Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 13 DV Fréttir Bjart hjá Barra DV, Egilsstöðum: „Útlitið er nokkuð gott. Það er vaxandi áhugi á skógrækt og sameiningin við Fossvogsstöðina hefur komið vel út,“ sagði Jón Kr. Arnarson, framkvæmdastjóri Fossvogsstöðvarinnar - Barra hf. Á Egilsstöðum mun Barri framleiða 1,5 milljón skógarplönt- ur í ár. Af nýjungum má nefna framleiðslu á 120 þúsund lúpínu- plöntum fyrir landgræðsluna. Þá sagði Jón að nú hefðu þeir náð góðum tökum á ræktun á elri. Þeir notuðu áður geisla- sveppasmit frá eldri trjám sem gaf ekki góða raun en nú hefur Iðntæknistofnun þróað fram- leiðslu á hreinræktuðu smiti sem framleitt verður í Fossvogsstöð- inni. Um 80 þús. elriplöntur verða framleiddar í ár. Mest af framleiðslunni fer til Héraðsskóga en einnig er nokkur smásala til skógræktarfélaga og einkaaðila. -SB Frá undirritun samnings. F.v.: Jón Runólfsson, formaður íþróttabandalags Akraness, Örnólfur Þorleifsson, útibússtjóri Búnaðarbankans, og Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi. DV-myndir Daníel Hafnfirðingar finna ekki eiganda að sokknum báti: Kostar milljónir að ná bátnum upp - bæjarlögmaður undirbýr kæru til lögreglu Dóra Stefánsdóttir, Steinar Þór Sturlaugsson og Hafþór Reynisson. DV-mynd Júlía Upplýsingamiðstöð á Höfn DV, Höfn: Markaðsráð. Suðausturlands hef- ur opnað upplýsingamiðstöð að Hafnarbraut 25 á Höfn. Miðstöðin er opin frá klukkan 8 á morgnana til kl. 20.30. Tveir starfsmenn hafa ver- ið ráðnir, þeir Steinar Þór Stur- laugsson og Hafþór Reynisson, sem áður unnu á umferðarmiðstöðinni á Höfn þar sem þeir sáu um upplýs- ingar fyrir ferðafólk. Markaðsráðið var stofnað nú á vordögum og segir Dóra Stefáns- dóttir, framkvæmdastjóri þess, að þátttaka sé ótrúlega mikil og þetta verði til mikilla hagsbóta fyrir þá sem hingað koma eða vantar upp- lýsingar um eitthvað tilheyrandi þessum landshuta. J.I. „Við höfum leitað eiganda bátsins lengi en án árangurs. Niðurstaðan er sú að bæjarlögmanni er falið að undirbúa kæru til lögreglu," segir Sigurður Hahgrímsson, forstöðu- maður þjónustudeildar Hafnarfjarð- arhafnar, vegna bátsins Hraunseyj- ar BA sem liggur á botni Hafnar- fjarðarhafnar eftir að hann sökk á fóstudag. Báturinn sem síðast var skráður í eigu Seleyjar hf. á Pat- reksfirði hefur legið í Hafnarfjarð- arhöfn síðan árið 1993. Athygli vekur að ekki hefur verið gerð tilraun til að ná bátnum upp og hafnaryfirvöld eru gagnrýnd fyrir sleifarlag. Mikil óþrif eru af flakinu sem þykir til skammar fyrir Hafn- flrðinga. Sigurður segir að verði hafist handa við að taka bátinn upp kosti það milljónir. Hann segir að hafnarstarfsmenn hafi hreinsað upp draslið sem var á floti í kringum bátinn en að öðru leyti ekki aðhafst neitt. „Það er mjög dýrt að taka bátinn upp og farga honum. Ég get ímynd- að mér að kostnaðurinn verði ekki undir þremur milljónum króna. Það gerist ekkert þó flakið liggi þarna en um leið og farið verður að hreyfa við því má búast við olíumengun,“ segir hann. -rt Flak Hraunseyjar BA liggur í Hafnarfjarðarhöfn og ekkert hefur verið að- hafst. DV-mynd HH ^ Akranes: Iþróttir og gróðursetning kaupstað tekið að sér umsjón og rekstur á íþrótta- og leikjanám- skeiðum fyrir börn á aldrinum 6-10 ára í sumar. Námskeiðin eru unnin í samræmi við íþróttastefnu ÍA og Akraneskaupstaðar. Þó námskeiðin verði unnin í samræmi við íþrótta- stefnuna verður ekki eingöngu boð- ið upp á íþróttir á þessum nám- skeiðum þó þær skipi vissulega stóran sess í uppbyggingu þeirra. Búnaðarbankinn er aðalstyrktar- aðili íþróttabandalags Akraness og styður viðleitni ÍA varðandi nám- skeiðin. Búnað- arbankinn styrk- ir ÍA sérstaklega til að standa fyr- ir gróðursetning- arátaki á íþrótta- svæðinu að Jað- arsbökkum og munu þátttak- endur á nám- skeiðunum gróð- ursetja og hlúa að plöntum sem Búnaðarbankinn leggur til. Garð- yrkjustjóri Akra- neskaupstaðar undirbýr gróður- setningu, velur plöntur og gefur góð ráð. -DVÓ Gísli bæjarstjóri gróðursetur fyrstu plöntuna. Formað- urinn og bankastjórinn fylgjast með. DV, Akranesi: Forráðamenn íþróttabandalags Akraness, Akranesbæjar og Búnað- arbankans skrifuðu 8. júní undir samning um íþrótta-, leikjanám- skeið og gróðursetningu. Fyrst gróð- ursettu Gísli Gíslason bæjarstjóri og Örnólfur Þorleifsson, útibússtjóri Búnaðarbankans, stóra ösp með að- stoð krakka á íþrótta- og leikjanám- skeiðinu. íþróttabandalag Akraness hefur með samkomulagi viö Akranes- Version 2.0 garbage Forsala: Japis, Laugavegi Japis, Kringlunni Samtónlist íslandsflug FM 95.7 Mercury Rev REPU3LICA E-17 Land&synir Skítamórall Sóldögg SSSól &fl. 10 AR AF'TOPP TONLIST AFMÆLISTÓNLEIKAR FM 95.7' Þriðjudagurinn 22. júní 1999. Svæðið opnar kl. 12:00. Tónleikarnírhefjast kl. 13:30. Á þaki Faxaskála. Miðaverð 4.450 kr. JAPISi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.