Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1999, Blaðsíða 2
24 MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1999 Sport i>v Hvað finnst þér? Harpa Melsted: „Auðvitað Manchester United, ég held með þeim. Þeir eru búnir að sanna það í vetur að þeir eiga alla þessa titla skilið. Þeir vinna 3-2.“ Hverjir vinna Meistara- deild Evrópu í knatt- spyrnu í vor? Páll Kristinsson: „Manchester United, þeir hafa sýnt það í vetur að þeir eru langbestir. Þeir hafa yfir að ráða sterkum leikmannahópi þar sem allir eru frábærir." Jón Eiríksson: „Ég vona að Bayern Múnchen vinni meistaradeildina. Ég þoli nefnilega ekki United. Ég veit að það eru ekki miklar líkur á því en vona það samt.“ Óli Olsen: „Ætli þýska seiglan segi ekki til sín eins og venjulega. Ég held að Bayem Múnchen vinni Vji þetta 2-1.“ Aron danskur meistari Aron Kristjánsson og samherjar hans í Skjern frá Jótlandi fögnuðu danska meistaratitlinum i handknattleik um helgina með því að sigra Kolding, 21-24, á útivelli en Skjern hafði unnið fyrsta leikinn á heima- velli með einu marki. Aron skoraði tvö mörk í leiknum en hann hefur leikið stórt hlutverk hjá liðinu á þessu tímabili. Liðið kom upp í efstu deild á sl. hausti og verður danskur meistari á sínu fyrsta ári í deildinni. -JKS Elva Rut í 25. sætinu Elva Rut Jónsdóttir náði ágætum árangri á alþjóðlegu fimleikamóti kvenna sem fram fór í Rúmeníu um helgina. Elva Rut hafnaði í 25. sæti í samanlagðri keppni en keppendur voru 50. Allar bestu fimleikakonur heims tóku þátt í mótinu og íslandi boðið að vera með í fyrsta skipti. Elva Rut fékk 8,65 í einkunn fyrir stökk, 8,425 fyrir tvíslá, 8,05 fyrir slá og 8,575 fyrir gólfæfmgar. íslenskur dómari, Sandra Dögg Árnadóttir, dæmdi í stökkkeppni mótsins. -SK Sigurinn kominn í höfn og Ragnheiður Stephensen fagnar mjög sætum sigri með félögum sínum gegn FH í Kaplakrika si. laugardag. DV-mynd Hilmar Þór - segir Ragnheiður Stephensen, handknattleikskona úr Stjörnunni Ragnheiður Stephensen hefur um árabil verið ein fremsta handknatt- leikskona landsins. Hún og stöllur hennar í Stjörnunni standa í ströngu þessa dagana því nú stend- ur sem hæst einvígið við FH um ís- landsmeistaratitUinn. En Stjaman hefur frumkvæðið á þeim vettvangi og getur með sigri í kvöld hampað titlinum. Ragnheiður náði þeim áfanga í leiknum gegn FH i Kaplakrika sl. laugardag að fara yfir 200 marka múrinn í markaskor- uninni í sögu úrslitaleikjanna sem byrjaði 1992. Ragnheiður skoraði fimm mörk á laugardag þannig að mörkin í úr- slitakeppninni eru orðin 202 talsins. Hún lék sinn fyrsta leik með meist- araflokki 17 ára gömul og er því búin að leika í 11 ár í meistaraflokki en Ragnheiður verður 29 ára gömul á þessu ári. - Leikurinn gegn FH á laugar- daginn stóó tœpt en hvaó fór á milli ykkar í leikhléi? „Ég hef aldrei á ævinni tekið þátt i jafn furðulegum leik. Við komum mjög æstar og óánægðar tU bún- ingsherbergis en við vissum mæta- vel að viss hugarfarsbreyting varð að verða á okkar leik í síðari hálf- leik. Við settumst niður og ræddum málin niður í kjölinn, fyrst á háu nótunum en síðar róuðumst við nið- ur. Fyrst við gátum verið tólf mörk- um undir þá hlytum við líka að geta farið 12 mörk yfir í síðari hálfleik. FH-stúlkurnar eru þrælsprækar og bera enga virðingu fyrir okkur," sagði Ragnheiður. - Nú er þaö undir ykkur komid að klára þetta dœmi og vinna ís- landsmeistaratitilinn í kvöld? „Það er engin launung að við ætl- um að ljúka þessu á heimavelli í kvöld. Það er vonandi að leikurinn verði betri af okkar hálfu en sá síð- asti. Við verðum að sanna það fyrir okkur að við getum byrjað vel en við höfum átt erfitt uppdráttar framan af í fyrstu tveimur leikjun- um.“ - Þú ert kennari ad mennt. Hvernig líkar þér að starfa með börnum? „Ég er búin að kenna sama bekknum I Hofsstaðaskóla frá því að ég útskrifaðist sem kennari. Þau voru sex ára þegar ég tók við þeim en í dag eru þau orðin 9 ára. Ég skila þeim af mér þegar skólanum lýkur í vor og byrja þá aftur að kenna sex ára börnum. Það hentar mér rosalega vel að vinna með börn- um og þá sérstaklega þeim yngri. Þau eru mjög ánægð með það sem þau fá og eru mjög lífsglöð og skemmtileg. Það er gefandi að vinna með börnum." - Þú er kona einsömul. Er ekki stefnan að breyta því? „Þegar sá rétti kemur verður breyting á þeim málum. Ég er lík- lega svona vandlát í þessum efnum. Sá rétti kemur og maður sýnir þessu biölund." -Efþú œttir að lýsa sjálfri þér. Hvaða manneskju hefur þú að geyma? „Ég er frekar alvörugefin og fólk vill meina að ég sé fullábyrg oft og ég vil passa upp á alla hluti. Þegar inn á völlinn er komið tekst mér hins vegar að ýta alvörunni frá og vera þá passlega kærulaus. í þessari íþrótt verður maður að vera það.“ - Finnst þér að framfarir hafi átt sér stað á þeim tíma sem þú hefur leikið handbolta? „Já, ég vil meina það. Það eru fleiri sterkari einstaklingar í dag en áður og breiddin er líka meiri. Það þarf að hlúa betur að yngriflokka- starfi en gert er. Það þarf enn frem- ur að markaðssetja handboltann betur og fjölmiðlar þurfa að koma þar að málum. Hjá þeim yngri eru þjálfarar ekki nógu góðir og þeir fá illa borgað. Ég hef oft velt því fyrir mér hvort sveitarfélög á hverjum stað ættu ekki hreinlega að borga laun þjálfara í yngri flokkum," sagði Ragnheiður. „Ég verð í handbolta á meðan ég hef gaman af og ég hef sloppið að mestu við meiðsli á ferlinum. Ég hef stundum velt því fyrir mér að leika erlendis en á sl. hausti spurði þýska liðið Borussia Dortmund hvort félagið mætti vera í sambandi við mig eftir tímabilið. Ég veit ekki hvort ég heyri nokkuð meira frá þeim.“ -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.