Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Blaðsíða 6
„Já Kópasker er á túrlistanum," segir Óskar Guðjónsson saxófón- leikari. Hann er ásamt trommaran- um Einari Val Scheving og Þórði Högnasyni bassaleikara að leggja upp í hringferð um landið. „Einar Valur á frænda á Kópaskeri og því tilvalið að efna til giggs þar. Sjálfur fékk ég mína ættingja til að plögga á Höfn í Homafirði. Ætli ég hlakki Mánudagskvöldið 22. júní 1970 spiluðu Led Zeppelin í Laugardalshöll á vegum Listahátíö- ar í Reykjavík. Gífurleg ásókn hafði veriö í miða og örtröð við miðasöluna, biðröðin þaö löng að ekki hafði sést annað eins. Umstang- ið vegna tónleikanna hristi upp í íslensku þjóö- lífi og Vísir hafði m.a. af því áhyggjur að band- iö myndi sprengja allar rúður í Höllinni. Tón- leikarnir tókust prýðilega, Page, Plant og hinir fluttu lögin sín af innlifun og 5000 manns skemmtu sér vel. Bandiö flaug til London dag- inn eftir, eftir 48 tíma dvöl á íslandi, en auk þess að spila í Höllinni höfðu þeir drukkið kampavín í Glaumbæ og hlustað á Trúbrot. Það er mál manna að tónleikar Led Zeppelin hafi verið fyrstu alvöru stórtónleikarnir hér- lendis og þeir sem fóru fá enn gæsahúð þeg- ar þeir hugsa til baka. Stefán Þorgrímsson. Ólíkt hafast þeir að, tvífaramir, þótt náttúran hafi úthlutað þeim sama andlitinu. Undir hvítu hárinu og ábúðarfullum augunum hvíla sívinnandi og hvikulir heilar sem láta sér fátt óviðkomandi. Verslunarmaðurinn Arn- ar Gauti þolir ekki hallærisheit landans og hvernig karlmenn geta vogað sér að bjóða konu góðan daginn án þess að minnast á það um leið að englamir hljóti að hafa týnt einhverju. Herstöðvarandstæðingurinn Stefán þolir hins vegar ekki undirlægjuhátt íslenskra stjómvalda við erlend auð- valdsríki. Báða dreymir þá um betri heim og eru eldheitir báráttumenn, þótt vígvöllur þeirra sé hvor á sínum enda mannlegrar hugsunar. ekki mest til að spila þar, jú og á Norðfirði. Þar er staður sem heitir Jazzkjallarinn. Fyrir fjórum árum svipaðist ég þar um en þá vora eig- endurnir að hefjast handa við að innrétta. Síðan er ég búinn að brenna í skinninu að troða þar upp.“ Óskar varð snemma heltekinn af tónlistarhneigðinni en 9 ára gamall var hann kominn 1 trommunám í Tónlistarskólanum í Garðabæ. „Það eru til myndir af mér komungum að berja dollur með pijónum þannig að það var snemma vitað hvert stefndi. Svo var það að fjölskyldan fór á Bindindismótið í Galtalæk og ég sá í fyrsta skipti leikið á saxófón. Þetta var einhver dixílandgrúppa. Ég varð alveg vitlaus, bara varð að læra á svona hljóðfæri. Þurfti reyndar aðeins að berjast fyrir því enda hefð fyrir að börnum sé fyrst kennt á klarínettu. En ég fékk fyrir rest altósax til að stúdera." Spilaði með tónlistinni úr Bird Þegar Óskar var 15 ára kom Sig- urður Flosason heim frá tónlist- arnámi og hóf að kenna í Tónlist- arskóla FÍH. Hann hefur strax leitt þig inn í djassheiminn? „Já, þá má segja að kerfisbund- in kynning á djössurum hafi haf- ist. Ég átti fyrir, held ég, tvær djassplötur, með tónlist úr kvik- myndunum Bird og ‘Round Midnight. Charlie Parker og Dexter Gordon urðu fyrstu goðin mín. Ég fór strax að reyna að spila með Parkerplötunni án þess að Sjálfur fékk ég mína ættingja til að plögga á Höfn í Hornafirði. Ætli ég hlakki ekki mest til að spila þar. skilja út á hvað þetta gekk. Um leið og ég