Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1999, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1999
t
ÞRIÐJUDAGUR 24. AGUST 1999
25
Sport
^ Landsleikir í EM gegn Andorra og Úkraínu:
Utlendingahersveit
- aðeins einn heimamaður í 22 manna landsliðshópi
Sport
oka
Manchestcr United gæti verið í
nokkrum markmanns-
vandræðum þar sem
Mark Bosnich, til
vinstri, er meiddur á
vöðva og varamark-
vörðurinn Raimond
Van Der Gouw meidd-
ist í leik á sunnudag
gegn Arsenal. Gouw
fékk högg á kjálkann er
hné Martins Keowns hafnaði í andliti
hans.
Hinn 21 árs gamli Nick Culkin kom
inn á gegn Arsenal en United-menn
vona að þeir þurfi ekki aö nota hann í
næsta leik gegn Coventry á morgun.
Þjálfari United, Steve McClaren,
sagði: „Þetta er ekkert mjög slæmt,
Gouw er bólginn undir auga, hann
ætti að vera í lagi á miðvikudaginn
- vona ég.“
Opna Toyota-mótiö i golfí var haldið
í Grafarholti á sunnudaginn. Spilaður
var höggleikur, tveir flokkar. Var ann-
ar flokkurinn án forgjafar (hámarks-
forgjöf 7,4) og hinn meö forgjöf. Þar
var gefin hæst 24 í vallarforgjöf. Voru
veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í
hvorum flokki og nándarverðiaun á 2.,
6. og 17. var bíll fyrir holu í höggi á 11.
braut en hann gekk ekki út.
Úrslit án forgjafar:
1. Björgvin Sigurbergsson, GK .. 73
2. Haraldur H. Heimisson, GR ... 76
3. Siguijón Amarsson GR.........77
Með forgjöf:
1. Vignir B. Hauksson, GR ......67
2. Matthías Einarsson, GR.......68
3. Amar Gauti Reynisson, GR . . . 68
Tryggvi Traustason úr GSE sigraði
án forgjafar á Merrild-mótinu í golfi
sem fram fór á Hvaleyrarvelli um helg-
ina. Tryggvi lék á 75 höggum. Ólafur
Þór Ágústsson, GK, kom næstur á 77
höggum og Gunnar Marel þriðji á 78
höggum. Með forgjöf sigraði Jón
Tryggvi Helgason, GSE, á 71 höggi,
Gunnar Marel var á 72 og Stefán
Haróarson, GSE, á 73 höggum.
Arnar Gunnlaugsson er enn meiddur
og spilar ekki með Leicester þegar það
mætir Middlesbrough í ensku A-deild-
inni í kvöld. Amar, sem gekkst undir
aðgerð í nára í sumar, hefur enn ekki
fengið sig góðan af meiðslunum og
Martin O’Neill, stjóri liðsins, segist
ekki vita hvenær hann geti teflt Am-
ari fram. Frá því Amar gekk í raðir
Leicester frá Bolton hefur hann aöeins
spilað 5 leiki með liðinu.
Guöni Bergsson er hins vegar að
braggast en meiðsli í kálfa hafa komiö
í veg fyrir að hann hafi getað spilað
með Bolton í B-deildinni. Ráðgert er að
Guðni spili með varaliði Bolton gegn
Blackbum í næstu viku og sleppi hann
frá þeim leik án meiðsla er líklegt að
hann spili fljótlega með aðalliðinu.
Anja Anderson, besta handknattleiks-
kona heims, hefur lagt skóna á hill-
una. Ástæðan er hjartatruflanir sem
hafa verið að plaga hana á undanföm-
um misserum. Anderson hefur verið
lykilleikmaður í hinu sigursæla
danska landsliði sem er bæði heims-
og ólympíumeistari og einnig hefur
hún verið skærasta stjaman hjá
norska liðinu Bækkelaget.
