Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1999, Blaðsíða 15
bíódómur Saga-bíó Prince Valiant ★ ★ og vfK- ioáamir Rúm sjötíu ár eru síðan Prince Valiant leit dagsins ljós í teikni- myndaseríum Harolds R. Fosters og urðu vinsældir hans strax mjög miklar. Hér á landi var hann um árabil í blöðum og nokkrar bækur hafa verið gefnar út um kappann. Hann hefur ekki heldur farið var- hluta af kvikmyndum og var fyrst gerð mynd um kappann árið 1954 og var þar um að ræða Hollywood- mynd af stærri gerðinni. Þessi nýja útgáfa er evrópsk, gerð af þýskum og breskum kvikmynda- gerðarmönnum í anda Hollywood og er ekki hægt að segja annað en sæmilega hafi tekist til. Myndin rennur vel i gegn, hefur ágætan húmor og lætur áhorfandann aldrei gleyma því að Valiant er fyrst og fremst ævitýrapersóna með því að rjúfa af og til atburða- rásina og segja framhaldið í stuttu teiknimynda- _ formi. Það virk- ar vel vegna þess að í mynd- inni er ekkert i verið að reyna | að koma þekkt- um þjóðsagna-, persónum á, borð við Arth- ur konung eða Morgan La Fay í þann bás sem hefðin hef- ur skapað heldur er til að mynda Morgan La Fay látinn búa í útlegð meðal víkinga íklædd svörtum búningi og minnir mest á Batwoman. Segja má að myndin sé nokkurs konar forspil að teiknimyndaserí- unni því við kynnumst Valiant fyrst sem ungum munaðarlausum pilti í þjónustu eins riddara hring- borðsins. Þegar húsbóndi hans er felldur kemur í ljós að ungi piltur- inn er miklum hæfileikum búinn. Hann er sendur Ilenu prinsessu til vemdar á leið hennar til síns heima þar sem allir riddararnir eru í björgunarleiðangri en vík- ingar hafa stolið sverðinu góða, Excalibur. Leiðir Valiants og riddaranna liggja þó saman og Valiant tekur fljótt við foringja- hlutverkinu, enda kemur í ljós síð- ar að hann er prins, að vísu vík- ingaprins... Prince Valiant, sem er gamal- dags ævintýramynd, hefur meira skemmtanagildi en margar mun dýrari ævintýrakvikmyndir frá Hollywood þar sem persónur eru nánast aukaatriði á kostnað tækn- innar. Hér eru persónurnar, sem þó margar hverjar eru heldur létt- vægar, það sem myndin snýst um. Leikarar eru flestir lítt þekktir og er dálítill byrjendabragur á leik þeirra, þeir reyndustu á borð við Edward Fox og Joanna Lumley eru á heimaslóðum og fara létt í gegn um sín hlutverk. Prince Valiant er þegar best læt- ur létt og skemmtileg afþreying en vantar þó mikið upp á að ná gæð- um kvikmynda á borö við Excali- bur (John Boorman, 1981), sem fjallar um margar sömu persón- urnar. Leikstjóri Anthony Hickox. Handrit: Michael Frost Beckner, Anthony Hickox og Carsten Lor- enz. Kvikmyndataka Roger Lanser. Tónlist David Bergeaud. Aðalleikarar: Stephen Moyer, Katherine Heigl, Thomas Kretschmann, Joanna Lumley og Edward Fox. Hilmar Karlsson Jones vill gera fram- hald af Men In Black Tommy Lee Jones hefur lýst þvf yflr að fyrra bragði að hann sé til- búinn að leika í framhaldi af Men In Black. Mikið hefur verið skrif- að og rætt um framhald þessarar vinsælu kvikmyndar en ekkert er á borðinu ennþá um gerð hennar og er jafnvel talað um ef að verð- ur að minnka kostnaðinn með því að sleppa bæði Jones og Will Tommy Lee Jones í hlutverki sínu í Men in Biack. Smith og gera persónuna sem Linda Fiorentino lék að aðalper- sónu. Þótt svo fari að Jones fái ekki hlutverkið þarf Jones ekki að kvarta yfir atvinnuleysi. Hann leikur aðalhlutverkið í Double Jeopardy sem var vinsælasta kvikmyndin vestan hafs um síð- ustu helgi og er nýbúinn að leika í Rules of Engagement, réttar- drama sem William Friedkin leik- stýrir og er þessa dagana að hefja leik í Space Cowboys sem Clint Eastwood leikstýrir. Ef þú svarar þessari krossgátu rétt/ sendum við þér KitKat bol. Mjólk- ur | afurð j Sér- hljóði Á und- an , emm| Bikar- meistarar 22 Á undan ú —► 4 Kaffi- tegund M e r r / / d Lær- lingur Úr hænu + Nútíð 1 iH r L 1 Eftir Ekki Snögg- ur S 2 sér- hljóðar Ú Á eftir ell lpere. T 1 k 14 Mála i [j Belja 19 k Puð 1 Kven- manns nafn 10 n Fyrstur í stafr. 2 per- sóna^ T 5 Sér- hljóði 15 U 20 Tiá- nmqa ^-tæki 1 Drykk- ur - 1 21 Ekki inn •éík • Grís sem hélt að hann væri fjárhundur—► a 8 ♦ Tónn 23 - C W m m Vv !!•* Bók- stafur 3ð Bók 1 Vel borð-i andi v 2 eins 1 Kvik- mynd sýnd í . 13 s' “Er T 2 Kind / 18 Eftir e —♦— 12 Karl- manns nafn| m f Fáðu þér bita - fáðu þér... k 9 24 2 eins a Fín- gerð e íslensk- ur 1 stafuri 2 eins h- Belti 7 r 17 Sér- hljóði -► — X Kemur úr — strompi ‘S e r t Sendu inn lausnarorðið til: Pósthólf 4132,124 Reykjavík merkt KitKat ásamt nafni, heimilisfangi, póstnúmeri og síma og þú færð sendan KitKat bol. Fáðu þér bita fáðu þér KitKat Lausnarorð ð i 2 i 4 S 9 10 U 12 13 14 u 15 1161 17. 19 20 21 22 23 24 1. október 1999 f Ókus 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.