Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1999, Blaðsíða 17
28. maí - 3. júní Líficf eftir vinnu myndlist popp 1 e i k h ú s fyrir börn k 1 a s s i k b i ó veitingahús einnig a visir.is útgáfutónleikar staðir s a landinu ^UBUJflV' Reykjavík: Austuxstræti 3, Suðurlandsbr. Esso-stöðin Ártúnshöfða & Kringlan. Hafnarfjörður: Esso-stöðin, Lækjargata J Keflavík: Vatnsvegur 12. Akureyri: Kaupvangsstræti 1. Rúnar Júl. og Siggl Dag- bjarts grenja á gresju Álafoss- föt best í kvöld. Grenj- andi rokk og kannski ról. 28. maí 1999 f Ó k U Popp Klamedía X heldur útgáfutónleika kl. 20 í Tjamarbíól í tilefni útkomu disksins Pllsner fyrir kónginn. Diskurinn er kominn í búöir og Klamedían dreifir sér líkt og faraldur hér eftir. Hvar endar þetta? Slxties, meó Rún ar Örn í farar- broddi, skemmtir gestum og hangandi á Café Amsterdam. Runar Þor er a Peturs-pub, Hofoabakka 1 i kvöld. Rúnar tekur ýmis lög úr fórum sínum en Nja, ætli ég geri nokkuð sérstakt um helgina, ég geri ekki mikið af því að fara út á lífið. En að sjálfsögðu ætla ég að horfa á Júróvisjón á morgun, maður verður að e sjá Stebba Hilmars og þessa höfðingja á sviðinu í ísrael. Ég hef heyrt lagið sem við sendum nokkrum sinnum og get ekki sagt að ég sé neitt sérstaklega hrifinn af því, en Selma Bjömsdóttir er að sjálfsögðu stór- glæsileg kona. Ég geri ráð fyrir að taka það bara rólega á sunnudaginn. Stefán Grímsson fjöllistamaður verður 50 ára á þriöjudaginn. Til hamingju, Stefán! í kvöld kl. 20 heldur hljóm- sveitin Klamedía X útgáfutón- leika. Hún er að gefa út diskinn Pilsner fyrir kónginn og er hann að lufsast inn í verslanir í dag. Fókus bjallaði í söngkonuna og reyndi að fá einhvem botn í þessa klamedíu. „Sagan á bak við þetta nafn er ekki til,“ segir Áslaug Helga Hálf- dánardóttir, tónmenntakennari í Smáraskóla og söngkona Klamed- íu X. „Þetta hljómaði bara vel og okkur þykir það fallegt." Hvernig tónlist spilar Klamedía X? „Það er varla hægt að útskýra það frekar en nafnið. En ætli þetta sé ekki póstmetalískt rokk með poppívafi." Hvað með Pilsnerinn? „Á þessum diski ættu allir að geta fundið eitthvað sem þeim líkar og þá gæti líka verið eitt- hvað þama sem fólk kemur til með að hata,“ segir Áslaug hrein- skilin. Eitt af lögum disksins heitir Ríða. Er þetta einhver sori? „Þetta er ekki dónalegt lag,“ fullyrðir Áslaug. „Samanber Orðabók Menningarsjóðs. Þar hefur orðið ríða fjórar merkingar og engin af þeim er dónaleg." En hvemig gengur að kenna í Smáraskóla? Ekkert agavanda- mál? „Nei. Ég ræð við krakkana sem ég kenni. Þau em frá 5. bekk og upp í 8. og ég kenni þeim til dæm- is að gefa út geisladisk og semja tónlist." Horfir söngkona Klamedíu X á Eurovision? „Já. Ég verð í grillveislu hjá vini mínum.“ í hvaða sæti lendum við? „Ég veit það ekki en ég er nokkuð viss að þetta lag á eftir að ná langt." ®Leikhús Ý Borgarlelkhúsló sýnir í kvöld í síðasta sinn farsa eftir eina fýndna Nóbelshafann undanfarna áratugi, Dario Fo. Þetta er gamall kunningi íslenskra leikhúsgesta - Stjórnleys- ingl ferst af slysförum. Borgarleikhúsið sótti Hilmar Jónsson leikstjóra til Hafnarfjarðar til að setja þetta upp og með honum fýlgir lung- inn úr samstarfsfólki hans frá Hermóðl og Háðvöru. Eggert Þorleifsson leikur hlutverk brjálæðingsins, það sama og Arnar Jónsson lék I síðustu uþþfærslu. Tvelr tvöfaldlr á Stóra sviði Þjóðleikhússins