11 af 18 þjálfurum í þýsku A-deild-
inni i handknattleik
segja að Kiel verði þýsk-
ur meistari eins og á
siðasta tímabili, 5 tippa
á Flensburg og tveir
veðja á Lemgo og Mag-
deburg, liðið sem Al-
freö Gislason, til
haégri, þjálfar og Ólaf-
ur Stefánsson leikur
með. Keppnistímabilið í Þýskalandi
hefst um næstu helgi en þá verður
flautað til leiks í A-deildinni.
Leifur Sigfinnur Garðarsson
köriúknattleiksdómari hefur verið út-
nefndur af Alþjóða körfuknattleiks-
sambandinu til að dæma 2 leiki í
Hollandi. Þann 21. september dæmir
hann leik Ricoh Astonauts frá
Hollandi og Lietuvos Rytas frá Litháen
í Evrópukeppni bikarhafa og daginn
eftir dæmir hann leik Donar frá
Hollandi, liðs Herberts Arnarsonar,
og Lugano frá Sviss í Evrópukeppni fé-
lagsliða. Þá hefur Pétur Hrafn Sig-
urösson verið útnefndur eftirlitsmað-
ur í EM unglingalandsliöa kvenna sem
fram fer á Cork á írlandi, 25.-30. ágúst.
Robert Kelly Gresham, sem leikið
hefur með KVA i 1. deildinni S
knattspymu í sumar, er hættur ef
marka má orð hans í leiknum gegn KA
um síðustu helgi þar sem KVA tapaöi
stórt. Á 19. mínútu leiksins rölti
Gresham af leikvelli og sagðist ekki
standa í þessu lengur. Hann fékk gult
spjald en það breytti því ekki að hann
lék ekki meira með í umræddum leik.
-ÍBE/GH
Úrslit á HI'E í Sevilla
Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfari í knatt-
spymu, valdi í gær 22 manna landsliðshóp fyr-
ir leikina gegn Andorra og Úkraínu í und-
ankeppni Evrópumóts landsliða sem fram fara
á Laugardalsvelli 4. og 8. september. Það er
sannkölluð „útlendingahersveit" sem Guðjón
velur en af 22 leikmönnum í liðinu er aðeins
einn, Birkir Kristinsson, sem leikur með is-
lensku félagsliði.
Hópurinn sem kemur saman til æfinga 1.
september lítur annars þannig út:
Birkir Kristinsson, ÍBV .. v...............62
Ámi Gautur Arason, Rosenborg ...............4
Ólafúr Gottskálksson, Hibemian..............9
Rúnar Kristinsson, Lilleström .............77
Sigurður Jónsson, Dundee Utd...............63
Eyjólfúr Sverrisson, Hertha ...............51
Þórður Guðjónsson, Genk ...................32
Helgi Sigurðsson, Panathinaikos ...........28
Lárus Orri Sigurðsson, Stoke...............28
Ríkharður Daðason, Viking..................25
Hermann Hreiðarsson, Brentford.............24
Brynjar B. Gunnarsson, Örgryte ............18
Helgi Kolviðsson, Mainz....................16
Steinar D. Adolfsson, Kongsvinger..........14
Auðun Helgason, Viking ....................11
Pétur Marteinsson, Stabæk .................11
Tryggvi Guðmundsson, Tromsö................11
Bjami Guöjónsson, Genk......................6
Heiðar Helguson, Lilleström ................4
Jóhann B. Guðmundsson, Watford..............3
Eiður S. Guðjohnsen, Bolton ................1
Amar Þór Viðarsson, Lokeren.................1
„Megnið af þessum hóp er búið að fara í
gegnum þennan riðil og ég treysti honum full-
komlega. Ég vildi velja svona stóran hóp þar
sem nokkrir leikmenn eru á gráu svæði vegna
meiðsla og þá gætu orðið forfóll eftir næstu
helgi en þá eiga allir þessir strákar að spila með
liðum sínum,“ sagði Guðjón á blaðamannafundi
þegar hann tilkynnti liðið.
