Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
Síðustu 24 sætin
stökktu til
Benidorm
2. júní 1 eða 2 vikur írá
29.955.-
Heimsferðir bjóða nú þetta ótrúlega tilboð til Benidorm
þann 2. júní, þessa vinsælasta áfangastaðar íslendinga.
Þú bókar núna og tryggir þér sæti í ferðina 2. júní
og fjórum dögum fyrir brottför hringjum við í þig
og tilkynnum þér á hvaða gististað þú gistir í fríinu.
A Benidorm er sumarið byrjað og hér nýtur þú frísins
við frábærar aðstæður og um leið getur þú valið um
spennandi kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða.
Verðkr. 29.955.-
M.v. hjón með 2 börn, 2 -11 ára, vikuferð 2. júní,
skattar innifaldir.
Verð kr. 39.990.-
M.v. 2 í herbergi/íbúð, vikuferð 2.júní,
skattar innifaldir.
Verð kr. 39.955.-
M.v. hjón með 2 börn í íbúð, 2 vikur
2.júní, skattar innifaldir.
Verð kr. 49.990.-
M.v. 2 í studio/íbúð, 2 vikur,
2. júní, skattar innifaldir.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17,2. hæð, sími 562 4600
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir, á eft-
______irfarandi eignum:__
Funahöfði 17, 301,4 fm atvinnuhúsnæði í
V-enda ásamt 187,4 fm skrifstofu- og lag-
erhúsnæði á 2. hæð ásamt lóðarréttindum,
vélum, tækjum og öðrum iðnaðaráhöld-
um sem starfseminni fylgja, Reykjavík,
þingl. eig. Vélaverkstæðið R.Á.S. ehf.,
gerðarbeiðandi Fjárfestingarbanki at-
vinnulífsins hf., mánudaginn 10. maí
1999, kl. 10.00.
Vesturgata 16B, Reykjavík, þingl. eig.
Eugenia Inger Nielsen, gerðarbeiðendur
Lífeyrissjóður verslunarmanna og Sam-
einaði lífeyrissjóðurinn, mánudaginn 10.
maí 1999, kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Hraunbær 60, 2ja herb. íbúð á 3. hæð
f.m., Reykjavík, þingl. eig. Örlygur Vig-
fús Ámason, gerðarbeiðendur Ibúðalána-
sjóður og Tollstjóraskrifstofa, mánudag-
inn 10. maí 1999, kl. 10.00.
Kambsvegur 34, 91,2 fm íbúð á 1. hæð
m.m., Reykjavík, þingl. eig. Samúel J.
Valberg, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins, B-deild, mánudag-
inn 10. maí 1999, kl. 10.00.
Laugavegur 27A, litla húsið, efri og neðri
hæð, Reykjavík, þingl. eig. Inger Gunilla
Nilsson, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóð-
ur og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
mánudaginn 10. maí 1999, kl. 10.00.
Maríubakki 12, 3ja herb. íbúð á 3. hæð
t.v., Reykjavík, þingl. eig. María Stein-
grímsdóttir, gerðarbeiðandi íbúðalána-
sjóður, mánudaginn 10. maí 1999, kl.
10.00.__________________________________
Melabraut 12, Seltjamamesi, þingl. eig.
Sigurbjöm Vilbergsson og Anna Jóns-
dóttir, gerðarbeiðandi Seltjamameskaup-
staður, mánudaginn 10. maí 1999, kl.
10.00.__________________________________
Nóatún 26, 3ja herbergja íbúð á 3. hæð
t.v., merkt 0301, Reykjavlk, þingl. eig.
Álfhildur Eygló Andrésdóttir, gerðarbeið-
andi íbúðalánasjóður, mánudaginn 10.
maí 1999, kl. 13.30.____________________
Tunguvegur 70, 50% ehl., Reykjavík,
þingl. eig. Ófeigur Guðmundsson, gerð-
arbeiðendur íbúðalánasjóður, Löggarður
ehf. og Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn
10. maí 1999, kl. 10.00.
Deildarás 19, Reykjavík, þingl. eig.
Kristinn Gestsson, gerðarbeiðendur
íbúðalánasjóður og Tollstjóraskrif-
stofa, mánudaginn 10. maí 1999, kl.
16.00.
Flétturimi 11, 50% hluti í 3ja herb.
íbúð á 3. hæð, merkt 0302, m.m„
ásamt bílstæði, merkt 0013, í bíl-
skýli, Reykjavík, þingl. eig. Matthí-
as Helgi Sverrisson, gerðarbeiðend-
ur Innheimtustofnun sveitarfélaga
og Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn
10. maí 1999, kl. 15.00.
