Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1999, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 1999
ennmg
23
Örlagasaga
Guöjón Sveinsson gefur út fjóröa
og síöasta bindió af Sögunni af Dan-
íel - Út úr blánóttinni - í ár, en hiö
fyrsta, Undir bláu augliti eilífðar-
innar, kom út 1994. Söguhetjan Dan-
íel er fœddur seint á Jjórða áratug
aldarinnar og veröur fyrir því níu
ára aö missa fööur sinn í sjóinn. Þá
er hann skilinn frá móður sinni og
systkinum og sendur til ömmu sinn-
ar í annarri sveit. Guðjón rekur síö-
an sögu Daníels frá þessum átakan-
legu þáttaskilum i lífi hans til full-
orðinsára.
„Ætlunarverk mitt var - án þess
að ég gerði mér ljósa grein fyrir því
frá upphafi - að rekja örlagasögu
vinar mins, því Daniel á sér fyrir-
mynd sem ég hef aldrei dregið dul
á,“ segir Guðjón. „Löngunin til aö
segja þessa sögu hefur blundað í
mér lengi því ég man eftir að
minnsta kosti þremur smásögum
sem snerta þetta efni og ég skrifaði
nokkuð löngu áður en ég byijaði á
bálkinum um Daniel; tvær þeirra
felldi ég seinna inn í verkið. Um
1990 byrjaði ég að skrifa söguna
sjálfa og handritið að fyrstu bókinni
gekk um hríð á milli útgefenda en
þeim leist ekkert á það. Eina færa
leiðin - fyrir utan skúffuna - var að
gefa bókina út sjálfur og það gerði
ég.“
- Var þér strax ljóst að þetta yrðu
fjórar bækur?
„Nei, en ég gerði strax ráð fyrir
þremur bókum. Og þegar ég skrifaði
fyrstu setninguna í fyrstu bókinni
þá lá síðasta setningin ljós fyrir. Og
reyndar allt þar á milli nema ein-
Guðjón Sveinsson - hefur lokið
miklu ætlunarverki.
hver smáatriði."
- Þegar þú segir þetta dettur
manni í hug upphaf og endir Heims-
ljóss Laxness, íjaran og fjallið. Tek-
urðu eitthvert mið af stóru skáld-
sögunum hans í byggingu þinnar
sögu?
„Ekki er ég mér þess meðvitaður.
En ég lá á Vífilstöðum í nokkra
mánuði ungur maður og þá las ég
geysilega mikið, meðal annars allt
sem til var af Laxness, Gunnari
Gunnarssyni og fleiri góðum ís-
lenskum höfundum. Daníel vaknar
líka upp á hæli í sinni sögu - og
kannski tvinnast talsvert brot af
mér við lífshlaup Daniels. En ég
vissi ekki til að þessir höfundar
hefðu haft afgerandi áhrif á mig fyr-
ir utan það að ég hef alltaf verið
hallur undir sögulegar skáldsögur.
Nútímasögur geta sjálfsagt verið
ágætar en mér flnnst þær vanta ein-
hvem keim sem gerir þær veruiega
góðar. Viss fjarlægð er ailtaf til
góðs. Sögur úr liðnum tíma finnst
mér alltaf sterkari en þær sem ger-
ast núna, en kannski stafar það af
því að ég þekki nútímann svona
illa.“
- Ertu þá fyrst og fremst að fræða
lesendur þína um liðinn tíma i þess-
um bókum?
„Nei, ég er bara að segja söguna
um Daníel eins og hún kemur inn í
mitt hugskot, eins og hún styðst við
ákveðnar persónur, staði, ákveðið
lífshlaup og ákveðið sögusvið og
ákveðin örlög, því ég er viss um að
forlögin ákváðu hvemig þau tækju
á þessum dreng um leið og hann
missir fóður sinn. Síðan nota ég
ímyndunaraflið og reyni að setja
mig í spor Daníels, finna hvemig
hann upplifði og ályktaði. Þessi
saga var lengi að gerjast í mér og
mótast og ég held að hún sé raun-
sönn. Þetta er saga af lífinu í land-
inu, það er í henni harmur og gleði,
ást og umhyggja og vinskapur. Það
er líka svartasta nótt í þessari sögu
og nístingssárir atburðir. Þetta
blandast allt í sögunni og þess
vegna held ég að hún sé mjög
sterk,“ segir Guðjón og bætir við
eftir örstutta þögn, „þó ég segi sjálf-
ur frá.“
Fjórða bindið af Sögunni um Dan-
íel kemur út hjá Mánabergsútgáf-
unni eins og hinar fyrri.
Xl’DMWW ANDAR
f
20 clzn
Stuðniiiftur xfir magawœðL
Þunnar ú ním.
Sokkabuxur
fyrir opna skó.
„Skerfl framar”
aster
Þú eignast hann ef þú finnur gullbaun í kaffipakka frá Kaaber.
Kíktu í þakkalc
»}{iaberj{affi
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þelm sjálf-
um sem hér seglr:
Eiðismýri 6, íbúðarhúsalóð, Seltjamamesi,
þingi. eig. Sigrún Elísabet Einarsdóttir,
gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður, föstudag-
inn 10. desember 1999, kl. 10.00.
Engjasel 85, 4ra herb. íbúð á 2. hæð t.v.
ásamt stæði í bflageymslu, merkt 100131,
Reykjavík, þingl. eig. Jóhanna Rannveig
Skaftadóttir, gerðarbeiðandi íbúðalána-
sjóður, fostudaginn 10. desember 1999,
kl. 13.30.
Fannafold 111, Reykjavík, þingl. eig.
Guðlaug Kristinsdóttir og Sigurður Ingv-
arsson, gerðarbeiðendur Bjöm og Gylfi
vinnuvélar sf., Búnaðarbanki íslands hf.
og Ibúðalánasjóður, föstudaginn 10. des-
ember 1999, kl. 14.00.
Háaleitisbraut 68, 104 fm verslun á 1.
hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Pizza
kofinn ehf., gerðarbeiðandi Rydenskaffi
hf., föstudaginn 10. desember 1999, kl.
10.30. ______________________________
Hólaberg 6, Reykjavík, þingl. eig. Ástríð-
ur Sigvaldadóttir, gerðarbeiðendur ís-
landsbanki hf., höfuðst. 500, og XCO
ehf., föstudaginn 10. desember 1999, kl.
14.30. ______________________________
Vindás 2, 1 herb. íbúð á 2. hæð, merkt
0205, ásamt sérgeymslu, Reykjavík,
þingl. eig. Helgi Jakob Jakobsson, getðar-
beiðendur Fjármögnun ehf. og íbúðalána-
sjóður, föstudaginn 10. desember 1999,
kl. 15.30.___________________________
Vitastígur 14, íbúð á 1. hæð og í risi í
timburhúsi, Reykjavík, þingl. eig. Friðrik
Jónsson og Jónína Jónsdóttir, geiðarbeið-
andi Samvinnusjóður íslands hf„ föstu-
daginn 10. desember 1999, kl. 11.00.
Vitastígur 14, íbúð í kjallara m.m. (ósam-
þykkt), Reykjavík, þingl. eig. Jónína
Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Samvinnasjóð-
ur Islands hf„ fóstudaginn 10. desember
1999, kl. 11.15.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK