Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Blaðsíða 2
20 MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000 Sport Hvað finnst þér? Hver er uppáhalds- íþróttamaöurinn þinn? Sigurdur Sigurdsson: Það er dóttir mín, Ragna Karen Sigurðardóttir, handknattleiks- kona í Gróttu-KR. Hugrún Björnsdóttir: Ágústa Edda Björnsdóttir, systir mín. Aðalsteinn Jónsson: Þetta var erfíð spurning. Mér finnst Michael Jordan, körfu- boltakappi í Chicago Bulls, rosalega góður. Elva Björk Sverrisdóttir: Vá, þetta er erfið spurning. Ég held ég eigi mér engan uppáhaldsíþróttamann. Mér dettur enginn í hug. Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir: Þormóður (Egilsson) er uppáhaldsíþróttamaðurinn minn, af því hann er svo góður í fótbolta. Magic skoraði 17 stig í Svíþjóð Erwin Magic Johnson skoraði 17 stig fyrir lið sitt, Magic M7, í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik um helgina gegn Sundvall Dragons. M7 sigraði i leiknum, 94-64. Magic er fertugur en í mjög góðri æfingu. Hann leikur af og tU meö liði sínu og hefur æft fimm sinnum i viku síðan í október er hann var síöast á ferðinni i Svíþjóð. -SK Fór í mál við tyggjófyrirtæki Kanadíska skautakonan Myriam Bedard, sem unnið hefur tU guUverð- launa í skauthlaupi á Ólympíuleikum, hefur stefnt tyggjófyrirtækinu Wrigley og sakar fyrirtækið um að hafa notað myndir af sér í auglýsinga- herferð. Bedard segir Wrigley hafa gert þetta án hennar samþykkis og hefur krafist 36,2 miUjóna króna í skaðabætur. -SK Valur Ingimundarson, þjálfari Tindastóls, ásamt börnum sínum. Valur Ingimundarson, hinn sigursæli þjálfari Tindastóls: „Átti von á öllu fyrir tímabilið" „Ég er mjög hreykinn af strákun- um mínum og finnst að þeir eigi heiður skilinn fyrir frammistöðuna. Það er ekki hægt annað en vera ánægður með gengi liðsins. Ég held að fæstir hafl búist við því sem við erum búnir að gera í vetur, þar sem breytingamar voru miklar á liðinu fyrir keppnistímabilið. Núna, þegar Sverrir Þór Sverrisson, sem er að fara i fótboltann tU Grindavík- ur, er farinn erum við búnir að missa átta menn sem voru í hópn- um siðasta tímabUi," segir Valur Ingimundarson, þjálfari Tinda- stólsliðsins í körfubolta, en Stólam- ir hafa verið að gera góöa hluti i vetur, þeir hafa lengst af verið með- al fjögurra efstu liðanna í deUdinni og gerðu sér lítið fyrir og sigruðu í Eggjabikarkeppninni. Að vísu duttu þeir út úr bikar- keppninni í heimaleik gegn Grind- víkingum á dögunum, en komu síð- an sterkir tU baka nokkrum dögum síðar og sigmðu KR-ingana í vestur- bænum sem höfðu ekki tapað heima fram að þeim leik.“ - En áttir þú von á þessu gengi fyrir tímabilið? „Ég átti von á öUu. Ég var með breytt lið, að vísu fékk ég tvo góða Dani tU liðs við okkur og Kristin Friðriksson sem sannarlega er betri en enginn. Svo náðum við okkur í góðan útlending sem passar mjög vel inn í liðið. Eftir að ég hætti að spUa með og við fómm að hafa betri stjóm á hlutunum inni á veUinum hefur þetta smoUið saman og liðið spUað virkUega vel og leikmenn verið að berjast hver fyrir annan. En það sem ég er ánægöastur með er hvað ungu strákamir spUa vel í vetur. Þeir hafa staðið alveg fuU- komlega undir væntingum og eru búnir að leggja virkUega hart að sér. Þeir vita að þetta snýst um það að æfa vel og berjast og eru að upp- skera samkvæmt því.“ - En þið voruð fremur slakir á móti Grindvikingum i bikar- keppninni, hver er skýringin á þvi? „Það vantaöi aUa stemningu í lið- ið í þeim leik og ég held að skýring- in á því hafi verið sú að við lentum í tveimur frestuðum leikjum í röð og menn voru búnir að eyða mörg- um dögum í að „mótívera" sig fyrir leiki sem var frestað og drógust á langinn, fyrst á móti Haukunum í deildinni og síðan Grindvíkingun- um.“ - En þið komið svo sterkir til baka á móti KR? „Já, það var mjög mikUvægt fyrir okkur að ná sigri í þeim leik og komast á sigurbraut að nýju. Strák- amir sýndu vikUegan karakter að sigra á þessum erfiða heimaveUi í vesturbænum." - Liðið er nú i 3.-4. sœtinu og kemst með sigri í frestaða leikn- um móti Haukunum upp að hlið Njarðvikinga og Grindvíkinga á toppnum. Manni heyrist að nú sé krafan að verða eitt af fjórum efstu og ná i oddaleikjaréttinn i úrslitunum, er það nokkuð nema eðlilegt? „Það er náttúrlega ekki hægt að gera þannig kröfur og það væri t.d. óraunhæft að krefjast þess að við spUuðum tU úrslita. Mér finnst mitt unga lið vera búið að gera meira, en hægt er að krefjast í rauninni, en við erum ekki hættir. Ég er reyndar með fimm unglingaflokksstráka í liðinu, þannig að þetta getur verið mjög brothætt og menn verða virki- lega að passa sig á að halda sér á jörðinni. Við erum ekki með eins reynt lið og þessi lið á toppnum sem við erum að berjast við, eins og t.d. Grindvikingar og Njarðvíkingar sem eru með hálft landsliðið. En vitaskuld stefnum við að því að verða eitt af íjórum efstu liðunum, eða öUu heldur stefnum við að því að halda áfram að vinna leikina og þaö ætlum við að gera með því að halda áfram að æfa vel og gera okk- ar besta. Mér finnst ekki hægt að krefjast meira en að við gerum okk- ar besta. Svo sjáum við bara tU hvemig útkoman verður í vor,“ sagði Valur Ingimundarson. -ÞÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.