fattaði improvísering- una fór ég og keypti mér playa- long-plötu með tónlist Cannon- baU Adderley í ístóni." Hvenœr skiptiröu svo yfir á ten- ór? „Um leið og ég heyrði í Jan Garbarek. Sándið heiUaði mig. Á þessum tíma voru þeir að koma heim úr námi Garðbæingarnir Hilmar Jensson og Matthías Hemstock. Ég var tíður gestur hjá þeim. Matti átti svakalegt plötu- safn og reytti í mig fullt af áhuga- verðú stöffi. Hann gaf mér geisladisk með Keith Jarrett-tríó- inu og sá var stanslaust á hjá mér í 2 mánuði.“ Með puttana í öllu. „Fyrir 5 árum, þegar X-ið var að hefja göngu sína, tókum við upp á því að hræra saman plötuspili og saxófónleik, ég og Robbi Chronic (DJ Rampage). Vorum svellkaldir og gerðum þetta í beinni. Ég hélt þessu svo áfram um tíma með Þossa. Það var svo ekki fyrr en í vetur að við endurvöktum þetta undir heitinu Improve Groove, ég, DJ Margeir, DJ Ámi og Alfred Moore. Steðjuðum með þetta fyrst inn á Hótel Borg en svo hefur þetta átt sér stað á Rex.“ Þú ert óhrœddur viö aö prófa hvaö sem er? „Tja, það er eina færa leiðin. Fyrir 20 árum gátu menn haldið úti einu bandi og látið þar við sifja en í dag er landslagið öðruvísi. Til að þrífast þarf að vera með putt- ana í sem flestu. Auk þess að vera enn meðlimur í Mezzoforte held ég úti íslenska hljóðmúrnum með Jó- hanni Jóhannsyni í Lhooq, hef fengist við að færa djassmúsík Jóns Múla í nýjan búning og er í Pop-Wonder-Hammond-bandi með Þóri Baldurssyni, Einari Val og Jóhanni Ásmundssyni. Við tök- um Steve Wonder og grúvum á honrnn. Ég er síðan á leiðinn til London í haust en það er ég búinn að ganga með í maganum lengi. Ætla að sjá hvort hægt sé að lifa af þessu þar. Stórborgin togar svo sterkt í mig að ég bara verð að fara.“ Svo er þaö þetta trió sem fer aö túra landiö núna. „Þetta er svona samsuðuband, sem tekur niðri víðs vegar í ís- lenskri dægurlagaflóru." Þannig aó þió gangiö ekki aö landsbyggöinni dauöri meö frídjassi og veröir baröir í köku af frústreruöum sjóurum? „Nei, við verðum sennilega ekki lamdir. Þetta er ekki endilega djas- stríó. Við verðum fjörugir og léttir og ættum að geta gengið í eyrun á öllum sem vilja.“ -Bb ekki ___varst 22. júní 197 kl. 22:00 © 7(J Hannes Hólmsteinn Gissurarson var alvörugefinn gleraugnaglámur sum- ariö 1970. „Já, ég þykist vita hvar ég var. Ég var að vinna við mæl- ingar uppi við Sigöldu sem að- stoðarmaður Gísla ísleifssonar hjá Þórisósi. Ég var nýbúinn með fjórða bekk í MR og á leið- inni í þann fimmta. Led Zeppel- in, segirðu. Nei, ég minnist þess ekki að hafa verið sár að missa af henni. Þessi bylgja fór að mestu leyti fram hjá mér. Ég fylgdist lítið með tónlist og var því meira í bókum og í því að vinna fyrir náminu á sumrin. Ég var alvörugefinn ungur gler- augnaglámur sem kreisti ung- lingabólur. Nú er ég með linsur og fær í flestan sjó! Ég hef lært að meta tónlist í seinni tíð - bæði klassík og dægurtónlist.“ Oskar Guðjónsson er yfirgengilega góður saxisti og fullur af atorku. Hann var farinn að spila undir hjá plötusnúðum á X-inu fyrir fimm árum og hefur verið ötull síðustu misseri víð að kynna samborgurum sínum þessa kynlegu blöndu af lifandí tónlist og saxófónleik. Ekki lætur hann þar við sitja heldur stefnír hann á hringferð um landið og til London í haust. m senmle 6 f Ó k U S 2. júlí 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.