Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Síða 5
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999
27
Iþróttir
ENGLAND
A-deild:
Chai'lton-Leeds ...........1-1
1-0 Stuart (20.), 1-1 Woodgate (25.)
Coventry-Middlesbrough .... 1-2
0-1 Kinder (64.), 1-1 McAilister (72.),
1-2 Gordon (82.)
Liverpool-Aston Villa .....0-1
0-1 Taylor (33.)
Man.Utd-Sheff.Wednesday ... 3-0
1-0 Solskjær (35.), 2-0 Sheringham
(44.), 3-0 Scholes (62.)
Newcastle-Everton..........1-3
0-1 Campbell (1.), 0-2 Campbell (43.),
1-2 Shearer (82.), 1-3 Gemmill (87.)
Southamtpon-Blackburn .... 3-3
0-1 Ward (14.), 1-2 Mardsen (22.). 1-2
Peacock (25.), 1-3 Wilcox (47.), 2-3
Hughes (62.), 3-3 Pahars (85.)
Nott.Forest-Tottenham .....0-1
0-1 Iversen (63.)
West Ham-Derby.............5-1
1-0 di Canio (19.), 2-0 Berkovic (27.),
3-0 Wright (54.), 4-0 Ruddock (63.),
5-0 Sinclair (67.), 5-1 Wanchope (79.)
Chelsea-Leicester..........2-2
1-0 Zola (31.), 2-0 Elliot sjálfsmark
(69.), 2-1 Duberry sjálfsmark (82.), 2-2
Guppy (88.)
Arsenal-Wimbledon......í kvöld
Manch.Utd 32 19 10 3 72-32 67
Chelsea 33 17 13 3 49-26 64
Arsenal 32 17 12 3 43-13 63
Leeds 33 16 11 6 53-29 59
Aston Villa 34 14 10 10 45-39 52
West Ham 34 14 9 11 39-41 51
Middlesbro 34 12 14 8 46-42 50
Derby 33 12 11 10 37^1 47
Liverpool 32 12 8 12 57-42 44
Tottenham 32 10 13 9 36-37 43
Newcastle 33 11 9 13 44-48 42
Wimbledon 33 10 11 12 37-50 41
Leicester 32 9 13 10 34-41 40
Sheff.Wed. 33 11 5 17 38-39 38
Everton 34 9 10 15 3141 37
Coventry 34 10 7 17 3347 37
Charlton 33 7 11 15 3344 32
Blackburn 33 7 11 15 3346 32
Southampt. 34 8 7 19 31-63 31
Nott.For. 34 4 9 21 30-66 21
Markahæstir:
Michael Owen, Liverpool........18
Dwight Yorke, Man.Utd..........16
Andy Cole, Man.Utd ............15
Hamilton Ricard, Middlesbr .... 15
Jimmy F.Hasselbaink, Leeds .... 15
Dion Dublin, Aston Villa ......14
Robbie Fowler, Liverpool ......14
Nicolas Anelka, Arsenal .......13
Ole Gunnar Solskjær, Man.Utd .. 12
Alan Shearer, Newcastle........11
B-deild:
Barnsley-Sunderland...........1-3
Birmingham-Wolves ...........0-1
Bolton-Ipswich ...............2-0
Bradford-Huddersfield.........2-3
Crewe-Watford ...............0-1
Cr.Palace-Swindon ...........0-1
Grimsby-Bury..................0-0
Norwich-Tranmere .............2-2
Port Vale-Oxford..............1-0
Sheff.Utd-QPR.................2-0
Stockport-Bristol City......-2-2
Sunderland 43 29 11 3 88-27 98
Ipswich 42 24 8 10 63-28 80
Bradford 43 24 8 11 7544 80
Birmingh. 42 20 12 10 61-34 72
Bolton 42 19 14 9 72-54 71
Wolves 42 19 13 10 60-38 70
Watford 42 18 13 11 58-52 67
Sheff.Utd 42 16 12 14 65-60 60
Huddersf. 43 15 14 14 60-68 59
Cr.Palace 43 14 15 14 55-61 57
Grimsby 41 16 9 16 38-47 57
Norwich 42 13 16 13 54-55 55
WBA 43 15 10 18 66-72 55
Stockport 42 12 17 13 48-50 53
Tranmere 43 11 19 13 59-58 52
Barnsley 43 12 16 15 53-53 52
Swindon 43 12 11 20 55-76 47
QPR 42 11 11 20 45-55 44
Portsmouth 43 10 14 19 53-67 44
Port Vale 42 12 7 23 41-71 43
Bury 43 8 17 18 32-58 41
Oxford 43 9 13 21 41-67 40
Bristol C. 42 8 15 19 54-74 39
Crewe 42 9 11 22 48-76 38
Teddy Sheringham, framherji Manchester United, kom við sögu í öllum þremur mörkum sinna manna, sem lönduðu
auðveidum 3-0 sigri gegn Sheffield Wednesday. Hér er Sheringham að fagna laglegu skaliamarki sínu, sem hann
skoraði eftir sendingu Ole Gunnars Sofskjærs. Reuter
J'Í ENGLAND
Peter Schmeichel, markvörður Man-
chester United, sagði i blaðaviðtali
um helgina að hann héldi fast við þá
ákvörðun sína að yfirgefa herbúðir
Man-chester United
eftir timabilið. Þetta
sagði Schmeichel
þrátt fyrir að félagar
hans í liði United
hafi lagt hart að
honum að vera um
kyrrt á Old Trafford.
Daninn spjalli hefur
ekki ákveðið til
hvaða félags hann fer, en mörg lið á
Spáni, Frakklandi og á Ítalíu hafa
borið víumar í hann.
- United heldur enn í vonina - æsispenna á botninum
Manchester United heldur enn í
vonina um að vinna þrennuna eftir-
sóttu, en United lagði ShefEield Wed-
nesday mjög örugglega, 3-0, þar sem
Teddy Sheringham átti þátt í öllum
mörkum United. Alex Ferguson, stjóri
United, þurfti að gera breytingar á liði
sínu - bæði vegna meiðsla manna og
álags - en það kom ekki að sök.
„Þetta voru óskaúrslit og ég var
mjög sáttur við spilamennsku
minna manna og þá sérstaklega í
fyrri hálfleik. Ég er mjög ánægður
fyrir hönd Teddy. Þetta hefur verið
erfitt tímabil fyrir hann sökum
meiðsla og það er ánægjulegt að sjá
að hann er að komast á skrið,“ sagði
Ferguson.
Campbell bjargvætturinn
Kevin Campbell hefur heldur bet-
ur hleypt lífi í leik Everton eftir að
hann var fenginn að láni til félags-
ins. Campbell skoraði tvö mörk
gegn Newcastle og Everton fór langt
með að bjarga sér frá falli. Það var
einmitt Campbell sem gaf tóninn en
hann skoraði fyrsta mark leiksins
eftir 42 sekúndur og bætti svo við
öðru rétt fyrir hálfleik. Alan Shear-
er fékk gullið færi tii að jafna metin
í 1-1, en Thomas Myhre varði víta-
spymu hans. Newcastle fékk svo
aðra vítaspyrnu i síðari hálfleik og
þá gerði Shearer engin mistök, en
Scott Gemmill innsiglaði sigur Ev-
erton rétt fyrir leikslok.
Leikur Southampton og Blackbum
var mikill spennutryllir, enda fallbar-
áttuslagur af bestu gerð. Það stefndi
allt í sigur Blackbum. Liðið komst í
1-3 í síðari hálfleik en með seiglu
tókst Southampton að jaöia metin og
var nálægt þvi að tryggja sér sigur á
lokamínútunni.
Gæti reynst dýrmætt
„Ég reyni alltaf að líta jákvætt á
hlutina. Þetta stig gæti reynst dýr-
mætt þegar upp verður staðið. Við
áttum tök á að vinna en ég verð að
hrósa Southampton fyrir að gefast
ekki upp,“ sagði Brian Kidd, stjóri
Blackbum.
