmótið í knattspyrnu í kvöld leika: Fjölmenni í glæsiveðri á Oddsskarði. DV-mynd Þórarinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.