Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1999, Page 19
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
■.J.
23
PV_____________________________________Fréttir
^ Talsverð kalhætta á Norðurlandi:
Utlitið er ekki gott
- segir Bjarni Guðleifsson ráðunautur
DV; Akureyri:
„Það verður því miður að segja
það eins og það er að útlitið er þegar
á heildina er litið, ekki nógu gott,“
segir Bjami Guðleifsson, ráðunautur
í Eyjafirði, um kalhættu í túnum þar
um slóðir en Bjarni hefur unnið mjög
mikið að rannsóknum á þeim málum
og þekkir þau betur en margir aðrir.
Bjami segir að tíðarfar hafi verið
þannig í vetur aö það hafi oftsinnis
komið blotar, snjór hafi bráðnað og
svell myndast. Víða séu þessi svell
ekki komin upp enn þá og það valdi
áhyggjum. „Plöntur þola ekki að vera
undir svelli i meira en 2-3 mánuði
því þá geta þær ekki andað. Ef þær
eru innluktar í þykku svelli í þann
tíma eða lengur þá era þær dauðans
matur og hreinlega kafna.
Svo er annað sem fylgir þessu oft
og það er svokölluð „kallykt" sem
kemur úr túnunum þegar svellin
hverfa. Ég hef aðeins fundið þessa
lykt en ekki mikið þó, sennilega
vegna þess að svell era yfirleitt ekki
horfin,“ segir Bjami.
Hann segir að ástandið sé senni-
lega nokkuð misjafnt eftir svæðum,
líklega einna verst á Árskógsströnd
og i Svarfaðardal. Inni í Eyjafjarðar-
sveit sé ástandið mun betra en hann
sagðist hafa heyrt um slæmt ástand
inni í Hörgárdal. Þá sagöist Bjarni
hafa heyrt að slæmt ástand væri
vestan til í S-Þingeyjarsýslu og
einnig í Skagafirði að austanverðu,
út í Fljót. -gk
Eldur í húsi í Keflavík:
Hárrétt viöbrögð björguðu íbúa
Hafnargata 82 í Keflavík. Eldur kom upp í kjallara
hússins. DV-mynd Arnheiður
DV, Suðurnesjum:
Eldur kom upp í
kjallaraíbúð húss-
ins númer 82 við
Hafnargötu í Kefla-
vík aðfaranótt 3.
apríl. Húsið er 3ja
hæða steinhús,
byggt um miðja öld-
ina og bjó einn mað-
ur í íbúðinni. Bjarg-
aðist hann naum-
lega. Það var kona
sem býr á 2. hæð
hússins sem fyrst
varð vör við bruna-
lykt. Hringdi hún í
slökkviliðið og
vakti síðan fólk í öðram íbúðum
hússins.
„Hún brást hárrétt við,“ sagði
Sigmundur Eyþórsson, slökkviliðs-
stjóri hjá Branavörnum Suður-
nesja. „Það var rétt fyrir klukkan
fimm að við voram kallaðir út. Viö
fóram inn í sameign í kjallara og
þaðan inn í íbúðina. Sáum strax að
þar var mikill hiti og reykur og
byrjuðum á því að slá á hitann. Það
var ekki vitað hvort íbúinn væri
heima en við hófum þegar leit.“
Maðurinn fannst fljótlega og var
hann fluttur á Heilbrigðisstofnun
Suðumesja og þaðan á Sjúkrahús
Reykjavíkur til frekari aðhlynning-
ar vegna reykeitranar.
„Það má segja að það hafi orðið
manninum til lífs að hann svaf við
lokaðar herbergisdyr þannig að hit-
inn komst ekki inn þó töluverður
reykur kæmist með fram hurðinni,"
sagði Sigmundur. Við nánari eftir-
grennslan er talið að eldurinn hafi
komið upp í stól í sjónvarpsholi, út
frá vindlingi, en mikill eldur logaði
í holinu og er íbúðin töluvert
skemmd af hita og reyk. -AG
Til sjóðfélaga
og viðskiptavina
Afgreiðslutími
Frá 3. maí -15. september 1999 er skrifstofa
sjóðsins opin frá kl. 8.00 til 16.00
alla virka daga.
Yfirlit send til sjóðfélaga |
Hinn 1. mars 1999 voru send yfirlit til
allra greiðandi sjóðfélaga yfir skráð iðgjöld
frá 1. janúar 1998 til 28. febrúar 1999.
Sjóðfélagar eru hvattir til að bera þau
saman við launaseðla. Beri þeim ekki saman
er áriðandi að hafa strax samband við
sjóðinn því dýrmæt réttindi geta glatast
vegna vanskila á greiðslum.
, leinaði
lífeyrissjóðurinn
Suðurlandsbtaut 30
108 Reykjavík
Stmi: 510 5000
Fax: 510 5010
Grænt númer: 800 6865
Heimasíða: lifeyrir.is
Netfang:
mottaka@liféyrir.is
VINNUSKÓLI
REYKJAVÍKUR
Sumarstarf 1999
Samstarf Akranes-
og Borgarneslögreglu
DV, Akranesi:
Bæjarráðsmenn Akraness hafa
átt viðræður við Ólaf Þ. Hauksson,
sýslumann á Akranesi, og Svan
Geirdal yfirlögregluþjón um um-
ferðarmál, lögsagnarumdæmi og
fleira. Fram kom hjá sýslumanni að
hafið væri samstarf á milli lögregl-
unnar á Akranesi og Borgamesi um
löggæslu í næsta nágrenni Akra-
ness, það er í Innri-Akraneshreppi
og Skilmannahreppi sem er í lög-
sagnarumdæmi Borgarneslögregl-
unnar. Þar með talin Hvalfjarðar-
göng norðanmegin.
Lögreglan á Akranesi er vel fær
um að taka að sér stærri verkefni
en hún hefur núna, þar með lög-
gæslu við Hvalfjarðargöng. Sýslu-
maður tók það skýrt fram að það
væri á færi ríkislögreglustjóra og
dómsmálaráðherra að taka ákvarð-
anir um breytingu á skipulagi lög-
gæslumála á svæðinu.
Þá var rætt um embætti sýslu-
manns á Akranesi og nokkum
vanda sem það á við að stríða.
Sýslumaður varð þess fljótt áskynja
þegar að hann tók við starfinu að
fjárlagagrundvöllur embættisins
væri ekki með þeim hætti sem að
hæfði stærð þess, þ.e fjármunir þess
hefðu verið fulllitlir í fjárlögunum.
Þessa dagana er unnið aö því í ráðu-
neytunum að laga þetta og er vonast
til að á nýjum fjárlögum verði fjár-
lagagrunnurinn leiðréttur þannig
að viðunandi niðurstaða fáist.
-DVÓ
ORBSENDING
til nemenda í 8., 9. og 10. bekkjum Grunnskóla Reykjavíkur
Skráning í sumarstörf 1999 hjá Vinnuskóla Reykjavíkur fer nú fram.
Upplýsingum og skráningarblöðum hefur verið dreift í skólunum.
Fylla skal skráningarblöðin nákvæmlega út og skila þeim
til afgreiðslu Vinnuskólans.
Skráningu lýkur föstudaginn 7. maí, en starfið hefst mánudaginn 7. júní.
Skrifstofa og afgreiðsla Vinnuskólans er opin kl. 8:20 -16:15 virka daga.
ISnorrabraut 60 • 105 Reykjavík
Sími 511 2590 • Fax 511 2599
Netfang: vinnuskoli@rvk.is