Allir verða tilbúnir í slaginn
Leikmennimir sem eru meiddir og hafa átt í
meiðslum eru Eyjólfur Sverrisson, Auðun
Helgason, Pétur Marteinsson, Rúnar Kristins-
'W3L ; I son og Þórður
1 Guðjónsson en
Guðjón segir að
eftir að hafa rætt
viðþá segistþeir
vera tilbúnir í
slaginn.
Ólafur
skálksson,
hann B.
mundsson
Amar Þór
fyrir okkur upp á framhaldið. Hann verður að
vinnast og það verður ekki auðvelt. Þetta er
mjög hættulegur leikur og Andorra-liðið er
sýnd veiði en ekki gefm. Frakkamir vora í
mesta basli með að leggja Andorra-menn á sín-
um heimavelli og unnu 1-0 með marki úr víta-
spymu á síðustu mínútum leiksins. Leiknum
gegn Úkraínumönnum má iíkja við rúss-
neska rúllettu. Þar getur allt gerst en fyrst
verðum við að einbeita okkur að And-
orra-leiknum. Það skiptir mjög miklu
máli að fólk mæti á völlinn og styðji
viö bakið á liðinu og það gæti
ráðið úrslitum,“ sagði Guðjón.
Gott-
Jó-
Guð-
og
Viö-
arsson hafa ekki
Guðjón Þórðarson velur
aðeins einn heimamann í 22
manna hóp sinn.
veriö í landsliðshópnum í þessari undankeppni
fyrr en nú en þeir Bjami Guðjónsson og Eiður
Smári Guðjohnsen hafa verið valdir en ekki
verið með þegar á reyndi vegna meiðsla.
Það þarf vart að tíunda um mikilvægi
þessara leikja hjá íslenska landsliðinu sem
eygir möguleika á að komast í úrslit á stór-
móti í fyrsta skipti.
Þremur umferðum er ólokið í 4. riðlinum
sem er mjög spennandi. Staðan er þessi:
Úkraína
Frakkland
Rússland
ísland
Armenía
Andorra
Leikimir sem eftir eru:
4. september: Ísland-Andorra,
Úkraína-Frakkland, Rúss-
land-Armenía
8. september: Island-Úkralna,
Andorra-Rússland, Armen-
ía-Frakkland
9. október: Frakkland-ísland, .
Andorra-Armenía, Rúss-
land-Úkraína
Langstökk kvenna:
1. Niurka Montalvo, Spáni .... 7,06
2. Fiona May, ítallu...........6,94
3. Marion Jones, Bandaríkjunum 6,83
4. Lydmila Galkina, Rússlandi . 6,82
5. Joanne Wise, Bretlandi......6,75
Hástökk karla:
1. Vyacheslav Voronin, Rússlandi.. 2,37
2. Mark Boswell, Kanada........2,35
3. Martin Buss, Þýskalandi .... 2,32
4. Dragutin Topic, Júgóslavíu .. 2,32
5. Staífan Strand, Svíþjóð ....2,29
Kringlukast kvenna:
1. Franka Dietzsch, Þýskalandi 68,14
2. Anastasia Keleidou, Grikkl. 66,05
3. Nicoleta Grasu, Rúmenía 65,35
4. Natalya Sadova, Rússlandi 64,98
5. Beatrice Faumuina, Nýja-SjáL 64,62
3000 m hindrunarhlaup karla:
1. Christopher Koskei, Kenýa 8,11:76
• 2. Wilson Kipketer, Kenýa .. 8,12:09
3. Ali Ezzine, Marokkó......8,12;73
4. Damian Kallabis, Þýskalandi 8,13;11
5. Bemard Barmasai, Kenýa .. 8,13;51
í dag fara fram úrslit um heims-
meistaratitilinn i sleggjukasti kvenna,
þrístökki kvenna, kringlukasti karla,
800 metra hlaupi kvenna, 1500 metra
hlaupi karla og 10 þúsund metra
hlaupi karla. Þá fara fram undanúrslit
1110 metra grindahlaupi karla og 400
metra hlaupi kvenna.
