Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Side 3
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999
25
DV
NBA-DEILDIN
Aðfaranótt laugardags:
Washington-Chicago .......87-70
Thorpe 16, Strickland 13, Richraond 12 -
Kukoc 17, Larue 13, Brown 9.
Toronto-Cleveland.........90-91
Christie 22, Carter 17, Wallace 16 -
Kemp 23, Butter 14, Henderson 13.
Atlanta-Orlando...........91-79
Blaylock 30, Smith 20, Crawford 15-
A Hardaway 16, Armstrong. 15, Strong 10.
Boston-Miami .............82-81
Walker 29, Potapenko 14, Price 13 -
Hardaway 19, Brown 16, Mouming 14.
Philadelphia-Indiana.....93-83
Iverson 26, Geiger 22, Ratliff 15 -
Rose 28, Miller 21, Smits 13.
Detroit-New York..........80-71
Hunter 23, Hill 16, Dumars 12 -
Houston 23, Thomas 13, Sprewell 10.
Minnesota-Vancouver .... 89-75
Smith 26, Mitchell 19, Robinson 15 -
Rahim 24, Mashbum 18, Parks 8.
Milwaukee-Charlotte......94-95
Allen 21, Robinson 14, M.Crnry 11 -
Jones 23, Phills 20, Campbell 19.
San Antonio-Portland .... 81-80
Duncan 20, Robinson 20, Elliot 15 -
Wallace 23, Rider 14, Sabonis 10.
Phoenix-Dallas...........92-85
Kidd 24, Robinson 21, Garrity 20 -
Nowitzki 29, Pack 17, Trent 15.
Golden State-LA Clippers . . 83-86
Jamison 17, Caffey 14, Starks 13 -
Nesby 16, Piatkowski 12, Douglas 10.
Seattle-New Jersey......91-121
Payton 29, Hawkins 21, Schrempf 12 -
Marbury 18, Burell 18, Van Hom 16.
Aðfaranótt sunnudags:
New York-Toronto..........90-93
Sprewell 22, Houston 17, Johnson 15 -
Carter 21, Willis 17, Christie 15.
Cleveland-Charlotte......82-90
Kemp 23, Butler 18, Henderson 12 -
Wesley 24, PhUls 23, Brown 16.
Dallas-Portland .........94-102
Trent 24, Finley 24, Nowitzki 17 -
Anthony 23, Sabonis 22, Grant 14.
Utah-LA Lakers ..........109-93
Malone 27, Homacek 20, Russell 14 -
Shaq .29, Fox 24, Bryant 17.
Sacramento-Denver .......119-97
Williamson 29, Webber 24, Williams 20 -
McDyess 29, Washington 15, Fortson 14.
-GH/VS
Blcmd í poka
Aron Kristjánsson
skoraði 3 mörk fyrir
Skjern þegar liðið
lagði Kolding, 23-18, í
fyrsta úrslitaleik lið-
anna um danska
meistaratitilinn i
handknattleik á laug-
ardaginn. Liðin mæt-
ast aftur í Kolding næsta laugardag
og þá getur Skjern tryggt sér titilinn.
Július Jónasson og félagar í St. Ot-
mar töpuðu fyrir Suhr, 29-23, í öðrum
úrslitaleik liðanna um svissneska
meistaratitilinn í handbolta í gær.
Staðan er 1-1 og liðin mætast i hrein-
um úrslitaleik á heimavelli St. Otmar
á miðvikudagskvöld.
Barcelona varð Evrópumeistari í
handknattleik karla á laugardag með
því að vinna yfírburðasigur á Badel
Zagreb, 29-18, í seinni úrslitaleik lið-
anna á Spáni. Fyrri leikurinn í Króa-
tíu endaði með jafnteíli, 22-22. Þetta
er í þriðja skipti sem Barcelona vinn-
ur Badel í úrslitum keppninnar.
Ademar Leon vann Caja Cantabria,
32-23, í seinni úrslitaleik spænsku
liðanna 1 Evrópukeppni bikarhafa
karla. Caja hafði unnið fyrri leikinn,
20-19.
Flensburg vann glæsilegan útisigur
á Ciudad Real á Spáni, 21-26, í seinni
úrslitaleik liðanna í borgakeppni
karla. Liðin höfðu áður gert jafntefli í
Þýskalandi, 27-27. Danirnir Christ-
ian Hjermind og Morten Bjerre
skomðu 7 mörk hvor fyrir Flensburg.
Fanney Rúnarsdóttir og stöllur
hennar í Tertnes töpuðu, 29-26, fyrir
Viborg í Danmörku í seinni undanúr-
slitaleik liðanna í EHF-bikarkeppni
kvenna. Viborg hafði unnið fyrri leik-
inn í Noregi, 36-25.
Anja Andersen skoraði 11 mörk fyr-
ir Bækkelaget frá Noregi sem vann
Metz frá Frakklandi, 28-22, í undan-
úrslitum Evrópukeppni bikarhafa
kvenna. Liðin höfðu áður skilið jöfn i
Frakklandi, 17-17. VQ
íþróttir
Hafdís Hinriksdóttir, Þórdís Brynjólfsdóttir, Hildur Pálsdóttir, Hildur Erlingsdóttir fyrirliði, og Gunnur Sveinsdóttir fagna hér sigrinum á Fram
og um leið sæti í úrslitunum um íslandsmeistaratitilinn gegn Stjörnunni. Fyrsti ieikurinn fer fram í Garðabæ á miðvikudaginn. Mynd ÞÖK
sæluvímu
FH-konur léku sama leik og karlarnir og skelltu Fram
„Ég er í sæluvlmu og fmn ekki
fyrir þreytu. Ég var sannfærð um
það allan tímann að við myndum
taka þetta ef við myndum spila góða
vörn,“ sagði Þórdís Brynjólfsdóttir
eftir að lið hennar, FH, hafði slegið
bikarmeistara Fram út í undanúr-
slitum íslandsmótsins á laugardag,
24-26.