kl. 20. Uppselt. Upplýsingar um lausa miða á næstu sýningar I síma 551 1200. Abel Snorko býr einn, eftir Eric Emmanuel Schmitt hinn franska, verður flutt á Litla sviði Þjóðleikhússlns kl. 20. Sími 5511200. hann hefur gefið út slæðing af skífum. Léttar veitingar fást á Wunderbar við Lækjar- götu en staðurinn sá er nú opnaður eftir gagn- gerar breytingar. Nú verður staðurinn athvarf fólks á aldrinum 19-23. Sálfræðilegar flugur aðstoða piltana við þvaglát. Piltarnir í Á móti sól eru að hefja yfirreið sína, eftir að hafa djöflast í hljóðverum undanfarið. Nýja lagið þeirra, Viagra, er að verða svaka vinsælt og nota drengirnir sér það óspart. Sjá- ið þá bara á Hótel Mælifelll í kvöld, þeir eiga eftir aö leika það oftar en einu sinni. eru bæði sæt og kvikindisleg saman. Sími 530 3030. •Fundir Nú fer fram doktorsvörn við læknadeild Há- skóla íslands. Magnús Gottfreðsson læknir ver doktorsritgerð sína, „Pharmacodynamlcs of antlblotlcs In vitro with speclal reference to the postantlblotic effect“, sem læknadeild hefur metið hæfa til doktorsprófs. Andmæl- endur af hálfu læknadeildar verða dr. Harald- ur Briem sérfræðingur og dr. Frank Esper- sen frá Statens Seruminstitute í Kaup- mannahöfn. Forseti læknadeildar, Jó- hann Ágúst Slgurðsson prófessor, stjórnar athöfninni. Doktorsvörnin fer fram I hátíöarsal, aðalbyggingu Háskóla íslands, og hefst kl. 14. Öilum er heimill aðgangur. OK lúbbar Á Skuggabar leika Nökkvl og Áki nokkrar plöt- ur. Kostar 500 kall eftir miðnætti og allir þurfa að vera tuttugu og tveggja til að komast inn. Virknikvöld í kvöld. Grétar G verður á efri hæðinni en á sama tíma verða Addi og Reyn- ir sveittir í trommubassakeyrslu niðri. •Krár Það er ástralskur bjór á barnum á Kaffi Reykjavík. Átta ekki vita um áttavita gista sviðið og reyna að sýnast villt en eru dönnuö og pen inni við beinið. Stjórnin er komin aftur inn í Leikhúskjall- arann. Tvær kynslóðir popp- ara með Örv- ars Kristjáns- sonar-gen. Á Grandrokk er verið að undirbúa sjúklega tónlistarhátíð sem stendur ailan júnímánuð. Það gleymist þó ekki að reita eitthvað í ykkur þangað til og í kvöld er það gæðabandið Kókos sem verður látið höfða til púlshvatar- innar. Mætum öll og verðum drullufull (skamm, Ijótt að hvetja til áfengisdrykkju í fjöl- miðlum). Á Gauknum er Gos. Kóverband með apalá- ferð. Helginni er reddað! Dan Cassidy fiðluleikari og Ken Henningan trúbbi ætla að þeyta lúðra sína á Punktinum, Laugavegi 73 þetta kvöldið. Dan hefur búið hér um skeið og er svaka flinkur. Minna er vit- að um Ken. Inni á Café Romance situr Lounge Liz og leik- ur óskalög prúðra fýllibyttna. Enginn aðgangs- eyrir en velunnurum bent á barinn. Rúsína heitir splunkuný hljómsveit sem segist langa til að spiia grenjandi graðhestarokk en ekki þora að fara lengra en I gömlu sveitaball- alummurnar. Samt sleppir hún sér stundum og hleypir folanum á skeið og þá er fjandinn iaus (fýrir þá sem ekki vita þá er fjandinn vondi kall kristinna manna). Liðsmenn Rúsínu eru Sniglabandsstofnandinn Skúli Gautason, sem syngur og leikur á bassa, félagi hans, Sigurð- ur Kristlnsson, plokkar rafmagnsgitar og Sig- urður Reynisson lemur gamalt Slingerland- trommusett af varfærni. Rúsína leikur í Fjöru- kránni í Hafnar- firði. Kántrípöbbinn Áslákur I Mosó býður upp á Torfa Ólafsson. Ókey, það er hljómsveitin Sín sem sér um gleði á Kringlukránnl