Jón Arnar Magnússon hóf keppni í
morgun í tugþrautinni. Hann hljóp 100
metrana (klukkan 8.00), stökk lang-
stökkið (9.00) og kastaði kúlunni
(10.45) fyrir hádegi en mun stökkva há-
stökkið (16.30) og hlaupa 400 metra
hlaupið (20.10) seinna í dag. -ÓÓJ
Niurka Montalvo frá Spáni flýgur hér fyrir
neðan í lokastökki sínu sem tryggði henni
heimsmeistaratitilinn í langstökki kvenna.
Hún stökk 7,06 metra sem er spænskt met.
Langþráður
Liverpool-sigur
Liverpool vann Leeds, 1-2, á útiveOi í
ensku A-deildinni í gær. Leeds tók
forustuna í leiknum en Liverpool, sem
hafði tapaö tveimur leikjum í röð án
þess að skora, komst aftur inn í leikinn
og tryggði sér sigur með tveimur
mörkum.
Titi Camara skoraði glæsilegt mark
er hann jafnaði en hin tvö vom bæði
sjálfsmörk, fyrst hjá Rigobert Song hjá
Liverpool og svo Lucas Radebe hjá
Leeds í seinni hálfleik.
Með sigrinum komst Liverpool upp í
níunda sætið úr því 17. og um leið
léttist aðeins á pressunni á Gerard
Houllier, framkvæmdastjóra liösins.
Hann lét tvo enska landsliðsmenn fara
frá liðinu fyrir tímabilið, þá Paul Ince
og Steve McMannaman, en keypti í
staðinn aðeins erlenda leikmenn. -ÓÓJ
íslandsmót í hjólreiðum:
Gunnlaugur meistari
Gunnlaugur Jónasson varð Is-
landsmeistari í timakeppni á götu-
hjólum um helgina eftir mjög
spennandi keppni sem háð var á 20
km langri leið um Ölfusið.
í tímakeppni era keppendur
ræstir einn og einn í einu með einn-
ar mínútu millibili þannig að ekki
má nýta sogið eða skjólið frá öðrum
keppendum eins og gjarnan er gert
þegar um hópstart er að ræða.
Gunnlaugur hjólaði tuttugu kíló-
metrana á rétt tæplega 40 kílómetra
hraða á klukkustund og bar að
iessu sinni sigurorð af hjólakemp-
unni Einari Jóhannssyni sem varð *
annar að þessu sinni.
Gunnlaugur kom i mark á 30,14
mínútum, Einar varð annar á 30,38
mínútum og Guðmundur Guð-
mundsson þriðji á 31,59 mínútum
Einar varð hins vegar íslands-
meistari í hópstarti götuhjólreiða
fyrr í sumar en þá varð Gunnlaugur
þriðji á eftir Styrmi G. Ólafssyni.
í unglingaflokki sígraði Emil
Guðmundsson en hann er einnig ís-
landsmeistari unglinga í hópstarti.
Emil hjólaði 20 kílómetrana á 35,32
mínútum. -GH
Úrslitin ráöast á Elland Road í gær. Lucas
Radebe hjá Leeds verður fyrír því óhappi að
skora sjálfsmark er hann reynir að hindra Robbie
Fowler hjá Liverpool í að komast í boltann.
Kyrrahafsmeistaramótið í sundi
fer fram um þessar mundir í Sidn-
ey i Ástralíu. Þetta er síðasta stór-
mótið sem haldið er í sundi fyrir
ólympíuleikana sem haldnir veröa
í sömu laug á næsta ári. Sund-
menn virðast í feiknaformi og
heimsmetin hríðfalla á mótinu.
Ameríska sundkonan Jenny
Thompson sló í dag næstelsta
sundmet sögunnar er hún synti 100
metra flugsund á 57,88 sekúndum í
undanúrslitum meistaramótsins.