Fljótasel 18, íbúð í kjallara, Reykja-
vík, þingl. eig. Valdís Hansdóttir,
gerðarbeiðendur Búnaðarbanki ís-
lands hf. og Tollstjóraskrifstofa,
mánudaginn 10. maí 1999, kl. 16.30.
Grundarhús 16, 4ra herb. íbúð á 1.
hæð, fimmta íbúð frá vinstri,
Reykjavík, þingl. eig. Stefán Gísli
Stefánsson, gerðarbeiðendur íbúða-
lánasjóður, Samvinnuferðir-Land-
sýn hf„ sýslumaðurinn á Selfossi og
Tollstjóraskrifstofa, mánudaginn 10.
maí 1999, kl. 13.30.
Laufengi 15, 3ja herb. ibúð á 1. hæð
t.v. og geymsla, merkt 0103, m.m„
Reykjavík, þingl. eig. María Áma-
dóttir, gerðarbeiðendur íbúðalána-
sjóður og Tollstjóraskrifstofa,
mánudaginn 10. maí 1999, kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Útlönd
Herfræðingar í London og Washington:
Stefna NATO í
Kosovo mistök
Stofnunin International Institute
for Strategic Studies hefur harðlega
gagnrýnt hernaðarstefnu Atlants-
hafsbandalagsins, NATO, í Kosovo.
Segir í skýrslu stofnunarinnar að
það hafi verið kærulaust af banda-
laginu að útiloka landhernað í upp-
hafi árásanna. Einnig hafi verið
rangt af NATO að takmarka þá hæð
sem flugmenn bandalagsins mega
fljúga í af ótta við mannfall.
John Chipman, yfirmaður stofnun-
arinnar, gagnrýnir leiðtoga NATO
fyrir að leggja of mikla áherslu á
einingu innan bandalagsins. Segir
Chipman leiðtogana hafa vanmetið
stuðning almennings við árangurs-
rfkcm hernað.
Herfræðingurinn Anthony Cor-
desman við stofnunina Center for
Strategic and Intemational Studies
í Washington segir loftárásimar
gegn Júgóslavíu hafa borið lítinn
árangur miðað við árásimar gegn
írak 1991. Eftir jafnlangan tíma
hafði bandamönnum tekist að eyði-
leggja 40 prósent stríðsvagna íraka.
Aðeins hafi tekist að eyðileggja um
10 prósent stríðsvagna Júgóslava.
Betri árangur hafi náðst í árásun-
um á loftvamakerfi Júgóslava.
Það er álit Cordesmans að loftárás-
ir NATO hafi gert stöðu Kosovo-Al-
bana erfiðari, bæði fyrir þá sem
hafa flúið og fyrir þá sem era um
kyrrt.
í morgun mátti heyra sprengingar
Starfsmaður Rauða krossins
aöstoöar aldraöa flóttakona við
landamæri Makedóníu.
Símamynd Reuter
við Pristina, höfuðborg Kosovo, og
við borgina Uzice í Serbíu. Fjögur
flugskeyti hæfðu borgina Nis í
Serbíu í gærkvöld. Tanjug-frétta-
stofan greindi einnig frá árásum á
olíubirgðastöð og efnaverksmiðju í
borginni Prahovo við landamæri
Rúmeníu.
Kaþólsk börn í bænum Adjudeni í Rúmeníu sópa gólf kirkju sinnar vegna
fyrirhugaðrar heimsóknar páfa i næstu viku. Símamynd Reuter
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Borgarholtsbraut 69, 0104, þingl. eig.
Auður Dagný A. Georgsdóttir og
Haukur Claessen, gerðarbeiðandi
Byggingarsjóður ríkisins, mánudaginn
10. maí 1999 kl. 16.30._______
Hlíðarvegur 60, þingl. eig. Rannur ehf„
gerðarbeiðendur Dælutækni ehf. og
Samvinnusjóður Islands hf„ mánudaginn
10, maí 1999 kl. 13.30._______
Lækjasmári 13, 0202, þingl. eig. íspan
ehf.,gerðarbeiðandi Bæjarsjóður
Kópavogs, mánudaginn 10. maí 1999 kl.
15.45.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
Skotar kjósa
þjóðþing í dag
Fjórar milljónir Skota ganga að
kjörborðinu í dag og kjósa fulltrúa
á þjóðþing en slíkt þing hefur ekki
setið í Edinborg síðan árið 1707.
