Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1999, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1999, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 3. ÁGÚST 1999 13 Fréttir Vallaður Pálsson, sendibílstjóri á áttræðisaldri: Handtekinn fyrir engar sakir - bólginn eftir handjárn Vallaður Pálsson, sendibílstjóri númer eitt hjá Þresti, er búinn að keyra sendibíl í 44 ár og hefúr aldrei lent í neinu sérstöku. Hann var að keyra Vegmúlann síðasta fostudag og ætlaði að beygja inn í Ármúla til austurs þegar hann sá að lögreglan var búin að loka götunni á kafla. „Þeir vísuðu mér frá en ég bað þá um að hleypa mér fram hjá því þetta voru bara fjórar bíilengdir sem ég ætlaði. Þegar þeir leyfðu mér það ekki fór ég inn á bílastæða- götu þama og keyrði nokkra metra áfram. Hringdi ég svo og bað þá sem ég átti að sækja vörurnar til að koma með þær til mín. Ég fór út og ætlaði að kveikja mér í sígarettu þegar tveir lögregluþjónar komu. Ég spurði þá hvað stæði til, Áður en ég vissi af sögðu þeir að ég væri hand- tekinn, ég var handjámaður og far- ið með mig niður á stöð,“ segir Vali- aður. Hann er með bólginn fmgur eftir viðskiptin við lögregluna en honum fannst þeir hafa tekið allhressilega á sér. Á lögreglustöðinni talaði varðstjóri við hann. „Ég var með vörur í bílnum sem kosta hátt í mUljón og þegar ég spurði lögregluþjónana sem hand- tóku mig hvort þeir ætluðu að skiija lykiana og vörumar eftir í bílnum söðu þeir að þetta væri ekki þeirra mál. Þetta var algjör vitleysa, ein- hverjir strákhvolpar sem má ekki yrða á. Þeir sögðu að ég hefði ráðist á þá sem er þvæla. Ég herti á vöðv- unum þegar þeir reyndu að smella jámuniun á mig en það vom ósjálf- ráð viðbrögð. Ég skil ekki vinnu- brögðin hjá þeim,“ segir Vallaður sem er að hugsa um að kæra málið. Ekki náðist í lögreglumenn sem komu að málinu. -EIS Vallaður Pálsson sendibílstjóri við bíl sinn. Hann var handtekinn fyrir litlar sem engar sakir. 1800 cc, H2 hestafla vél • Viðarinnrétting Álfelgur * Vindkljúfur • ABS * Loftpúðar Fjarstýrðar samlaesingar • Þjófavörn og margt fleira PEUCEOT Ljón 4 vejiwfyl Gullna • / ©

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.