Leikurinn var frábær skemmtun.
FH-stúlkur, sem unnu annan leik-
inn með 10 marka mun, komu gríð-
arlega einbeittar til leiks, léku vörn-
ina framarlega og tóku fast á móti
Framstúlkum sem virtust ekki eiga
von á þessari miklu mótspymu.
Sóknarleikur FH var hraður og það
var skemmtilegt að sjá þessa ungu
leikmenn leika af jafhmiklum aga
og skynsemi og þær gerðu gegn
jafnreynslumiklu liði.
Sjálfstraustið í lagi
Framarar gerðu alltof mikið af
sóknarmistökum í fyrri hálfleik
sem FH-ingar voru fljótar að refsa
þeim fyrir. En Framarar bitu í
skjaldarrendur í seinni hálfleik og
minnkuðu muninn í eitt mark,
19-20, þegar 10 mínútur vom til
leiksloka. Flestir töldu að nú væri
reynsla og seigla Fram að skila sér
en Þórdís Brynjólfsdóttir var á öðm
máli, skoraði þá tvö gríðarlega mik-
ilvæg mörk og efldi sjálfstraustið í
FH-liðinu sem tryggði sér sann-
gjarnan sigur.
„Það var eins og við værum ekki
tilbúnar í þennan leik, þetta var
bara lélegt. Viö klikkuðum á vörn-
inni og fáum alltof mikið af mörk-
um á okkur. Við klámðum ekki
vamarleikinn og það er þar sem
skilur á milli í dag. Við getum því
aðeins sjálfum okkur um kennt. Lið
sem klikkar á svona rosalega mörg-
um hraðaupphlaupum og klúðrar
boltanum, það á ekki að vinna leik.
FH-liðið er á mikilli uppleið og ég
tel að Stjaman geti átt von á hörku-
leikjum," sagði Arna Steinsen, leik-
maður Fram.
Gerum okkar besta
„Við vissum að við gætum þetta
og höfðum trú á okkur. Við vissum
að þessi leikur yrði erfiðari heldur
en annar leikurinn en við erum
með yngra og sprækara lið heldur
en þær og emm sneggri. Við höfum
aldrei leikið úrslitaleik. Stjaman
hefur reynsluna fram yfir okkur.
Þær eru stóra liðið en við litla liðið,
en við munum gera okkar besta,“
sagði Drifa Skúladóttir sem átti frá-
bæran leik í liði FH ásamt Þórdísi
og Björk Ægisdóttur.
Framkonur vom of seinar í gang
og náðu ekki að gera FH skráveifu,
þrátt fyrir að Marina Zoueva léki.
Hún var með slitin liðbönd en stóð
sig vel ásamt Jónu Björgu Pálma-
dóttur.
-ih
Fram (7)24
FH (12) 26
I- 0,2-1,2-7, 5-7,6-8, 6-10, (7-12), 8-13,
II- 16, 17-19, 19-20, 19-22, 21-26, 24-26.
Mörk Fram: Marina Zoueva 10/2,
Jóna Björg Pálmadóttir 6, Díana Guð-
jónsdóttir 3, Arna Steinsen 2, Guðríð-
ur Guðjónsdóttir 2.
Varin skot: Hugrún Þorsteinsdótt-
ir 15/1.
Mörk FH: Drífa Skúladóttir 9, Þór-
dis Brynjólfsdóttir 9/2, Björk Ægis-
dóttir 6, Gunnur Sveinsdóttir 2.
Varin skot: Jolanta Slapikiene 12.
Brottvísanir: Fram 6 og FH 6.
Dómarar: Gunnar Viðarsson og
Stefán Amaldsson, góðir.
Áhorfendur: 220
Maður leiksins: Þórdís Brynj-
ólfsdóttir, leikstjórnandi FH, átti
frábæran leik og sýndi ótrúlega
mikinn kjark þegar hún skoraöi
tvö mikilvæg mörk á örlaga-
stundu.
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
V
Bíldshöföa 20 • 112 Reykjavík « 510 8020
• www.intersport.is
Bestir í taekwondo
Þessir þrír piltar sigruðu í þremur elstu flokk-
unum á íslandsmótinu í taekwondo sem fram fór í
Fjölnishúsinu um helgina. Frá vinstri: Ragnar
Gunnarsson, Ármanni, Einar Karl Axelsson, Fjölni,
og Gauti Már Guðjónsson, Fjölni. Alls tóku um 100
manns þátt í mótinu en þessi bardagaíþrótt á vax-
andi vinsældum að fagna hér á landi. -VS
Best í pílukasti
Guðjón Hauksson og Anna Kristín Bjarnadóttir
urðu íslandsmeistarar í einmenningskeppni karla
og kvenna í pilukasti um helgina. Guðjón vann
Jóhannes Harðarson, 3-0, í úrslitaleik í karlaflokki
og Anna Kristín varð efst í kvennaflokki og Jóna
Hólm í öðru sæti. Á myndinni eru Guðjón og Anna
með sigurlaunin. -VS
INTER
SPORT