Hin 26 ára gamla Thompson sló
loks út 18 ára gamalt met Mary T.
Meagher sem hún setti er hún
synti á tímanum 57,93 sekúndum
árið 1981.
Heimamaðurinn Ian Thorpe
setti sitt annað heimsmet á einum
,
___________________
Sjöþrautin spennandi
íslandsmótið í fjölþraut fijáisra íþrótta fór fram á Laugarvatni um síðustu helgi á góðum velli HSK-
manna. Keppni í sjöþraut kvenna var spennadi og skemmtileg en veðrið skemmdi þó nokkuð fyrir árangri
á laugardeginum. Til að mynda missti Gunnhildur Hinriksdóttir úr heila grein, eða spjótkast þar sem hún
náði ekki að kasta spjótinu vegna mikils vinds.
í fyrsta sæti var Vilborg Jóhannsdóttir úr Tindastóli með 4228 stig, önnur varð Ágústa Tryggvadóttir,
HSK, en hun var aðeins 9 stigum á eftir Vilborgu. í þriðja sæti hafnaði síðan Gunnhildur. í tugþraut karla
sigraði Ólafur Guðmundsson, HSK en hann hlaut 6225 stig. í öðra sæti var Sverri Guðmundsson, ÍR með
5471 stig og þriðji varð Örvar Ólafsson, HSK með 5371 stig. Árangur þessi telst ekki góður í tugþraut
en þess má rekja til aðstæðna sem voru mjög erfiðar til þess að stökkva stangarstökk og einnig
jjy kastgreinum. íþróttafólkið tók veðrinu hins vegar með opnum huga og lagði sig fram og úr
^varð hin skemmtilegasta keppni. ' -ÍBE
á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Sevilla í gær:
• •
Fyrsta umferð í 110 metra grindahlaupi var f gær. Bandaríkjamaðurinn Mark Crear
virðir fyrír sér hlaupaleiðina áður en hann tryggir sér sæti í næstu umferð.
jones varo ao
sætta sig við bronsið í
langstökkinu og þar
með að gefa eftir
drauminn um fjögur
gujl á HM. 41
Heimsmetin falla
og sama sólarhringnum er
hann synti 200 metra skriðsund
á 46,34 sekúndum í undanúrslit-
um mótsins. Thorpe hafði rétt
lokið við að bæta heimsmetiö í
400 metra skriðsundi þrátt fyrir
að vera aðeins 16 ára gamall
Hin suður-afríska Penny
Heyns hélt áfram að standa sig
vel en hún hóf aftur keppni á
leikunum eftir árs hlé. Heyns
setti fimmta heimsmet sitt á
jafnmörgum vikum i 100 metra
bringusundi er hún synti á
1:06,52 mínútum. -ÍBE
Bandaríska sundkonan Jenny
Thompson sló næstelsta
heimsmet sögunnar og trúði því
vart sjálf í lok sundsins.
Heima-
stúlka
komst í sviðs-
ljósið í gær
þriðja degi heimsmeist-
aramótsins í frjálsum
íþróttum. Hin spænska Ni-
urka Montalvo kom nefnilega
skemmtilega á óvart og tryggði sér
sigurinn í langstökki kvenna með frábæra lokastökki sem
færði hana úr sjöunda sæti upp í það fyrsta.
Þar með sló hún við ítalanum Fionu May og þeirri
bandarísku Marion Jones en sú síðastnefnda missti af mögu-
leikanum á verða sú fyrsta til að vinna fjögur gull á einu
heimsmeistaramóti er hún endaöi í þriðja sæti í langstökkinu.
May hafði forustu allan tímann en með lokastökki sínu
komst Montalvo upp fyrir hana. May átti þá eitt stökk eftir en
það var of stutt og hún varð að sætta sig við silfrið. Hún gagn-
rýndi dómarana sem að margra mati, aðallega ítala, sást yfir
þegar Montalvo gert örfint ógOt í sigurstökkinu.