West Ham var í banastuði á heima-
velli sínum og tók leikmenn Derby
heldur betur í bakariið. Vöm Derby
var eins og gatasigti og það nýttu
frískir leikmenn West Ham sér til
hins ítrasta.
Stálheppnir
Charlton var óheppið að ná ekki öll-
um stigunum gegn Leeds. Liðið missti
mann útaf í fyrri hálfleik og misnotaði
vitaspymu í seirini hálfleik.
„Við vorum stálheppnir að ná stigi
og ég ætla að vona að mínir menn
leiki betur um næstu helgi þegar við
mætum Man.Utd. Takmarkið er að
ná 4. sætinu," sagði David O’Leary,
stjóri Leeds.
Liverpool tapaði sínum þriðja
heimaleik á tímabilinu og möguleik-
ar á Evrópusæti fara ört minnkandi
hjá þessu gamla stórveldi.
-GH
Jóhann B. Guðmundsson var ekki í
iiði Watford sem sigraði Crewe, 0-1, á
útivelli í B-deildinni.
Bjarnólfur Lárusson og Sigurður
Ragnar Eyjólfsson komu báðir inn á
sem varamenn í liði Walsali sem sigr-
aði Macclesfield, 2-0, i C-deildinni.
Bjamólfur lék síðustu 10 mínúturnar
og Sigurður kom inn á á 90. minútu.
Walsall er í öðru sæti deildarinnar
með 80 stig og á í harðri keppni um
annað sætið við Manchester City,
sem er með 78 stig. Fulham er á
toppnum með 80 stig.
Lárus Orri Sigurðsson lék allan
timann fyrir Stoke, sem gerði 2-2
jafntefli gegn York City. Stoke er í 7.
sæti C-deildarinnar með 63 stig. Þor-
valdur Örlygsson lék ekki með Old-
ham, sem vann góðan útisigur á
Wrexham, 1-2. Oldham er i 19. sæti
með 45 stig.
Brentford geröi markalaust jafntefli
gegn Leyton Orient í D-deildinni og
er í 3. sæti með 72 stig. Cambridge er
efst með 76 stig og Cardiff í öðru sæti
með75. Scunthorpe er í 4. sæti með 70
stig, en þrjú efstu liðin komast upp.
Hermann Hreiðarsson lék allan tím-
ann með Brentford.
Eiður Smári
maður leiksins
Eiður Smári Guðjohnsen var
maður leiksins þegar Bolton lagði
Ipswich, 2-0, í B-deildinni. Eiður
Smári var mjög frískur í framlínu Bolton.
Hann átti þátt í fyrra marki Bolton, sem Bob Taylor
skoraði, og innisiglaði svo sigur Bolton með því að
skora annað markið. Þá var Guðni Bergsson í byrj-
unarliði Bolton í fyrsta skipti í langan tíma. Guðni,
sem hefur átt við meiðsli að striða í allan vetur, átti
góðan leik í vörninni. „„
Chelsea tapaði
dýrmætum stigum
Amar Gunnlaugsson var ekki
áberandi í liði Leicester, sem náði
jafntefli á útivelli gegn Chelsea í
gær. Amar var í byrjunarliðinu en var tekinn
af velli um miðjan seinni hálfleik. Það leit allt út fyr-
ir sigur Chelsea, liðið komst í 2-0 í seinni hálfleik, en
Leicester neitaði að gefast upp og náði að jafna metin
með tveimur mörkum á síðustu 10 mínútunum. Með
þessum úrslitum dvínuðu mjög möguleikar Chelsea á
að hampa Englandsmeistaratitlinum. -GH
Þungu fargi er nú létt af Mark Hug-
hes, leikmanni Southampton, en hon-
um tókst loksins að skora mark fyrir
félagið. Hughes skoraði eitt af þrem-
ur mörkum Sout-
hampton i jafnfefl-
inu gegn Blackburn.
Robbie Fowler,
framherji Liverpool,
er kominn i sumar-
fri fyrr en hann ætl-
aði sér. Liverpool á
sex leiki eftir i deild-
inni og þá leiki þarf Fowler að taka
út í leikbanni sem hann var dæmdur
í fyrir óíþróttamannslega framkomu.
-GH