Samkvæmt skoðanakönnun
dagblaðsins The Scotsman eru lík-
ur á því að Verkamannaflokkur-
inn vinni sigur með um 42% at-
kvæða. Skoski þjóðarflokkurinn
nýtur minna fylgis eða um 30%.
í dag verður einnig kosið í sveit-
arstjórnir og nýtt héraðsþing Wa-
les. Kjörtímabil Tony Blairs og
Verkamannaflokksins er nú hálfn-
að og verður litið á úrslit kosning-
anna sem mælistiku á stöðu
stjórnar og stjórnarandstöðu.
Stuttai fréttir dv
Krefjast sjálfstjórnar
Stjómarerindrekar og íbúar hér-
aðsins Aceh í Indónesíu telja að
morð hersins á 34 mótmælendum
fyrr í vikunni kyndi undir kröfun-
um um sjálfstjóm.
Hrifinn af plnupilsum
Forseti Perú, Alberto Fujimore,
lýsti í gær yfir hrifningu sinni á
pínupilsum. Því
styttri því betri er
mat forsetans. Ríkis-
saksóknaraembættið
í Perú bannaði í gær
kvenkyns staifs-
mönnum embættis-
ins að ganga í pínupilsum eða þröng-
um síðbuxum. Körlum er bannað að
ganga í gallabuxum, stuttermabolum
og íþróttaskóm í vinnunni.
Mótmæli á flugvelli
Hundruð starfsmanna
flugfélagsins Thai Airways
International hótuðu í morgun að
kyrrsetja vélar félagsins á Don
Muangvellinum í Bangkok.
Starfsmennirnir eru andvígur
áætlununum um að einkavæða eina
deild félagsins.
Andvígir NATO
Andstaða Finna gegn aðild að
NATO hefur aukist talsvert í kjölfar
árása bandalagsins á Júgóslavíu.
Árásir á S-Líbanon
ísraelskar flugvélar gerðu árásir
á meintar stöðvar Hizbollahskæru-
liða í S-Líbanon i gær. Ekki var vit-
að hvort mannfall hefði orðið.
72 látnir úr hitasótt
Alls hafa 72 látist úr hitasótt, sem
þykir líkjast ebola-veiru, í norðaust-
urhluta Kongó.
Deilt um greiðslur
Paula Jones hefur krafist þess að
Bill Clinton greiði 300 þúsund doll-
ara í sekt fyrir að
óvirða réttinn í máli
hennar gegn forset-
anum. Lögmenn
Clintons brugðust
hins vegar ókvæða
við og sögðu kröf-
una út í hött. Fyrir tæpum mánuöi
fann Wright dómari Clinton sekan
um að hafa vísvitandi gefið rangan
vitnisburð í réttarhöldunum. Clint-
on var í kjölfarið dæmdur til að
greiða lögmönnum Jones málskostn-
að en fjárhæðin var óskilgreind.
Rútuslys
Óttast er að allt að 35 manns hafi
týnt lífi þegar rúta lenti í ánni
Ganges í V-Bengal á Indlandi í
morgun. Rútan, sem var á leið frá
Kalkútta til Siliguri, mun hafa
sokkið samstundis.
Ræða byssulögin
Bandaríska öldungadeildin ætlar
að ræða byssulöggjöf landsins í
næstu viku. Demókratar hyggjast
leggja til átta stjórnarskrárbreyting-
ar til að herða enn á lögum um
vopnaeign. Tillögumar munu m.a.
fela í sér að lágmarksaldur byssu-
eigenda verði hækkaöur í 21 ár,
þriggja daga biðtími eftir vopnum
veröi tekinn upp og að foreldrar
beri ábyrgð á bömum sínum hvað
varðar vopnanotkun.
Drottningin selur
Veggmynd eftir Margréti Dana-
drottningu hefur rokselst í Dan-
mörku að undanfórnu en ágóðinn,
sem nemur 100 milijónum, rennur
óskiptur til flóttamanna frá Kosovo.
Allt misskilningur
Stórtenórinn Luciano Pavarotti
segir kröfur italska ríkisins
fáránlegar um að
hann greiði 2,5
milljónir dala í
skatta vegna tekna
sem hann hefur
aflað utanlands.
„Ég er ekki
skattsvikari. Þetta
er bara misskilningur," sagði tenór-
inn og bætti við hann greiddi skatta
þar sem hann syngi hverju sinni.
Þar era skattayfirvöld á Ítalíu ekki
sammála og segja Pavarotti eiga að
borga skatta í heimalandi sínu.