En
það þýðir
ekki að deila
við dómarann og hin
árs gamla Niurka
sem er upprunalega
frá Kúbu en gerðist spænskur ríkis-
borgari í maí siðastliðnum, tryggði ^
heimamönnum, Spánverjum, sitt
fyrsta gull á HM í ár. Þess má geta að
með því að stökkva 7,06 metra í gær
setti hún spænskt met og á hún nú
bæði spænska og kúbverska metið (6,89 m).
Tvöfalt hjá Kenýamönnum
Kenýa vann tvöfaldan sigur í 3000 metra hindranarhlaupi
en fjórir þaðan yora i sjö efstu sætunum. Sigurstranglegasti
Kenýamaðurinn, Bernard Barmasai, sem á heimsmetið í
greininni, var þó ekki einn af þessum tveimur fremstu enda er
framboðið mikið af frábærum hlaupurum frá Kenýa. Sigurveg-
arinn var Christopher Koskei eftir harða keppni við
landa sinn Wilson Kipketer.
Rússneskur sigur í hástökkinu
Rússinn Vyacheslav Voronin náði sinum besta árangri og
jafnframt þeim besta i heiminum á árinu er hann tryggði sér
sigur i hástökki með stökki upp á 2,37 metra. Voronin hafði lent
ítrekað í öðru sæti á síðustu stórmótum en náði loks að tryggja
sér gullið. Silfrið fékk Kanadamaðurinn Mark Boswell sem setti
landsmet er hann stökk yfir 2,35 metra i þriðju tilraun.
Annað gull Þjóðverja
Þjóðverjar eru sterkir í kastgreinunum á heimsmeistara-
mótinu og hin þýska Franka Dietzcsch, sem einnig er Evrópu-
meistari, tryggði sér sigur í kringlukasti kvenna. Hinn 31 árs
gamli kastari tryggði sér sigurinn strax í fyrsta kasti og
fékk uppreisn æru frá því á síöasta heimsmeistar-
móti árið 1997 er hún komst ekki í úrslit þar sem
hún gerði þrjú ógild köst í undankeppninni.
Þjóðverjar eiga mikla möguleika á að fagna
þriðja heimsmeistaratitlinum í kastgreinum er
Lars Riedel tekur þátt í kringulkasti karla í dag en
hann hefur unnið fjóra heimsmeistaratitla í röð í greininni.
Bandaríkjamenn hafa unnið flest gull eða fjögur eftir þrjá
fyrstu dagana en Rússar og Þjóðverar hafa unnið tvö gull hvor
þjóð. Eitt gull hafa unnið Kenýa, Frakkland og Spánn. -ÓÓJ
100 ára afmæli
Góðar líkur era á að Sigursteinn Gíslason og
Bjami Þorsteinsson verði klárir í slaginn þegar
KR-ingar mæta skoska liðinu Kilmarnock í síðari
leik liðanna í Evrópukeppninni í knattspyrnu í
Skotlandi á fimmtudaginn.
Þeir meiddust báðir í leiknum gegn Breiðabliki
á laugardaginn og í fyrstu var óttast að þeir heföi
brotnað, Sigursteinn á tá og Bjarni
viðbeinsbrotnað. Við nánari skoðun hefur komið i
ljós að svo var ekki og eru þeir báðir í meðferð hjá
læknum KR-liðsins. Skotinn David Winnie er hins
vegar fmgurbrotinn en það kemur ekki í veg fyrir
að hann geti spilað.
Mikil hátíðarhöld verða í kringum
Evrópuleikinn á fimmtudaginn en þá eru upp á dag
100 ár síðan Kilmarnock lék fyrst á Rugby Park
vellinum í Kilmarnock. Af því tilefni hefur
miðaverð á leikinn verið lækkað og er reiknað með
að verði uppselt á hann en völlurinn tekur um
18.000 manns. -GH