í kvöld. Svo má alltaf fara út aö borða á þennan pöbb, því kokkurinn er góður. Tilbreyting frá Hardrokk, sjáiði til. Hafrót er á Fógetanum. Gestir Catalínu í Kópavogi rifja upp síðustu lendingu meðan Últra hamast uppi á sviði. Ekki baula fýrir utan eftir klukkan þrjú, það býr fólk í blokkinni á móti! • Böl 1 Danshljómsveit Frlðjóns Jóhannssonar verður meö galið geim á Næturgalanum. Þessi fríði flokkur kemur frá Egilsstööum. Hilmar og Anna fá frí í kvöld og hlaða Hellesensbatteríin. D jass Djassorganistinn Wayne Horvitz mætir í Loft- kastalann í kvöld með hljómsveit sína, Zony Mash. Bandið hefur höfuðstöðvar slnar í Seattle en tilheyrir annars listamannaklíku Knitting Factory New York-borgar. Horvitz starfaði í ýmsum frídjassböndum á áttunda áratugnum en fór að geta sér verulega gott orð þegar hann hóf að starfa með saxófón- brjálæðingnum John Zorn. Síðan hefur hann leikið inn á tugi hljómplatna með ýmsum lista- mönnum. Zony Mash er skipuð þeim Timothy Young gítarleikara, Keith Lowe leikur á bassa og Andy Roth er trommarinn. Tónlistin er dul- arfull blanda af sýrðu rokki, blúsdjammi og frjálst formaðri tilraunastarfsemi. Dlp-hópur Sigtryggs og Jóhanns hitar upp. •Sveitin Stuðbandalagið leikur á Oddvitanum, Akur- eyri. Þar er að finna lengsta barborð norðan hvarfbaugs nyrðri og samhenta fjölskyldu á bak við það. Blái fiöringurinn mun kanna nýjar veiöilendur um helgina því nú fara þeir fóstbræður til Grindavíkur. Hafurbjörn verður heimili þeirra að heiman og má búast við því sem fyrr að eitthvað verði rokkað að fornu lagi. Bláa fiðr- inginn skipa sem fyrr þeir Björgvin Gíslason, Jón Kjartan Ingólfsson og Jón BJörgvinsson. Réttin í Úthlíð, Biskupstungum, var opnuð aft- ur um slðustu helgi. Þá var Rúni Júl, en hver skemmtir núna? Það er leyndó sem enginn kemst að nema hann komi. Kannski Rolling Stóns, hver veit. Gildrumezz hermir eftir Creedence Cle- arwater við Polllnn á Akureyrl. Foger- ty holdgervist I Bigga. Áslaug Helga Hálf- dánardóttir segir nafn hljómsveitar- ekki tengjast og Ríöa ekki dónalegt. Hellisbúinn býr I helli slnum I ís- lensku óperunnl. Sýning kl. 20. Bjarni Haukur Þórs- son er hellisbúinn. Síminn er 5511475. Maður I mlslitum sokk- um eftir Arnmund Back- man er á Smíðaverk- stæði ÞJóðleikhússins kl. 20.30. Þessi farsi gengur og gengur. Enn eitt gangstykkið með „gömlu leikurunum" - að þessu sinni Þóru Friðrlksdóttur, Bessa Bjarnasyni og Guðrúnu Þ. Stephensen. Slminn er 551 1200 fyrir þá sem vilja panta miða á sýningu einhvern tlma I framtlðinni. Rommí er I kvöld sunnan heiða, nánar tiltekið I lónó kl. 20.30. Erllngur og Guðrún Ás ° •öpnanir í veitingaskúr veitingastaðarins Viö fjöru- borðið á Stokkseyri sýnir Gerhard König tréskúlptúra og málverk. Gerhard sérhæfir sig I tréskúlptúrum úr heilum trjábolum og má segja að verk hans einkennist af ‘fígúratífum expressjónisma’ en trjábolirnir eru rekaviöur af S- og SV-strönd íslands. Hann hefur m.a. sýnt I Ráðhúsi Reykjavíkur, 1998. Fiskurinn hefur verið þema listamannsins sem tákn og formynd en áhugi hans beindist að honum þegar hann kynnti sér kristni, gyðingdóm og goðafræði af ýmsum toga þar sem hann heill- aðist af einfaldleika formsins og flölbreytileika I andlegri túlkun fisksins. _ t/=Fókus mælir með Stendur þú fyrir einhverju? Sendu upplýsÍRgar í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.